Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Lisa Ekdahl hefði verið sókndjarfari gegn Tyson Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu fær háðuglega útreið í sænskum fjölmiðlum eftir viðureignina í Stokkhólmi í gær, bæði hjá sænsku leikmönnunum og blaðamönnum. 7.6.2007 10:34
Búið að slökkva eld í verslun Skífunnar við Laugaveg Eldur kviknaði í rafmagnstöflu í verslun Skífunnar við Laugaveg laust eftir klukkan tíu í kvöld. Greiðlega gekk að slökkva eldinn sem var lítill og staðbundinn að sögn slökkviliðsins. 6.6.2007 22:55
Slökkvilið kallað út að húsnæði Skífunnar á Laugavegi Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út fyrir skömmu að húsnæði verslunarinnar Skífan á Laugavegi. Tilkynning barst um að reyk legði frá rafmagnstöflu í húsinu. 6.6.2007 22:30
Sumarbústaður brann til kaldra kola Eldur kviknaði í sumarbústað við Gufuá í Borgarfirði laust fyrir klukkan fimm í dag. Bústaðurinn varð fljótt alelda og brann til kaldra kola. Engan sakaði. 6.6.2007 22:11
Lögreglan lýsir eftir unglingi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Þorvaldi Erni Thoroddsen, 16 ára Reykvíkingi. Síðast sást til Þorvalds við heimili hans í Reykjavík í gær. 6.6.2007 21:47
Kviknaði í húsbíl í Grafarholti Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út laust eftir klukkan fimm í dag eftir að eldur kviknaði í húsbíl í Grafarholtinu. Greiðlega gekk að slökkva eldinn en eldsupptök eru ókunn. 6.6.2007 21:44
Niðurlæging á Råsunda leikvanginum Leik Svíþjóðar og Íslands í undankeppni EM var að ljúka og er óhætt að segja að íslenska landsliðið hafi verið niðurlægt af frændum okkur frá Svíþjóð. Svíar unnu 5-0 stórsigur og ljóst að eitthvað róttækt þarf að gerast til að snúa við gengi íslenska liðsins. 6.6.2007 20:26
Laun seðlabankastjóra hafa hækkað um 25 prósent síðan 2005 Hörð samkeppni um hæft starfsfólk á meðal fjármálastofnana réð því að bankaráð Seðlabankans ákvað að hækka laun bankastjóra. Þetta kemur fram í skriflegu svari Helga S. Guðmundssonar, formanns bankaráðs Seðlabankans, við fyrirspurn fréttastofu Stöðvar 2. Frá ársbyrjun 2005 hafa laun bankastjóra Seðlabankans hækkað um 25 prósent. 6.6.2007 20:15
Sakar DV um að hafa beitt sér á óeðlilegan hátt Geir H. Haarde forsætisráðherra segir að fara þurfi yfir lög um fjármál stjórnmálaflokka sem sett voru í fyrra. Formaður Framsóknarflokksins sakaði á Alþingi í dag fyrirtæki og einkaaðila um að hafa beitt sér á óeðlilegan hátt í nýafstaðinni kosningabaráttu. 6.6.2007 19:24
Fiskvinnsla áfram á Flateyri Fiskvinnsla verður áfram á Flateyri þrátt fyrir sölu fiskvinnslufyrirtækisins Kambs. Fyrirtækið Oddatá hefur keypt allar fasteignir og tæki Kambs og ætlar að viðhalda vinnslu í byggðarlaginu. Fyrirtækið á engan kvóta en forstjórinn er þó bjartsýnn á framtíð þess. 6.6.2007 19:19
3-0 í hálfleik Fyrri hálfleik í leik Svía og Íslendinga í undankeppni EM var að ljúka og er staðan 3-0. Marcus Allback skoraði fyrsta markið áður en Svenson og Mellberg náðu að koma boltanum framhjá Árna Gauti í marki Íslendinga. 6.6.2007 19:04
Grafalvarlegt að tilkynna ekki um aukaverkanir til Lyfjastofnunar Lyfjafræðingur hjá Lyfjastofnun segir það grafalvarlegt að læknar tilkynni ekki aukaverkanir vegna getnaðarvarnarpillunnar Yasmín, til stofnunarinnar. Tvær ungar íslenskar stúlkur hafa nýlega fengið blóðtappa vegna pillunnar með skömmu millibili og hvorugt tilfellanna var tilkynnt Lyfjastofnun. 6.6.2007 18:54
