Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Vilja slá „skjaldborg“ um Alþingishúsið Tölvupóstur gengur nú þar sem fólk er hvatt til þess að mæta í hádeginu í dag á Austurvöll og slá „skjaldborg“ um Alþingishúsið. Ekki kemur fram hverjir standi að gjörningnum en tekið er fram að um friðsamleg mótmæli sé að ræða. Þá er þess krafist að ríkistjórnin víki „nú þegar“ eins og það er orðað. 12.11.2008 10:37
Aðalmeðferð í dag í máli á hendur séra Gunnari Aðalmeðferð í máli ákæruvaldsins á hendur séra Gunnari Björnssyni, fyrrverandi sóknarpresti á Selfossi, vegna meintra kynferðisbrota hans verður í Héraðsdómi Suðurlands í dag. 12.11.2008 10:27
Árdegi fer fram á gjaldþrotaskipti Árdegi hefur farið fram á gjaldþrotaskipti og verður krafa félagsins þar að lútandi tekin fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur um klukkan eitt í dag. 12.11.2008 10:11
Vélarvana togara komið til aðstoðar við innsiglinguna til Eyja Lóðsinn í Vestmannaeyjum og Björgunarfélagið í Eyjum voru kölluð út í morgun vegna vélarvana togara, Gullbergs VE 292, sem staddur var við Klettsnef fyrir utan innsiglinguna til Vestmannaeyja. 12.11.2008 09:57
Kári og Sara koma í stað Jóns og Guðrúnar Töluverðar breytingar eru að verða á nafngiftum á Íslandi ef marka má nýjar tölur Hagstofunnar um algengustu nöfn barna undir fjögurrra ára aldri um síðustu áramót. 12.11.2008 09:22
Ólafur Ragnar húðskammaði nágrannaþjóðir í hádegisverði Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, gagnrýndi nágrannaþjóðirnar Svíþjóð, Danmörku og Bretland fyrir að snúa baki við Íslendingum. Þetta mun hann hafa gert í hádegisverði með erlendum erindrekum í Reykjavík á föstudag eftir því sem fram kemur í norrænum miðlum. 12.11.2008 09:00
Vaxandi reiði í Þýskalandi vegna Kaupthing Edge Vaxandi reiði gætir nú í Þýskalandi meðal viðskiptavina Kaupþings Edge þar í landi sem óttast að hafa tapað öllu sínu fé. Talið er að þar eigi um 30 þúsund einstaklingar um sárt að binda. 12.11.2008 08:35
Lífland lækkar verð á kjarnfóðri Fyrirtækið Lífland hefur lækkað verð á kjarnfóðri til bænda um fjögur prósent þrátt fyrir að hráefni til fóðurgerðar sé innflutt og gengi krónunar hafi hríðlækkað. 12.11.2008 07:17
Síldin dreifir sér Síldin á Breiðafirði virðist vera farin að dreifa sér eða flytja sig um set og fengu ekki nema nokkur skip góðan afla í gær. 12.11.2008 07:14
Innbrot í Hljóðfærahúsið Lögreglumenn náðu tveimur innbrotsþjófum á hlaupum, eftir að þeir höfðu bortist inn í Hljóðfærahúsið við Síðumúla í nótt. 12.11.2008 07:12
Varar við áhrifum Evrópudeilna á andrúmsloft flokka Björn Bjarnason dómsmálaráðherra segir að tölvupóstur Bjarna Harðarsonar sé til marks um það hve slæm áhrif deilur um Evrópumál geti haft á samstarf innan stjórnmálaflokka. 11.11.2008 22:44
Sjálfstæðismenn vilja skoða einhliða upptöku annars gjaldmiðils Þingmenn Sjálfstæðisflokksins telja það raunhæfan möguleika að taka upp annan gjaldmiðil einhliða. 11.11.2008 21:54
Bretar styðja IMF-aðstoð - Hollendingar standa í veginum Wouter Bos fjármálaráðherra Hollands sagði í sjónvarpsviðtali í Hollandi í dag að Hollendingar myndu standa í vegi fyrir því að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn afgreiði beiðni Íslands um aðstoð uns deilan um Icesave er leyst. Þetta segir í frétt Financial Times. Ráðherrann er sagður hafa bætt við: „Sem betur fer erum við með öfluga bandamenn í Bretum og Þjóðverjum, sem eiga í sömu vandræðum með Íslendinga.“ 11.11.2008 21:36
