Fleiri fréttir

Tjón af völdum veggjakrots gæti numið milljónum

Lögregla handtók þrjá sautján ára pilta undir morgun á Laugaveginum í morgun, grunaða um veggjakrot á mörg hús við Laugaveginn og jafnvel víðar. Tjónið gæti hlaupið á milljónum króna.

Starfsmönnum samgönguráðuneytis fjölgar um þriðjung

Starfsmönnum samgönguráðuneytisins fjölgar nú um áramótin um þriðjung þegar ýmis verkefni verða færð til ráðuneytisins. Meðal þeirra verkefna sem ráðuneytið tekur við er rekstur Keflavíkurflugvallar og málefni Flugmálastjórnar.

Umdeildur dómari veikur fyrsta daginn

Samkvæmt upplýsingum frá Héraðsdómi Norðurlands Eystri tilkynnti Þorsteinn Davíðsson sig veikan í morgun, í þann mund sem fyrsti formlegi vinnudagur hans eftir umdeilda stöðuveitingu var að hefjast.

Ólöf Ýrr nýr ferðamálastjóri

Ólöf Ýrr Atladóttir hefur verið ráðin ferðamálastjóri frá og með áramótum samkvæmt ákvörðun Össurar Skarphéðinssonar iðnaðaráðherra sem tók við málefnum ferðaþjónustunnar um áramótin.

Guðni Jóhannesson nýr orkumálastjóri

Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra hefur ráðið doktor Guðna A. Jóhannesson prófessor, sem nú gegnir stöðu forstöðumanns Byggingartæknideildar Konunglega Verkfræðiháskólans í Stokkhólmi, sem orkumálastjóra frá 1. janúar 2008 til næstu fimm ára.

Stílbrot á fánalögum hjá forseta að mati dómsmálaráðherra

Björn Bjarnason dómsmálaráðherra gerir að umtalsefni á heimasíðu sinni uppsetninguna á íslenska fánanum í nýársávarpi forseta Íslands. Segir Björn að uppsetningin sé "stílbrot" þar sem fáninn hafi staðið röngu megin við forsetann.

Fimmtán létust í umferðinni árið 2007

Fimmtán manns létust í jafnmörgum umferðarslysum á nýliðnu ári eða rúmlega helmingi færri en árið á undan, en þá lést 31. Í þremur tilvikum var um bifhjólaslys að ræða og jafnoft létust erlendir vegfarendur.

Kafarar leita að pilti í og við Elliðaárnar

Kafarar á vegum björgunarsveitanna á höfuðborgarsvæðinu leita nú að 19 ára pilti, Jakobi Hrafni Höskuldssyni, í Elliðaánum og við árnar en hans hefur verið saknað frá því í gærmorgun.

Þrír handteknir fyrir veggjakrot

Lögregla handtók þrjá sautján ára pilta undir morgun á Laugaveginum í morgun, grunaða um veggjakrot á þó nokkur hús í grenndinni.

Brennur tendraðar klukkan sex

Brennur á höfuðborgarsvæðinu verða haldnar klukkan sex í kvöld fyrir utan brennur á Seltjarnarnesi og í Hafnarfirði sem verða haldnar á þrettándanum. Þetta var ákveðið á fundi slökkviliðs og lögreglu rétt fyrir hádegi í dag. Öllum brennum á höfuðborgarsvæðinu var aflýst í gær sökum veðurs. Að sögn slökkviliðsstjóra höfuðborgarsvæðisins er spáð 5-10 metrum á sekúndu og lítilsháttar éljum í kvöld.

Ellefu fengu fálkaorðuna

Við athöfn á Bessastöðum í dag, 1. janúar 2008 sæmdi forseti Íslands ellefu Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu.

Eldur kom upp í tilvonandi áhaldahúsi Hafnarfjarðarbæjar

Eldur kom upp í nýbyggingu sem verktakafyrirtækið Eykt reisir á Miðhellu í Hafnarfirðinum. Byggingunni er ætlað að hýsa áhaldahús bæjarins þegar fram líða stundir. Talið er líklegt að um íkveikju sé að ræða og er tjónið töluvert þó húsið sé tómt. Mikill hiti myndaðist inni í húsinu og stálbitar í lofti þess eru taldir hafa bognað af völdum hitans.

Fyrsta barn ársins fimmtán marka stúlka

Fyrsta barn ársins, eftir því sem næst verður komist, fæddist í Hreiðrinu á Kvennadeild Landspítalans í Reykjavík klukkan fimm mínútur yfir eitt í nótt. Það reyndist stúlka og var annað barn foreldra sinna.

Einbýlishús á Eskifirði skemmdist í eldi

Eldur kom upp í einbýlishúsi á Eskifirði skömmu fyrir miðnætti í gærkvöld. Eldurinn breiddist út á skömmum tíma og logaði glatt í miðrými hússins. Tvo klukkutíma tók að slökkva eldinn og urðu miklar skemmdir á húsinu. Engan sakaði og voru eigendur hússins ekki heima.

Sextíu hófu árið á slysadeild

Sextíu manns á öllum aldri komu á slysadeild Landspítalans á nýársnótt vegna ýmiss konar áverka. Þrír voru lagðir inn með beinbrot. Að sögn vakthafandi læknis voru einhverjir með brunasár á höndum og í andliti eftir notkun flugelda en þó engin alvarleg tilvik.

Erilsamt hjá lögreglu í Reykjavík

Nóttin var erilsöm hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu aðallega vegna almennrar ölvunar. Karlmaður á fertugsaldri var handtekinn í Breiðholti í nótt eftir að hann hafði lagt til annars manns með hníf og veitt honum áverka á hálsi.

Eldsvoðar í Gilsbúð og í Álakvísl

Nýársnóttin var tiltölulega róleg hjá Slökkviliði Höfuðborgarsvæðisins en þó voru tvö tiltölulega stór útköll. Eldur var borinn að stæðu af vörubrettum fyrir utan iðnaðarhúsnæði Gilsbúð í Garðabænum og logaði þar glatt. Rúða sprakk í hitanum frá eldinum og fór reykur inn í húsnæðið. Að sögn slökkviliðs mátti litlu muna að eldurinn kæmist ekki inn þar sem töluverður eldsmatur var.

Sjá næstu 50 fréttir