70% af Öryrkjablokkinni með hitastillingu Á undanförnum árum hafa að minnsta kosti þrír látist vegna brunasára sem þeir hlutu hér á landi af of heitu vatni. Sextugur öryrki er í lífshættu eftir brennheita sturtu í blokk Öryrkjabandalagsins við Hátún. Búið er að setja hitastýrð blöndunartæki í sjötíu prósent af íbúðum blokkarinnar. 6.6.2007 18:45
Ríkislögreglustjóri braut ekki gegn jafnræðisreglu í Baugsmálinu Haraldur Johannessen, ríkislögreglustjóri, braut ekki gegn jafnræðisreglu við meðferð ákæruvalds í sakamáli á hendur Jóhannesi Jónssyni, kaupmanni. Þetta er niðurstaða athugunar Boga Nilsson, ríkissaksóknara, á málinu. Jóhannes hélt því fram að hann hafi ekki setið við sama borð og Jón Gerald Sullenberg í þeim hluta Baugsmálsins er snerist um tollalagabrot. 6.6.2007 17:53
Þorsteinn Ingi Sigfússon verður forstjóri Nýsköpunarmistöðvar Íslands Þorsteinn Ingi Sigfússon, prófessor, hefur verið ráðinn forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands samkvæmt tilkynningu frá iðnaðarráðuneytinu. Þorsteinn mun hefja störf strax í næstu viku en stofnunin tekur til starfa 1. ágúst næstkomandi þegar Iðntæknistofnun og Rannsóknarstofnun byggingariðnaðarins sameinast. 6.6.2007 17:40
Skammt í að leikur Íslendinga og Svía hefjist Skammt er þangað til leikur Íslendinga og Svía í riðlakeppni Evrópumeistaramótsins í knattspyrnu hefst í Stokkhólmi. Góð stemning er meðal stuðningsmanna íslenska landsliðsins þrátt fyrir að sparksérfræðingar telji möguleika Íslands frekar litla. 6.6.2007 17:13
„Markmiðið er að viðhalda atvinnu á þessari fallegu eyri“ Kristján Erlingsson, forsvarsmaður Oddatáar sem keypt hefur allar fasteignir og tæki Kambs á Flateyri segir að aðalmarkmiðið með kaupunum sé að tryggja atvinnu á Flateyri. Hann segir mikla óvissu enn vera ríkjandi í málinu en er bjartsýnn á dæmið gangi upp. Kristján segir það ráðast á næstu vikum hvort allir fyrrum starfsmenn Kambs fái vinni í nýja fyrirtækinu. 6.6.2007 17:07
Eldsneytisverð hækkar Skeljungur og N1 hækkaðu verð á eldsneyti í dag. Hjá báðum aðilum námu hækkanirnar um 1,70 krónum fyrir bensínlítrann og 1,50 krónur fyrir lítra af díselolíu. 6.6.2007 17:00
Menningarhátíð Seltjarnarness kynnt Menningarhátíð Seltjarnarness stendur yfir dagana 8 - 10 júní. Hún ber yfirskriftina Seltjarnarnesið, sjórinn og útgerð. Dagskráin verður fjölbreytt og má þar nefna ljósmyndasýningu í bókasafni Seltjarnarness sem ber heitið Systir með sjóhatt. 6.6.2007 16:49
Bað þingmenn um setjast og hafa þögn við upphaf fundar Sturla Böðvarsson, nýkjörinn forseti Alþingis, beindi þeim tilmælum til þingmanna að mæta á réttum tíma og sitja hljóðir í sætum sínum í þingsal. Þessi orð lét hann falla við upphaf þingfundar í dag. 6.6.2007 16:27
Tveir ungir piltar syntu í land eftir að hafa kastast af sæþotu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu aðstoðaði tvo 16 ára pilta sem köstuðust af sæþotu um hálf tólfleytið í gærkvöld. Þeir voru staddir á Arnarnesvogi um 50 metra frá landi. Nokkur straumur var á þessu svæði sem bar sæþotuna fljótt frá piltunum. 6.6.2007 16:12
Rausnargjöf til Krabbameinsfélagsins Krabbameinsfélagi Íslands barst ómetanleg gjöf 19. maí síðastliðinn þegar fjölskylda Jóhönnu Jóreiðar Þorgeirsdóttur færði félaginu stórgjöf til minningar um hana. Jóhanna lést 21. apríl 2006. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Krabbameinsfélaginu. 6.6.2007 16:11
Grundarfjörður vill kvótann fyrr Bæjarstjórn Grundarfjarðar hefur sent sjávarútvegsráðuneytinu tillögu um að kvóta verði úthlutað fyrr á árinu. 6.6.2007 15:51