Stoltenberg ræddi við Brown um málefni Íslendinga Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, segir að alvarleg staða blasi við Íslendingum, fái þeir ekki lán Alþjóðagjaldeyrissjóðsins fljótlega. 11.11.2008 18:20
Húsleit hjá Stoðum Starfsmenn skattrannsóknarstjóra fóru í dag á skrifstofu Stoða og óskuðu eftir afriti af bókhaldsgögnum félagsins síðastliðin þrjú rekstrarár. 11.11.2008 17:49
Auknar líkur á olíu við Austfirði Nýjar jarðfræðirannsóknir benda til að líkur séu á að olía kunni að finnast mun nær austurströnd Íslands en áður hefur verið talið og jafnvel undir Austfjörðum. Alþjóðleg olíufélög sýna Íslandi aukinn áhuga vegna nýrra vísindakenninga um tengsl olíu og eldvirkra svæða. 11.11.2008 19:12
Rannsókn heldur áfram á meintu manndrápi Lögreglan á Selfossi heldur áfram rannsókn á meintu manndrápi í sumarbústað um síðustu helgi. Í tilkynningu frá Ólafi Helga Kjartanssyni sýslumanni segir að enn séu nokkur atriði óljós, þrátt fyrir ítarlegar yfirheyrslur í gær og í dag. 11.11.2008 18:59
Ráðuneytisstjórinn ræddi vanda Icesave rétt áður en hann seldi bréf í bankanum Komið hefur í ljós að vandi Icesave reikninga Landsbankans var meginefni fundar sem Baldur Guðlaugsson ráðuneytisstjóri sat með fjármálaráðherra Bretlands, tveimur vikum áður en hann seldi hlutabréf sín í Landsbankanum, rétt fyrir hrun bankans. 11.11.2008 22:16
Treystir því að stjórnvöld skoði hugmyndir um einhliða upptöku annars gjaldmiðils „Ég er mjög jákvæður í garð þessarar hugmyndar," segir Sigurður Kári Kristjánsson þingmaður Sjálfstæðisflokks. Hann vill að stjórnvöld skoði alvarlega þær hugmyndir sem upp hafa komið um að Ísland taki einhliða upp annan gjaldmiðil. 11.11.2008 17:54
Heildarafli fiskiskipa dregst saman á milli ára Heildarafli íslenskra fiskiskipa reyndist um 91.400 tonn í nýliðnum október eftir því sem fram kemur á vef Fiskistofu. 11.11.2008 16:51
Ferðamálastofa fundar í útlöndum út af kreppu Í vikunni hefst fundarherferð að frumkvæði Ferðmálastofu á helstu mörkuðum íslenskrar ferðaþjónustu í Evrópu og verða fundir m.a. haldnir í París, Frankfurt og Kaupmannahöfn. 11.11.2008 15:28
Varað við veskjaþjófum í Kolaportinu Borið hefur á því undanfarnar helgar að veskjum hafi verið stolið úr töskum fólks í Kolaportinu. Í tilkynningu frá lögreglu eru vegfarendur þar beðnir um að hafa þetta í huga og gæta vel að verðmætum sínum. Grunsamlega háttsemi þarf að tilkynna til lögreglu. 11.11.2008 15:27
Frumvarp um sérstakan saksóknara lagt fram Frumvarp til laga um embætti sérstaks saksóknara sem ætlað er að rannsaka grun um refsiverða háttsemi í aðdraganda og í tengslum við bankahrunið hefur verið lagt fram á Alþingi. Saksóknarinn skal samkvæmt frumvarpinu fullnægja skilyrðum til skipunar í embætti héraðsdómara og fær hann heimildir til þess að ráða til sín starfsfólk. Gert er ráð fyrir því að saksóknarinn verði skipaður svo fljótt sem auðið er eftir að frumvarpið hefur verið samþykkt en það var tekið fyrir í allsherjarnefnd Alþingis í morgun. Gert er ráð fyrir að embættið kosti 76 milljónir á ári miðað við níu starfsmenn en í þeirri tölu er erlend sérfræðiaðstoð ekki talin með. 11.11.2008 15:14
