Fleiri fréttir

Vaðandi í hundaskít

Hundaskítur gerir trillukörlum á Akureyri lífið leitt þessa dagana og stofnar matvælaiðnaði þeirra í voða að sögn trillukarls. Hundaeigendur eru sakaðir um fullkomið virðingarleysi gagnvart sjómönnum.

ESSO verður N1

Olíufélagið Esso og Bílanaust heita nú eftir sameininguna N1. Hermann Guðmundsson forstjóri N1, segir nafnið hafa orðið fyrir valinu til að undirstrika þann metnað fyrirtækisins að vera í forystu hvað varðar góða þjónustu við bíleigendur, fólk á ferðinni og fyrirtækin í landinu.

VG: Engar frekari stóriðjuákvarðanir

Flokksstjórn Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs beinir tilmælum til formanna stjórnarflokkanna og um leið iðnaðarráðherra að öllum undirbúningi og hvers kyns aðgerðum er tengjast stórvirkjunum og uppbyggingu frekari stóriðju verði hætt. Krafa stjórnar VG er að ekkert verði frekar aðhafst og engar frekari ákvarðanir teknar á þessu sviði fram yfir kosningar 12. maí nk. og þar til nýr þingmeirihluti og ný ríkisstjórn hefur tekið til starfa.

Tveir stórir árekstrar

Tveir stórir árekstrar urðu á sama tíma á Miklubraut austan við Grensássveg um klukkan 17 í dag. Í öðrum árekstrinum voru fjórir bílar en í hinum þrír bílar. Í báðum tilvikum er um aftanákeyrslu að ræða. Engin slys urðu á fólki.

Ekki vinsælt að gifta sig föstudaginn þrettánda

Þrátt fyrir að giftingar séu gjarnan hjá Sýslumanninum í Reykjavík á föstudögum, var engin slík í dag, föstudaginn þrettánda. Prestur sem Stöð 2 ræddi við segir það ekki koma sér á óvart þar sem dagsetning skipti miklu máli þegar stórar ákvarðanir eru teknar. Sumir líta þó á daginn sem áskorun.

Vænta mikils af samvinnu við Ingibjörgu

Mona Sahlin leiðtogi sænskra jafnaðarmanna og Helle Thorning-Schmidt leiðtogi danskra jafnaðarmanna segja að jafnaðarmenn á Norðurlöndum vænti mikils af samvinnu við Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur ef Samfylkingin kemst til valda á Íslandi. Þær eru sérstakir gestir á landsfundi flokksins.

Grjóthrun í Óshlíð

Ófært er um Dynjandisheiði og ekki gert ráð fyrir að opna hana fyrr en eftir helgi. Vegfarendur um Óshlíð eru beðnir að sýna varúð vegna grjóthruns. Annars eru vegir víðast hvar auðir á láglendi en lítilsháttar krapi eða hálka er þó á stöku fjallvegum.

Prestar í Digraneskirkju biðjast afsökunar

Sóknarprestar í Digraneskirkju biðjast afsökunar á því að hafa neitað að ferma stúlku úr Fríkirkjunni. Þeir segjast harma að hafa valdið stúlkunni og fjölskyldu hennar sársauka vegna málsins.

Núverandi stjórn heldur velli

Samfylkingin, Sjálfstæðisflokkurinn og Íslandshreyfing missa fylgi samkvæmt nýjustu könnun sem Capacent Gallup gerði fyrir RÚV. Framsóknarflokkurinn, Vinstri græn og Frjálslyndir juku við sig fylgi. Á meðan fylgi Baráttuhreyfingarinnar stendur í stað með 1% fylgi. Samkvæmt þessu munu stjórnarflokkarnir tveir mælast með 47% fylgi en Kaffibandalagið svokallaða vera með 49% fylgi.

Námsmenn fá frítt í strætó

Stjórn Stúdentaráðs samþykkti í dag ályktun þar sem nýrri vistvænni áætlun Reykjavíkurborgar er fagnað. Ráðið telur ályktunina mikið framfaraskref og fagnar sérstaklega þeim tíðindum að næsta haust fái reykvískir námsmenn frítt í strætó. Stjórn SHÍ skorar á borgarstjórn að hafa frítt í strætó fyrir námsmenn til frambúðar. Jafnframt skora þeir á hin sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu að taka sér Reykjavíkurborg til fyrirmyndar.

