Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ríkisstjórnin undir feldi Ríkisstjórnin gæti þurft alla helgina til að móta framlag sitt til kjarasamninga, en aðilar vinnumarkaðarins vilja svör helst um hádegisbil á morgun, svo unnt sé að fara að skrifa undir. Forsætisráðherra segir að verið sé að tala um aðgerðir á sviði skattamála, þar með barnabætur, húsnæðisaðgerðir fyrir lágtekjufólk og starfsmenntamál. 15.2.2008 18:44
Eru síðustu Downs-börnin fædd á Íslandi? Formaður Læknafélagsins kallar eftir ábyrgri siðferðislegri umræðu um hversu langt eigi að ganga í að eyða fóstrum þegar fósturskimun leiði í ljós einhverja galla. Foreldrar barna með Downs heilkenni telja þróunina í þessum efnum óhugnanlega. 15.2.2008 18:30
Annþór fannst í Mosfellsbæ Annþór Kristján Karlsson sem strauk úr fangaklefa af lögreglustöðini við Hverfisgötu fannst í íbúðarhúsnæði í Mosfellsbæ nú fyrir skömmu. 15.2.2008 18:00
Hafnaboltakylfa og golfkylfa töldust ekki vopn Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag karlmann í eins mánaðar skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás, umferðarlagabrot og fíkniefnalagabrot. 15.2.2008 16:59
Borgin rífur vararafstöðina í Elliðaárdal Landsvirkjun afhenti í dag Reykjavíkurborg varastöðina í Elliðaárdal ásamt landi til eignar, stöð sem var hluti af stofnframlagi borgarinnar til Landsvirkjunar árið 1965 15.2.2008 16:38
Strætisvagnar kjaftfullir á álagstímum Strætisvagnar í Reykjavík anna ekki fjölda farþega á álagstímum sem fá frítt í strætó. Nemendur kvarta undan yfirfullum vögnum. Reynir Jónsson, framkvæmdarstjóri Strætós bs., segir fyrirtækið ekki hafa verið tilbúið að mæta kröfum borgarinnar. 15.2.2008 16:30
Þrír landsbyggðarþingmenn geta deilt aðstoðarmanni Aðstoðarmenn formanna stjórnmálaflokka verða í fullu starfi og hafa starfsaðstöðu á skrifstofum Alþingis en aðstoðarmenn alþingismanna verða í þriðjungsstarfi og hafa starfsaðstöðu í kjördæmunum. 15.2.2008 16:08
Á 125 kílómetra hraða í göngunum Ökumaður var myndaður á 125 kílómetra hraða á klukkustund í Hvalfjarðargöngum þegar lögregla var þar við mælingar á dögunum. 15.2.2008 15:59
Tveir félagar Annþórs handteknir - grunaðir um aðstoð við flóttann Tveir menn hafa verið handteknir í tengslum við rannsókn lögreglunnar á flótta Annþórs Kristjáns Karlssonar úr fangageymslu í morgun. Þeir eru grunaðir um að hafa aðstoðað Annþór. Alls gerði lögregla húsleit á tólf stöðum í dag í leit sinni að Annþóri. 15.2.2008 15:18
Harður fjögurra bíla árekstur í Garðabæ Harður fjögurra bíla árekstur varð á mótum Hafnarfjarðarvegar og Lyngáss í Garðabæ um klukkan þrjú. 15.2.2008 15:16
Svipuð úttekt á öðrum heimilum í kjölfar Breiðavíkurskýrslu Skýrsla sú sem forsætisráðuneytið hefur látið gera um Breiðavíkurdrengina verður kynnt í lok næstu viku. Gréta Ingþórsdóttir aðstoðarmaður forsætisráðherra segir að allar líkur séu á því að svipuð úttekt verði gerð á öðrum heimilum í framhaldi af Breiðavíkurskýrslunni. 15.2.2008 14:51
