Fleiri fréttir Forritunarkeppni framhaldsskóla haldin í sjötta sinn Tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík heldur forritunarkeppni framhaldsskólanna í sjötta sinn í dag. Átján lið frá tíu framhaldsskólum keppa að þessu sinni. Keppt er í þremur þyngdarflokkum en keppnin skiptist í tvo hluta. 10.3.2007 13:00 Betur má ef duga skal Konum fjölgaði um 4% í síðustu sveitarstjórnarkosningum. Annað hvert sveitarfélag hefur nu komið sér upp jafnréttisáætlun en betur má ef duga skal, segir Jafnréttisstofa. 10.3.2007 12:45 Gengi DeCode hækkar Hlutabréf í DeCode, móðurfélagi Íslenskrar erfðagreiningar, hækkuðu um tíu prósent á NASDAQ hlutabréfamarkaðnum fyrir helgi, eftir að greiningaraðili uppfærði bréfin vegna væntinga um jákvæðar fréttir af fyrirtækinu á næstunni. Hlutabréfin hækkuðu um 35 sent á hlut, eða um 10 prósent. 10.3.2007 12:30 Rafrænum skilríkjum dreift í haust Meirihluti landsmanna verður kominn með rafræn skilríki í seðlaveskið á næsta ári. Þau ættu að einfalda fólki lífið og auka öryggi barna og unglinga sem vilja spjalla saman á netinu. 10.3.2007 12:15 Sýningin tækni og vit er um helgina Sýningin tækni og vit er opin almenningi um helgina en á sýningunni kynna mörg helstu hátæknifyrirtæki landsins það nýjasta í tækni og þekkingu. Sýningin stærsti viðburður sem haldinn hefur verið á Íslandi á þessu sviði. 10.3.2007 12:00 MK nemar styrkja Dvöl MK-nemar halda fata- og nytjamarkað í sjálfboðamiðstöð Kópavogsdeildar að Hamraborg 11 nú um helgina, bæði laugardag og sunnudag, kl. 11-16. Markaðurinn er haldinn í samvinnu við Dvöl, athvarf fyrir geðfatlaða í Kópavogi, og rennur allur ágóði óskiptur í ferðasjóð athvarfsins. 10.3.2007 11:30 Fertugum er ekki allt fært Fertug kona var flutt á lögreglustöðina í Reykjavík eftir umferðaróhapp á Kringlumýrarbraut í gær vegna gruns um að hún væri undir áhrifum lyfja. Sama kona var stöðvuð við akstur í Lönguhlíð síðar um daginn og þá þótti einsýnt að hún væri undir áhrifum lyfja. Aksturslag hennar var stórhættulegt en konan virtist vera við það að sofna þegar að var komið. Hún var færð á lögreglustöð þar sem læknir úrskurðaði að konan væri óhæf til aksturs. 10.3.2007 11:00 Vinnuslys í Gufunesi Karlmaður á þrítugsaldri var fluttur á slysadeild eftir vinnuslys sem hann varð fyrir við Sorpu í Gufunesi um hádegisbil í dag. Sýningarbás sem komið var með til eyðingar í Sorpu féll á fót mannsins af lyftara. 9.3.2007 22:20 Marorka hlaut Vaxtarsprotann Fyrirtækið Marorka hlaut Vaxtarsprotann, viðurkenningu fyrir uppbyggingu sprotafyrirtækis. Það var Jón Sigurðsson iðanaðar- og viðskiptaráðherra sem afhenti Jóni Ágústi Þorsteinssyni framkvæmdastjóra Marorku viðurkenninguna. Fyrirtækið jók veltu sína milli áranna 2005 og 2006 um 87,5% sem var mesti vöxtur sprotafyrirtækis á tímabilinu. Marorka er tæknifyrirtæki sem þróar tölvukerfi sem lágmarka olíunotkun skipa og draga þar með úr mengun og kostnaði. Fyrirtækið var stofnað árið 2002 með þremur starfsmönnum en í dag eru starfsmenn orðnir 24. 9.3.2007 22:02 Andstæðingar álversstækkunar eiga við ofurefli að etja Heldur hefur dregið úr andstöðu Hafnfirðinga við stækkun álversins í Straumsvík, ef marka má nýja könnun sem Blaðið birtir í dag. Talsmaður Sólar í Straumi, sem berst gegn stækkuninni, segir andstæðinga álversins eiga við ofurafl að etja. 9.3.2007 18:50 Vinstri grænir næst stærstir Vinstrihreyfingin - grænt framboð er næststærsti flokkurinn á eftir Sjálfstæðisflokki samkvæmt nýrri skoðanakönnun Capacent Gallup fyrir Ríkisútvarpið og Morgunblaðið. Innan við sjö prósentum munar á fylgi flokkanna tveggja. Búast má við því að tónninn í garð vinstri grænna eigi eftir að harðna nokkuð í ljósi þessa. 