Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Félagsmálaráðherra frestaði framsöguræðu og fór heim Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra, sem fékk aðsvif í miðri ræðu á Alþingi í morgun, hætti við að halda ræðunni áfram á Alþingi síðdegis og fór heim. Læknar hafa sagt honum að hvíla sig. Hann hafði ætlað að mæla fyrir jafnréttisáætlun til næstu fjögurra ára, og halda ræðuna sem hann þurfti að gera hlé á í morgun. 8.3.2007 16:24
Ný lyfjastefna Siv Friðleifsdóttir heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra kynnti í dag nýja lyfjastefnu til ársins 2012. Í lyfjastefnunni eru dregin fram þau atriði sem betur mega fara í lyfjamálum á Íslandi og sett fram áætlun um úrbætur. Stefnan var samin af 18 manna nefnd sem ráðherra skipaði um málið í september 2004. 8.3.2007 15:35
Hamingjuóskum rignir yfir Varmársamtökin „Þetta er viðurkenning á því sem við höfum verið að berjast fyrir og áfangasigur fyrir skipulagsmál almennt á Íslandi,“ sagði Sigrún Pálsdóttir stjórnarmaður Varmársamtakanna. Bæjarráð Mosfellsbæjar ákvað í morgun að endurskoða deiliskipulagsgögn fyrir Helgafellsveg um Álafosskvos og auglýsa skipulagstillöguna ásamt umhverfisskýrslu að nýju. 8.3.2007 15:35
Sameignarákvæði í stjórnarskrá nái til allra náttúruauðlinda Íslands Samkomulag hefur tekist milli stjórnarflokkanna um auðlindamálið. Samkomulagið gerir ráð fyrir, að formenn flokkanna flytji frumvarp til stjórnarskipunarlaga í eigin nafni þar sem ákvæðið um þjóðareign í lögum um fiskveiðar verði sett inn í stjórnarskrá og látið gilda um allar náttúruauðlindir Íslands. 8.3.2007 15:28
Rafræn skilríki á Íslandi Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra og Ingólfur Helgason, forstjóri Kaupþings á Íslandi, tóku í dag í notkun fyrsta rafræna skilríkið hér á landi. Opnaður hefur verið nýr upplýsingavefur um rafræn skilríki, skilriki.is. 8.3.2007 15:09
Sjö milljarða tekjuauki af erlendum ferðamönnum Rúmlega sjö milljarða tekjuauki varð af erlendum ferðamönnum á síðasta ári miðað við árið 2005. Samkvæmt upplýsingum Seðlabanka Íslands voru heildargjaldeyristekjur af erlendum gestum tæpir 47 milljarðar króna á síðasta ári, en voru tæpir 40 milljarðar árið 2005. 8.3.2007 14:39
Samningur við Eir stenst ekki lög Minnihluti borgarstjórnar gagnrýnir vinnubrögð meirihluta varðandi uppbyggingu menningarmiðstöðvar í Spöng. Málið var tekið fyrir í borgarráði í dag. Fyrirætlanir meirihlutans um að semja beint við Eir um byggingu menningarmiðstöðvarinnar án útboðs standast ekki sveitastjórnarlög. Þetta segir í bókun sem fulltrúar minnihluta í borgarstjórn lögðu fram í ráðinu í dag. 8.3.2007 14:01
Netvistun á ísland.is Fyrirtækið Netvistun ehf. hefur sent frá sér fréttatilkynningu vegna vefsíðunnar island.is sem Forsætisráðuneytið hefur verið að kynna. Vefsíðan hefur verið kynnt sem ísland.is með íi en það lén er í eigu Netvistunnar. 8.3.2007 13:41
Fjármálafyrirtæki styðja meistaranám hjá Háskólanum á Akureyri Fjármálafyrirtækin Saga Capital, Sparisjóður Norðlendinga og fleiri sparisjóðir, Glitnir og Íslensk verðbréf ætla að styðja við uppbyggingu meistaranáms í viðskiptafræði við Háskólann á Akureyri. Skrifað var undir samstarfssamning um faglegan og fjárhagslegan stuðning fyrirtækjanna við verkefnið í morgun. 8.3.2007 13:29