Conscriptor ritar sjúkraskrár sem boðnar voru út Eignarhaldsfélagið Conscriptor átti lægsta tilboð í ritun sjúkraskráa fyrir slysa- og bráðasvið Landspítalans sem boðin var út nýverið. Fram kemur í tilkynningu á vef spítalans að ákveðið hafi verið að ganga til samninga við fyrirtækið en það hefur reynslu af ritun sjúkraskráa í Svíþjóð. 15.2.2008 14:46
Annþór býður í afmæli - löggan leitar að staðnum Handrukkarinn Annþór Kristján Karlsson sem lögreglan leitar nú eftir að hann strauk úr fangaklefa við Hverfisgötu í morgun, hefur boðið til síðbúinnar afmælisveislu í kvöld. 15.2.2008 14:40
Útspil ríkisstjórnarinnar hugsanlega klárt um helgina Geir H. Haarde forsætisráðherra segir að útspil ríkisstjórnarinnar í tengslum við kjarsamninga á almennum vinnumarkaði líti dagsins ljós í fyrsta lagi um helgina en gæti allt eins dregist fram yfir helgi. 15.2.2008 14:24
Ýja að stuðningi við sjálfstæðiskröfu Suður-Ossetíu og Abkasíu Rússnesk yfirvöld gáfu til kynna í dag að þau muni hugsanlega styðja kröfu héraðanna Suður-Ossetíu og Abkasíu um aðskilnað frá Georgíu ef Vesturveldin lýsa yfir stuðningi við Kosovo. 15.2.2008 13:42
Ríkisstjórnin undirbúi göng milli Súðavíkur og Ísafjarðar Hafin er undirskriftasöfnun á Netinu þar sem skorað er á ríkisstjórnina að hefja strax rannsóknir og undirbúning að jarðgangagerð milli Súðavíkur og Ísafjarðar út frá samfélagslegum og öryggissjónarmiðum. 15.2.2008 13:34
Rafmagnslaust í skamman tíma á Rjúpnahæð Rafmagnslaust var í skamman tíma í Kóra- og Hvarfahverfum í Kópavogi í dag eftir að gröfumaður rak skófluna í háspennulínu á Rjúpnahæð. 15.2.2008 13:24
Rafiðnaðarsambandið greiddi 600 þúsund króna skaðabætur fyrir Guðmund Guðmundur Gunnarsson formaður Rafiðnaðarsambandsins var dæmdur til þess að greiða 250 þúsund krónur í skaðabætur vegna tiltekinna ummæla í Hæstarétti fyrir skömmu. Einnig þurfti hann að greiða lögfræðikostnað. Upphæðin sem er rúmlega 600 þúsund krónur var greidd af Rafiðnaðarsambandi Íslands. 15.2.2008 13:03
Fjölmargir árekstrar í morgun en lítið um slys Fjölmargir árekstrar og umferðaróhöpp urðu suðvestanlands í óvæntri hálku, sem gerði snemma í morgun. 15.2.2008 12:43
Ekki ákveðið hvort bólusetja eigi gegn leghálskrabba Heilbrigðisráðherra segir enga ákvörðun liggja fyrir um hvort bólusetja skuli gegn leghálskrabba hér á landi. 15.2.2008 12:36
Tilgangslaus fundur með ríkisstjórninni „Ráðherrarnir létu eins og þeir hefðu aldrei fengið þessar tillögur okkar,“ segir Guðmundur Gunnarsson, formaður Rafiðnaðarsambandsins, eftir fund með ríkisstjórninni í morgun. 15.2.2008 12:26
Kaupmannasamtök styðja kaupmenn til málshöfðunar Kaupmannasamtök Íslands styðja kaupmenn á Akureyri sem undirbúa málshöfðun gegn greiðslukortafyrirtækjunum. Þá er til skoðunar að talsmaður neytenda komi einnig að málinu. 15.2.2008 12:22
Engin ákveðin svör frá ríkisstjórninni í kjaramálum Ekki verður skrifað undir kjarasamninga nema ríkisstjórnin komi að málinu segir Grétar Þorsteinsson, forseti Alþýðusambands Íslands. 15.2.2008 12:08
Fyrsti kjarasamningurinn hjá ríkissáttasemjara í þessari lotu Verkalýðsfélag Akraness og Samtök atvinnulífsins undirrituðu í morgun sérkjarasamning vegna starfa í fiskimjölsverksmiðju HB Granda á Akranesi. 15.2.2008 11:21
