Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Stoð kippt undan Hornafirði Verið er að kippa einni stoðinni undan samfélaginu að ástæðulausu, segja bæjaryfirvöld á Hornafirði um þá ákvörðun að segja upp starfsmönnum ratsjárstöðvarinnar á Stokksnesi. Þau segja yfirvöld ekki geta fríað sig ábyrgð og bent á bandaríska herinn. 25.10.2006 20:45
Ímynd Íslands skaðist af hvalveiðum Ímynd landsins er verðmætasta auðlind íslensku þjóðarinnar, segir talsmaður ferðaþjónustunnar og íslensk stjórnvöld eru að taka þá áhættu að stórskaða hana með hvalveiðum. Á heimasíðu Greenpeace hafa 90 þúsund manns heitið því að íhuga alvarlega að sækja Ísland heim ef þjóðin hættir hvalveiðum. Þriðja langreyðurin var skotin við Snæfellsnes í dag. 25.10.2006 20:30
Latibær tilnefndur til BAFTA-verðlauna Sjónvarpsþættirnir um Latabæ hafa verið tilnefndir til hinna virtu BAFTA-verðlauna í Bretlandi í flokki alþjóðlegs barnaefnis. Magnús Scheving, höfundur og framleiðandi þáttanna, segir að um einstaka viðurkenningu sé að ræða. 25.10.2006 20:15
Mögulega raðnauðgarar að verki Lögreglan í Reykjavík rannsakar hvort sömu mennirnir standi á bak við hrottalegar nauðganir á tveimur stúlkum í miðborg Reykjavíkur, sem áttu sér stað með hálfsmánaðar millibili. Þriðja nauðgunin, þar sem þolandi var erlend námsstúlka sem þáði bílfar með ókunnugum manni, gæti einnig tengst málinu. 25.10.2006 19:45
Ferðinni til Bandaríkjanna haldið áfram Ferð farþegaflugvélar af gerðinni Boeing 758-200, sem lent var í öryggisskyni á Keflavíkurflugvelli kl. 16:10 í dag, var haldið áfram til Newark í Bandaríkjunum rúmri klukkustund síðar. Vélinni var flogið af stað aftur um kl. 17:30. Mikill viðbúnaður var á Keflavíkurflugvelli þegar flugvélinni, með 172 farþega innanborðs, var lent vegna bilunar í hreyfli. 25.10.2006 19:15
Torfæruhjól skemma reiðgötur Reiðgötur, víða um land, eru orðnar að slysagildrum af völdum fólks sem spænir þær upp á torfæruhjólum, segir formaður Landssambands hestamannafélaga. Alvarlegum slysum á hestamönnum hefur fjölgað. 25.10.2006 18:11
Kjartan höfðar mál gegn ríkinu til að fá gögn Kjartan Ólafsson ætlar að höfða mál gegn íslenska ríkinu og krefst þess að fá aðgang að öllum gögnum um hleranir. Lögmaður hans segir stjórnvöld fela þessi mál í afkimum til að stjórna umræðunni. 25.10.2006 18:04
Óviðurkvæmilegt fréttabréf Í fréttabréfi Nemendafélags Menntaskólans við Hamrahlíð nú í haust var birtur listi yfir Ellefu bestu lög til að nauðga við. Forseti skólafélagsins harmar að ritnefndin hafi brugðist því trausti sem henni var sýnd. 25.10.2006 17:56
Stærsta útkall Landhelgisgæslu um árabil Landhelgisgæslan fór í sitt stærsta útkall um árabil þegar Boeing 757 flugvél Continental flugfélagsins kom inn til lendingar í Keflavík eftir að tilkynna um bilun í hreyfli. 25.10.2006 17:42
Álfheiður sækist eftir 1. - 2. sæti Álfheiður Ingadóttir varaþingmaður Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs gefur kost á sér til þingsetu fyrir flokkinn. Álfheiður sækist eftir 1. til 2. sæti í sameiginlegu prófkjöri VG sem fram fer 2. desember næstkomandi. 25.10.2006 17:00
Grundvöllur fyrir aðild að ESB innan fjögurra ára Þorsteinn Pálsson, ritstjóri og fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins og forsætisráðherra, telur að grundvöllur fyrir aðild Íslands að Evrópusambandinu verði kominn innan fjögurra ára. Þetta kom fram í erindi hans á ráðstefnu Evrópusamtakanna sem haldin var í gær undir heitinu Staða smáríkja í alþjóðlegu samstarfi. 25.10.2006 16:57
