Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Umferðaröryggi og samfélagssjónarmið réðu ákvörðun um Vestfjarðaveg Flaggað var á Vestfjörðum í dag eftir að umhverfisráðherra samþykkti nýtt stæði Vestfjarðavegar um Þorskafjörð, Djúpafjörð og Gufufjörð. Jónína Bjartmarz segir að sjónarmið umferðaröryggis og samfélags hafi valdið því að hún ákvað að ganga gegn vilja landeigenda og náttúruverndarsamtaka og leyfa vegagerðina umdeildu. 6.1.2007 18:52
Um eitthundrað manns á útifundi um Urriðafoss Útifundur var haldinn við Urriðafoss í Þjórsá í dag. Þar mættu Sunnlendingar til að ræða um fyrirhugaðar virkjanaframkvæmdir við fossinn, sem er sá vatnsmesti á landinu. Upphafsmaður fundarins vill að menn staldri við. 6.1.2007 18:52
Segir brandarann misskilinn Varaformaður vinstri grænna segir brandara í áramótaannáli vefritsins Múrsins, um bók Margrétar Frímannsdóttur, hafa farið yfir strikið. Hún segir grínið hvorki hafa beinst gegn Margréti né Thelmu Ásdísardóttur heldur Jóni Baldvin Hannibalssyni. 6.1.2007 18:45
Óttast að Þormóður Rammi leigi kvóta þriggja skipa Oddvita Samfylkingarinnar í norðausturkjördæmi lýst illa á uppsagnir yfirmanna á þremur skipum Þormóðs ramma. Hann óttast að fyrirtækið muni nota smugu í lögunum til þess að leigja út allar aflaheimildir skipanna á næsta fiskveiðiári. Framkvæmdastjóri Þormóðs ramma segir að samkvæmt lögum megi fyrirtækið ekki leigja út meira en helming aflaheimildanna. 6.1.2007 18:30
Brotist inn í Verkmenntaskólann Tveir karlmenn brutust inn í Verkmenntaskólann á Akureyri klukkan hálfsex í morgun. Þeir flúðu af vettvangi um leið og viðvörunarkerfi fór í gang þegar þeir voru búnir að spenna upp glugga og höfðu því ekkert þýfi upp úr krafsinu. Þeir náðust skömmu seinna. Engar teljandi skemmdir urðu á húsinu. 6.1.2007 17:36
Nekt og axir hjá löggunni Lögregla höfuðborgarsvæðisins fær margvísleg verkefni, þeirra á meðal var hún kölluð til til að gá að hálfþrítugum sem sagt var að gengi um klæðalítill í miðbæ Reykjavíkur. Þegar að var komið reyndist maðurinn kviknakinn og í annarlegu ástandi. Þá gerði lögreglan upptækar þrjár axir í bíl ungs manns í gær. 6.1.2007 16:27
Veðjar á að Bláfjöll verði opnuð um næstu helgi Starfsmenn skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins vinna nú hörðum höndum að því að troða og safna snjó í brekkur í Bláfjöllum. Grétar Hallur Þórisson, forstöðumaður Bláfjalla og Skálafells, segist hafa trú á því að hægt verði að opna í Bláfjöllum um næstu helgi, þar sem spái áframhaldandi snjókomu á næstu dögum. 6.1.2007 16:16
30 óku of hratt Þrjátíu ökumenn voru teknir fyrir hraðakstur í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær og nótt. Lögregla segir þetta allmikið, ekki síst í ljósi þess að akstursskilyrði voru ekki góð en flestir ökumenn hægja á sér þegar færðin versnar. Þá voru sömuleiðis fjölmargir árekstrar tilkynntir til lögreglu. 6.1.2007 16:05
