Fleiri fréttir 37 milljónir til atvinnulausra ungmenna Tilkynnt var um stofnun Fjölsmiðju á Akureyri á aðalfundi Rauða kross Íslands í dag. Fjölsmiðja er atvinnutengt úrræði fyrir ungt fólk á krossgötum sem hefur flosnað upp úr námi eða vinnu þar sem ungmennum er hjálpað við að finna sér stað í vinnu eða námi. 19.5.2007 15:18 Reyna að halda kvótanum innan svæðisins Birna Lárusdóttir, forseti bæjarstjórnar á Ísafirði segir mikilvægt að kvótinn sem Kambur átti haldist í byggðarlaginu. Bæjarstjórn Ísafjarðar hefur sett sig í samband við útgerðarmenn á svæðinu í von um að þeir geti komið að málinu. 19.5.2007 13:25 Braust inn og réðist á húsráðanda Maður á þrítugsaldri varð fyrir alvarlegri líkamsárás á uppstigningardag. Það varð honum til happs að nágranni hans hringdi eftir aðstoð. Það var um hádegisbil á uppstigningardag sem árásin átti sér stað. Fórnarlambið, sem er karlmaður, var sofandi á heimili sínu þegar árásarmaðurinn braust þar inn og tók til við að berja á manninum. 19.5.2007 13:23 Strumpar á leið til Reykjavíkur Sextán Strumpar eru nú að þramma frá Þorlákshöfn til Reykjavíkur. Um hádegisbilið voru þeir í Þrengslunum og sóttist ferðin vel. Strumpar þessir tilheyra unglingadeild björgunarsveitarinnar Mannbjörg, í Þorlákshöfn. Þeir kusu sér strumpanafnið sjálfir. 19.5.2007 13:12 Stjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar góð fyrir efnahagslífið Greining Glitnis telur að ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar muni reynast fjármálamörkuðum nokkuð hagfelld. Slík stjórn myndi trúlega halda áfram þeirri þróun til markaðs- og alþjóðavæðingar sem einkennt hafi íslenskt efnahagslíf frá upphafi tíunda áratugarins. 19.5.2007 12:45 Búist við nýrri ríkisstjórn í vikunni Þótt almenn bjartsýni ríki meðal forystumanna Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar um myndun nýrrar ríkisstjórnar, eiga þeir enn eftir að greiða úr stórum álitamálum sín í milli. Formenn flokkanna skipuðu málefnahópa í gær til að koma með tillögur að stjórnarsáttmála. 19.5.2007 12:31 Fjölskyldudagur Stöðvar 2 í Húsdýragarðinum Hinn árlegi fjölskyldudagur Stöðvar 2 er haldinn hátíðlegur í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í dag. Garðurinn verður opinn frá 11 til 16. Skoppa og Skrítla skemmta börnunum klukkan 14:30. Það er frítt í öll leiktæki í garðinum. Þar er stærsta rennibraut landsins, risa þrautabraut, hoppukastali og fleira. 19.5.2007 11:44 Hreindýr og ófærð á vegum Snjóþekja er á Steingrímsfjarðarheiði. Hálkublettir eru á Fjarðarheiði og á Mörðudalsöræfum. Ófært er yfir Hellisheiði eystri.Á Austurlandi er mikið um að Hreindýr séu við vegi og eru vegfarendur beðnir um að aka þar með gát. 19.5.2007 11:20 Kajak á hvolfi reyndist bauja 19.5.2007 11:05
Sjá næstu 50 fréttir
37 milljónir til atvinnulausra ungmenna Tilkynnt var um stofnun Fjölsmiðju á Akureyri á aðalfundi Rauða kross Íslands í dag. Fjölsmiðja er atvinnutengt úrræði fyrir ungt fólk á krossgötum sem hefur flosnað upp úr námi eða vinnu þar sem ungmennum er hjálpað við að finna sér stað í vinnu eða námi. 19.5.2007 15:18
Reyna að halda kvótanum innan svæðisins Birna Lárusdóttir, forseti bæjarstjórnar á Ísafirði segir mikilvægt að kvótinn sem Kambur átti haldist í byggðarlaginu. Bæjarstjórn Ísafjarðar hefur sett sig í samband við útgerðarmenn á svæðinu í von um að þeir geti komið að málinu. 19.5.2007 13:25