Þrjátíu og þrjú sjálfsvíg á Íslandi á síðasta ári Alls urðu þrjátíu og þrjú sjálfsvíg á Íslandi á síðasta ári. Hagstofa Íslands gaf í dag út tölur um dauðsföll á árinu 2005. Þar kemur fram að af þeim sem ákváðu að taka sitt eigið líf voru 24 karlar og 9 konur. Skipting á milli kynjanna er svipuðu og síðustu ár. 25.10.2006 16:55
Stofna félag um rekstur hitaveitu í Kína Enex Kína, sem er í eigu Enex, Glitnis og Orkuveitu Reykjavíkur, undirritaði í dag samning við kínverska félagið Shaanxi Geothermal Energy Development Corporation um stofnun félags um uppbygginu og rekstur jarðvarmaveitu í borginni Xian Yang í Shaanxi-héraði í Kína. 25.10.2006 16:37
Rannsakað sem banaslys í umferðinni Karlmaður sem fannst látinn um borð í Norrænu við komuna til Þórshafnar í Færeyjum í síðustu viku lést af innvortis áverkum sem hann hlaut í bílveltu tveimur dögum áður. 25.10.2006 16:37
Latibær tilnefndur til BAFTA-verðlaunanna Sjónvarpsþættirnir um Latabæ hafa verið tilnefndir til hinna virtu BAFTA-verðlauna í Bretlandi í flokki alþjóðlegs barnaefnis. 25.10.2006 16:25
Flugvél Continental lenti heilu og höldnu Flugvél frá bandaríska flugfélaginu Continental Airlines lenti heilu og höldnu á Keflavíkurflugvelli klukkan tíu mínútur yfir fjögur en hún óskaði eftir að heimild til lendingar vegna bilunar í öðrum hreyfli vélarinnar. 25.10.2006 16:13
Flugvél Continental óskar eftir öryggislendingu í Keflavík Flugvél frá bandaríska flugfélaginu Continental Airlines hefur óskað eftir að fá að lenda á Keflavíkurflugvelli vegna bilunar í öðrum hreyfli vélarinnar. Vélin, sem er af gerðinni Boeing 757-200, er með 172 menn innanborðs og er nokkur viðbúnaður á Keflavíkurflugvelli af þeim sökum. 25.10.2006 15:14
Margir karlar sektaðir fyrir að tala í farsíma við akstur Lögreglan í Reykjavík telur sig hafa sýnt fram á það að karlar tali mikið í síma ekki síður en konur. Í frétt á vef lögreglunnar kemur fram að við umferðareftirlit í Reykjavík í gær hafi á annan tug ökumanna verði stöðvaður þar sem hann talaði í farsíma án þess að nota handfrjálsan búnað. Stærstur hluti þeirra, eða liðlega 90 prósent, voru karlmenn. 25.10.2006 14:58
Standa verði vörð um almannaþjónustuna Ögmundur Jónasson, formaður Bandalags starfsamanna ríkis og bæja, gerði stöðu á íslenskum vinnumarkaði að umtalsefni sínu og lagði áherslu á að standa vörð um almannaþjónustuna í ræðu sinni við setningu 41. þings BSRB. 25.10.2006 14:41
Félag íslenskra fjölmiðlakvenna stofnað í næsta mánuði Félag íslenskra fjölmiðlakvenna verður stofnað í næsta mánuði og hafa þegar um 40 konur skráð sig sem stofnfélagar. Greint var frá áformunum á Pressukvöldi um stöðu kvenna í fjölmiðlum sem Blaðamannafélag Íslands og Félag fréttamanna stóðu fyrir í gærkvöld. 25.10.2006 14:00
Tekinn ölvaður með barn sitt í bílnum Lögreglan í Reykjavík hafði í gær afskipti af ölvuðum ökumanni sem var með barn sitt í bílnum og reyndist þar að auki ökuréttindalaus. Maðurinn hafði ekið á umferðarskilti og forðað sér af vettvangi en eftir ábendingu tókst lögreglu að ná manningum og kom þá í ljós að ellefu ára sonur mannsins sat í framsæti bifreiðarinnar. 25.10.2006 13:45
Pétur Blöndal sinnir eftirliti með ÖSE Pétur H. Blöndal, alþingismaður, hefur tekið að sér að vera eftirlistmaður með fjármálum Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE). Það var Göran Lennmarker, forseti ÖSE-þingsins, sem óskaði eftir því við Pétur að hann tæki þetta starf að sér. Stafið er nýtt en því er ætlað að tryggja að þingið fái aukið vægi í umfjöllun um fjárreiður ÖSE. 25.10.2006 13:24
