Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ítreka beiðni til dómsmálaráðherra um hópmálsóknir Neytendasamtökin ítreka fyrri beiðni sína frá 12. apríl 2006 í bréfi til Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra að hann beiti sér fyrir því að samið verði frumvarp um hópmálsókn. Þetta kemur fram í bréfi sem Neytendasamtökin hafa sent ráðherra og er birt á heimasíðu samtakanna. 6.6.2008 10:28
Aldurstakmark á tjaldstæðinu Akureyri Fólk undir tvítugu má ekki tjalda á tjaldsvæðum á Akureyri í kringum sautjánda júní. Þetta kemur fram í tilkynningu sem að Hamrar, útilífs- og umhverfismiðstöð skáta, sem rekur tjaldsvæði Akureyrarbæjar að Hömrum og Þórunnarstræti sendi frá sér. 6.6.2008 10:19
Benedikt starfandi stjórnarformaður Ákveðið hefur verið að Benedikt Jóhannesson, formaður stjórnar sjúkratryggingastofnunar sem tekur til starfa í haust, verði starfandi stjórnarformaður stofnunarinnar uns forstjóri hefur verið skipaður. 6.6.2008 09:32
Eldur í gámi við 365 Eldur kom upp í ruslagámi við austurenda húsnæðis 365 í Skaftahlíð um klukkan 4:30 í morgun. Það var öryggisvörður frá Securitas sem varð eldsins var. 6.6.2008 06:21
„Átti ekki von á því að þetta færi svona“ Tryggvi Jónsson fyrrverandi aðstoðarforstjóri Baugs segist fyrst og fremst vera ofboðslega feginn því að Baugsmálinu sé lokið. Hann hlaut þyngsta dóminn í Hæstarétti í dag, 12 mánuða skilorðsbundið fangelsi. „Maður átti samt ekki von á því að þetta færi svona,“ segir Tryggvi sem hefur verið sakborningur í Baugsmálinu í 6 ár. 5.6.2008 21:27
Ungir Jafnaðarmenn í Hafnarfirði álykta um brettagarð Ungir Jafnaðarmenn í Hafnarfirði hafa sent frá sér ályktun þar sem þeir harma að brettagarður við Víðistaðartún skuli vera kominn í strand hjá bæjarstjórn Hafnarfjarðar. Vísir fjallaði um málið fyrr í dag. 5.6.2008 22:24
Hvað á hverinn að heita? Leitað er eftir tillögum um nafn á nýja leirhverinn ofan Hveragerðis og heitir Garðyrkjuskólinn í Ölfusi blómvendi í verðlaun þeim sem kemur með besta nafnið. 5.6.2008 19:11
Flugfargjöld gætu hækkað vegna mengunarkvóta Væntanlegar reglur Evrópusambandsins um mengunarkvóta á flugvélar yrðu mun meira efnahagslegt högg fyrir Íslendinga en aðrar Evrópuþjóðir segir samgönguráðherra. Reglurnar gætu leitt til hækkunar á flugfargjöldum og almennu vöruverði. 5.6.2008 19:02
Jón Gerald: Þarf að endurskoða réttarkerfið út frá þessum dómi Jón Gerald Sullenberger var ómyrkur í máli gagnvart íslensku réttarkerfi þegar Vísir hafði samband við hann eftir að dómur í Baugsmálinu var kveðinn upp í Hæstarétti í dag. Þriggja mánaða skilorðsbundin dómur yfir Jóni var staðfestur. 5.6.2008 17:56
Jóhannes segir Jón Ásgeir hafa tekið dómnum illa Jóhannes Jónsson kvaðst vonast til þess að Björn Bjarnason dómsmálaráðherra muni einn daginn gefa út af hverju honum væri ,,svona illa við okkur og hvað við höfum gert honum." Hann segist hafa skorað áður á Björn og Harald Johannessen ríkislögreglustjóra að segja af sér og hann væri enn þeirra skoðunar. Sonur hans tók dómnum illa. 5.6.2008 17:16
Jón Gerald á leið til Strassbourgar Brynjar Níelsson lögmaður Jóns Geralds Sullenberger var rétt búinn að kíkja á niðurstöðu Hæstaréttar þegar Vísir náði af honum tali fyrir stundu. Hann segir að næst á dagskrá sé að fara með málið til Strassbourgar. 5.6.2008 17:16