Braust inn og réðist á húsráðanda Maður á þrítugsaldri varð fyrir alvarlegri líkamsárás á uppstigningardag. Það varð honum til happs að nágranni hans hringdi eftir aðstoð. Það var um hádegisbil á uppstigningardag sem árásin átti sér stað. Fórnarlambið, sem er karlmaður, var sofandi á heimili sínu þegar árásarmaðurinn braust þar inn og tók til við að berja á manninum. 19.5.2007 13:23
Strumpar á leið til Reykjavíkur Sextán Strumpar eru nú að þramma frá Þorlákshöfn til Reykjavíkur. Um hádegisbilið voru þeir í Þrengslunum og sóttist ferðin vel. Strumpar þessir tilheyra unglingadeild björgunarsveitarinnar Mannbjörg, í Þorlákshöfn. Þeir kusu sér strumpanafnið sjálfir. 19.5.2007 13:12
Stjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar góð fyrir efnahagslífið Greining Glitnis telur að ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar muni reynast fjármálamörkuðum nokkuð hagfelld. Slík stjórn myndi trúlega halda áfram þeirri þróun til markaðs- og alþjóðavæðingar sem einkennt hafi íslenskt efnahagslíf frá upphafi tíunda áratugarins. 19.5.2007 12:45
Búist við nýrri ríkisstjórn í vikunni Þótt almenn bjartsýni ríki meðal forystumanna Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar um myndun nýrrar ríkisstjórnar, eiga þeir enn eftir að greiða úr stórum álitamálum sín í milli. Formenn flokkanna skipuðu málefnahópa í gær til að koma með tillögur að stjórnarsáttmála. 19.5.2007 12:31
Fjölskyldudagur Stöðvar 2 í Húsdýragarðinum Hinn árlegi fjölskyldudagur Stöðvar 2 er haldinn hátíðlegur í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í dag. Garðurinn verður opinn frá 11 til 16. Skoppa og Skrítla skemmta börnunum klukkan 14:30. Það er frítt í öll leiktæki í garðinum. Þar er stærsta rennibraut landsins, risa þrautabraut, hoppukastali og fleira. 19.5.2007 11:44
Hreindýr og ófærð á vegum Snjóþekja er á Steingrímsfjarðarheiði. Hálkublettir eru á Fjarðarheiði og á Mörðudalsöræfum. Ófært er yfir Hellisheiði eystri.Á Austurlandi er mikið um að Hreindýr séu við vegi og eru vegfarendur beðnir um að aka þar með gát. 19.5.2007 11:20
Missti meðvitund eftir átök við skemmtistað í Reykjanesbæ Flytja þurftir karlmann á slysadeild í Reykjanesbæ í nótt eftir átök við skemmtistað í bænum. Maðurinn fékk skurð á hnakka og missti meðvitund en rankaði fljótt við sér aftur. Hann var fyrst fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja en svo á slysadeild Landspítala-háskólasjúkrahús. 19.5.2007 09:57
Tekið á sýndarmennsku á Glerárgötu Á Akureyri hefur borið á því að undanförnu að menn séu að sperra sig á Glerárgötunni og því ákvað lögreglan á staðnum að vakta götuna og sjá hvort hægt væri að stoppa þetta háttarlag. Það bar árangur því níu ökumenn voru teknir fyrir hraðakstur þar í gærkveldi og nótt. Sá ókumaður sem fór hraðast yfir þar í bæ í gærkvöldi mældist á 103 kílómetra hraða en á Glerárgötu er hámarkshraði 50 kílómetrar á klukkustund. 19.5.2007 09:51
Komust ekki á dansleik Lögreglan á Selfossi hefur haft í nógu að snúast undanfarin sólarhring því mikið hefur borið á hraðakstri þar í grenndinni. Á síðasta sólarhring stöðvaði Selfosslögreglan tuttugu og tvo ökumenn sem óku langt yfir leyfilegur hámarkshraða. Sá sem hraðast ók mældist á 147 kílómetra hraða en sá var 18 ára og á leið á dansleik á Rangárvöllum. 19.5.2007 09:49
