Fleiri fréttir

Smyglskútan sigldi langa leið

Smyglskútan sem kom til Fáskrúðsfjarðar á fimmtudag var tekin á leigu í Bergen og þaðan siglt til ýmissa landa áður en henni var siglt hingað til lands. Íslendingnum, sem var í haldi norsku lögreglunnar, hefur verið sleppt.

Skotið á skútusmyglara í fyrra

Skotárás fyrir tveimur árum á tvo af mönnunum, sem nú sitja í gæsluvarðhaldi, gefur innsýn í veruleika íslenska fíkniefnaheimsins en sjónarvottar lýsa árásinni sem framhjá-aksturs-skothríð.

Fara yfir öryggismál í Soginu

Stangaveiðifélag Reykjavíkur mun á næstunni fara ítarlega yfir öryggismál í Soginu til að reyna að koma í veg fyrir að slys verði í ánni, meðal annars í samráði við Landsvirkjun. Bjarni Júlíusson, formaður félagsins, segir félagið einnig ætla að fara yfir öryggismál almennt í ám landsins og fá til liðs við sig björgunarsveitarmenn og aðra sem til þekkja.

Flugvél KLM-flugfélagsins lenti óvænt í Keflavík

Flugvél frá KLM-flugfélaginu á leið til Kanada lenti óvænt á Keflavíkurflugvelli rétt eftir klukkan fjögur í dag. Friðþór Eydal, upplýsingafulltrúi Flugmálastjórnar segir að í vélinni hafi verið töskur sem ekki fylgdu þeim farþegum sem um borð voru. Í þeim tilfellum sé alltaf gripið til ákveðinna ráðstafana „Flugvél á ekki að fara í loftið með farangur sem tilheyrir ekki farþega um borð," segir Friðþór.

Kærði nauðgun til lögreglunnar

Kona á fertugsaldri kærði nauðgun til lögreglunnar í Vestmannaeyjum í gærmorgun. Fljótlega beindist grunur að erlendum ríkisborgara.

Bílvelta við Skarðsmýrafjall

Bíll valt á Þúsundvatnaleið í átt að Skarðsmýrarfjalli á Hellisheiðinni nú á fimmta tímanum. Lögregla og sjúkralið eru á vettvangi. Ekki er talið að alvarleg slys hafi orðið á fólki.

Yfirheyrslur yfir amfetamínsmyglurum halda áfram

Rannsókninni á smyglskútumálinu sem kom upp á Fáskrúðsfirði á fimmtudag miðar vel en yfirheyrslur yfir sakborningunum halda áfram, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá lögreglunni. Í Noregi var einn aðili handtekinn vegna málsins en sá er laus úr haldi. Í Færeyjum voru tveir handtekni.

Nágrannar Kompáslögmannsins óttast um börnin sín

Íslenskir foreldrar sem búa í nálægð við Kompáslögmanninn á Spáni óttast um börnin sín. Fjallað var um mál lögmannsins í Kompási síðastliðinn miðvikudag. Hann hefur verið ákærður fyrir kynferðisafbrot gegn fjórum unglingsstúlkum, fjórtán og fimmtán ára gömlum.

Bílvelta á Hafnafjarðarvegi

Bíll velti á Hafnafjarðarvegi við Kópavogslæk nú á þriðja tímanum. Að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu er ekki vitað til þess að alvarleg meiðsl hafi orðið á fólki. Tildrög slyssins eru ókunn.

Eldur í íþróttahúsinu á Bolungarvík

Eldur kviknaði í íþróttahúsinu á Bolungarvík um ellefuleytið í morgun. Að sögn lögreglunnar á Vestfjörðum gekk slökkvistarf vel og er því lokið. Lögreglan segir að upptök eldsins hafi verið í þaki hússins og er stór hluti af því ónýtur. Vestfjarðamótið í sundi stóð yfir í Bolungarvík þegar eldurinn kviknaði og var því talsverður fjöldi fólks í húsinu. Greiðlega gekk að koma fólkinu út og segir lögreglan að enginn hafi verið í hættu.

Býflugnabændur kynna afurðir í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum

Uppskeruhátíð býflugnabænda verður haldin í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Laugardal í Reykjavík milli klukkan tvö og fjögur í dag. Þar munu býflugnabændur kynna býflugnarækt og gefa gestum kost á að bragða á íslensku hunangi. Lifandi býflugur verða til sýnis. Einnig verður íslenskt hunang boðið til sölu.

Enn spáð óveðri

Engar fréttir hafa borist af tjóni vegna hvassviðris á landinu en stormviðvörun er enn í gildi hjá Veðurstofu Íslands.

Tveir gistu fangageymslur á Suðurnesjum í nótt

Erill hefur verið hjá lögreglu á Suðurnesjum um helgina. Tveir gistu fangageymslur lögreglunnar þar í bæ í nótt, annar vegna ölvunar og óláta á skemmtistað og hinn er grunaður um líkamsárás. Er það mál í rannsókn.