Segir vinnubrögð utanríkisráðuneytisins forkastanleg Sighvatur Björgvinsson, forstjóri Þróunarsamvinnustofnunar Íslands, segir vinnubrögð utanríkisráðuneytisins forkastanleg og það beri vott um valdhroka að leggja stofnunina niður og sameina ráðuneytinu. Hann segir þetta svipað og að leggja Vegagerðina niður og sameina samgönguráðuneytinu. 8.3.2007 13:23
Ekki áhugamaður um báta Sigurður Einarsson stjórnarformaður Kaupþings sagðist í þrígang hafa verið í bátum á Miami, bátum sem teknir eru fyrir í Baugsmálinu. Hann sagði í Héraðsdómi Reykjavíkur rétt fyrir hádegið að hann væri þó ekki áhugamaður um báta og vissi ekki hvort um hefði verið að ræða Thee Viking sem tekist hefur verið á um. 8.3.2007 13:04
Tillögur um jafnréttislög of róttækar Bjarni Benediktsson, fulltrúi Sjálfstæðismanna við endurskoðun jafnréttislaga, segir tillögur nefndarinnar of róttækar. Samfylkingin vill að jafnréttisfrumvarpið verði samþykkt fyrir kosningar. Þverpólitísk nefnd undir forystu Guðrúnar Erlendsdóttur hefur síðan í sumar setið við endurskoðun jafnréttislaga, sem fyrst voru sett fyrir 30 árum. 8.3.2007 12:21
Hvort er frétt; húsleit eða blaðamaður Magnús Guðmundsson framkvæmdastjóri Kaupthing bank í Luxemborg sagði í morgun að það hefði vakið grunsemdir hjá honum hvernig blaðamaður Morgunblaðsins gat vitað af húsleit í bankanum á undan honum. Þetta sagði hann í skýrslutöku vegna Baugsmálsins í Héraðsdómi Reykjavíkur. 8.3.2007 11:57
40 prósent telja ójöfnuð milli kynja Tæp 40 prósent telja konur ekki hafa jafnan rétt og karlar á Íslandi. Þetta kemur fram í nýrri könnun frá Gallup International í tilefni alþjóðlegs baráttudags kvenna. Í henni kemur fram að 56 prósent telja rétt kynjanna jafnan. Rúmlega 90 prósent telja menntun ekki mikilvægari fyrir drengi en stúlkur og 84 prósent telja að bæði konan og karlinn ættu að afla tekna fyrir heimilið. 8.3.2007 10:58
Sátt um auðlindaákvæðið á næstu dögum Formenn stjórnarflokkanna stefna að sameiginlegri niðurstöðu um auðlindaákvæðið sem framsóknarmenn hafa lagt þunga áherslu á að fari inn í stjórnarskrá. Forsætisráðherra á von á því að lending náist í málinu á næstu dögum. 7.3.2007 19:30
Fundað með samgöngunefnd Alþingis Borgarstjórinn í Reykjavík og bæjarstjórar nágrannasveitarfélaga krefjast þess að framlög ríkisins til samgöngumála á höfuðborgarsvæði verði ríflega tvöfölduð frá því sem áformað er í samgönguáætlun 7.3.2007 19:15
Eldur á vélaverkstæði í Stapahrauni Eldur kviknaði á vélaverkstæði í Stapahrauni í Hafnarfirði um klukkan hálfsjö í kvöld. Allt tiltækt lið var kallað út vegna atviksins sem reyndist síðan ekki jafn mikið og óttast var. Eldurinn var í lítilli skemmu, í einu rými af þremur í henni. Engin hætta stafar af eldinum og ekki er óttast að hann breiðist út. Slökkviliðsmenn eru nú að fullvissa sig um að enginn eldur sé lengur í skúrnum og eru að rífa þakið af honum til þess. 7.3.2007 19:09
Ísland.is komið á netið Ferðum manna á opinberar stofnanir gæti fækkað, nú þegar íslenska vefgáttin ísland.is hefur verið opnuð. Það var forsætisráðherra sem fór fyrstur manna á slóðina. 7.3.2007 19:04