Sömu laun fyrir sömu vinnu

Svæðisfélag Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs á Akureyri og nágrenni mótmælir harðlega þeim launamismun sem viðgengst milli hjúkrunarfræðinga sem starfa á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri annars vegar og Landspítala-Háskólasjúkrahúsi í Reykjavík hins vegar. Jafnframt er þess krafist, að gerð verði könnun á því hvort viðgangist launamismunur innan fleiri hópa heilbrigðisgeirans eftir búsetu þeirra. Ríkið ætti að greiða starfsfólki sínu sömu laun fyrir sömu vinnu og ábyrgð óháð því hvar viðkomandi er búsettur á landinu. Allt annað er óþolandi undansláttur frá því markmiði að tryggja öllum landsmönnum jafnan aðgang að góðri heilbrigðisþjónustu, segja Vinstri grænir.

Ríkisstjórnin hefur sent heimilunum 38 milljarða reikning

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, sagði í ræðu sinni á landsfundi flokksins í Egilshöll í dag að ríkisstjórnin hefði sent heimilum landsins 38 milljarða króna reikning vegna verðbólgu og ofurvaxta á þessu ári.

Mogginn kaupir allt Blaðið

Árvakur, útgáfufélag Morgunblaðsins, hefur keypt allt hlutafé í Ári og degi, útgáfufélagi Blaðsins. Seljendur eru þeir Karl Garðarsson, Sigurður G. Guðjónsson og Steinn Kári Ragnarsson. Í framhaldi af kaupunum verður starfsemi fyrirtækjanna sameinuð undir merkjum Árvaks. Fyrir kaupin átti Árvakur um helming alls hlutafjár í Ár og degi.

Sinfóníutónleikum á Ísafirði frestað vegna veðurs

Fyrirhuguðum tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands sem fara áttu fram á Ísafirði í kvöld hefur verið aflýst. Flugvélum var snúið til baka þegar sýnt þótti að veðrið væri orðið of slæmt til lendingar á Ísafjarðarflugvelli.

Hálfhífaður ökumaður með smábarn í bílnum

Lögreglan í Reykjavík stöðvaði í gærkvöldi ökumann vegna gruns um ölvun við akstur. Ökumaðurinn, karlmaður á fimmtugsaldri, reyndist vera rétt undir leyfilegum mörkum en var samt látinn hætta akstri enda með smábarn í bílnum. Alls voru tveir karlmenn teknir fyrir ölvunarakstur í austurborginni í gær og var annar þeirra hátt á áttræðisaldri.

Bein útsending frá landsfundi Samfylkingarinnar

Bein útsending er á Vísi frá setningu landsfundar Samfylkingarinnar í Egilshöll. Þar mun Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður flokksins, flytja ræðu sína og væntanlega fjalla um þau mál sem flokkurinn leggur áherslu á í kosningabaráttunni.

Prestar biðjast afsökunar

Prestar Digraneskirkju hafa beðist afsökunar á því að hafa neitað að ferma unga stúlku á þeim forsendum að hún væri ekki skráð í Þjóðkirkjuna. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem prestarnir sendu frá sér í dag. Þeir harma hafa valdið stúlkunni og fjölskyldu hennar sárindum.

Fagna áfangasigri í verndun Jökulsánna í Skagafirði

Áhugahópur um verndun Jökulsánna í Skagafirði fagnar þeim áfanga sem náðst hefur í verndun þeirra með því að sveitarstjórn Skagafjarðar hafi dregið til baka tillögur sem gera ráð fyrir Villinganesvirkjun og Skatastaðavirkjun á aðalskipulagi sveitarfélagsins.

Lést þegar hann féll útbyrðis af bát sínum

Sjómaðurinn sem fannst látinn í gær eftir að hann féll fyrir borð af báti sínm úti fyrir Vopnafirði hét Guðmundur Ragnarsson. Hann var 65 ára og til heimilis að Hafnarbyggð 23 á Vopnafirði. Guðmundur lætur eftir sig eiginkonu og fjögur uppkomin börn.

Með hjólabrettamenn í eftirdragi

Lögreglumenn í Kópavogi þurftu í gær að hafa afskipti af ungum ökumanni sem var með tvo hjólabrettamenn í eftirdragi á bíl sínum. Fram kemur í frétt frá lögreglunni að maðurinn maðurinn hafi verið stöðvaður samstundis og hjólabrettamönnunum gert að sleppa takinu á bílnum.

Braut fingur þegar hann kastaði sprengju

Slysin gera sjaldan boð á undan sér og stundum eru þau all sérkennileg. Þannig fingurbrotnaði sextán ára drengur í Kópavogi í gær þegar hann datt í sömu mund og hann var að kasta frá sér heimatilbúinni sprengju. Drengurinn var að leik með vini sínum en við nánari eftirgrennslan fann lögreglan umtalsvert magn af sprengjum í fórum félaganna.