Heildaraflinn dróst saman um 14 prósent á milli ára Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum janúarmánuði, metinn á föstu verði, var 14 prósentum minni en í janúar 2007. 15.2.2008 11:06
Kópavogsbær tekur við leikskólanum Hvarfi Á fundi bæjarráðs Kópavogs í gær var ákveðið að bæjaryfirvöld tækju við rekstri leikskólans Hvarfs þegar þjónustusamningur við einkaaðila rennur út 1. Maí. Óvissa hafði ríkt í Hvarfi frá því í október og var þjónustusamningi við ÓB Ráðgjöf sem rekur leikskólann sagt upp um áramót. 15.2.2008 11:00
Konur mikill meirihluti vistmanna á öldrunarstofnunum Konur voru nærri tveir þriðju þeirra sem bjuggu á stofnunum með vistrými fyrir aldraðra í desember árið 2006 samkvæmt tölum Hagstofu Íslands. 15.2.2008 10:54
8 þúsund fyrirtæki skila ekki ársreikningi Átta þúsund fyrirtæki skila ekki ársreikningum til Ársreikningaskráar samkvæmt heimildum Vísis. Fons, félag athafnamannsins Pálma Haraldssonar, er eitt þeirra en það hefur ekki skilað ársreikningi undanfarin þrjú ár eins og fram kom í blaðinu 24 stundum í morgun. 15.2.2008 10:40
Annþór hoppaði niður af annarri hæð og strauk „Hann braut öryggisgler í glugga á ganginum og hoppaði niður af annarri hæð,“ segir Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn um flótta handrukkarans Annþórs Kristjáns Karlssonar. Annþór átti að koma fyrir dómara seinna í dag þar sem gæsluvarðhald yfir honum rennur út í dag. 15.2.2008 10:27
Krefjast þess að ráðherrar standi við orð sín Náttúruverndarsamtök Íslands fara fram á það að ráðherrar og þingmenn Samfylkingarinnar og forsætisráðherra standi við orð sín í tengslum við byggingu álvera á suðvesturhorninu. 15.2.2008 10:17
Einkaneysla dregst ekki saman Einkaneysla virðist ekki vera að dragast saman þrátt fyrir lækkandi gengi hlutabréfa og horfur á minnkandi vexti í hagkerfinu. Þetta kemur fram í mælingu á smásöluvísitölu sem Rannsóknarsetur verslunarinnar stendur fyrir. 15.2.2008 10:02
Einar Jökull fékk níu og hálft ár í Fáskrúðsfjarðarmáli og felldi tár Sex sakborningar í Fáskrúðsfjarðarmálinu voru í dag dæmdir í tæplega þrjátíu og tveggja ára fangelsi samtals fyrir að flytja inn nærri 40 kíló af fíkniefnum. Dómur í máli þeirra var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur. 15.2.2008 09:23
Fundu eftirlýsta konu á stolnum bíl Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í nótt par á stolnum bíl og reyndist konan vera eftirlýtst af lögreglu vegna annarra afbrota. Parið gistir nú fangageymslur. 15.2.2008 09:14
Trylltist á skóladansleik og réðst á gæslumann Sextán ára stúlka trylltist á skóladansleik á Gauki á Stöng í gærkvöldi. Hún réðst að gæslumanni og veitti honum áverka. 15.2.2008 09:07
Varað við fljúgandi hálku - lögreglubíll valt á Sandskeiði Lögregla varar við fljúgandi hálku á Reykjanesbraut og á Suðurlandsvegi. Nokkrir bílar hafa þegar hafnað utan vegar og tveir hafa oltið á Suðurnesjum. Á Suðurlandsvegi valt bíll við Sandskeið og þegar lögregla og sjúkralið mætti á vettvangs óhapps sem varð á Sandskeiði vildi ekki betur til en svo að lögreglubíllinn ók á sjúkrabílinn og valt út af veginum. 15.2.2008 07:37