Þriðja langreyðurin skotin úti fyrir Snæfellsnesi Skipverjar á Hval 9 veiddu í dag þriðju langreyðina frá því að atvinnuveiðar hófust á ný í síðustu viku. Hvalveiðimenn hófu leit að hval um tíuleytið í morgun úti fyrir Snæfellsnesi þegar það var orðið leitarbjart og komu fljótlega auga hvalinn og fleiri til. 25.10.2006 13:22
Átta hlotið mænuskaða við að falla af hestbaki í ár Átta hestamenn hafa hlotið mænuskaða við að falla af baki það sem af er árinu og eru tveir þeirra lamaðir fyrir neðan háls. Þónokkrir til viðbótar hafa meiðst mismunandi alvarlega. 25.10.2006 13:15
Uppsagnir fram undan hjá Akureyrarbæ Uppsagnir eru fram undan hjá Akureyrarbæ vegna stjórnsýslubreytinga sem nú standa yfir. Formaður bæjarrráðs segir breytingarnar til bóta og vísar gagnrýni á bug. 25.10.2006 13:00
Árni Þór stefnir á eitt af efstu sætunum ÁrnI Þór Sigurðsson, borgarfulltrúi Vinstri - grænna, hyggst sækjast eftir einu af efstu sætunum á lista flokksins í sameiginlegu forvali í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur og Suðvesturkjördæmi vegna þingkosninga í vor. 25.10.2006 12:46
Humarþjófnaður upplýstur Lögreglan í Keflavík hefur upplýst þjófnað á hátt í tonni af humri úr geymslugámi við fiskvinnslufyrirtæki í Njarðvík. Þó er sá fyrirvari að tveir menn, sem hafa játað á sig þjófnaðinn, segjat hafa stolið talsvert minnu en eigandinn segist sakna. 25.10.2006 12:45
Litlir kassar við Hallgrímskirkju Lögreglan lokaði af litlu svæði við Hallgrímskirkju rétt eftir hádegi eftir að tilkynning barst frá vegfaranda um tvo torkennilega kassa fyrir utan kirkjuna. Fljótt kom þó í ljós að ekkert athugavert var í kössunum og engin ástæða til að hafa áhyggjur af því. 25.10.2006 12:23
SPRON hlýtur viðurkenningu Jafnréttisráðs Fleiri konur en karlar eru stjórnendur hjá Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis sem í gær hlaut jafnréttisviðurkenningu Jafnréttisráðs ársins 2006. 25.10.2006 12:18
Gæti átt yfir höfði sér tveggja ára fangelsi Grunnskólakennari á Akranesi, sem var vísað úr starfi eftir að barnaklám fannst í fórum hans, gæti átt yfir höfði sér tveggja ára fangelsi. 25.10.2006 12:15
Fannst látinn í klefa sínum í Norrænu Rúmlega sextugur íslenskur karlmaður fannst látinn í klefa sínum um borð í ferjunni Norrænu, skömmu áður en skipið kom til hafnar í Færeyjum fyrir tæpri viku. 25.10.2006 12:03
Níutíu þúsund lofa heimsókn ef hvalveiðum verður hætt Á heimasíðu umhverfissamtakana Greenpeace hafa níutíu þúsund manns heitið því að sækja Ísland heim ef Íslendingar láta vera að veiða hvali. Greenpeace leggur áherslu á þessa baráttuaðferð og ætlar ekki að senda hingað skip sitt til að reyna að hindra hvalveiðar. 25.10.2006 11:55
Norðmönnum fjölgar hraðar en Íslendingum Norðmenn hafa tekið við af Íslendingum sem sú Norðurlandaþjóð sem fjölgar hvað hraðast samkvæmt tölum í Norrænu tölfræðiárbókinni 2006. Þar segir að í fyrra hafi 15.500 fleiri fæðst í Noregi en látist en Norðmenn voru rúmar 4,6 milljónir í upphafi árs. 25.10.2006 11:50
Íslendingum í háskólanámi fjölgar hratt Ísland er ásamt Svíþjóð í öðru sæti á Norðurlöndum þegar horft er til þess hversu margt ungt fólk er í háskólanámi. Þetta kemur fram í Norrænu tölfræðiárbókinni 2006 sem kemur út í dag. 25.10.2006 11:12
400 hafa greitt atkvæði í prófkjöri sjálfstæðismanna Um fjögur hundruð manns hafa þegar kosið utankjörfundar í prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjavíkurkjördæmunum vegna komandi þingkosninga. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hófst þann 11. október en hið eiginlega prófkjör fer fram á föstudag og laugardag. 25.10.2006 10:23
