Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Berserkir á fíkniefnum fóru ránshendi um Akranes Tveir ungir menn undir áhrifum fíkniefna gengu berserksgang á Akranesi í nótt. Þeir brutu rúður í bílum, vinnuvélum og atvinnuhúsum og brutust svo inn í vinnuskúr. Þar stálu þeir ýmsu lauslegu og voru með það í stórum ruslapokum þegar lögregla hafði hendur í hári þeirra. 18.2.2009 08:07
Haldið sofandi eftir gassprenginguna Ungi maðurinn, sem brenndist alvarlega í gassprengingu í gömlu íbúðarhúsi á Akureyri í gærmorgun, var í gær fluttur á sjúkrahús í Reykjavík þar sem honum er haldið sofandi. Hann hefur ekki verið yfirheyrður þannig að málsatvik liggja ekki fyrir. Tuttugu og sex gaskútar reyndust vera í húsinu og eru þeir að líkindum allir þýfi. Talið er að húsið sé ónýtt. 18.2.2009 07:14
Kjarnfóður lækkar í verði Stærstu innflytjendur kjarnfóðurs til landsins, Bústólpi og Lífland, hafa lækkað verð á kjarnfóðri um tvö til fimm prósent. Bændur segja þetta kærkomin tíðindi sem slái aðeins á þörf fyrir hækkun á landbúnaðarafurðum. 18.2.2009 07:10
Töluverð umræða um afnám eftirlaunalaga Töluverð umræða varð um afnám eftirlaunalaganna sem Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra mælti fyrir á Alþingi í gærkvöldi. Samkvæmt því eiga æðstu embættismenn og Alþingismenn að njóta sömu eftirlaunakjara og aðrir opinberir starfsmenn, en ekki forréttinda eins og núna. 18.2.2009 07:07
Íbúðaverð enn á niðurleið Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu hefur lækkað um 3,2 prósent á þremur mánuðum í krónum talið, en mun meira ef hliðsjón er höfð af verðbólgunni í landinu. 18.2.2009 07:02
Ekki frumvarp um að reka mig segir Davíð Ný lög um Seðlabankann ættu ekki að verða til þess að starf bankastjóra yrði auglýst, segja sitjandi bankastjórar. Þeir gagnrýna mjög seðlabankafrumvarpið. 18.2.2009 06:00
Hélt að hætt hefði verið við framsóknarboð Óskars Svandís Svavarsdóttir oddviti Vinstri grænna í borgarstjórn segist hafa gert athugasemdir í forsætisnefnd við fyrirhugaða móttöku Óskars Bergssonar fyrir sveitastjórnarfulltrúa framsóknarflokksins. Hún lét hinsvegar ekki bóka neitt um málið og hélt að af mótökunni yrði ekki. Aðspurð um svipaða móttöku sem hennar flokkur hélt árið 2004 segist Svandís ekki hafa átt sæti í borgarstjórn á þeim tíma en segir að skerpa þurfi á reglum um móttökur á vegum borgarinnar. 17.2.2009 21:33
Pétur Tyrfingsson í framboð fyrir Samfylkingu Pétur Tyrfingsson sálfræðingur hefur ákveðið að taka þátt í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík. Hann segist hafa tekið þetta upp hjá sjálfum sér og hafi ekki fundið fyrir neinni „eftirspurn“. Pétur ætlar ekki að eyða einni krónu í rekstur kosningabaráttu en hans stærsta hjartansmál er að verja heilbrigðisþjónustuna og byggja hana upp. 17.2.2009 22:05
Ólafur Þór í stefnir á þriðja sætið Ólafur Þór Gunnarsson, öldrunarlæknir og bæjarfulltrúi í Kópavogi, gefur kost á sér í 3.-4. sæti í forvali VG í Suðvestur kjördæmi. Ólafur hefur verið bæjarfulltrúi VG í Kópavogi frá 2006 en hefur auk þess gengt öðrum trúnaðarstörfum fyrir flokkinn, og á nú sæti í aðalstjórn hans. 17.2.2009 21:40
Vilhjálmur vill þriðja sætið hjá Sjálfstæðisflokki Vilhjálmur Árnason námsmaður og lögreglumaður hefur ákveðið að gefa kost á sér í 3. - 4. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi í komandi prófkjöri. 17.2.2009 20:00
Minni samgöngumiðstöð Samgönguráðherra slær ekkert af kröfum um að samgöngumiðstöð rísi en sér fyrir sér að hún verði minni. Hann ræddi málið við borgarstjóra í morgun. 17.2.2009 20:00
Jónína Rós vill efsta sætið hjá Samfylkingu Jónína Rós Guðmundsdóttir, framhalsskólakennari og formaður bæjarráðs Fljótsdalshéraðs, hefur ákveðið að gefa kost á sér í 1. - 2. sæti á lista Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar. 17.2.2009 20:00