Fjögur fíkniefnamál í gær Fjögur fíkniefnamál komu til kasta lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær. Þar af voru þrjú í Reykjavík og eitt í Hafnarfirði. Fimm karlmenn á þrítugs- og fertugsaldri voru handteknir vegna málanna. 6.1.2007 15:26
Flaggað á Vestfjörðum vegna úrskurðar umhverfisráðherra Bæjarstjóri Vesturbyggðar hefur ákveðið að flaggað skuli á öllum opinberum byggingum sveitarfélagsins, bæði á Patreksfirði og Bíldudal, í dag vegna þeirrar ákvörðunar umhverfisráðherra í morgun að leyfa nýtt stæði Vestfjarðavegar um Þorskafjörð, Djúpafjörð og Gufufjörð. 6.1.2007 14:10
Karlmenn í meirihluta í spurningaprófi Karlmenn voru í áberandi meirihluta meðal þeirra 296 sem spreyttu sig á inntökuprófi í spurningaþáttinn Meistarann klukkan tvö í dag. Prófin voru haldin í Reykjavík, á Akureyri, Egilsstöðum og á Ísafirði. Á prófinu voru 50 spurningar, misþungar, og ráða úrslit því hverjir fá að freista gæfunnar í sjónvarpsþættinum Meistaranum. 6.1.2007 14:00
DV þá og DV nú "Jú, það er rétt að forsíðan minnir óneitanlega á forsíðuna í apríl 2004. En að öðru leyti vil ég ekki tjá mig um málið,“ segir Mikael Torfason, aðalritstjóri tímaritaútgáfunnar Birtíngs, undrandi þegar Fréttablaðið náði tali af honum. 6.1.2007 13:30
Óljóst hver á að njóta hækkunarinnar Niðurgreiðslur til dagforeldra jukust um ríflega 85 milljónir króna um áramótin. Bæði dagforeldrar og foreldrar virðast ráðvilltir um hver eigi að njóta aukinnar niðurgreiðslunnar. 6.1.2007 12:36
Öfgalaus útifundur við Urriðafoss Útifundur verður haldinn við Urriðafoss í Þjórsá klukkan þrjú í dag þar sem náttúruverndarsinnar og heimamenn sem vilja vernda svæðið ræða fyrirhugaðar virkjunarframkvæmdir. Bjarni Harðarson, blaðamaður, skipuleggur fundinn til þess að fá fram öfgalausa umræðu um umhverfismál, að því er segir á heimasíðu hans. 6.1.2007 12:16
Ef Kaupþing gerir upp í evrum verður peningamálastefnan bitlaus Ef stærsti banki landsins fer að gera upp í evrum þá verður peningamálastefnan hér á landi bitlaus. Þetta er mat fyrrverandi forstöðumanns Hagfræðistofnunar HÍ og bankastjóra sem segir það hagsmuni fjármálageirans að Íslendingar taki upp evruna. 6.1.2007 12:08
Umhverfisráðherra heimilar Vestfjarðaveg Umhverfisráðherra hefur heimilað að Vestfjarðavegur verði lagður yfir Gufufjörð og Djúpafjörð á sunnanverðum Vestfjörðum og út með Þorskafirði. Þar með snýr ráðherra við niðurstöðu Skipulagsstofnunar, sem hafnaði framkvæmdinni vegna mikilla umhverfisáhrifa. 6.1.2007 11:56
Rétttrúnaðarjól í dag Rússneska rétttrúnaðarkirkjan fagnar í dag jólum víða um heim, meðal annars á Íslandi. Jólaguðsþjónusta rétttrúnaðarkirkjunnar á Íslandi verður haldin í Friðrikskapellu á Valsvellinum í kvöld klukkan 23:00. Messan tekur um tvo og hálfan tíma og á morgun verður jólaball fyrir börnin. 6.1.2007 11:43
Viltu verða meistari? Þeim sem gekk vel í spurningaspilum við fjölskylduna um jólin býðst nú tækifæri til að setja markið enn hærra. Inntökupróf fyrir spurningaþáttinn Meistarann verður haldið í Hagaskóla í Vesturbænum klukkan 14:00. Spurningarnar eru 50 talsins og þungir kaflar inn á milli, að sögn Loga Bergmanns Eiðssonar, umsjónarmanns þáttarins. 6.1.2007 10:58