9.3.2007 18:45 Ástæðulaus gagnrýni segir fjármálaráðherra Fjármálaráðherra segir að ekki sé verið að þrengja að starfsemi fjármálafyrirtækja í landinu með nýlegri reglugerð, eins og stjórnarformaður Straums Burðaráss fullyrti í gær. Þá tæki fjármálaráðuneytið ekki við tilskipunum frá Seðlabankastjóra en hlustað væri eftir sjónarmiðum hans rétt eins og sjónarmiðum fjármálafyrirtækjanna. 9.3.2007 18:43 Stjórnarandstaða fíflast með alvarleg málefni Frumvarp ríkisstjórnarinnar um auðlindaákvæði í stjórnarskrá verður tekið á dagskrá á mánudag. Stjórnarandstaðan segir að frumvarpið eigi að festa í sessi núverandi kvótakerfi. Hún neitaði að veita afbrigði svo hægt væri að koma frumvarpinu á dagskrá í dag. Forsætisráðherra sakaði stjórnarandstæðinga um að reyna að koma illu til leiðar í stjórnarsamstarfinu og fíflast með alvarleg málefni. 9.3.2007 18:26 Umboðsmaður barna aðhefst ekki vegna forsíðu Umboðsmaður barna telur ekki ástæðu til að bregðast við ábendingum doktors í fjölmiðlafræði um að forsíða auglýsingabæklings Smáralindar feli í sér klámfengnar vísanir. Fjórtán ára fyrirsæta er á forsíðunni. 9.3.2007 18:24 Vistmenn Byrgis orðnir sakborningar Fyrrverandi vistmenn í Byrginu hafa verið boðaðir í yfirheyrslu til Skattrannsóknarstjóra með réttarstöðu sakbornings. Svo virðist sem nýverið hafi verið skráðar á þá launagreiðslur og þeir grunaðir um að hafa ekki gefið þær upp. Konur sem kært hafa Guðmund fyrir kynferðisbrot eru meðal þeirra sem boðaðir eru í yfirheyrslu. 9.3.2007 18:20 Nýr samstarfsvettvangur SF og LÍÚ Landsamband íslenskra útvegsmanna, LÍÚ og Samtök fiskvinnslustöðva, SF stonuðu saman í dag Samtök atvinnurekenda í sjávarútvegi sem verða samstarfsvettvangur samtakanna tveggja. Í tilkynningu segir að meginhlutverk samstarfsins felist í nánara samstarfi og samþættingu verkefna er varða kynningar- og ímyndarmál sjávarútvegisns, auk umhverfismála og annarra verkefna sem varða sameiginlega hagsmuni. Þá var kjörin stjórn hinna nýju samtaka sem í sitja fimm fulltrúar, þrír frá LÍÍ og tveir frá SF. Stjórn samtakanna skipa Björgólfur Jóhannsson, Eiríkur Tómasson og Friðrik J. Arngrímsson f.h. LÍÚ og Arnar Sigurmundsson og Jóhannes Pálsson f.h. SF. 9.3.2007 17:24 Hæstiréttur staðfestir DNA-rannsókn vegna kröfu Lúðvíks Hæsturéttur hefur staðfest dóm héraðsdóms þess efnis að fram megi fara DNA-rannsókn á lífsýnum úr Lúðvík Gizurarsyni, móður hans og Hermanni Jónassyni, fyrrverandi forsætisráðherra, sem Lúðvík heldur fram að sé faðir sinn. 9.3.2007 17:12 Hvar snjóar mest hér á land? Á Íslandi snjóar mest í suðurhlíðum Mýrdalsjökuls, á Öræfajökli og sunnan til á Vatnajökli. Snjókomutíðni er mjög háð hæð yfir sjó og hitafari. Snjór er mun meiri og þrálátari á hálendi en láglendi. 9.3.2007 16:54 Fundað með Kanadamönnum um öryggismál Íslenskir og kanadískir embættismenn áttu í dag fund um öryggismál í Ottawa. Eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu var fundurinn jákvæður og verður samráðsferli haldið áfram. 9.3.2007 16:46 Sigruðu í samkeppni um skipulag miðsvæðis á Álftanesi Guðni Tyrfingsson og Auður Alfreðsdóttir hjá arkitektastofunni Gassa arkitekter hlutu fyrstu verðlaun í framkvæmdasamkeppni um skipulag miðsvæðis Álftaness. 9.3.2007 16:37 Ný byggingavöruverslun 9.3.2007 16:23 Vilja snjóbyssur í Bláfjöll og Skálafell Íþrótta- og tómstundaráð hefur samþykkt að óska eftir viðræðum við Stjórn skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins og Orkuveitu Reykjavíkur um könnun á snjóveitu á skíðasvæðum í Bláfjöllum og Skálafelli til framleiðslu á snjó. 9.3.2007 15:46 15 mánaða fangelsi fyrir árás með hafnaboltakylfu Karlmaður var í Héraðsdómi Reykjaness í dag dæmdur í 15 mánaða fangelsi fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás með því að hafa barið annan mann ítrekað með hafnaboltakylfu í höfuð og líkama og kýlt hann í hausinn þannig að hann hlaut af bæði sár og mar. 9.3.2007 15:40 Skilorðsbundið fangelsi fyrir ýmis fíkniefnabrot Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í dag karlmann í eins árs skilorðsbundið fangelsi fyrir ýmis fíkniefnabrot, þar á meðal að hafa í vörslu sinni til sölu um 100 grömm af amfetamíni. 