Nauðgunardómur þyngdur - lögregla gagnrýnd fyrir seinagang Dómur yfir karlmanni sem nauðgaði áfengisdauðri stúlku á heimili fyrrverandi tengdamóður sinnar var þyngdur úr fimmtán mánuðum í átján í Hæstarétti í dag. Maðurinn þarf að greiða konunni 800 þúsund krónur í miskabætur. Lögreglan gagnrýnd fyrir seinagang. 5.6.2008 16:59
Hæstiréttur sýknar í netbankamáli Karlamaður sem dæmdur var í skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Norðurlands eystra fyrir að misnota aðgang sinn að gjaldeyrisviðskiptakerfi í Netbanka Glitnis var sýknaður af Hæstarétti í dag. 5.6.2008 16:49
Vonandi líf eftir Baugsmálið Sigurður Tómas Magnússon, settur saksóknari í Baugsmálinu, vildi lítið tjá sig um lyktir Baugsmálsins þegar hann var spurður út í það á göngum Hæstaréttar. Hann sagðist vilja fá tíma til að fara yfir dóminn áður en hann tjáði sig um hann efnislega. Aðspurður hvort líf væri eftir Baugsmálið svaraði hann á þá leið að það hafi sannarlega verið líf á meðan á því stóð, og að vonandi væri líf að því loknu. 5.6.2008 16:44
Gestur: Ánægður að málinu er lokið Gestur Jónsson lögmaður Jóns Ásgeirs Jóhannessonar sagðist í samtali við Vísi vera ánægður með að nú sé loksins búið að leiða Baugsmálið til lykta. ,,Auðvitað hefði maður kosið að Jón hefði verið sýknaður en miðað við það hvernig var lagt af stað í þessu máli þá er ekki annað hægt en að sætta sig við þessi málalok." 5.6.2008 16:42
Fjallið tók jóðsótt og það fæddist mús Jakob Möller, verjandi Tryggva Jónssonar í Baugsmálinu, segist ósáttur við niðurstöðuna í málinu er varðar hans umbjóðanda, en Hæstiréttur staðfestir 12 mánaða skilorðsbundið fangelsi yfir honum. Það segir Jakob of þungan dóm miðað við eðli málsins. Að öðru leyti hafi lítið orðið úr málinu. „Fjallið tók jóðsótt og það fæddist mús,“ sagði Jakob við fréttamenn eftir að dómur féll og vísaði til þess hve lítið hafi komið út úr einu stærsta dómsmáli Íslandssögunnar. 5.6.2008 16:37
Hæstiréttur staðfestir dóm héraðsdóms í Baugsmáli Hæstiréttur hefur fellt dóm í Baugsmálinu svokallaða og hann staðfestir dóm héraðsdóms. Þriggja mánaða skilorðsbundinn dómur yfir Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og Jóni Gerald Sullenberger er staðfestur og sömuleiðis tólf mánaða dómur yfir Tryggva Jónssyni. Ríkissjóður skal greiða 20 milljónir í málskostnað fyrir Jón Ásgeir Jóhannesson, 15 milljónir fyrir Tryggva Jónsson og sjö milljónir fyrir Jón Gerald Sullenberger. 5.6.2008 16:18
Árni bjó þrjá mánuði fyrir austan - greiddi 70 þús í leigu Árni Mathiesen bjó á Kirkjuhvoli í Þykkvabæ í þrjá mánuði árið 2007 og greiddi þann tíma 69.249 krónur í húsaleigu á mánuði. 5.6.2008 16:17
Óeðlilegt að sérfræðingur fékk ekki að tjá sig Margrét Steinarsdóttir lögfræðingur og meðlimur í framkvæmdahóp Stígamóta undrast að Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta, hafi ekki fengið að tjá sig að fullu sem vitni fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í meiðyrðarmáli Ásgeirs Þórs Davíðssonar gegn fyrrverandi forsvarsmönnum tímaritsins Ísafoldar. 5.6.2008 16:06
Tvær kærur til viðbótar á háskólakennarann Tvær kærur hafa bæst við á hendur háskólakennaranum sem situr nú í gæsluvarðhaldi. Hann er grunaður um gróf kynferðisbrot gagnvart börnum. Rannsókn er á lokastigi en hluti málsins hefur þegar verið sendur ríkissaksóknara 5.6.2008 15:34
Baugsmálið frá upphafi til enda Hinu svokallaða Baugsmáli, sem verið hefur í kerfinu í hátt á sjötta ár, lauk með dómi Hæstaréttar í dag. Þar voru dómar héraðsdóms yfir Jóni Ásgeiri Jóhannessyn, stjórnarformanni Baugs, Tryggva Jónssonar, fyrrverandi aðstoðarforstjóra, og Jóni Gerald Sullenberger, fyrrverandi viðskiptafélaga Baugsmanna, staðfestir. 5.6.2008 15:29
