Innlent

Þriðja langreyðurin skotin úti fyrir Snæfellsnesi

Önnur langreyðurin við Hvalstöðina í Hvalfirði í gær.
Önnur langreyðurin við Hvalstöðina í Hvalfirði í gær. MYND/GVA

Skipverjar á Hval 9 veiddu í dag þriðju langreyðina frá því að atvinnuveiðar hófust á ný í síðustu viku. Hvalveiðimenn hófu leit að hval um tíuleytið í morgun úti fyrir Snæfellsnesi þegar það var orðið leitarbjart og komu fljótlega auga hvalinn og fleiri til. Hvalurinn var svo skotinn rétt um hádegisbil en hann mun vera um 62 fet eða eilítið minni en fyrri hvalirnir tveir sem veiðst hafa. Hvalur 9 nú á leið með fenginn til Hvalfjarðar og er búist við að hann komi þangað um níuleytið í fyrramálið. Ekki liggur fyrir hvort báturinn fer þá aftur til veiða en að sögn bátsmanna virðist töluvert að langreyði við landið.

AP fréttastofan birti myndir af vinnu við fyrstu langreyðina sem dregin er hér á land síðan árið 1989, þá var hún veidd í vísindaskyni. Yfir 20 ár eru liðin síðan langreyður var síðast veidd í atvinnuskyni en þar var árið 1985.AP

Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira

×