47 umferðaróhöpp það sem af er degi 47 umferðaróhöpp hafa átt sér stað það sem af er degi á höfuðborgarsvæðinu. Lögreglan segir ástæðuna í flestum tilfellum vera launhálku en mjög hált var í morgun á fáförnum götum. Tíu innbrot hafa einnig verið tilkynnt lögreglunni í dag. Í einu tilviki voru fjórir þjófar handteknir en í hin eru enn í rannsókn. 5.1.2007 21:30
Eftirliti með fjárútlátum ríkisins ábótavant Eftirliti með framkvæmd fjárlaga er ábótavant og hvergi í stjórnkerfinu er til listi yfir þá sem fá framlög úr ríkissjóði. Ríkisendurskoðandi vill bæta úr þessu og fór í fyrradag bréflega fram á það, við öll ráðuneytin, að þau taki saman upplýsingar um hverjir fá hvað og í hvað peningarnir fara. 5.1.2007 20:30
Olíuverðslækkanir ósennilegar Heimsmarkaðsverð á olíu hefur fallið um tíu prósent í þessari viku og hefur ekki verið lægra í hálft annað ár. Ólíklegt er að íslenskir neytendur njóti lækkunarinnar vegna óhagstæðrar gengisþróunar. 5.1.2007 19:17
Evrópu-reglugerð ógnar Cheerios Hugsanlegt er að vinsæla morgunkornið, Cheerios, verði bannað hér á landi ef reglugerð Evrópusambandsins, um takmarkanir á vítamínbættri matvöru, verður tekin inn í Evrópska efnahagssamninginn. Reglugerðin kom út rétt fyrir áramót og gæti haft áhrif á tugi vörutegunda hér á landi, meðal annars Cheerios sem er vítamínbætt og þykir bæði hollt og gott. 5.1.2007 19:06
Sátu fyrir innbrotsþjófum Tveir menn sátu fyrir innbrotsþjófum á heimili föður síns í morgun og leiddi fyrirsátið til handtöku þeirra. Þetta var þriðja ferð innbrotsþjófa í húsið, frá því um jólin, en þeir höfðu stillt upp þýfi í anddyrinu sem beið þess að vera sótt. 5.1.2007 18:45
Nýr íslenskur risi á orkumarkaði Nýr íslenskur orkurisi varð til í dag þegar þegar tveir af öflugustu fjárfestum og stærsta verkfræðistofa landsins stofnuðu alþjóðlegt fyrirtæki á sviði grænnar orkuframleiðslu. Fyrirtækið ætlar að ráðst í verkefni víðs vegar um heim og er áætlað að fjárfesta fyrir allt að sjötíu milljarða íslenskra króna. 5.1.2007 18:30
Árið byrjar vel í Kauphöll Íslands Úrvalsvísitalan í Kauphöll Íslands hefur hækkað um fimm prósent á þremur dögum, eða frá því hún opnaði fyrst eftir áramót á þriðjudag. Mestu munar um mikla hækkun á hlutabréfum í Kaupþingi. 5.1.2007 18:30
Hugsanlegt að borgin kosti fleiri öryggismyndavélar Formaður borgarráðs segir borgarstjórn vilja ræða hugmyndir nýs lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins um fleiri öryggismyndavélar og segir hugsanlegt að borgin leggi til fjármuni í verkið. 5.1.2007 18:30
Ríflega 20 manns missa vinnuna Eitt stærsta verktakafyritæki Vestfjarða, byggingarfyrirtækið Ágúst og Flosi, var úrskurðað gjaldþrota í dag. Um tuttugu starfsmennn missa við það vinnuna og óvíst er hvað verður um verkefni fyrirtækisins. 5.1.2007 18:15