Fáfnismaður dæmdur fyrir að berja konu Jón Trausti Lúthersson hefur verið dæmdur í fimm mánaða fangelsi fyrir tvær alvarlegar líkamsárásir. Hann gekk í skrokk á konu á veitingastað í Reykjanesbæ og skallaði mann í andlitið og nefbraut hann. 5.6.2008 15:10
Græðir ekki krónu á Rangárþingi Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra græðir ekki krónu á því að telja fram í Rangárþingi ytra þar sem hann er með lögheimili frekar en heimabæ sínum Hafnarfirði líkt og ritstjórar DV héldu fram í yfirlýsingu nú fyrir skömmu. Útsvarsprósenta sveitarfélaganna fyrir árið 2008 er sú sama eða 13,03%Græðir 5.6.2008 15:02
Leitað að fleiri hvítabjörnum Í kjölfar þess að ísbjörn var felldur á Laxárdalsheiði í Skagafirði í vikunni þótti lögreglunni á Sauðárkróki ástæða til að ganga úr skugga um að fleiri bjarndýr gengju ekki laus á svæðinu. 5.6.2008 14:07
Neysluvatn í Hveragerði drykkjarhæft Neysluvatn í Hveragerði er orðið neysluhæft á ný samkvæmt mælingum Heilbrigðiseftirlits Suðurlands. Þetta kemur fram í tilkynningu frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra. Enn fremur kemur þar fram að fylgst verði áfram með vatninu næstu daga. 5.6.2008 13:28
Ritstjórar DV: Árni brýtur lög Ritstjórar DV, feðgarnir Reynir Traustason og Jón Trausti Reynisson, hafa sent frá sér yfirlýsingu vegna forsíðufréttar blaðsins um Árni Mathiesen í dag. Árni segir fréttina ranga og vill afsökunarbeiðni frá DV. Helgi Bernódusson skrifstofustjóri Alþingi sagði einnig við Vísi í dag að fréttin væri röng. 5.6.2008 13:21
Bæjarstjórn Voga logar í illdeilum Inga Sigrún Atladóttir, fulltrúi H-listans í bæjarstjórn Voga, sakar forseta bæjarstjórnar um spillingu. Hún segir mágkonu forsetans hafa komið í veg fyrir að byggt yrði félagsheimili fyrir kvenfélag bæjarins þrátt fyrir vilja meirihluta byggingarráðs. Inga Sigrún er sjálf brigsluð um óeðlileg vinnubrögð. 5.6.2008 12:48
Æra íslenskra karla vegi þyngra en virðing erlendra kvenna Femínistafélag Íslands lýsir undrun og vonbrigðum vegna nýfallins dóms Héraðsdóms Reykjavíkur um meiðyrðarmál Ásgeirs Þórs Davíðssonar gegn fyrrverandi forsvarsmönnum tímaritsins Ísafoldar. Félaginu þykir einsýnt að dómurinn ,,endurspegli virðingu fyrir æru íslenskra karla umfram virðingu fyrir erlendum konum, og virðingu fyrir peningum á kostnað mannréttinda." 5.6.2008 12:38
Frétt DV um Árna hefði verið rétt fyrir 14 árum Helgi Bernódusson, skrifstofustjóri Alþingis, sagði í samtali við Vísi að forsíðufrétt DV í dag um Árna Mathiesen væri röng. 5.6.2008 12:31
Farþegar í innanlandsflugi yfir milljón 2007 Fjöldi farþega í innanlandsflugi sem fóru um flugvelli sem reknir eru af Flugstoðum ohf. fór í fyrsta sinn yfir milljón árið 2007. Þarna er um að ræða alla flugvelli aðra en Keflavíkurflugvöll. 5.6.2008 12:20
Árni Matt krefst þess að DV biðjist afsökunar Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra hefur krafið DV um afsökunarbeiðni vegna forsíðufréttar blaðsins í dag. Þar er Árni sagður græða "fölsku lögheimili". 5.6.2008 12:15
Fjórtán kílómetra löng sprunga Jarðskjálftasprungan, þar sem stóri Suðurlandsskjálftinn varð í síðustu viku, er nú talin fjórtán kílómetra löng og mun lengri en vísindamenn höfðu áður talið að slík misgengi gætu orðið. Mörg samverkandi öfl eru talin skýra óvenjumiklar sprungumyndanir í fjöllunum ofan Hveragerðis. 5.6.2008 12:02