Ísland efst á lista yfir árangur heilbrigðisþjónustu og heilsufar Ísland er efst á lista bandaríska viðskiptatímaritsins Forbes þar sem borin er saman árangur heilbrigðisþjónustu fjölmarga þjóða og almennt heilsufar. 11.11.2008 15:01
Bjarni og aðstoðarmaðurinn fá biðlaun í þrjá mánuði Bjarni Harðarson og Ármann Ingi Sigurðsson aðstoðarmaður hans eiga rétt á biðlaunum í þrjá mánuði frá afsögn Bjarna í dag. Kostnaður vegna þessa nemur rúmri 2,1 milljón króna. 11.11.2008 14:54
Vinna að nýjum stjórnarsáttmála ekki hafin Þeim fer fjölgandi í röðum Samfylkingarinnar sem telja nauðsynlegt að stjórnarsáttmáli ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar verði tekinn upp og endurskrifaður. Ríkisstjórnin hafi verið mynduð um flest annað en það sem nú blasir við í þjóðfélaginu. Yfirstandandi efnahagsþrengingar og fall bankanna kalli á að stjórnin komi sér saman um framtíðarsýn og um leið nýjan stjórnarsáttmála. 11.11.2008 14:39
Helga Sigrún tekur sæti á Alþingi Helga Sigrún Harðardóttir tók í dag formlega sæti á Alþingi sem þingmaður Framsóknarflokksins í stað Bjarna Harðarsonar sem sagði af sér í morgun. 11.11.2008 14:33
Telja fráleitt að Bretar sinni loftrýmiseftirliti Þingmenn úr röðum stjórnarandstöðunnar mótmæltu því að kalla hingað breska hermenn til loftrýmiseftirlits í desember á sama tíma og við ættum í harðvítugum deilum við Breta. Formaður utanríkismálanefndar sagði óheppilegt að Bretar kæmu hingað við slíkar aðstæður. 11.11.2008 13:35
Árni og Björgvin eiga ekki að segja af sér Formenn ríkisstjórnarflokkanna gefa lítið fyrir þau orð Gylfa Arnbjörnssonar, forseta ASÍ, í Mannamáli á Stöð 2 á sunnudagskvöld þegar hann sagði að Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra, og Árni Mathiesen, fjármálaráðherra, ættu að axla ábyrgð á atburðum síðustu vikna og segja af sér sem ráðherrar. Þetta kom fram á blaðamannafundi í Ráðherrabústaðnum í hádeginu. 11.11.2008 13:30
Veggjakrotarar látnir hreinsa til eftir sig Þrír piltar á aldrinum 13-14 ára voru gerðir ábyrgir gjörða sinna eftir að upp komst að þeir hefðu krotað á veggi hjólageymlu í fjölbýlishúsi í Breiðholti. 11.11.2008 13:26
Ökuhraði á Hringveginum lækkar umtalsvert á fjórum árum Ökuhraði á Hringveginum að sumarlagi hefur lækkað verulega frá árinu 2004 eftir því sem fram kemur á vef Vegagerðarinnar. Vitnað er til nýrra talna sem safnað hefur verið saman fyrir stofnunina. 11.11.2008 12:58
Ákvörðun um loftrýmiseftirlit væntanleg í dag ,,Við hljótum auðvitað í deilum okkur við Breta reyna að leysa þær en ekki magna," sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir á blaðamannafundi í Ráðherrabústaðnum í hádeginu þegar hún var spurð hvort eðlilegt væri að þiggja boð breskra stjórnvalda um loftrýmiseftirlit á sama tíma og þjóðirnar eigi í hörðum deilum. 11.11.2008 12:41
Ingibjörg: Hollendingar og Bretar leggja ofurkapp á að tefja vegna Icesave Geir H. Haarde forsætisráðherra segist ekki vilja taka svo djúpt í árinni að segja að aðstoð frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum sé að sigla í strand vegna Icesave-deilunnar. 11.11.2008 12:30