9.3.2007 14:55 Töluvert um umferðaróhöpp í borginni í dag Nokkuð hefur verið um umferðaróhöpp í borginni í dag og hefur umferð tafist á sumum stöðum vegna þessa. Þær upplýsingar fengust hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu að tilkynnt hefði verið um 14-15 óhöpp frá því klukkan sex í morgun en ekkert þeirra hefði verið alvarlegt. 9.3.2007 14:38 Vegfarendur fari varlega á Norður- og Norðausturlandi Vegagerðin beinir því til vegfarenda á Norður- og Norðausturlandi að fara sérstaklega varlega þar sem krapi sé á vegum og éljagangur um mestallt norðanvert landið. Hins vegar er greiðfært um Suðurland en Á Vesturlandi er snjóþekja, hálka og hálkublettir. 9.3.2007 14:28 Ákærður fyrir að hafa misnotað ölvunarástand konu Ríkissaksóknari hefur höfðað kynferðisbrotamál sem rekið er fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra. Karlmaður á Norðurlandi er ákærður fyrir að hafa misnotað ölvunarástand konu. 9.3.2007 14:23 Flutningur í Mjódd kostaði nærri 60 milljónir króna Flutningur þeirrar starfsemi sem var í Heilsuverndarstöðinni upp í Mjódd kostaði tæplega 60 milljónir króna og ríkið greiðir ríflega 6,7 milljónir króna í leigu á mánuði á húsnæðinu þar. Þetta kemur fram í svari heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Ástu Ragnheiðar Jóhannesdóttur og Þórunnar Sveinbjarnardóttur, þingkvenna Samfylkingarinnar. 9.3.2007 14:14 Liðlega 80 prósent íslenskra heimila nettengd 83 prósent íslenskra heimila voru nettengd og 84 prósent heimila með tölvu samkvæmt nýjum tölum Hagstofunnar. Til samanburðar höfðu 62 prósent heimila í ESB-löndum tölvu og rétt rúmur helmingur heimila var nettengdur. 9.3.2007 13:06 Oddeyrin fer í sína fyrstu veiðiferð Oddeyrin EA lagði úr höfn á Akureyri á miðvikudag í sína fyrstu veiðiferð í eigu Samherja en skipið stefnir á grálúðu og karfaveiðar. Fram kemur á vef Samherja að gerðar hafi verið nauðsynlegar breytingar á skipinu frá því að það kom til landsins fyrir tæplega mánuði. 9.3.2007 13:00 Leggur til að ráðist verði í gerð Bakkafjöruhafnar Stýrihópur sem samgönguráðherra skipaði til að fjalla um hafnargerð í Bakkafjöru vegna Vestmannaeyjaferju leggur til að ákveðið verði að ráðast í gerð hafnarinnar og smíði nýrrar ferju þannig að höfnin verði til 2010. 9.3.2007 12:45 Fá sex prósenta launahækkun á fyrstu mánuðum næsta árs Samkomulag náðist í gær milli Félags grunnskólakennara og Launanefndar sveitarfélaga í kjaradeilunni sem staðið hefur yfir síðustu mánuði. Samkomulagið þýðir að núgildandi kjarasamningur stendur til maíloka 2008 en kennarar höfðu hótað að segja honum upp um næstu áramót ef ekki semdist. 9.3.2007 12:30 Hafnfirðingar skiptast í tvær fylkingar í afstöðu til álvers Hafnfirðingar virðast skiptast í tvær nokkurn veginn jafn stórar fylkingar í afstöðunni til stækkunar álvers Alcan í Straumsvík. Sú niðurstaða er samkvæmt skoðanakönnun Blaðsins. 9.3.2007 12:12 Deilt um ágæti nýrra búfjárlaga Landbúnaðarráðherra segir að nýr sauðfjársamningur sem hann mælti fyrir á Alþingi í gær, muni bæta hag bænda, en samningurinn felur meðal annars í sér að útflutningsskylda á lambakjöti verður lögð af í áföngum. Þingmenn Samfylkingarinnar telja að samningurinn stuðli að áframhaldandi fátækt bænda. 