Innbrotsþjófur í neyð Brotist var inn í söluskála Esso á Suðureyri aðfaranótt fimmtudags og var þjófurinn augljóslega í neyð því það eina sem hann hafði á brott voru 4 pakkar af Durex smokkum með ávaxtabragði. Eftirlitsmyndavél er á staðnum og náði hún að festa atburðinn á filmu. Þjófurinn reyndi svo lítillega að opna peningakassann á leið sinni út aftur, en þegar að það gekk ekki greiðlega fyrir sig, hvarf hann á braut. 5.1.2007 17:14
Magni rokkstar skilinn Magni rokkstjarna Ásgeirsson og eiginkona hans Eyrún Haraldsdóttir hafa slitið samvistum. Í yfirlýsingu frá þeim, sem birtist í DV í dag, segir að þau hafi fjarlægst hvort annað tilfinningalega, í kjölfar mikilla breytinga sem urðu á högum Magna á nýliðnu ári. Þau segjast munu vinna í sameiningu að uppeldi sonar síns, Marinós, og biðja um næði til þess að vinna úr erfiðum málum, án íþyngjandi áreitis. 5.1.2007 16:47
Tæp 180 tonn af hvalaúrgangi urðuð á Mýrum Um 179 tonn af hvalaúrgangi af þeim sem sjö langreyðum sem veiddust við landið í haust voru urðuð í Fíflholtum á Mýrum í haust að sögn Skessuhorns. Kjöt hvalanna var aðeins nýtt en það hefur ekki enn verið selt. Fram kemur á vef Skessuhorns að annað af hvalnum, sem áður fór í aðra vinnslu eins og til bræðslu, hafi verið urðað. 5.1.2007 16:24
Vill endurskoða lög um Þróunarsamvinnustofnun Utanríkisráðherra hefur ákveðið að lög um Þróunarsamvinnustofnun Íslands verði endurskoðuð og kannað verði hvort þörf sé á breyttu skipulagi þróunarsamvinnu Íslands. 5.1.2007 16:11
Dæmd fyrir fíkniefnasmygl í pósti og vörslu fíkniefna Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag karlmann í eins og hálfs árs fangelsi og konu í níu mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa reynt að smygla inn bæði amfetamíni og kókaíni til landsins með póstsendingum og ýmis önnur brot. 5.1.2007 15:26
Hjálpa öldruðum að snúa til síns heima í Króatíu Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra hefur í samráði við flóttamannanefnd ákveðið að veita Rauða krossi Íslands ríflega 3,8 milljón króna styrk til flóttamannaverkefnis í Króatíu. 5.1.2007 15:06
FL Group og Glitnir í tugmiljarðafjárfestingar í grænni orku FL Group, Glitnir og verkfræðistofan VGK-Hönnun hafa stofnað fjárfestingarfélagið Geysir Green Energy sem hefur það að markmiði að fjárfesta í verkefnum tengdum sjálfbærri orkuframleiðslu víðs vegar um heim. FL Group verður leiðandi hluthafi félagsins og stefnt er að því að félagið geti ráðist í fjárfestingar að upphæð 70 milljarðar króna. 5.1.2007 14:32
Orkuveitan auglýsir styrki úr Umhverfis- og orkurannsóknasjóði Orkuveita Reykjavíkur hefur auglýst eftir umsóknum um styrki til vísindafólks úr Umhverfis- og orkurannsóknasjóði sínum. Alls standa 100 milljónir króna vísindafólki til boða. 5.1.2007 14:12
Byggingarfyrirtæki á Ísafirði úrskurðað gjaldþrota Byggingafyrirtækið Ágúst og Flosi ehf. á Ísafirði hefur verið úrskurðað gjaldþrota að beiðni Lífeyrissjóðs Vestfirðinga. Úrskurður þess efnis var kveðinn upp í Héraðsdómi Vestfjarða í morgun. Þetta kemur fram á vef Bæjarins besta. 5.1.2007 14:03