Framsóknarboð Óskars: Braut engar reglur Óskar Bergsson formaður borgarráðs segir engar reglur hafa verið brotnar þegar hann hélt móttöku fyrir sveitastjórnarfulltrúa framsóknarflokksins sem sátu ráðstefnu á vegum flokksins í Ráðhúsinu. Hann segir engar athugasemdir hafa verið bókaðar í forsætisnefnd vegna málsins og heyrði fyrst af þeim í dag. Hann vill ekki svara því til hvort hann ætli að segja af sér vegna málsins. 17.2.2009 19:35
Skúli vill annað sætið í Reykjavík Skúli Helgason býður sig fram í forystusveit Samfylkingarinnar í Reykjavík í komandi alþingiskosningum. Skúli mun sækjast eftir 4. sæti í prófkjöri flokksins sem fram fer 14. mars. Skúli hefur verið framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar undanfarin þrjú ár en hann hefur sagt starfi sínu lausu og hættir á morgun. 17.2.2009 18:45
Barnaspítali Hringsins nálgast öryggismörk Barnaspítali Hringsins nálgast öryggismörk vegna niðurskurðar, en fyrirsjáanlegt er að fækka þurfi stöðugildum og deildir verði sameinaðar. 17.2.2009 18:45
Seðlabankafrumvarp skapar stjórnsýslubastarð Þeir tveir seðlabankastjórar sem enn starfa, telja að ef frumvarp ríkisstjórnarinnar um yfirstjórn bankans verði að lögum skapi það stjórnsýslubastarð. Frumvarpið feli ekki í sér að Davíð Odsson þurfi að láta af störfum. 17.2.2009 18:45
Lúxusbílar Kaupþings seldir með 75% afslætti Algengur afsláttur af lúxusbílum í dag er á bilinu 30 til 40 prósent að sögn eiganda bílsölu. Útlendingar fá aftur á móti helmings afslátt af slíkum bílum. Kaupþing seldi sinn bílaflota með allt að 75 prósenta afslætti. 17.2.2009 18:39
Fórnarlamb hnífsstungu: Of þungur dómur Karlmaður á þrítugsaldri, var í dag dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir að stinga hálfbróður sinn í bakið. Fórnarlambið segir dóminn yfir litla bróður sínum allt of þungan. 17.2.2009 18:30
Eyddu margföldum sparnaði Landspítalans í lúxus Stjórnendum Landspítalans er gert að spara tvo komma sex milljarða króna á þessu ári og útlit er fyrir að það sé bara byrjunin. Það eru þó smáaurar miðað við tölurnar sem tengjast landvinningum útrásarvíkinga síðustu misseri. 17.2.2009 18:23
Dagur og Svandís gagnrýndu veisluhöld Óskars Borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, Dagur B. Eggertsson, segist hafa gagnrýnt áform Óskars Bergssonar vegna fundar sem hann hélt með sveitarstjórnarfulltrúum Framsóknarflokksins í Ráðhúsinu. 17.2.2009 17:01
Óskar fékk leyfi forsætisnefndar fyrir framsóknarboði Borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, Óskar Bergsson lagði fram ósk á fundi forsætisnefndar borgarstjórnar á síðasta ári um að fá að halda gestamóttöku fyrir sveitarstjórnarfulltrúa Framsóknarflokksins. Það var samþykkt þann fjórða nóvember af nefndinni en það voru þeir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, Dagur B. Eggertsson og Gísli Marteinn Baldursson sem samþykktu beiðni Óskars og reyndar fleiri móttökur. 17.2.2009 16:19
Þekkir einhver þessa menn? Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar nú eiganda myndavélatösku sem er í vörslu óskilamunadeildar. Í tilkynningu frá lögreglu segir að í töskunni séu nokkrar myndir, auk annars búnaðar, og hefur lögreglan ákveðið að birta eina myndina í von um að upplýsa málið. 17.2.2009 16:17
Vilja að Reykjavíkurborg leggi í átak í viðhaldsframkvæmdum Samfylkingin og Vinstri græn lögðu fram ítarlega tillögu um átak í viðhaldsframkvæmdum á vegum Reykjavíkurborgar og Félagsbústaða hf. á fundi borgarstjórnar í dag. Tilgangurinn er bregðast við alvarlegri stöðu og atvinnuleysi í byggingariðnaði. 17.2.2009 16:16