9.3.2007 11:53 Stjórnarandstaðan hafnar auðlindafrumvarpi ríkisstjórnarinnar Stjórnarandstaðan leggst gegn því, að frumvarp formanna stjórnarflokkanna um að þjóðareignarákvæði á náttúruauðlindum sé sett í stjórnarskrá, verði tekið til umræðu á Alþingi í dag. Geir H. Haarde forsætisráðherra sakar stjórnarandstöðuna hins vegar um að fíflast með alvarleg mál. 9.3.2007 11:02 Kviknaði í út frá eldavél Eldur kom upp í íbúð á Holtsgötu í vesturbæ Reykjavíkur um áttaleytið í kvöld. Kviknað hafði í hlut sem skilinn var eftir á eldavél. Slökkvilið var kallað á staðinn en íbúum hafði tekist að slökkva eldinn áður en það kom á staðinn. Slökkviliðið er núna að reykræsta íbúðina. Eitthvað var um skemmdir vegna reyks en umfang þeirra er óvíst sem stendur. 8.3.2007 21:30 Svifryksmengun á Akureyri fer ört versnandi Svifryksmengun á Akureyri fer ört versnandi og mælist suma daga jafnmikil og í evrópskum milljónaborgum. Svo kann að fara að bæjarbúar þurfi að ganga með rykgrímur, verði vandinn ekki leystur. 8.3.2007 19:45 Bjarni segir jafnréttisfrumvarp of róttækt Nýtt jafnréttisfrumvarp er of róttækt, segir Bjarni Benediktsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins en hann samdi frumvarpið ásamt fulltrúum annarra flokka. Samfylkingin vill að jafnréttisfrumvarpið verði samþykkt fyrir kosningar. 8.3.2007 19:30 Læknar segja félagsmálaráðherra að hvíla sig Læknar hafa sagt Magnúsi Stefánssyni félagsmálaráðherra að hvílast, eftir að hann fékk aðsvif og þurfti að hætta í miðri ræðu á Alþingi í morgun. Tveir sjúkrabílar voru sendir á Alþingi en ráðherrann fór síðan með ráðherrabíl sínum á sjúkrahús til rannsókna. 8.3.2007 18:38 Hætta við framboð Áhugahópur um málefni eldri borgara og öryrkja hefur ákveðið að hætta við framboð til Alþingis í vor. Niðurstaðan lá fyrir eftir tilraun til að sameina þau tvö framboð aldraðra og örykrja mistókst. Undirbúningshópur framboðsins telur að það geti spillt fyrir hagsmunum eldri borgara ef tveir hópar vinna að framboðum um sama mál. 8.3.2007 18:24 Formenn leggja fram sáttafrumvarp Formenn stjórnarflokkanna munu leggja fram þingmannafrumvarp um breytingu á stjórnarskránni, sem tryggja á að allar náttúruauðlindir Íslands skuli vera þjóðareign. Þar með er lokið einu mesta átakamáli stjórnarflokkanna á yfirstandandi kjörtímabili. 8.3.2007 18:24 Sagði lögreglu hafa fagnað eins og á fótboltaleik Helgi Sigurðsson, lögfræðingur hjá Kaupþingi, sagði lögreglu ekki hafa leynt ánægju sinni eftir að hann hefði greint henni frá að ekki hefðu fundist færslur í bókhaldi Kaupþings sem pössuðu við þrettán milljóna króna færslu í bókhaldi Baugs sem skráð var þar sem þóknun vegna hlutabréfakaupa. 8.3.2007 18:18 Varað við hálku á Suðurlandi og við Faxaflóa Vegagerðin varar við hríð og hálku víða á Suðurlandi og við Faxaflóa. Þá er mjög hvasst bæði á Steingrímsfjarðarheiði og Klettshálsi og hálka á köflum. Ferðalangar eru hvattir til að kynna sér færð á vef Vegagerðarinnar. 8.3.2007 18:06 Menningarsamningur SPRON og Borgarleikhússins Forsvarsmenn SPRON og Borgarleikhússins skrifuðu í dag undir menningarsamning til fjögurra ára. Samningurinn felur í sér að SPRON verður bakhjarl sýninga í leikhúsinu og bókaútgáfu vegna afmælis Leikfélags Reykjavíkur og býður svo bæði viðskiptavinum sínum og öllum nemendum í 10. bekk á Reykjavíkursvæðinu í leikhús næsta vetur. 8.3.2007 17:42 Dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir nauðgun Hæstiréttur dæmdi í dag hálffimmtugan karlmann í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir nauðgun og staðfesti þar með dóm Héraðsdóms. Auk þess var manninum gert að greiða fórnarlambi sínu 700 þúsund krónur í miskabætur. Nauðgunin var framin haustið 2005. 8.3.2007 17:33 Sjá næstu 50 fréttir