Rannsókna- og fræðasetur í Bolungarvík Samningur hefur verið undirritaður um nýtt Rannsókna- og fræðasetur Háskóla Íslands á Vestfjörðum sem mun taka til starfa í Bolungarvík innan tíðar. Það eru Háskóli Íslands, Náttúrustofa Vestfjarða og Bolungarvíkurkaupstaður sem standa að setrinu. 6.6.2007 15:46
Flugfélög taka gjald fyrir golfsett Flugfélögin SAS og Icelandair eru farin að taka sérstakt gjald fyrir golfsett í ferðum kylfinga á milli landa. Þetta kemur fram á vefnum kylfingur.is. SAS tekur 1.500 kr. fyrir settið i styttri ferðum innan Evrópu en 3.500 kr. í lengri ferðum. Hjá Icelandair er hægt að skrá sig í klúbbinn Icelandair golfers. 6.6.2007 14:44
Tvær nefndir sameinaðar og þeirri þriðju skipt upp Landbúnaðarnefnd og sjávarútvegsnefnd Alþingis voru sameinaðar með lagasetningu á Alþingi í dag. Þá hefur efnahags- og viðskiptanefnd verið skipt í tvennt. 6.6.2007 14:03
Vill fara yfir lög um fjármál stjórnmálaflokka Geir H. Haarde forsætisráðherra sagði á Alþingi í dag að fara þyrfti yfir lög um fjármála stjórnmálaflokka sem sett voru í fyrra í kjölfar nýafstaðinna kosninga. Það var Guðni Ágústsson sem kvaddi sér hljóðs um störf þingsins við upphaf þingfundar og gerði kosningablað DV og auglýsingu Jóhannesar Jónssonar í Bónus að umtalsefni. 6.6.2007 14:01
Oddatá kaupir eignir Kambs og hyggst starfa á Flatey Oddatá, sem er að mestum hluta í eigu og undir stjórn Kristjáns Erlingssonar, hefur keypt allar fasteignir og tæki Kambs á Flateyri með það fyrir augum að halda áfram vinnslu í byggðarlaginu. Eins og kunugt er ákváð eigandi Kambs fyrir skemmstu að selja eignir sínar og misstu 120 manns vinnu við það. 6.6.2007 13:57
Forstjóri Orkuveitunnar fagnar rammaáætlun Guðmundur Þóroddsson, forstjóri Orkuveitunnar segir að ef orkusölu til álvers í Helguvík verður, séu tekjurnar af þeim samning um fjörutíu milljarðar á samningstímanum. Hann segir líklegt að þessar tekjur muni gera Orkuveitunni kleift að lækka raforkureikning höfuðborgarbúa. Hann fagnar fyrirhugaðri rammaáætlun ríkisstjórnarinnar. 6.6.2007 13:11
Breyttur landsliðshópur Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Svíum í kvöld. Nokkrar breytingar eru á liðinu frá því í leiknum gegn Lichtenstein á laugardaginn. 6.6.2007 13:11
Afurðarstöðvar geta haft með sér samráð Afurðastöðvar í mjólkuriðnaði geta sameinast án afskipta samkeppnisyfirvalda og haft með sér samráð segir forstjóri Samkeppniseftirlitsins. 6.6.2007 13:00
Ísafjarðarbær kærður vegna ráðningar Pétur Björnsson hefur kært Ísafjarðarbæ til félagsmálaráðuneytisins. Pétur sótti um stöðu forstöðumanns skóla- og fjölskylduskrifstofu. Hann þótti ekki uppfylla skilyrði sem sett voru í auglýsingu um starfið. Pétur telur að á sér hafi verið brotið við ráðninguna. 6.6.2007 12:49
Gætu orðið mistök að hafa keypt gamalt skip Kristján Möller samgönguráðherra segir að skoðun á Grímseyjarferjumálinu gæti leitt í ljós að mistök hafi verið að kaupa gamalt skip. Hann skoðaði ástand skipsins nú í morgun í Hafnarfjarðarhöfn. 6.6.2007 12:37
Aðgerðir ríkisstjórnar í velferðarmálum verði vel tímasettar Davíð Oddsson seðlabankastjóri segir brýnt að ný aðgerðaráætlun ríkisstjórnarinnar í þágu barna og ungmenna sé vel tímasett. Hann segir skynsamlegt að hægja á, því mikil innspýting fjármuna sé ekki heppileg miðað við efnahagsástandið í landinu. 6.6.2007 12:14