Tæp átján prósent misst vinnu eða lent í skerðingu á starfshlutfalli Í nýrri könnun MMR þar sem spurt var um áhrif kreppunnar á atvinnu fólks kemur í ljós að 5,8 prósent segjast hafa misst atvinnuna vegna kreppunnar. Í tilkynningu frá MMR segir að þetta sé í takt við tölur Vinnumálastofnunar um skráð atvinnuleysi þar sem fram kemur að atvinnuleysi mældist 6,6 prósent í janúar síðastliðnum samanborið við 1,3 prósent í september 2008. 17.2.2009 15:17
Svandís býður sig fram til Alþingis Svandís Svavarsdóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna ætlar að gefa kost á sér í fyrsta sætið fyrir alþingiskosningar í Reykjavík í forvali flokksins sem fer fram í byrjun mars. 17.2.2009 15:10
Fimm ára fangelsi fyrir að stinga bróður sinn Ingi Páll Eyjólfsson, 21 árs gamall, var dæmdur í fimm ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag fyrir tilraun til manndráps með því að hafa ráðist að hálfbróður sínum, þann 25. nóvember síðastliðinn, og stungið hann með hníf í bak og öxl með þeim afleiðingum að hann hlaut töluverð meiðsl. 17.2.2009 15:07
Ólafur krafðist afsagnar Óskars Bergssonar Ólafur F. Magnússon krefst þess að Óskar Bergsson, formaður borgarráðs, segi af sér vegna þess sem að hann kallar misnotkun á mótttökustarfsemi og ýmsu öðru sem varði stjórn borgarinnar í tíð núverandi borgarstjórnar. 17.2.2009 14:55
Gasmaður áður sprengt sig í loft upp Maðurinn sem bjó í húsi sem sprakk í morgun hefur áður skaðbrennt sig þegar hann var að sniffa gas, þetta staðfestir lögreglan á Akureyri. Talið er að upptök eldsins hafi komið til vegna leka á einum af 25 gaskútum sem maðurinn geymdi á heimili sínu. 17.2.2009 14:52
Sigríður Andersen vill á þing Sigríður Á. Andersen héraðsdómslögmaður tekur þátt í prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík í næsta mánuði og mun sækjast eftir stuðningi flokksmanna í eitt af efstu sætum. 17.2.2009 14:44
Geir vildi ná í Brown en fékk ekki samband Geir H. Haarde fyrrverandi forsætisráðherra reyndi að ná í Gordon Brown forsætisráðherra Breta í kjölfar bankahrunsins á Íslandi. Hann náði hins vegar ekki sambandi við hann og talaði því við Alistair Darling fjármálaráðherra í staðinn. Þetta kom fram í máli Geirs á Alþingi í dag þar sem rætt var um viðbrögð Breta í Icesave deilunni. 17.2.2009 14:39
Álfheiður vill 1. - 2. sæti í Reykjavík Álfheiður Ingadóttir gefur kost á sér í forvali Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur, sem fram fer 7. mars næstkomandi. 17.2.2009 14:34
Icesave-viðræðurnar þokast af stað á ný Framhald verður á viðræðum við Breta og Hollendinga varðandi Icesave málið á næstunni. Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra sagði í umræðu utan dagskrár um ástæður Breta fyrir því að beita hryðjuverkalöggjöf á Íslandi að lítið hefði þokast í samningaviðræðum um Icesave á þessu ári. 17.2.2009 14:30
Lögreglan leitar að pallbíl Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar nú að pallbíl sem stolið var á bílasölu í borginni. Um er að ræða blágráan Nissan King Cab, árgerð 1995, með skráningarnúmerinu VN-594. Þeir sem geta veitt upplýsingar um málið eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000. 17.2.2009 14:26
Stórhætta af gaskútum í húsinu sem brann Tugir gaskúta fundust í húsinu sem brann á Akureyri í morgun. Heimildir fréttastofu herma að húsið hafi verið afdrep fíkniefnaneytenda sem hafi stundað það að sniffa gas á kútum. Vaktstjóri hjá Slökkviliði Akureyrar segir að slökkviliðsmönnum hafi stafað stórhætta af kútunum því þótt þeir hafi flestir verið tómir þá sé enn mikil sprengihætta af kútunum. 17.2.2009 13:59