Ingibjörg Sólrún setti Bridgehátíðina 2008 Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra setti Bridgehátíðina 2008, Icelandair Open, á Hótel Loftleiðum klukkan 19 í kvöld, fimmtudagskvöldið 14. febrúar. 14.2.2008 22:23
Halldór Sævar Guðbergsson nýr formaður Öryrkjabandalagsins Halldór Sævar Guðbergsson var kjörinn formaður Öryrkjabandalags Íslands á aukafundi milli aðalfunda ÖBÍ sem haldinn var síðdegis í dag. 14.2.2008 20:18
Reykur í potti á Rauðarárstíg Slökkviliðið var kallað að Rauðarárstígur klukkan hálfsjö í kvöld þegar tilkynnt var um reykjalykt í stigagangi í fjölbýslishúsi á þremur hæðum. Við nánari athugun kom í ljós að einstaklingur í einni íbúðinni hafði sofnað út frá potti á eldavél. 14.2.2008 20:10
100 kíló af stolnum verkfærum fundust í Þýskalandi Lögreglan í Þýskalandi stöðvaði í dag póstsendingu með rúmum hundrað kílóum af verkfærum sem talið er að hafi verið stolið hér á landi. Að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu er talið að ætlunin hafi verið að senda verkfærin til Póllands. Ekki er vitað hvort einhverjir hafi verið handteknir í tengslum við þetta tiltekna mál. Samkvæmt heimildum Vísis hefur töluvert verið stolið af verkfærum á undanförnum mánuðum, sem flest eru flutt til Austur - Evrópu. 14.2.2008 19:51
Varar við því að hindra aðgang fjölmiðla „Til að tryggja opið og lýðræðislegt samfélag þarf að greiða leið allra fjölmiðla að fréttaviðburðum. Blaðamannafélagið varar við tilraunum til þess að standa í vegi fyrir því. Vinnubrögð af því tagi sem viðhöfð voru í vikunni eru auk þess einungis til þess fallin að skapa tortryggni," segir í bréfi sem stjórn blaðamannafélagsins sendi Andra Óttarssyni, framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins, í dag. 14.2.2008 19:18
Ný tjörn í Vatnsmýri miðpunktur framtíðarbyggðar Ný tjörn verður grafin í Vatnsmýrina og gerð að miðpunkti nýrrar lágreistrar byggðar og Hljómskálagarðurinn stækkaður til suðurs, samkvæmt skoskri tillögu sem hlaut fyrsta sæti í hugmyndasamkeppni um framtíðarskipulag svæðisins. 14.2.2008 18:45
Laun hækka um 18 þúsund krónur strax Lægstu laun í landinu hækka um 16 prósent við undirskrift og um 32 prósent á næstu tveimur árum, samkvæmt kjarasamningum sem verið er að ganga frá, en búist er við að skrifað verði undir um helgina. 14.2.2008 18:38
Fimm þúsund krónurnar duga skemur Fyrir fjórum árum gat meðalfólksbíll ekið frá Reykjavík langleiðina á Kópasker fyrir fimm þúsund krónur en nú kemst hann aðeins á rétt fram hjá Akureyri. 14.2.2008 18:23
Ómerkti dóm í nauðgunarmáli Hæstiréttur ómerkti í dag dóm héraðsdóms í nauðgunarmáli og vísaði málinu heim í hérað til nýrrar aðalmeðferðar. Ákærða sem er tæplega tvítugur karlmaður er gefið að sök 14.2.2008 17:35
Geðhjálp íhugar að kljúfa sig úr ÖBÍ Ágreiningur er innan Öryrkjabandalagsins um stefnu þess segir framkvæmdastjóri Geðhjálpar og vísar til óánægjuradda innan bandalagsins. 14.2.2008 15:47