Gljúfrastofa opnuð í Ásbyrgi á fimmtudag

Gestastofa og upplýsingamiðstöð þjóðgarðsins í Ásbyrgi, sem nefnd hefur verið Gljúfrastofa, verður opnuð á sumardaginn fyrsta. Stofan, sem er um 550 fermetra að flatarmáli, mun meðal annars hýsa sýningu um náttúru og sögu svæðisins.

Ríkið dæmt skaðabótaskylt vegna galla á útboði

Héraðsdómur Reykjavíkur staðfesti í dag rétt Hópbílaleigunnar til að sækja ríkið um skaðabætur vegna galla á framkvæmdum við útboð á skólaakstri. Mögulegt er að ríkið hafi einnig skapað sér skaðabótaskyldu gagnvart skólanemendum á Suðurnesjum að mati framkvæmdastjóri fyrirtækisins. Tilboð Hópbílaleigunnar var um 15 milljón krónum lægra en það tilboð sem var samþykkt.

Fyrirspurnartími hjá ráðherrum á landsfundi

Landsfundur sjálfstæðismanna hélt áfram í morgun með almennum umræðum. Eftir hádegishlé, um klukkan tvö, er svo komið að fyrirspurnartíma ráðherra flokksins en þar munu fimm ráðherrar svara spurningum landsfundargesta.

Greiddu rúman milljarð til umhverfismála

Orku- og veitufyrirtæki greiddu samtals um 2,3 milljarða króna til landeiganda og veiðirétthafa á árunum 2001 til 2006. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samorku, samtökum orku- og veitufyrirtækja. Þá settu fyrirtækin á tímabilinu rúman milljarð í verkefni á sviði umhverfismála.

Eiga bótakröfu á speglabeyglara ef hann verður sakfelldur

Lögreglan handtók í nótt mann sem hafði gengið berserksgang um vesturbæ Reykjavíkur og barið og beyglað spegla á minnst 27 bílum. Ljóst er að ef verknaðurinn sannast á hinn handtekna eiga bíleigendur bótakröfu á hann.

Nærri tveir þriðju vilja atkvæðagreiðslu um frekar stóriðju

Ríflega sex af hverjum tíu landsmönnum vilja að ákvarðanir um frekari stóriðju verði settar í þjóðaratkvæðagreiðslu samkvæmt nýrri könnun Gallup. Fram kemur á vef Ríkisútvarpsins að 38 prósent svarenda sögðust mjög hlynnt því og 22,8 prósent frekar hlynnt.

Eldur kom upp í línubát

Eldur kom upp í vélarrúmi línubátsins Rúnars frá Bolungarvík í mynni Ísafjarðardjúps í gærkvöldi. Tveir voru um borð en þeim tókst að slökkva eldinn. Báturinn varð hins vegar aflvana og þurfti að draga hann til hafnar.

Hjörleifur hvetur Ómar til að draga framboð til baka

Hjörleifur Guttormsson, frambjóðandi Vinstri grænna og fyrrverandi ráðherra, hvetur Ómar Ragnarsson og félaga til að draga til baka framboð Íslandshreyfingarinnar. Ómar segist hins vegar halda ótrauður áfram og að Íslandshreyfingin sé valkostur fyrir umhverfissinna sem ekki vilja kjósa til vinstri.

Flug til Húsavíkur að hefjast á ný?

Útlit er fyrir að flug til Húsavíkur sé að hefjast á ný. Eftir því sem segir á vef Norðurþings fjallaði Byggðarráð Norðurþings um málefni flugvallarins í Aðaldal og samþykkti drög að samkomulagi við Fjarðarflug ehf. um að taka að sér rekstur flugstöðvarinnar á Húsavíkurflugvelli og hefja flug til Húsavíkur.

Grásleppuveiði hafin

Fyrstu bátarnir eru farnir frá Drangsnesi til grásleppuveiði og eru sjómenn bjartsýnir um að sumarið verði fengsælt. Veður hefur hins vegar ekki leikið við sjómenn síðustu mánuði.

Grafarholtshverfi framvegis tvö kjördæmi

Landskjörstjórn hefur ákveðið að skipta Grafarholtshverfi milli Reykjavíkurkjördæmis suður- og norður. Áður tilheyrði hverfið allt Reykjavíkurkjördæmi norður.

Fresta skipulagningu svæða fyrir hugsanlegar virkjanir

Sveitarstjórn Skagafjarðar samþykkti í gær að fresta skipulagningu þeirra svæða sem ætluð hafa verið fyrir Skatastaða- og Villinganesvirkjun í þeirri tillögu að aðalskipulagi sem verið er að vinna að.