Greiningadeildin: Skipulagt vændi og mansal hér á landi Skipulögð vændisstarfsemi er til staðar hér á landi samkvæmt greinindadeild ríkislögreglustjórans en þar kemur jafnframt fram að lögreglan á höfuðborgarsvæðinu upplýsi að erlendar vændiskonur geri út þjónustu sína hér á landi. Mikill hluti af tekjum þessara kvenna eru svo sendir úr landi. Þá telur greiningadeildin að starfsemin tengist oft fíkniefnaheiminum. Vísir og Stöð 2 hafa nýlega greint frá tveimur tilvikum erlendra vændiskvenna en þær eru gerðar út sitthvoru megin við lögreglustöðina við Hlemm. 17.2.2009 13:04
Sparnaðaraðgerðir draga úr öryggi Þær miklu sparnaðaraðgerðir sem grípa þarf til á Landspítalanum þýða bæði minna öryggi fyrir sjúklinga og verri heilsu þjóðarinnar. Þetta segirHjördís Þórey Þorgeirsdóttir formaður félags ungra lækna og leggur áherslu á að haft sé samráð við þá sem sinna sjúklingnum þegar skorið er niður. 17.2.2009 12:46
Jóhanna ætlar ekki að vanda um fyrir Ólafi Ragnari Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra ætlar ekki að biðja Ólaf Ragnar Grímsson forseta að gæta orða sinna í framtíðinni. Þetta kom fram hjá Jóhönnu á blaðamannafundi í Þjóðmenningarhúsinu í dag. Orð forsetans hafa verið nokkuð í umræðunni undanfarið en hann hefur tvívegis á skömmum tíma þurft að bera til baka ummæli sem höfð hafa verið eftir honum í erlendum fjölmiðlum. 17.2.2009 12:33
Breytingar verði gerðar á kosningalögunum Frumvarp um breytingar á kosningalögum var kynnt í ríkisstjórn Íslands í morgun. Á blaðamannafundi sem nú stendur yfir í Þjóðmenningarhúsinu kom fram að Þær Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra muni standa að frumvarpinu. Formenn allra flokka á þinginu munu kynna málið fyrir sínum þingflokkum á miðvikudaginn. 17.2.2009 12:02
Steingrímur vill afnema verðtrygginguna Fjármálaráðherra þjóðarinnar, Steingrímur J. Sigfússon, vill afnema verðtrygginguna. Hann lýsti þessu yfir á borgarafundi í Háskólabíói í gærkvöldi. 17.2.2009 12:01
Björgvin vill fyrsta sætið í Suðurkjördæmi Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi viðskiptaráðherra hefur lýst yfir framboði í Suðurkjördæmi og sækist hann eftir fyrsta sæti listans sem hann skipaði í síðsustu kosningum. Samþykkt hefur verið að halda netprófkjör þar sem tvö efstu sætin eru bundin sitt hvoru kyninu. 17.2.2009 11:56
Greiningadeildin: Aukin hætta á hryðjuverkum Greiningadeild ríkislögreglustjórans telur aukna hættu á hryðjuverkum hér á landi samkvæmt skýrslu þeirra um mat á skipulagðri glæpastarfsemi og hættu á hryðjuverkum. Í skýrslunni segir að aukin alþjóðleg hryðjuverkastarfsemi og greiðari för fólks milli landa hefur í för með sér aukna hættu á að hérlendis verði framin hryðjuverk eða fram fari undirbúningur hryðjuverkaárása í öðrum löndum. 17.2.2009 11:41
Greiningadeildin: Fíkniefnaviðskipti arðbær í kreppu Ein af afleiðingum hruns fjármálakerfisins og þeirrar efnahagskreppu sem skollin er á verður sú að hagnaði af fíkniefnaviðskiptum verður í auknum mæli varið til fjárfestinga hérlendis er ein af meginniðurstöðum skýrslu um skipulagða glæpastarfsemi hér á landi sem ríkislögreglustjóri gaf út í dag. 17.2.2009 11:24
Húsbruni á Akureyri - einn fluttur á slysadeild Eldur kom upp í íbúðarhúsi við Hrafnabjörg á Akureyri á tíunda tímanum í morgun. Að sögn lögreglu stendur slökkvistarf enn yfir en um gamalt timburhús er að ræða. 17.2.2009 11:02
Brutust inn í gróðurhús á Flúðum Þrír ungir karlmenn gista nú fangageymslur lögreglunnar á Selfossi vegna gruns um innbrot í gróðurhús á Flúðum. 17.2.2009 10:33
Hvalaskoðunarfyrirtækin vilja veiðimenn úr Faxaflóa „Ef svo ótrúlega vill til að ráðamenn leyfi hrefnuveiðar þarf Reykjavíkurborg að standa við bakið á hvalaskoðunarfyrirtækjum við Reykjavíkurhöfn, að Faxaflóinn verði griðland þar sem veiðar verða ekki leyfðar," segja forsvarsmenn hvalaskoðunarfyrirtækjanna Eldingar og Hvalalífs í bréfi til Áslaugar Friðriksdóttur, formanns menningar- og 17.2.2009 09:35