Erilsöm nótt hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu

Nóttin var erilsöm hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Tuttugu og sex voru handteknir vegna brota á lögreglusamþykkt og voru fangageymslur fullsetnar. Talsvert var um minniháttar slagsmál en enginn slasaðist alvarlega í þeim. Nokkrir voru teknir grunaðir um neyslu eða vörslu fíkniefna.

Pólska skútan komin í leitirnar

Pólska skútan sem hvarf á hafsvæðinu milli Íslands og Skotlands kom í leitirnar í nótt. Var hún þá stödd við Orkneyjar. Sjö voru um borð í skútinni og sakaði engan samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni. Björgunarbátur frá Orkneyjum er nú að færa skútuna til hafnar.

Samgönguvika við Tjörnina

Fjölmargir tóku þátt í lokadegi Samgönguvikunnar við Tjörnina í miðborg Reykjavíkur í dag. Boðið var upp á hóphjólreið og spennandi hjólreiðakeppni.

Rannsóknin teygir anga sína til Tékklands

Fáskrúðsfjarðarmálið teygir anga sína alla leið til Tékklands þar sem einn hinna grunuðu var eftirlýstur. Þá rannsakar lögreglan nú meðal annars hvort skútan hafi verið notið til fíkniefnaflutnings fyrir tveimur árum þegar hún kom til Fáskrúðsfjarðarhafnar.

Segir baráttu fyrir sameign á náttúruauðlindum tvísýna

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, sagði á fundi flokkstjórnar Samfylkingarinnar á Selfossi í dag að stjórnlaust kapphlaup um náttúruauðlindir, sem með réttu væru þjóðarinnar allrar, kallaði á tvísýna varnarbaráttu þeirra sem vildu tryggja skilgreinda sameign þjóðarinnar á sínum auðlindum.

Velti bíl undir áhrifum fíkniefna

Einn var fluttur á slysadeild eftir umferðarslys i Þrengslunum um eittleytið í dag. Slysið varð með þeim hætti að ökumaðurinn ók bíl sínum aftan á annan bíl sem stefndi í sömu átt. Við áreksturinn missti hann stjórn á bílnum og keyrði út af veginum með þeim afleiðingum að bíllin velti. Ökumaðurinn hlaut minniháttar meiðsl. Hann er grunaður um að aka undir áhrifum fíkniefna.

Átján hundruð millilítrar af kókaíni í fljótandi formi

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mun fara fram á gæsluvarðhald yfir tveimur körlum sem eru grunaðir um innflutning á ætluðum fíkniefnum frá Suður-Ameríku. Talið er að um sé að ræða 1800 ml af kókaíni í fljótandi formi. Mennirnir, annar á fertugsaldri en hinn um fertugt, voru handteknir í Laugarneshverfi í Reykjavík síðdegis í gær.

Vilja aflétta trúnaði af upplýsingum um Gagnaveitu Reykjavíkur

Fulltrúar Samfylkingarinnar í stjórn og varastjórn Orkuveitu Reykjavíkur, þau Sigrún Elsa Smáradóttir og Dagur B Eggertsson, hafa farið fram á við forstjóra og stjórnarformann að leynd verði aflétt af niðurstöðu verðmats á Gagnaveitu Reykjavíkur

Ingibjörg Sólrún gagnrýnir hagstjórn síðustu ríkisstjórnar

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, sagði við upphaf flokkstjórnarfundar á Selfossi í hádeginu að lausatök í hagstjórninni og fjáraustur úr ríkissjóði í aðdraganda kosninga setji nýrri ríkisstjórn miklar skorður við gerð fjárlaga fyrir næsta ár.

Vilja laða starfsfólk að leikskólum

Bæta á vinnuaðstöðu í leikskólum Kópavogs og auka greiðslur vegna kostnaðar í starfi kennarar samkvæmt nýrri aðgerðaráætlun sem kynnt var í gær. Markmiðið er að laða starfsfólk að leikskólum og auka fagþekkingu.

Þrennt í haldi lögreglu

Tveir karlmenn og ein kona eru í haldi lögreglu, grunuð um smygl á kókaíni frá Bandaríkjunum. Sérsveit lögreglu réðst til inngöngu í hús í Laugarneshverfi í gærkvöld og handtók fólkið.

Öflugasta skólastjórn Íslands

Í stjórn Hjallastefnunnar sem rekur átta leikskóla víðsvegar á Íslandi situr einvalalið. Flest þeirra sem skipa stjórnina hafa verið áberandi í íslensku atvinnulífi. Öll eiga þau það sameiginlegt að hafa verið áberandi í fjölmiðlum að undanförnu.

Faðmlög á fimmtíu kall

Æskulýðsfélag Ísafjarðarkirkju beitti nýstárlegum fjáröflunaraðferðum á Ísafirði í gær. Félagsmenn seldu faðmlög í gær fyrir utan verslunarmiðstöðina Neista á Ísafirði á aðeins 50 krónur.

Stormviðvörun

Veðurstofan hefur sent frá sér stormviðvörun vegna djúprar lægðar sem er að nálgast landið. Spáð er að veðrið verði verst á sunnanverðu og suðaustanverðu landinu.