Snjóflóð á Ísafirði undanfarinn sólarhring Snjóflóð féll á varnargarðinn, við Sorpbrennslustöðina Funa á Ísafirði, á níunda tímanum í morgun. 7.3.2007 19:00
Launaleynd hugsanlega aflétt Launaleynd verður aflétt og fyrirtæki verða sektuð fyrir brot á jafnréttislögum ef frumvarp, sem þverpólitísk nefnd hefur samið, nær fram að ganga. Guðrún Erlendsdóttir, formaður nefndarinnar, vonast til að launajafnrétti verði náð innan tíu ára. 7.3.2007 18:50
Aron Pálmi blandast í hneykslismál sem skekur Texas Aron Pálmi Ágústsson hefur verið beðinn að vitna í pólitísku hneykslismáli sem skekur Texas-fylki í Bandaríkjunum. Yfirvöld barnafangelsa í fylkinu og ríkisstjórinn eru sakaðir um að hylma yfir víðtæku kynferðislegu ofbeldi gegn ungmennum í fangelsunum. Aron, sem lýkur afplánun á tíu ára dómi sínum eftir fimm mánuði, vill vitna um eigin reynslu af kynferðisofbeldinu en óttast hefndaraðgerðir. Hann hefur beðið sendiráðið um stuðning. 7.3.2007 18:45
Lilja Viðarsdóttir sendiherra látin Lilja Viðarsdóttir sendiherra og aðstoðarframkvæmdastjóri Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA) andaðist á Landspítala – háskólasjúkrahúsi fyrr í dag, 49 ára að aldri, eftir stutta sjúkrahúslegu. 7.3.2007 17:43
Athugasemdum við Kompásumfjöllun svarað Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, sendi nýverið ritstjórn fréttaskýringaþáttarins Kompás bréf þar sem gerðar voru athugasemdir við umfjöllun Kristins Hrafnssonar fréttamanns, í þættinum um trúarlíf Íslendinga. Ritstórn þáttarins sendi biskupi í dag greinagerð frá Kristni þar sem öllum athugasemdum biskups er svarað. 7.3.2007 17:31
Byssumenn handteknir í miðborg Reykjavíkur Farið er að bera á því að menn séu með skotvopn á sér í miðborg Reykjavíkur um helgar. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur nýlega handtekið menn með skotvopn á sér í miðborginni. Skotárás hefur enn ekki átt sér stað í næturlífi Reykjavíkur, en með þessu áframhaldi kemur að því fyrr eða síðar að mati lögreglu. Sagt er frá þessari uggvænlegu þróun í þættinum Ísland í dag á Stöð 2 í kvöld. 7.3.2007 17:15
Auðlindaákvæði skapi ekki óvissu í sjávarútvegi Bæjarráð Vestmannaeyja hefur sent frá sér ályktun vegna umræðna um auðlindaákvæði í stjórnarskrá þar sem það minnir á mikilvægi þess að ekki verði gerðar breytingar á stjórnarskránni sem skapi ósvissu um stöðu sjávarútvegs. 7.3.2007 17:00
Sakfelldur fyrir að nefbrjóta tvo menn Héraðsdómur Suðurlands dæmdi í dag karlmann í hálfs árs fangelsi, þar af fimm mánuði skilorðsbundna, fyrir að nefbrjóta tvo menn í Skíðaskálanum í Hveradölum í apríl í fyrra. Þá var hann dæmdur til að greiða þeim samtals yfir hálfa milljón króna í miskabætur. 7.3.2007 16:46
Sturla lætur rannsaka jarðgangarannsóknir Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra hefur ákveðið að verða við óskum Eyjamanna um að fá óháða aðila til að fara ofan í þær rannsóknir sem liggja fyrir, leggja mat á þær og kostnað við hugsanleg jarðgöng. 7.3.2007 16:31