Forritunarkeppni framhaldsskóla haldin í sjötta sinn Tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík heldur forritunarkeppni framhaldsskólanna í sjötta sinn í dag. Átján lið frá tíu framhaldsskólum keppa að þessu sinni. Keppt er í þremur þyngdarflokkum en keppnin skiptist í tvo hluta. 10.3.2007 13:00
Betur má ef duga skal Konum fjölgaði um 4% í síðustu sveitarstjórnarkosningum. Annað hvert sveitarfélag hefur nu komið sér upp jafnréttisáætlun en betur má ef duga skal, segir Jafnréttisstofa. 10.3.2007 12:45
Gengi DeCode hækkar Hlutabréf í DeCode, móðurfélagi Íslenskrar erfðagreiningar, hækkuðu um tíu prósent á NASDAQ hlutabréfamarkaðnum fyrir helgi, eftir að greiningaraðili uppfærði bréfin vegna væntinga um jákvæðar fréttir af fyrirtækinu á næstunni. Hlutabréfin hækkuðu um 35 sent á hlut, eða um 10 prósent. 10.3.2007 12:30
Rafrænum skilríkjum dreift í haust Meirihluti landsmanna verður kominn með rafræn skilríki í seðlaveskið á næsta ári. Þau ættu að einfalda fólki lífið og auka öryggi barna og unglinga sem vilja spjalla saman á netinu. 10.3.2007 12:15
Sýningin tækni og vit er um helgina Sýningin tækni og vit er opin almenningi um helgina en á sýningunni kynna mörg helstu hátæknifyrirtæki landsins það nýjasta í tækni og þekkingu. Sýningin stærsti viðburður sem haldinn hefur verið á Íslandi á þessu sviði. 10.3.2007 12:00
MK nemar styrkja Dvöl MK-nemar halda fata- og nytjamarkað í sjálfboðamiðstöð Kópavogsdeildar að Hamraborg 11 nú um helgina, bæði laugardag og sunnudag, kl. 11-16. Markaðurinn er haldinn í samvinnu við Dvöl, athvarf fyrir geðfatlaða í Kópavogi, og rennur allur ágóði óskiptur í ferðasjóð athvarfsins. 10.3.2007 11:30
Fertugum er ekki allt fært Fertug kona var flutt á lögreglustöðina í Reykjavík eftir umferðaróhapp á Kringlumýrarbraut í gær vegna gruns um að hún væri undir áhrifum lyfja. Sama kona var stöðvuð við akstur í Lönguhlíð síðar um daginn og þá þótti einsýnt að hún væri undir áhrifum lyfja. Aksturslag hennar var stórhættulegt en konan virtist vera við það að sofna þegar að var komið. Hún var færð á lögreglustöð þar sem læknir úrskurðaði að konan væri óhæf til aksturs. 10.3.2007 11:00
Vinnuslys í Gufunesi Karlmaður á þrítugsaldri var fluttur á slysadeild eftir vinnuslys sem hann varð fyrir við Sorpu í Gufunesi um hádegisbil í dag. Sýningarbás sem komið var með til eyðingar í Sorpu féll á fót mannsins af lyftara. 9.3.2007 22:20
Marorka hlaut Vaxtarsprotann Fyrirtækið Marorka hlaut Vaxtarsprotann, viðurkenningu fyrir uppbyggingu sprotafyrirtækis. Það var Jón Sigurðsson iðanaðar- og viðskiptaráðherra sem afhenti Jóni Ágústi Þorsteinssyni framkvæmdastjóra Marorku viðurkenninguna. Fyrirtækið jók veltu sína milli áranna 2005 og 2006 um 87,5% sem var mesti vöxtur sprotafyrirtækis á tímabilinu. Marorka er tæknifyrirtæki sem þróar tölvukerfi sem lágmarka olíunotkun skipa og draga þar með úr mengun og kostnaði. Fyrirtækið var stofnað árið 2002 með þremur starfsmönnum en í dag eru starfsmenn orðnir 24. 9.3.2007 22:02
Andstæðingar álversstækkunar eiga við ofurefli að etja Heldur hefur dregið úr andstöðu Hafnfirðinga við stækkun álversins í Straumsvík, ef marka má nýja könnun sem Blaðið birtir í dag. Talsmaður Sólar í Straumi, sem berst gegn stækkuninni, segir andstæðinga álversins eiga við ofurafl að etja. 9.3.2007 18:50
Vinstri grænir næst stærstir Vinstrihreyfingin - grænt framboð er næststærsti flokkurinn á eftir Sjálfstæðisflokki samkvæmt nýrri skoðanakönnun Capacent Gallup fyrir Ríkisútvarpið og Morgunblaðið. Innan við sjö prósentum munar á fylgi flokkanna tveggja. Búast má við því að tónninn í garð vinstri grænna eigi eftir að harðna nokkuð í ljósi þessa. 9.3.2007 18:45