Eldur í sumarbústað á Skipalæk Eldur kom upp í sumarbústað á Skipalæk rétt fyrir utan Egilsstaði í kvöld. Vel gekk að ráða niðurlögum eldsins en talið er að hann hafi blossað upp út frá gasgrilli. 18.5.2007 22:43
Slökkviliðið hefur lokið störfum í Mosfellsbæ Útkallið sem slökkviliðið fór í til Mosfellsbæjar fyrr í kvöld reyndist vera minniháttar. Að sögn slökkviliðsmanns á vakt reyndist vera um að ræða reyk sem myndaðist út frá glóð í sígarettu en enginn eldur mun hafa blossað upp af þeim völdum. 18.5.2007 22:22
Mynd Valdísar Óskarsdóttur fer í alþjóðlega dreifingu Samningar hafa náðst á kvikmyndahátíðinni í Cannes um alþjóðlega dreifingu á íslensku gamanmyndinni Sveitabrúðkaup, eða “Country Wedding”. 18.5.2007 21:04
Gremja og tortryggni í vegi fyrir samstarfi Jón Sigurðsson formaður Framsóknarflokksins segir Baugsstjórn réttnefni á ríkisstjórn Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks sem er í burðarliðnum. Hann segir að forysta stjórnarandstöðuflokkanna hafi sjálf eyðilagt möguleikann á vinstri stjórn með gremju og tortryggni. 18.5.2007 19:43
Hverjir verða ráðherrar? Fólk er þegar farið að velta fyrir sér nýjum ráðherrum. Sennilegt þykir að jöfn skipti verði milli kynja hjá Samfylkingunni og þá má búast við breytingum hjá Sjálfstæðisflokknum. 18.5.2007 19:34
Steingrímur kom í veg fyrir vinstristjórn Össur Skarphéðinsson þingflokksformaður Samfylkingarinnar segir að ef einhver hafi sargað í sundur brúna milli Samfylkingarinnar, Vinstri grænna og Framsóknarflokksins, sé það Steingrímur J. Sigfússon formaður VG. 18.5.2007 19:28
Geir fær stjórnarmyndunarumboð Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands veitti Geir H Haarde formanni Sjálfstæðisflokksins umboð til stjórnarmyndunar með Samfylkingunni á Bessastöðum í morgun. Forsetinn setti engan tímafrest á viðræðurnar, en telur æskilegt að þeim ljúki á viku til tíu dögum. 18.5.2007 19:24
Svandís og ungarnir sluppu með naumindum Álftin Svandís uggði ekki að sér með ungana sína fimm þegar vargahópur gerði harða hríð að fjölskyldunni á Seltjarnarnesi í dag. Baldur Hrafnkell Jónsson myndatökumaður varð vitni að árásinni. 18.5.2007 19:16
Landsbjörg og Landhelgisgæslan undirrita samkomulag Skrifað var undir samkomulag milli slysavarnafélagsins Landsbjargar og Landhelgisgæslunnar í dag um nánara samstarf Landsbjargar og þyrlusveita Gæslunnar. 18.5.2007 19:02
Frestaði því að ráða í starf ríkissaksóknara Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, hefur frestað því að ráða í starf ríkissaksóknara til næstu áramóta. Fyrirhugað var að nýr maður tæki við starfinu 1. júlí og eru umsækjendur um stöðuna missáttir. 18.5.2007 18:42
70 prósent af veltu Samherja í útlöndum Samherji hf. hefur keypt erlenda starfsemi Sjólaskipa hf. og tengdra félaga. Með kaupunum nemur velta Samherja í útlöndum 70 prósentum af heildarveltu félagsins. 18.5.2007 18:26
Þrír Litháar dæmdir fyrir hylmingu, þjófnaði og vopnaburð Þrír ungir menn frá Litháen, á aldrinum 19 til 25 ára, voru í dag dæmdir fangelsisvistar fyrir að reyna að koma stolnum úrum í verð, fyrir vopnaburð og fyrir þjófnaði. 18.5.2007 17:33