FL Group tekur sambankalán FL Group hefur undirritað lánssaming fyrir 250 milljón evrur eða um 21,5 milljarða krónur, til fjármögnunar á hluta af hlutafjáreign FL Group í Glitni. Lánið er til þriggja ára með endurgreiðslu höfuðstóls í lok lánstíma. Hannes Smárason, forstjóri FL Group, segir lántökuna marka tímamót fyrir félagið auk þess sem sveigjanleiki til fjárfestinga aukist til muna. 25.10.2006 10:09
Framlengja framboðsfrest vegna forvals í NA-kjördæmi Framboðsfrestur í forvali Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Norðausturkjördæmi hefur verið framlengdur um fjóra daga, eða til 5. nóvember. Valgerður Jónsdóttir, formaður uppstillingarnefndar, segir 12 einstaklinga hafa gefið kost á sér. Kynjahlutföll eru jöfn í þessum 12 manna hópi og dreifingin um kjördæmið nokkuð góð, að sögn Valgerðar. 25.10.2006 09:59
Gámur fór af tengivagni Engin slys urðu á fólki þegar gámur valt af tengivagni flutningabíls á Suðurlandsvegi við Rauðavatn á áttunda tímanum í kvöld. Veginum var lokað á meðan lögregla athafnaði sig á vettvangi og hreinsað var á svæðinu en því starfi er nú lokið og var opnað aftur fyrir umferð upp úr kl. 21. Á meðan var umferð hleypt í gegn í hollum. 24.10.2006 21:30
Þróunarfélag um framtíð varnarsvæðisins Framtíð varnarsvæðisins á Keflavíkurflugvelli hefur verið falin þróunarfélagi, sem stofnað var í Reykjanesbæ í dag. Magnús Gunnarsson, fyrrverandi formaður Vinnuveitendasambandsins, stýrir félaginu en með honum í stjórn sitja þeir Árni Sigfússon bæjarstjóri og Stefán Þórarinsson verkfræðingur. 24.10.2006 20:45
Feitari en sú fyrri Önnur langreyðurin, sem búið er að veiða eftir að hvalveiðar í atvinnuskyni hófust að nýju, kom að landi um miðjan dag. Hún er jafn stór þeirri fyrri en feitari. 24.10.2006 20:30
Bjóða fram Halldór Íslensk stjórnvöld hyggjast bjóða Halldór Ásgrímsson, fyrrverandi forsætisráðherra, fram sem næsta aðalritara norrænu ráðherranefndarinnar. Þetta kom fram í kvöldfréttum útvarps. Í samtali við fréttastofu NFS í kvöld vildi Jónína Bjartmarz, samstarfsráðherra Norðurlandanna, hvorki neita þessu né játa. 24.10.2006 20:15
Deilt um stærð þynningarsvæðis álvers í Straumsvík Fjömennt var á fundi áhugahóps gegn stækkun álversins í Straumsvík í gærkvöldi. Talsmaður hópsins telur að stækkað álver þurfi mun stærra þynningarsvæði en nú er, en bæjarstjórinn í Hafnarfirði segir að stefnt sé að því að þynningarsvæðið verði minna en það er nú. 24.10.2006 18:40
Rannsókn efnahagsbrota tekur of langan tíma Íslensk stjórnvöld eiga ekki að sætta sig við að meðferð efnahagsbrotamála taki almennt lengri tíma hér en talið er eðlilegt í nágrannalöndunum. Þetta kemur fram í nýrri úttekt Ríkisendurskoðunar á embætti ríkislögreglustjóra. 24.10.2006 18:36
Erfitt að meta áhrif hvalveiða á stuðning við Ísland Sigríður Snævarr, sem leiðir umsóknarferli Íslands um aðild að Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna, segir erfitt að meta hvort hvalveiðar Íslendinga hafi áhrif á framboð landsins. Hún segir mikilvægt að fámennar þjóðir fái fulltrúa í ráðið og ef Íslendingar nái kjöri, verði þeir fámennasta þjóðin sem átt hefur fulltrúa í öryggisráðinu. 24.10.2006 18:33
Fyrrverandi dómsmálaráðherrar frömdu gróf mannréttindabrot Kjartan Ólafsson, sagnfræðingur, segir að tveir fyrrverandi dómsmálaráðherrar Sjálfstæðisflokksins hafi, á sjöunda áratug síðustu aldar, framið gróf mannréttindabrot og misbeitt valdi sínu, þegar þeir létu hlera síma Samtaka hernámsandstæðinga og Sósíalistaflokksins. Hann krefst þess að fá aðgang að öllum fyrirliggjandi gögnum um símhleranir en í gær fékk hann afhent gögn sem varða eingöngu hleranir á símum þessara tveggja samtaka. 24.10.2006 18:25