Nýliðar í Norðurlandaráði Sex af þeim sjö fulltrúum sem Íslendingar tilnefna í sendinefnd Íslands í Norðurlandaráði hafa ekki setið í nefndinni áður og tæpur helmingur þeirra eru nýjir þingmenn. Kjartan Ólafsson, varaformaður sendinefndarinnar, er eini þingmaðurinn sem sæti átti í nefndinni fyrir kosningar. Árni Páll Árnason, Samfylkingu, verður nýr formaður sendinefndarinnar. 6.6.2007 12:14
Heitavatnsbruni leitt til þriggja dauðsfalla Á undanförnum árum hafa að minnsta kosti þrír látist hér á landi vegna brunasára sem þeir hlutu af of heitu vatni. Byggingarreglugerð á að koma í veg fyrir að fólk geti brennt sig á þennan hátt. 6.6.2007 12:12
Eigið fé smærri útgerða gufar upp við niðurskurð á þorskskvóta Eigið fé margra smærri útgerða gufar upp verði farið að tillögum Hafrannsóknastofnunar um þriðjungs niðurskurð á þorskkvótanum. Óttast er að bankarnir muni ganga að þeim fyrirtækjum og að margvíslegar kvótatilfærslur séu framundan. 6.6.2007 12:00
Tvær ungar íslenskar konur fengu blóðtappa vegna Yasmín pillunnar Tvær ungar íslenskar konur segjast hafa fengið blóðtappa í lungun eftir að hafa verið á Yasmin getnaðarvarnarpillunni. Lyfjastofnun og Icepharma segjast ekki hafa fengið tilkynningar um alvarlegar aukaverkanir vegna hennar. Danska Lyfjastofnunin segir Yasmin pilluna ekki valda meiri aukaverkunum en aðrar getnaðarvarnarpillur. 6.6.2007 11:56
Kristján Leósson hlaut hvatningarverlaun Kristján Leósson eðlisverkfræðingur hlaut í morgun hvatningarverðlaun vísinda og tækniráðs fyrir rannsóknir á sviði örtækni. Geir H. Haarde, formaður vísinda og tækniráðs veitti verðlaunin á Rannsóknarþingi sem sett var í morgun. Kristján fékk 2.5 milljónir króna í sinn hlut. 6.6.2007 11:48
Stúdentar vilja frítt í strætó á öllu höfuðborgarsvæðinu Stúdentaráð Háskóla Íslands og Bandalag íslenskra námsmanna hafa sent stjórn Strætó bs. erindi þess efnis að frítt verði í strætó fyrir alla námsmenn á höfuðborgarsvæðinu á komandi skólaári. Aðeins níu prósent nemenda við Háskóla Íslands taka strætó í skólann eins og staðan er í dag. 6.6.2007 11:09
Útskrifaður af gjörgæslu eftir slys á Suðurlandsvegi Unga konan sem slasaðist í bílslysi á Suðurlandsvegi fyrir viku er enn í öndunarvél á gjörgæslu Landsspítalans í Fossvogi. Maðurinn sem var með henni í bílnum hefur verið útskrifaður af gjörgæsludeild og hefur verið fluttur á skurðdeild. Að sögn vakthafandi læknis er hann á batavegi. 6.6.2007 10:44
Vextir Íbúðarlánasjóðs hækka Vextir lána Íbúðalánasjóðs hafa verið hækkaðir um 0,05% í kjölfar útboðs á Íbúðabréfum í gær. Vextir lána með uppgreiðsluálagi eru nú 4,70%, en vextir lána án uppgreiðsluálags eru nú 4,95%. 6.6.2007 10:40
Hvað eru Íslendingar að gera í Danmörku? Flestir þeirra Íslendinga sem búsettir eru í Danmörku og stunda vinnu á annað borð starfa við að veita ýmiskonar þjónustu við atvinnurekstur. Í þessum geira starfa 530 Íslendingar en í tölum dönsku hagstofunnar vekur það athygli að aðeins 19 Íslendingar stunda sjóinn í Danmörku. 6.6.2007 10:34
Vespur valda vandræðum í Vestmannaeyjum Lögreglan í Vestmannaeyjum hefur ítrekað þurft að hafa afskipti af ökumönnum léttra bifhjóla, svokölluðum vespum. Fjórir voru stöðvaðir við akstur á vespum nýverið þar sem þeir höfðu ekki réttindi til að aka þeim. 5.6.2007 23:35
Bíll fauk útaf Vesturlandsvegi Jeppabifreið með kerru í afturdragi fór útaf Vesturlandsvegi við Hafnarfjall laust fyrir klukkan tíu í kvöld. Tveir voru í bílnum en þá sakaði ekki. Talið er vindhviða hafi feykt kerrunni til með þeim afleiðingum að ökumaður missti stjórn á bílnum. Nokkuð hvasst er á svæðinu að sögn lögreglu. 5.6.2007 22:21