Eins og hálfs árs dómur fyrir nauðgun Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í eins og hálfs fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn konu með því að hafa haft samræði við hana gegn hennar vilja en konan gat ekki spornað við verknaðinum sökum ölvunar ogs svefndrunga. 7.3.2007 16:25
„Mínir einkastaðir“ á alla leikskóla Reykjavíkur Samtökin Blátt áfram hafa gefið öllum leikskólum í Reykjavík bókina “Þetta eru mínir einkastaðir. “ Bókin er ætluð til forvarnar gegn kynferðislegu ofbeldi gegn börnum og er ætluð til lestrar með börnunum. Sigríður Björnsdóttir fulltrúi samtakanna afhenti Leikskólaráði eintak af bókinni í dag. 7.3.2007 15:54
Skylt verði að stuðla að jafnrétti í nefndum og stjórnum hins opinbera Lagt til að í allar nefndir, ráð og stjórnir á vegum ríkis og sveitarfélaga verði skylt að tilnefna karl og konu þannig að hlutfall hvors kyns verði ekki minna en 40 prósent samkvæmt nýju frumvarpi að breytingum á Jafnréttislögum. 7.3.2007 15:49
Eiginkona árasarmannsins eigandi Lauffells Maðurinn sem gekk í skrokk á pólskum verkamanni um helgina er ekki eigandi Lauffells ehf. eins og fram hefur komið í fréttum. Það er eiginkona árásarmannsins sem er eigandi fyrirtækisins. Í yfirlýsingu frá fyrirtækinu segir að árásarmaðurinn hafi starfað sem verkstjóri hjá fyrirtækinu en látið af störfum í síðasta mánuði og sé á engan hátt tengdur því né starfsemi þess. Undir yfirlýsinguna skrifar Rúnar Þór Guðmundsson framkvæmdastjóri. 7.3.2007 15:26
Varnagarður bjargaði sorpbrennslunni Þrjú snjóflóð hafa fallið í Skutulsfirði það sem af er degi, að því er segir á vef Bæjarins besta á Ísafirði. Flóðin féllu öll á Kirkjubólshlíð; tvö fyrir innan flugvöllinn, fyrir utan bæinn Höfða í Engidal og eitt á varnargarðinn fyrir ofan sorpbrennsluna Funa. Varnargarðurinn bjargaði sorpbrennslunni frá miklum skemmdum, en flóðið féll að mestu á garðinn. 7.3.2007 15:16
15 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir barnanauðgun Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt mann á áttræðisaldri í 15 mánaða fangelsi, vegna kynferðisbrota. Maðurinn misnotaði 10 ára sonardóttur sína ítrekað. 12 mánuðir af refisingunni eru skilorðsbundnir. 7.3.2007 15:13
Fæðisgjald lækkar um 300 krónur á leikskólum Fæðisgjald á leikskólum borgarinnar lækkar um þrjú hundruð krónur á mánuði frá og með 1. apríl næstkomandi samkvæmt ákvörðun leikskólaráðs í dag. 7.3.2007 15:07
Áfengisneysla jókst um helming á áratug Áfengisneysla landsmanna hefur vaxið um 50 prósent á síðustu tíu árum. Áfengi veldur töluverðum skaða í samfélaginu og hefur alþjóða heilbrigðismálastofnunin áætlað að yfir níu prósent af snemmbærri fötlun/dauða megi rekja beint til áfengis. 7.3.2007 15:03
Búðarferðin leiðinlega Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitaði síðdegis í gær að fimm ára dreng sem hvarf úr bíl móður sinnar á meðan hún verslaði í kvöldmatinn. Piltinum leiddist búðarrápið, eins og gjarnan er með karlmenn, og átti að bíða í bílnum á meðan. Þegar móðir hans kom aftur var hann horfinn. 7.3.2007 14:34
Þjófar á ferð á höfuðborgarsvæðinu Nokkuð var um þjófnaði á höfuðborgarsvæðinu í gær. Brotist var inn í bíl í miðborg Reykjavíkur og teknar úr honum tvær ferðatöskur. Tölvuskjám var stolið í Hafnarfirði, einum úr heimahúsi og öðrum úr grunnskóla í bæjarfélaginu. Þá var kerra tekin frá bensínstöð í Grafarvogi og dekkjum stolið úr geymslu í austurborginni. 7.3.2007 14:15