Ástæðulaus gagnrýni segir fjármálaráðherra Fjármálaráðherra segir að ekki sé verið að þrengja að starfsemi fjármálafyrirtækja í landinu með nýlegri reglugerð, eins og stjórnarformaður Straums Burðaráss fullyrti í gær. Þá tæki fjármálaráðuneytið ekki við tilskipunum frá Seðlabankastjóra en hlustað væri eftir sjónarmiðum hans rétt eins og sjónarmiðum fjármálafyrirtækjanna. 9.3.2007 18:43
Stjórnarandstaða fíflast með alvarleg málefni Frumvarp ríkisstjórnarinnar um auðlindaákvæði í stjórnarskrá verður tekið á dagskrá á mánudag. Stjórnarandstaðan segir að frumvarpið eigi að festa í sessi núverandi kvótakerfi. Hún neitaði að veita afbrigði svo hægt væri að koma frumvarpinu á dagskrá í dag. Forsætisráðherra sakaði stjórnarandstæðinga um að reyna að koma illu til leiðar í stjórnarsamstarfinu og fíflast með alvarleg málefni. 9.3.2007 18:26
Umboðsmaður barna aðhefst ekki vegna forsíðu Umboðsmaður barna telur ekki ástæðu til að bregðast við ábendingum doktors í fjölmiðlafræði um að forsíða auglýsingabæklings Smáralindar feli í sér klámfengnar vísanir. Fjórtán ára fyrirsæta er á forsíðunni. 9.3.2007 18:24
Vistmenn Byrgis orðnir sakborningar Fyrrverandi vistmenn í Byrginu hafa verið boðaðir í yfirheyrslu til Skattrannsóknarstjóra með réttarstöðu sakbornings. Svo virðist sem nýverið hafi verið skráðar á þá launagreiðslur og þeir grunaðir um að hafa ekki gefið þær upp. Konur sem kært hafa Guðmund fyrir kynferðisbrot eru meðal þeirra sem boðaðir eru í yfirheyrslu. 9.3.2007 18:20
Nýr samstarfsvettvangur SF og LÍÚ Landsamband íslenskra útvegsmanna, LÍÚ og Samtök fiskvinnslustöðva, SF stonuðu saman í dag Samtök atvinnurekenda í sjávarútvegi sem verða samstarfsvettvangur samtakanna tveggja. Í tilkynningu segir að meginhlutverk samstarfsins felist í nánara samstarfi og samþættingu verkefna er varða kynningar- og ímyndarmál sjávarútvegisns, auk umhverfismála og annarra verkefna sem varða sameiginlega hagsmuni. Þá var kjörin stjórn hinna nýju samtaka sem í sitja fimm fulltrúar, þrír frá LÍÍ og tveir frá SF. Stjórn samtakanna skipa Björgólfur Jóhannsson, Eiríkur Tómasson og Friðrik J. Arngrímsson f.h. LÍÚ og Arnar Sigurmundsson og Jóhannes Pálsson f.h. SF. 9.3.2007 17:24
Hæstiréttur staðfestir DNA-rannsókn vegna kröfu Lúðvíks Hæsturéttur hefur staðfest dóm héraðsdóms þess efnis að fram megi fara DNA-rannsókn á lífsýnum úr Lúðvík Gizurarsyni, móður hans og Hermanni Jónassyni, fyrrverandi forsætisráðherra, sem Lúðvík heldur fram að sé faðir sinn. 9.3.2007 17:12
Hvar snjóar mest hér á land? Á Íslandi snjóar mest í suðurhlíðum Mýrdalsjökuls, á Öræfajökli og sunnan til á Vatnajökli. Snjókomutíðni er mjög háð hæð yfir sjó og hitafari. Snjór er mun meiri og þrálátari á hálendi en láglendi. 9.3.2007 16:54
Fundað með Kanadamönnum um öryggismál Íslenskir og kanadískir embættismenn áttu í dag fund um öryggismál í Ottawa. Eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu var fundurinn jákvæður og verður samráðsferli haldið áfram. 9.3.2007 16:46
Sigruðu í samkeppni um skipulag miðsvæðis á Álftanesi Guðni Tyrfingsson og Auður Alfreðsdóttir hjá arkitektastofunni Gassa arkitekter hlutu fyrstu verðlaun í framkvæmdasamkeppni um skipulag miðsvæðis Álftaness. 9.3.2007 16:37
Vilja snjóbyssur í Bláfjöll og Skálafell Íþrótta- og tómstundaráð hefur samþykkt að óska eftir viðræðum við Stjórn skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins og Orkuveitu Reykjavíkur um könnun á snjóveitu á skíðasvæðum í Bláfjöllum og Skálafelli til framleiðslu á snjó. 9.3.2007 15:46