Óttast að skolp leki út í Varmá Til greina kemur að endurskipuleggja lagnaframkvæmdir í Álafosskvosinni í Mosfellsbæ að hluta. Þetta var niðurstaða fundar skipulagsyfirvalda í Mosfellsbæ með fulltrúum verktaka og eins íbúa á svæðinu. Hafa menn áhyggjur af því að verið sé að leggja skolplagnir of nálægt bökkum Varmá. 18.5.2007 17:09
Eins og hálfs árs fangelsi fyrir kynferðisbrot gagnvart barni Héraðsdómur Norðurlands eystra dæmdi í dag karlmann í eins og hálfs árs fangelsi fyrir kynferðisbrot gagnvart tíu ára stúlku á heimili sínu. Þá var hann dæmdur til að greiða henni eina milljón króna í miskabætur fyrir athæfið. 18.5.2007 17:07
Segja góðan gang og anda í viðræðunum Bæði Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins, og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sögðu góðan gang í viðræðum flokkanna um myndun nýrrrar ríkisstjórnar eftir fund sinn í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu í dag. Auk þeirra komu Össur Skarphéðinsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, að viðræðunum í dag. 18.5.2007 16:43
Mikill áhugi á þróunarstarfi Tæplega tvö hundruð umsóknir frá ungu háskólafólki bárust um starfsþjálfun á vegum Þróunarsamvinnustofnunar Íslands. Umsóknarfrestur um fimm mánaða starfsþjálfun rann út um síðustu mánaðamót en boðið er upp á þjálfun fyrir fimm einstaklinga. 18.5.2007 16:23
Kambur hættir útgerð og fiskvinnslu á Flateyri Eigendur Fiskvinnslunnar Kambs á Flateyri tilkynntu starfsmönnum sínum í dag þá ákvörðun að hætta útgerð og fiskvinnslu og selja allar eignir félagsins á staðnum. Þetta þýðir að um 120 manns missa vinnuna, þar af 65 manns í landvinnslu. 18.5.2007 16:09
Fyrsta fundi Ingibjargar og Geirs lokið Fyrsta fundi Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, formanns Samfylkingiarinnar, og Geirs H. Haarde, formanns Sjálfstæðisflokksins, um myndun nýrrar ríkisstjórnar er lokið. Fundurinn fór fram í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu og hófst klukkan 14. Stóð hann því í um tvær klukkustundir. 18.5.2007 15:56
Framkvæmdir stöðvaðar í Álafosskvos Lagnaframkvæmdir í Álafosskvos í Mosfellsbæ hafa verið stöðvaðar. Þetta kom fram í fréttum Ríkisútvarpsins. Íbúar á svæðinu kölluðu tvisvar á lögreglu eftir að framkvæmdir hófust síðastliðinn mánudag. Deilt er um hvort framkvæmdirnar séu löglegar en samtök íbúa á svæðinu telja þær tengjast umdeildri vegalagninu. 18.5.2007 15:51
Hafa lagt að baki 315 þúsund kílómetra á hjóli Tæplega 6500 manns sem tekið hafa þátt í fyrirtækjaleiknum „Hjólað í vinnuna" hafa nú þegar lagt að baki nærri 315 þúsund kílómetra þær tvær vikur sem átakið hefur staðið yfir. 18.5.2007 15:24
Ölvaðir jeppaþjófar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í morgun karl og konu fyrir að hafa tekið jeppa ófrjálsri hendi. Þau voru bæði nokkuð ölvuð þegar þau voru handtekin. 18.5.2007 15:21
Fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir ölvunarakstur Karlmaður á þrítugsaldri var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir ölvunarakstur og fyrir að stefna lífi lögregluþjóna og annarra í hættu. Þá var maðurinn sviptur ökuréttindum í átján mánuði og gert að greiða 150 þúsund krónur í sekt. 18.5.2007 14:44
Tíu fíkniefnamál hjá lögreglunni aðfaranótt uppstigningardags Tíu karlmenn komu við sögu í jafnmörgum fíkniefnamálum sem komu til kasta lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu aðfaranótt uppstigningardags. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að í fórum mannanna hafi fundist ætluð fíkniefni, aðallega amfetamín en einnig kókaín og LSD. 18.5.2007 14:31