Fólk sem hafi fryst lán sín leggi fyrir Það er gríðarlega mikilvægt að þeir sem hafa fryst erlendu lánin sín, leggi vel til hliðar, segir Edda Rós Karlsdóttir, hagfræðingur hjá Landsbankanum. Mikilvægt sé að átta sig á að mismunurinn er ekki gróði. 11.11.2008 12:16
Gefa lítið fyrir hugmyndir um einhliða upptöku nýrrar myntar Ráðamenn og stjórnarandstæðingar gefa lítið fyrir hugmyndir um einhliða upptöku nýrrar myntar hér á landi, að minnsta kosti að svo stöddu. 11.11.2008 12:12
Bjarna urðu á óverjandi mistök en hefur axlað ábyrgð Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, segir að Bjarna Harðasyni, þingmanni flokksins, hafi orðið á mikil og óverjandi mistök en hann hafi nú axlað ábyrgð sína og það virði hann. 11.11.2008 12:00
Segir Gunnar Pál hafa saurgað nafn VR „Nafnið VR stendur fyrir virðingu og réttlæti og ég get ekki annað sagt en Gunnar [Páll Pálsson, formaður VR] hafi saurgað það nafn og virðingin og réttlætið séu bara fyrir suma,“ segir Lúðvík Lúðvíksson, VR-félagi og mótmælandi. 11.11.2008 11:55
Kveikt í smáhýsi smíðanema Aðfaranótt laugardags var tilkynnt um eld í litlu húsi sem er í byggingu í porti við Iðnskólann á Flatahrauni í Hafnarfirði. Húsið er eitt af fjórum sem nemendur Iðnskólans eru að byggja og standa í portinu. Þegar lögregla kom á staðinn var húsið alelda, en slökkviliði tókst að slökkva eldinn á skömmum tíma. Miklar skemmdir urðu á húsinu og er það að öllum líkindum ónýtt. 11.11.2008 11:29
Ákvæði um litla Landssímamanninn í frumvarpi um bankarannsókn Björn Bjarnason dómsmálaráðherra kynnti í morgun á opnum fundi allsherjarnefndar Alþingis frumvarp um embætti sérstaks saksóknara sem rannsaka á aðdraganda bankahrunsins. 11.11.2008 11:28
Þingmaður Sjálfstæðisflokks vill skoða einhliða upptöku evru „Óvenjulegar aðstæður eins og nú eru uppi kalla að mínu mati á óvenjulegar lausnir," skrifar Sigurður Kári Kristjánsson þingmaður sjálfstæðisflokks sem bloggar í dag um þær tillögur hagfræðinga að Ísland taki einhliða upp evru. 11.11.2008 11:24
Úr Latabæ í Stjórnarráðið Kristján Kristjánsso, hefur verið ráðinn til starfa í forsætisráðuneytinu. Í samtali við blaðamann Vísis sem staddur var í Ráðherrabústaðnum sagði Kristján að ekki væri enn komið á hreint hvaða titil hann myndi bera enda væri hann nýbyrjaður. 11.11.2008 11:11
Norðmenn á leið til landsins að leita að fólki í ýmis störf Forsvarsmenn norsku vinnumálastofnunar í fylkinu Sogni og Fjörðunum hyggjast koma hingað til lands til þess að leita að starfsfólki í hin ýmsu störf. 11.11.2008 11:10
Flugi Sumarferða seinkar vegna flugumferðar á Tenerife Flugi Sumarferða til Tenerife sem fara átti í loftið klukkan níu í morgun seinkar til klukkan ellefu. Að sögn Steinunnar Tryggvadóttur, þjónustu- og starfsmannastjóra Sumarferða, er seinkunin til komin vegna umferðarteppu á flugvellinum úti. 11.11.2008 10:33
Slökkva eld í tjörupotti við nýbyggingu Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað að nýbyggingu við Gullakur 4 í Garðabæ nú á ellefta tímanum vegna elds sem komið hafði upp í tjörupotti. 11.11.2008 10:28
Valgerður virðir ákvörðun Bjarna Valgerður Sverrisdóttir, varaformaður Framsóknarflokksins, segist virða ákvörðun Bjarn Harðarsonar, flokksbróður síns, að segja af sér þingmennsku vegna bréfs sem hann hugðist láta senda fjölmiðlum undir nafnleynd og hafði að geyma harða árás á Valgerði. 11.11.2008 10:22