Fjórtán handteknir í höfuðborginni

Fjórtán voru handteknir í höfuðborginni í nótt fyrir brot á lögreglusamþykkt sem er mun minna en síðustu helgar. Segja lögreglumenn það bera vott um að herferð lögreglu í borginni sé að skila árangri.

Skútan hafði ekki viðdvöl í Danmörku

Færeyska lögreglan segir að smyglskútan hafa beðið í nokkra daga í Færeyjum áður en hún hélt af stað til Íslands. Skútan kom frá Noregi en hafði ekki viðdvöl í Danmörku, eins og haldið hefur verið fram.

Aðgerðaáætlun gegn manneklu á leikskólum

Bæjarráð Kópavogs hefur samþykkt að veita tveimur leikskólum aukið fjárhagslegt og faglegt sjálfstæði í tilraunaskyni til þess að auka stöðugleika í starfsmannahaldi leikskólans og laða starfsfólk að leikskólum.

Höfuðpaurarnir taldir vera tveir

Bjarni Hrafnkelsson, 35 ára gamall Hafnfirðingur, og Einar Jökull Einarsson, 27 ára gamall Garðbæingur, eru samkvæmt heimildum Vísis taldir vera höfuðpaurar í Stóra smyglskútumálinu sem kom upp á Fáskrúðsfirði í gær. Þeir voru báðir handteknir á höfuðborgarsvæðinu í gærmorgun og úrskurðaðir í fjögurra vikna gæsluvarðhald í framhaldinu.

Vill ekki fallast á launakröfur fyrrverandi ritstjóra

Tekist var á um launakröfu Bjarna Brynjólfssonar, fyrrverandi ritstjóra Séð og heyrt, á hendur tímaritaútgáfunni Fróða í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Skiptastjóri þrotabús Fróða hefur hingað til ekki viljað fallast á allar kröfur Bjarna.

Íslensku pari sleppt í Kaupmannahöfn

Íslendingunum tveimur sem handteknir voru í Kaupmannahöfn í tengslum við smyglskútumálið á Fáskrúðsfirði hefur verið sleppt úr haldi. Fréttamaður Stöðvar 2 í Danmörku, Sighvatur Jónsson, segir að mál þeirra sé höndlað sem staðbundið fíkniefnamál í Kaupmannahöfn og tengist ekki smyglmálinu. Heimildir Vísis herma að um sé að ræða karl og konu á þrítugsaldri.

Saka borgaryfirvöld um yfirgang

Íbúar við Ánanaust í Reykjavík segja að borgaryfirvöld hafi virt þá að vettugi með því að heimila landfyllingu í fjörunni fyrir framan hús þeirra. Um er að ræða jarðveg sem fellur til vegna framkvæmda við tónlistar- og ráðstefnuhús við Austurhöfnina. Þeir óttast verulegar raskanir á nánasta umhverfi og að jarðvegurinn sé mengaður.

Slíta viðræðum við Landsvirkjun vegna Urriðafossvirkjunar

Eigendur jarðar við Þjórsá hafa slitið viðræðum við Landsvirkjun í tengslum við byggingu Urriðafossvirkjunar vegna of margra óvissuþátta í framkvæmdinni. Þetta kemur fram í bréfi sem lögmaður landeigendanna hefur sent stjórn Landsvirkjun.

Fallist á áætlun um kísilverksmiðju í Helguvík

Skipulagsstofnun hefur fallist á tillögu Tomahawk Development að matsáætlun um kísilverksmiðju í Helguvík með skilyrðum. Félagið skilaði í síðasta mánuði inn tillögu að matsáætlun.

Grunaðir bræður komu á skútu til Fáskrúðsfjarðar 2005

Tveir af mönnunum, sem nú sitja í gæsluvarðhaldi vegna smyglmálsins í skútunni á Fáskrúðsfirði, eru þeir sömu og sigldu skútu til Fáskrúðsfjarðar í september fyrir tveimur árum og báru við vélarbilun. Þá fóru þeir í land og fengu að hringja, líkt og skútumennirnir gerðu í gærmorgun.

Fækka á biðlistum með því að bjóða upp á skerta vistun

Ríflega 700 börn eru enn á biðlista eftir plássi á frístundaheimilum Íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur. Stjórn ÍTR samþykkti á fundi sínum að bjóða foreldrum í þeim hverfum þar sem biðlistar eru að fækka vistunardögum þannig að hægt væri að taka inn börn af biðlistum.

Íslendingur og Dani teknir með tvö kíló í Færeyjum

Færeyska lögreglan handtók klukkan sjö í gærkvöld einn Íslending og einn Dana í tengslum við spíttskútumálið. Í aðgerðum lögreglu voru haldlögð tvö kíló af amfetamíni. Skútan sem tekinn var í gærmorgun á Fáskrúðsfirði með um 60 kíló af eiturlyfjum hafði viðkomu í Færeyjum áður en henni var siglt hingað til lands.

Sjá næstu 50 fréttir