Samskip útskrifar erlenda starfsmenn úr íslenskunámi Samskip útskrifaði á sjötta tug erlendra starfsmanna sinna úr íslenskunámi í dag. Í tikynningu frá fyrirtækinu kemur fram að um 70 nemendur hafi stundað nám á vegum félagsins í vetur. 5.6.2008 11:40
Tugmilljóna vinningshafi enn ófundinn „Ég hef aldrei lent í því að hafa ekki fundið áskrifanda og ég er búin að vinna við þetta lengi,“ segir Guðbjörg Hólm, gjaldkeri hjá Íslenskri getspá, en karlmaður á sextugsaldri sem er áskrifandi að lottómiða og hreppti 29,3 milljónir 5.6.2008 11:28
Miðborgarfundur með rólegra móti Samráðsfundur með ,,lykilaðilum miðborgar" var haldinn í gær og segir Kormákur Geirharðsson, fulltrúi rekstraraðila og eigandi Ölstofunnar, að fundurinn hafi verið átakalaus sem hafi komið honum á óvart. 5.6.2008 11:08
Riðuveikin mikið áfall “Að sjálfsögðu er þetta áfall,” segir Ásgeir Sverrisson bóndi á Brautarholti í Hrútafirðinum. Riða kom upp á bænum og verður 300 kindum þess vegan slátrað. Ásgeir segir mikilvægt að sýni verði tekin úr dauðum kindum til að sjá hvort smitið hafi breiðst út. 5.6.2008 11:06
Eldri borgarar vilja púttvöll í stað brettagarðs Harðar deilur eru í Hafnarfirði vegna fyrirhugaðs brettagarðs sem átti að rísa á Víðistaðatúni. Félag eldri borgara í bænum vill frekar púttvöll á sama stað. Formaður félagsins segir minni læti í rólegum pútturum en ungum brettastrákum. 5.6.2008 10:31
Árni fær ekki greitt sérstaklega fyrir lögheimili á Kirkjuhvoli Árni Mathiesen, fjármálaráðherra, segir að frétt sem birtist á forsíðu DV í dag sé efnislega röng. Þar er því haldið fram að Árni hafi fengið tæpa eina milljón króna í greiðslur fyrir að skrá lögheimili sitt á Kirkjuhvoli við Þykkvabæ. Í DV er sagt að Árni þiggi mánaðarlegar greiðslur fyrir að vera með það sem blaðið kallar „rangt lögheimili“, enda hafi Árni aldrei búið í húsinu. 5.6.2008 10:18
Dregur úr skjálftavirkni Dregið hefur talsvert úr eftirskjálftavirkni eftir Suðurlandsskjálftann á fimmtudag í seinustu víku. Í samtali við Vísi sagði Steinunn Jakobsdóttir hjá Veðurstofu Íslands að enn mælist nokkrir sjálftar á hverri klukkustund. 5.6.2008 10:13
Baugsmálið klárað í dag Hæstiréttur Íslands mun í dag kveða upp dóm í síðasta hluta Baugsmálsins. Þar með mun einu umfangsmesta dómsmáli Íslandssögunnar loks ljúka. 5.6.2008 09:52
Fyrsti laxinn á land úr Norðurá Marinó Marinósson, stjórnarmaður í Stangveiðifélagi Reykjavíkur, setti í fyrsta laxinn í Norðurá á veiðitímabilinu, sem hófst klukkan sjö í morgun. 5.6.2008 09:08
Lögreglan smalar hrossum við Smáralind Lögreglan í Reykjavík er nú að fást við lausagöngu hrossa við Smáralind í Kópavogi. 5.6.2008 08:51
Leit á afskipti lögreglunnar sem tóma hamingju og gleðskap Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði 17 ára ökumann upp úr miðnætti vegna ábendinga um einkennilegt ökulag hans. 5.6.2008 07:55
Fertugur hollenskur kókaínsmyglari neitar samvinnu Fertugur Hollendingur, sem situr í gæsluvarðhaldi, grunaður um að hafa ætlað að smygla fíkniefnum innvortis til landsins, harðneitar að taka inn hægðalosandi lyf. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag. 5.6.2008 07:50
Minnstu munaði að ölvaður ökumaður æki á lögreglubíl Minnstu munaði að ölvaður ökumaður á yfir 170 kílómetra hraða æki framan á lögreglubíl, þegar þeir mættust á Suðurlandsvegi, skammt austan við Selfoss um kvöldmatarleitið í gærkvöldi. 5.6.2008 07:33