Fleiri greinast með lekanda

Tæplega helmingi fleiri einstaklingar greindust með lekanda á síðasta ári en árið þar á undan samkvæmt Farsóttafréttum sóttvarnalæknis. Alls greindust 31 einstaklingur með lekanda á síðasta ári en árið 2005 voru þeir 19 talsins.

Landsmenn auka neyslu

Landsmenn juku neyslu verulega í síðasta mánuði samkvæmt smásöluvísitölu Rannsóknarseturs verslunarinnar. Alls jókst velta dagvöruverslunar um rúm 17 prósent í mars miðað við sama mánuð í fyrra. Aukningin í síðasta mánuði mun meiri en almennt gerist á þessum árstíma og aðeins sambærileg við þá aukningu sem á sér stað í kringum jólin.

Sjúkraþyrlu á Akureyri- viðbragðstími of langur

Verja þarf auknu fé til sjúkraflutninga á landsbyggðinni, segir sérfræðingur við Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. Of langur viðbragðstími hefur skapað vandræði. Björn Gunnarsson læknir á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri segir að stjórnvöld þurfi að setja meiri peninga í sjúkraflutning. Þetta kemur fram í skýrslu um sjúkraflug sem hann vann í samstarfi við Helgu Magnúsdóttir lækni.

Sveiflar sprotanum í Háskólabíó í síðasta sinn

Vladimir Ashkenazy hefur sett svip sinn á íslensk menningarlíf um áratuga skeið. Frá árinu 2002 hefur hann verið heiðursstjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands en þessi frábæri píanisti steig einmitt sín fyrstu skref sem stjórnandi með hljómsveitinni árið 1971. Annað kvöld stýrir hann sveitinni í íþróttahúsinu á Torfnesi á Ísafirði en í kvöld sveiflar hann sprotanum í Háskólabíói, væntanlega í eitt af síðustu skiptunum, því nýtt tónlistarhús er handan við hornið. Á efnisskránni eru þrjú verk, þar á meðal hin dásamlega Fantastique-sinfónía Hectors Berlioz. Ashkenazy segist alltaf hafa jafn gaman af því að koma til Íslands og í hvert skipti sem hann kemur hefur sinfónían tekið enn meiri framförum. Nýlega fékk hann stjórnendastöðu við sinfóníuhljómsveitina í Sydney en þrátt fyrir það ætlar þessi fyrsti tengdasonur Íslands, eins og hann er stundum kallaður, ekki að gleyma okkur.

Eldur kom upp í báti

Eldur kom upp í báti suðvestur af Ryti við Ísafjarðardjúp rétt um kvöldmataleitið í kvöld. Tveir menn voru í bátnum. Að sögn varðstjóra á Ísafirði náðu mennirnir að slökkva eldinn, en báturinn varð vélvana og þurfti því að kalla á hjálp. Sædísin frá Bolungavík kom á staðin og er báturinn væntanlegur til hafnar í Bolungavík um klukkan hálf tíu. Upptök eldsins eru ókunn.

Enn og aftur sannast skaðsemi reykinga

Enginn sleppur við að verða fyrir skaða af sígarettureyk ef marka má nýja könnun sem framkvæmd var í Póllandi. Hefur nú komið í ljós að meira að segja þeir ungu og hraustu verða líka fyrir miklum skaða af sígarettureyk þar sem hjartað fær ekki að slaka á á milli slaga. En hingað til hefur því verið haldið fram að þeir ungu og hraustu þoli sígarettureyk einna best. Rannsóknin var gerð á 66 hraustum einstaklingum á aldrinum 20 til 40 ára. Helmingur þeirra hafði reykt 10-25 sígarettur á dag í 6-20 ár. Óreglulegir hjartslættir komu enn fram tveim tímum eftir að þeir luku við síðustu sígarettu.

Kópavogsbær byggir að Elliðavatni

Meirihluti bæjarstjórnar Kópavogs hefur samþykkt skipulagsbreytingar á lóðum að vatnsbakka Elliðavatns. Á bæjarstjórnarfundi 10. apríl samþykkti meirihlutinn þ.e. Framsóknar- og Sjálfstæðisflokkurinn, drög að nýrri byggð suðvestur af Elliðavatni. Samkvæmt nýju skipulagi mun vera um 15 metra bil á milli Elliðavatns og bygginga en um 50 metra helgunarsvæði liggur nú meðfram vatninu en það var samþykkt árið 2000. Með þessu móti mun byggðin teygja sig upp og í kringum Guðmundarlund og liggjað að landi Heiðmerkur.

Sjá næstu 50 fréttir