15 mánaða fangelsi fyrir árás með hafnaboltakylfu Karlmaður var í Héraðsdómi Reykjaness í dag dæmdur í 15 mánaða fangelsi fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás með því að hafa barið annan mann ítrekað með hafnaboltakylfu í höfuð og líkama og kýlt hann í hausinn þannig að hann hlaut af bæði sár og mar. 9.3.2007 15:40
Skilorðsbundið fangelsi fyrir ýmis fíkniefnabrot Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í dag karlmann í eins árs skilorðsbundið fangelsi fyrir ýmis fíkniefnabrot, þar á meðal að hafa í vörslu sinni til sölu um 100 grömm af amfetamíni. 9.3.2007 14:55
Töluvert um umferðaróhöpp í borginni í dag Nokkuð hefur verið um umferðaróhöpp í borginni í dag og hefur umferð tafist á sumum stöðum vegna þessa. Þær upplýsingar fengust hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu að tilkynnt hefði verið um 14-15 óhöpp frá því klukkan sex í morgun en ekkert þeirra hefði verið alvarlegt. 9.3.2007 14:38
Vegfarendur fari varlega á Norður- og Norðausturlandi Vegagerðin beinir því til vegfarenda á Norður- og Norðausturlandi að fara sérstaklega varlega þar sem krapi sé á vegum og éljagangur um mestallt norðanvert landið. Hins vegar er greiðfært um Suðurland en Á Vesturlandi er snjóþekja, hálka og hálkublettir. 9.3.2007 14:28
Ákærður fyrir að hafa misnotað ölvunarástand konu Ríkissaksóknari hefur höfðað kynferðisbrotamál sem rekið er fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra. Karlmaður á Norðurlandi er ákærður fyrir að hafa misnotað ölvunarástand konu. 9.3.2007 14:23
Flutningur í Mjódd kostaði nærri 60 milljónir króna Flutningur þeirrar starfsemi sem var í Heilsuverndarstöðinni upp í Mjódd kostaði tæplega 60 milljónir króna og ríkið greiðir ríflega 6,7 milljónir króna í leigu á mánuði á húsnæðinu þar. Þetta kemur fram í svari heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Ástu Ragnheiðar Jóhannesdóttur og Þórunnar Sveinbjarnardóttur, þingkvenna Samfylkingarinnar. 9.3.2007 14:14
Liðlega 80 prósent íslenskra heimila nettengd 83 prósent íslenskra heimila voru nettengd og 84 prósent heimila með tölvu samkvæmt nýjum tölum Hagstofunnar. Til samanburðar höfðu 62 prósent heimila í ESB-löndum tölvu og rétt rúmur helmingur heimila var nettengdur. 9.3.2007 13:06
Oddeyrin fer í sína fyrstu veiðiferð Oddeyrin EA lagði úr höfn á Akureyri á miðvikudag í sína fyrstu veiðiferð í eigu Samherja en skipið stefnir á grálúðu og karfaveiðar. Fram kemur á vef Samherja að gerðar hafi verið nauðsynlegar breytingar á skipinu frá því að það kom til landsins fyrir tæplega mánuði. 9.3.2007 13:00
Leggur til að ráðist verði í gerð Bakkafjöruhafnar Stýrihópur sem samgönguráðherra skipaði til að fjalla um hafnargerð í Bakkafjöru vegna Vestmannaeyjaferju leggur til að ákveðið verði að ráðast í gerð hafnarinnar og smíði nýrrar ferju þannig að höfnin verði til 2010. 9.3.2007 12:45
Fá sex prósenta launahækkun á fyrstu mánuðum næsta árs Samkomulag náðist í gær milli Félags grunnskólakennara og Launanefndar sveitarfélaga í kjaradeilunni sem staðið hefur yfir síðustu mánuði. Samkomulagið þýðir að núgildandi kjarasamningur stendur til maíloka 2008 en kennarar höfðu hótað að segja honum upp um næstu áramót ef ekki semdist. 9.3.2007 12:30
Hafnfirðingar skiptast í tvær fylkingar í afstöðu til álvers Hafnfirðingar virðast skiptast í tvær nokkurn veginn jafn stórar fylkingar í afstöðunni til stækkunar álvers Alcan í Straumsvík. Sú niðurstaða er samkvæmt skoðanakönnun Blaðsins. 9.3.2007 12:12
Deilt um ágæti nýrra búfjárlaga Landbúnaðarráðherra segir að nýr sauðfjársamningur sem hann mælti fyrir á Alþingi í gær, muni bæta hag bænda, en samningurinn felur meðal annars í sér að útflutningsskylda á lambakjöti verður lögð af í áföngum. Þingmenn Samfylkingarinnar telja að samningurinn stuðli að áframhaldandi fátækt bænda. 9.3.2007 11:53