Siðmennt óskar svara vegna Vinaleiðar Þjóðkirkjunnar Menntamálaráðherra hefur ekki svarað bréfi Siðmenntar frá 3. október síðastliðnum þar sem óskað er eftir afstöðu ráðherra til Vinaleiðar Þjóðkirkjunnar. Siðmennt telur víst að um trúboð sé að ræða, en í fréttum Stöðvar 2 í gær kom fram að ráðherra telur svo ekki vera. Félagið harmar þessa afstöðu og telur víst að ráðherra hafi ekki skoðað öll rök í málinu. 7.3.2007 14:08
Slippurinn flyst á Grundartanga Slippurinn í Reykjavík, eitt elsta fyrirtæki borgarinnar, flyst innan tíðar á Grundartanga, og verður þá enginn slippur eftir í Reykjavík. Stjórn Faxaflóahafna gaf í gær Stálsmiðjunni, sem rekur Slippinn, vilyrði fyrir stórri lóð þar, bæði undir skemmu og dráttarbraut. Lóðin er vestan við Járnblendiverksmiðjuna, en nær þjóðveginum. 7.3.2007 13:15
Fréttir um bankasameiningu eru orðrómur Bjarni Ármannsson, forstjóri Glitnis, segir að hvorki hann né stjórn bankans hafi tekið þátt í meintum sameiningaviðræðum Kaupþings og Glitnis. Hann segir slíkar fréttir einungis orðróm og að aðrir verði að svara fyrir það en hann. 7.3.2007 13:00
Fjandsamlegt andrúmsloft og sundrung vegna virkjana Áform um virkjanir í neðri hluta Þjórsár hafa skapað fjandsamlegt andrúmsloft og vakið sundrung meðal íbúa á svæðinu, segir meðal annars í athugasemd sóknarprestsins í Stóra-Núps prestakalli, til sveitarstjórnar Skeiða- og Gnúpverjahrepps. 7.3.2007 12:17
Rændur og barinn í Flórída Íslenskur maður á fertugsaldri var barinn illa í viðskiptaferð á Flórída í fyrrakvöld. Maðurinn var að keyra vin sinn heim í Orlando upp úr miðnætti og villtist af leið þegar fjórir menn réðust á hann, drógu hann út úr bílnum og spörkuðu í hann án afláts. Þeir hurfu á brott eftir að ná af honum peningaveski með kreditkortum og 80 þúsund íslenskum krónum í bandaríkjadölum. 7.3.2007 11:59
Umhyggja fékk milljón fyrir mark Eiðs Allt að fjórar fjölskyldur langveikra barna njóta góðs af markinu sem Eiður Smári Guðjohnsen skoraði fyrir Barcelona í leiknum gegn Liverpool í Meistaradeild Evrópu í gær. Forsvarsmenn Umhyggju sátu spenntir yfir leiknum. 7.3.2007 11:56
Hvað orsakar offitu barna? Að minnsta kosti eitt af hverjum fimm börnum í Bandaríkjunum er of feitt og tala þeirra sem berjast við offitu fer stöðugt vaxandi. Á síðustu tveimur áratugum hefur of feitum börnum fjölgað um helming og tala þeirra sem eru mjög feit hefur tvöfaldast. Hlutfall of þungra barna hér á Íslandi er aðeins lægra en hefur þó farið vaxandi undanfarin ár. Nýleg könnun leiddi í ljós að íslensk börn eru meðal þeirra þyngstu í Evrópu. 7.3.2007 11:37
Vildi hætta viðskiptum við Nordica Árni Pétur Jónsson, forstjóri Teymis og fyrrverandi yfirmaður matvörusviðs Baugs, sagðist í héraðsdómi í dag hafa viljað hætta viðskiptum við Nordica árið 2002. Hann var ósáttur við að Tryggvi Jónsson, fyrrverandi aðstoðarforstjóri Baugs, hefði þrýst á innkaupaaðila að eiga viðskipti við tiltekna aðila, eins og Nordica, þrátt fyrir að vörur frá fyrirtækinu seldust ekki vel. 7.3.2007 11:19