Embætti ríkissaksóknara auglýst að nýju Björn Bjarnason dómsmálaráðherra hefur frestað því að ráða nýjan ríkissaksóknara til næstu áramóta og mun Bogi Nilsson sinna starfinu þangað til. Fram kemur á vef dómsmálaráðuneytisins að samkomulag þessa efnis hafi orðið á milli Björns og Boga en til stóð að Bogi léti af embætti 1. júlí næstkomandi. 18.5.2007 14:19
Vonbrigði að ekki var hægt að mynda vinstristjórn Samfylkingin virðist vera tilbúin að fórna mörgum stefnumálum til að ná að mynda ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum að sögn Steingríms J. Sigfússonar, formanns Vinstri grænna. Hann segir það vera vonbrigði að ekki náðist að mynda vinstristjórn og óttast að sú stjórn sem er í myndun verði of hægrisinnuð. 18.5.2007 14:16
Morgunblaðið fer rangt með hugtök, segir Modernus Vefmælingarfyrirtækið Modernus, í samráði við Viðskiptaráð Íslands, hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem segir að Morgunblaðið hafi farið rangt með hugtök sem notuð séu hjá Modernus í auglýsingu frá mbl.is. 18.5.2007 14:05
Geir og Ingibjörg funda í Ráðherrabústaðnum Fyrsti fundur Geirs H. Haarde, formanns Sjálfstæðisflokksins, og Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, formanns Samfylkingarinnar, um myndun ríkisstjórnar hófst í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu klukkan tvö. Ingibjörg segist ekki gera mikið með tilboð Vinstri grænna og Framsóknarflokksins um forsætisráðherrastól. 18.5.2007 13:53
Eins mánaðar skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt konu í eins mánaðar skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa ráðist á kynsystur sína í Sjallanum í fyrra. Var konunni gefið að sök að hafa skellt hausnum á fórnarlambi sínu þrisvar til fimm sinnum ofan á borð og slegið það svo þannig að fórnarlambið hlaut meðal annars glóðarauga á báðum. 18.5.2007 13:00
Sjómaður sóttur á haf út Sjómaður meiddist á auga um borð í rússneskum togara suðvestur af landinu í nótt og óskaði skipstjórinn eftir að Landhelgisgæslan sækti hann og flytti á sjúkrahús. 18.5.2007 12:30
Bankatoppar fá þjóðhöfðingjamóttökur Tæplega 30 ómerktir eðalvagnar voru pantaðir á Leifsstöð og Reykjavíkurflugvöll í gær. 18.5.2007 12:09
Bíða fregna af Kambi á Flateyri Íbúar Flateyrar bíða nú milli vonar og ótta nánari fregna varðandi framtíð atvinnulífs í bænum, sem væntanlega verður greint frá á starfsmannafundi hjá útverðarfélaginu Kambi síðar í dag. 18.5.2007 12:04
Jón býður Ingibjörgu forsætisráðherrastólinn Jón Sigurðsson, formaður Framsóknarflokksins, býður Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, formanni Samfylkingarinnar, forsætisráðherrastól í ríkisstjórn Framsóknarflokks, Vinstri grænna og Samfylkingarinnar. Í pistli á heimasíðu Framsóknarflokksins sakar hann sjálfstæðismenn um tvöfeldni. 18.5.2007 11:37
Velferðarsjóður barna styður líberísk börn til mennta Velferðarsjóður barna styður starf ABC barnahjálpar í Líberíu um 18 milljónir króna á næstu þremur árum samkvæmt samningi sem undirritaður var í morgun. Þetta er stærsti einstaki styrkur sem ABC barnahjálp hefur hlotið en fjármunirnir fara í uppbyggingu skólastarfs í landinu. 18.5.2007 11:28