Segir myndavélaeftirlit hafa sannað gildi sitt Björn Bjarnason dómsmálaráðherra segir myndskeiðið sem sýnt var í fjölmiðlum í vikunni af hrottalegri líkamsárás þriggja pilta á tvo aðra pilta í Garðarstræti á nýársnótt sanna gildi myndavélaeftirlits. Foreldrar piltanna hafi komið þeim í hendur lögreglu sama kvöld og myndirnar hafi verið birtar í fjölmiðlum. 5.1.2007 13:56
Tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir fíkniefnasmygl Litháískur ríkisborgari á þrítugsaldri var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir að reyna að smygla fíkniefnum til landsins í fyrra. Hann var gripinn við komu Norrænu til Seyðisfjarðar þann 31. ágúst eftir að tollverðir höfðu fundið nærri tvö og hálft kíló af amfetamíni í BMW-bifreið sem hann var skráður ökumaður fyrir. 5.1.2007 13:23
Mikill áhugi hjá viðskiptafræðinemum á að vinna í banka Hátt í annar hver nemandi af þeim fimm hundruð, sem eru á lokaári í viðskiptafræðum í háskólum hér á landi, vill vinna í banka að námi loknu. 5.1.2007 13:00
Spáir óbreyttri vísitölu neysluverðs í janúar Greiningardeild Glitnis spáir því að vísitala neysluverðs á milli desember og janúar verði óbreytt og að verðbólga muni þannig lækka úr sjö prósentum í desember í 6,6 prósent í janúar. 5.1.2007 12:55
Fjórföld hækkun á yfirflugsgjaldi fyrirhuguð Gjöld Flugstoða vegna flugs á íslensku flugstjórnarsvæði gætu hækkað ef gjald vegna fjarskiptaþjónustu verður fjórfaldað, en ákvörðun um það verður tekin fljótlega. Flugumferðarstjórn er hins vegar komin í eðlilegt horf á ný eftir óvissutíma síðustu daga og vikur. Í lok dagsins í gær höfðu allir flugumferðarstjórarnir 58 sem ekki höfðu ráðið sig til Flugstoða í byrjun árs, skrifað undir starfssamning við hið nýja opinbera hlutafélag. 5.1.2007 12:30
Stærsti vaxtarsamningur sinnar tegundar Í gær var undirritaður samningur á Egilsstöðum til uppbyggingar og þróunarstarfs á Austulandi. Um er að ræða 190 milljónir á þremur árum sem veittar verða til uppbyggingar á ýmsum sviðum á Austurlandi. Samningurinn er sá stærsti sinnar tegundar hér á landi. Það var Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra sem undirritaði vaxtarsamninginn á Hótel Héraði á Egilsstöðum ásamt fulltrúum samningsaðila. 5.1.2007 12:15
Aldrei fleiri byggingar rifnar í Reykjavík Aldrei hafa fleiri byggingar verið rifnar í Reykjavík á einu ári en í fyrra eða 51 talsins. Þetta kemur fram á vef umhverfissviðs Reykjavíkurborgar. Þar kemur einnig fram að árið 2005 hafi einnig verið metár en þá voru 47 byggingar rifnar. 5.1.2007 12:09
Skoða að láta Wilson Muuga standa áfram Hugsanlegt er að eigandi og tryggingafélag Wilson Muuga, sem strandaði við Hvalsnes fyrir jól, óski eftir því við umhverfisyfirvöld að skipið fái að standa áfram þar sem það mengi ekki lengur. Það yrði þá aðeins aðdráttarafl fyrir ferðamenn. 5.1.2007 12:00
Bæjarstjóri með um milljón í laun Laun Ragnheiðar Hergeirsdóttur sem er nýr bæjarstjóri í Árborg verða rúmlega ein milljón og fimmtíu þúsund krónur á mánuði samkvæmt heimildum Sunnlenska fréttablaðsins. 5.1.2007 11:36