Stjórnarandstaðan hafnar auðlindafrumvarpi ríkisstjórnarinnar Stjórnarandstaðan leggst gegn því, að frumvarp formanna stjórnarflokkanna um að þjóðareignarákvæði á náttúruauðlindum sé sett í stjórnarskrá, verði tekið til umræðu á Alþingi í dag. Geir H. Haarde forsætisráðherra sakar stjórnarandstöðuna hins vegar um að fíflast með alvarleg mál. 9.3.2007 11:02
Kviknaði í út frá eldavél Eldur kom upp í íbúð á Holtsgötu í vesturbæ Reykjavíkur um áttaleytið í kvöld. Kviknað hafði í hlut sem skilinn var eftir á eldavél. Slökkvilið var kallað á staðinn en íbúum hafði tekist að slökkva eldinn áður en það kom á staðinn. Slökkviliðið er núna að reykræsta íbúðina. Eitthvað var um skemmdir vegna reyks en umfang þeirra er óvíst sem stendur. 8.3.2007 21:30
Svifryksmengun á Akureyri fer ört versnandi Svifryksmengun á Akureyri fer ört versnandi og mælist suma daga jafnmikil og í evrópskum milljónaborgum. Svo kann að fara að bæjarbúar þurfi að ganga með rykgrímur, verði vandinn ekki leystur. 8.3.2007 19:45
Bjarni segir jafnréttisfrumvarp of róttækt Nýtt jafnréttisfrumvarp er of róttækt, segir Bjarni Benediktsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins en hann samdi frumvarpið ásamt fulltrúum annarra flokka. Samfylkingin vill að jafnréttisfrumvarpið verði samþykkt fyrir kosningar. 8.3.2007 19:30
Læknar segja félagsmálaráðherra að hvíla sig Læknar hafa sagt Magnúsi Stefánssyni félagsmálaráðherra að hvílast, eftir að hann fékk aðsvif og þurfti að hætta í miðri ræðu á Alþingi í morgun. Tveir sjúkrabílar voru sendir á Alþingi en ráðherrann fór síðan með ráðherrabíl sínum á sjúkrahús til rannsókna. 8.3.2007 18:38
Hætta við framboð Áhugahópur um málefni eldri borgara og öryrkja hefur ákveðið að hætta við framboð til Alþingis í vor. Niðurstaðan lá fyrir eftir tilraun til að sameina þau tvö framboð aldraðra og örykrja mistókst. Undirbúningshópur framboðsins telur að það geti spillt fyrir hagsmunum eldri borgara ef tveir hópar vinna að framboðum um sama mál. 8.3.2007 18:24
Formenn leggja fram sáttafrumvarp Formenn stjórnarflokkanna munu leggja fram þingmannafrumvarp um breytingu á stjórnarskránni, sem tryggja á að allar náttúruauðlindir Íslands skuli vera þjóðareign. Þar með er lokið einu mesta átakamáli stjórnarflokkanna á yfirstandandi kjörtímabili. 8.3.2007 18:24
Sagði lögreglu hafa fagnað eins og á fótboltaleik Helgi Sigurðsson, lögfræðingur hjá Kaupþingi, sagði lögreglu ekki hafa leynt ánægju sinni eftir að hann hefði greint henni frá að ekki hefðu fundist færslur í bókhaldi Kaupþings sem pössuðu við þrettán milljóna króna færslu í bókhaldi Baugs sem skráð var þar sem þóknun vegna hlutabréfakaupa. 8.3.2007 18:18
Varað við hálku á Suðurlandi og við Faxaflóa Vegagerðin varar við hríð og hálku víða á Suðurlandi og við Faxaflóa. Þá er mjög hvasst bæði á Steingrímsfjarðarheiði og Klettshálsi og hálka á köflum. Ferðalangar eru hvattir til að kynna sér færð á vef Vegagerðarinnar. 8.3.2007 18:06
Menningarsamningur SPRON og Borgarleikhússins Forsvarsmenn SPRON og Borgarleikhússins skrifuðu í dag undir menningarsamning til fjögurra ára. Samningurinn felur í sér að SPRON verður bakhjarl sýninga í leikhúsinu og bókaútgáfu vegna afmælis Leikfélags Reykjavíkur og býður svo bæði viðskiptavinum sínum og öllum nemendum í 10. bekk á Reykjavíkursvæðinu í leikhús næsta vetur. 8.3.2007 17:42
Dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir nauðgun Hæstiréttur dæmdi í dag hálffimmtugan karlmann í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir nauðgun og staðfesti þar með dóm Héraðsdóms. Auk þess var manninum gert að greiða fórnarlambi sínu 700 þúsund krónur í miskabætur. Nauðgunin var framin haustið 2005. 8.3.2007 17:33