Fleiri
Barnaþing á Breiðholtsdegi 26.9.2006 15:36 ÍE stefnir fyrrv. starfsmönnum og keppinaut fyrir upplýsingastuld Íslensk erfðagreining hefur höfðað mál í Bandaríkjunum gegn fimm fyrrverandi starfsmönnum fyrirtækisins og bandarískum samkeppnisaðila fyrir stuld og misnotkun á eigum félagsins og margvísleg brot á ráðningarsamningum. 26.9.2006 15:25 Atli Gíslason fer fram í Suðurkjördæmi Atli Gíslason, hæstaréttarlögmaður og varaþingmaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, hefur ákveðið að taka áskorun kjördæmisráðs VG í Suðurkjördæmi og gefa kost á sér í fyrsta sæti framboðslistans. Þetta kemur fram í tilkynningu sem hann sendi frá sér fyrir stundu. 26.9.2006 15:20 Vill að Akureyrarflugvöllur verði lengdur Aðalfundur Eyþings, Sambands sveitarfélaga í Eyjafirði og í Þingyejarsýslum, leggur áherslu á að lenging Akureyrarflugvallar verði forgangsmál við næstu endurskoðun samgönguáætlunar. Ályktun þessa efnis var samþykkt á aðalfundi sambandsins um helgina. 26.9.2006 15:15 Mótmælir harðlega uppsögn Hilmars Arnar Félagsfundur Organistadeildar FÍH lýsir yfir fullum stuðningi við Hilmar Örn Agnarsson dómorganista í Skálholti og störf hans í þágu Skálholtsstaðar og Þjóðkirkjunnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. 26.9.2006 15:00 Forsætisráðherra fundar með utanríkismálanefnd Geir H. Haarde forsætisráðherra situr nú á fundi með utanríkismálanefnd og gerir henni grein fyrir niðurstöðum samningaviðræðna Íslendinga og Bandaríkjamanna um brottflutning Varnarliðsins. Geir fundaði í hádeginu með fulltrúum stjórnarandstöðuflokkanna en greint verður frá niðurstöðunum opinberlega á blaðamannafundi klukkan 4 síðdegis. 26.9.2006 14:49 Ríkisstyrkt flug til Vestmannaeyja boðið út Ríkisstjórnin samþykkti í morgun tillögu Sturlu Böðvarssonar um að undirbúa útboð á ríkisstyrktu áætlunarflugi milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja í framhaldi af því að Landsflug tilkynnti á föstudaginn var að félagið myndi hætta áætlunarflugi frá og með 25. september. 26.9.2006 14:39 Verkefni flutt frá dómsmálaráðuneyti til sýslumanna Dómsmálaráðherra kynnti á ríkisstjórnarfundi í morgun frumvarp til laga um flutning verkefna frá dóms- og kirkjumálaráðuneyti til sýslumannsembætta. 26.9.2006 14:06 Sjá næstu 50 fréttir
Skráningarnúmer klippt af ógrynni ökutækja Skráningarnúmer voru klippt af tíu ökutækjum í borginni í gær sökum þess að eigendur þeirra höfðu ekki staðið skil á vátryggingu. Fram kemur á vef lögreglunna að á síðustu vikum og mánuðum hafi lögreglan klippt skrásetningarnúmer af ógrynni ökutækja og er það ýmist vegna þess að þau eru óskoðuð eða ótryggð. 27.9.2006 12:45
Kærir lausagöngu fola í Laxárdal Bæjarstjórn Blönduóss hefur kært lausagöngu þriggja vetra graðfola vegna ósæmilegs framferðis hans þegar hann gekk laus í merastóði í Laxárdal í Austur-Húnavatnssýslu í allt sumar. 27.9.2006 12:30
Gengið á þremur öðrum stöðum en í Reykjavík Það var ekki aðeins í Reykjavík sem andstæðingar Kárahnjúkavirkjunar efndu til mótmælagöngu í gærkvöld. Þónokkur fjöldi fólks fór um götur Egilsstaða þessara sömu erindagjörða í gær sem út af fyrir sig vekur athygli þar eð efnahagslegur ávinningur virkjanaframkvæmdanna er mestur á Austurlandi. 27.9.2006 12:15
Síðasti dagur óbeislaðrar Jöklu Í dag er síðasti dagurinn sem Jökla rennur óbeisluð um sinn forna farveg um Jökuldal og meðfram Jökulsárhlíð. Í fyrramálið er stefnt að því að tappinn verði settur í og lokað fyrir rennsli hennar við Kárahnjúka. 27.9.2006 12:13
Hvetja til minni fiskneyslu í mannúðarskyni Dýraverndunarsamtökin World Wildlife Fund eru að hefja herferð þar sem Evrópubúar eru hvattir til að borða minni fisk í eins konar mannúðarskyni. 27.9.2006 12:08
Árangurstengd laun minna notuð en fyrir þremur árum Hlutabréfakaup, hlutdeild í hagnaði eða annnars konar árangurstengd laun er minna notuð hér á landi í umbun til stjórnenda en fyrir þremur árum. Þetta eru meðal annars niðurstöður nýrrar rannsóknar á mannauðsstjórnun á vegum Háskólans í Reykjavík. 27.9.2006 11:15
Íslendingar eignast sína fyrstu herþotu Íslendingar hafa eignast sína fyrstu herþotu og það gerist við brotthvarf Varnarliðsins. Þotan er þó ekki af nýjustu gerð, heldur er um að ræða F-4 þotu sem sett hefur verið á stall á Keflavíkurflugvelli sem safngripur. Þetta kemur fram á vef Víkurfrétta. 27.9.2006 11:01
Samfylkingin fundar með bændaforystunni Þingflokkur Samfylkingarinnar situr nú á fundi með fulltrúum úr stjórn Bændasamtaka Íslands þar sem flokkurinn kynnir þeim tillögur sínar að lækkun matarverðs. 27.9.2006 10:50
Rafmagnsleysi í Fossvogshverfi í nótt Hluti Fossvogshverfa, þar á meðal Landspítalinn í Fossvogi, varð rafmagnslaus laust eftir klukkan þrjú í nótt vegna bilunar í jarðstreng. Rafmagn komst á að hluta klukkan fjögur og var að fullu komið inn um tuttugu mínútum síðar. Vararafstöð er á Landspítalanum og starfaði hún hnökralaust á meðan á rafmagnsleysinu stóð 27.9.2006 10:37
Kristján sækist eftir sæti ofarlega á lista Samfylkingarinnar í Kraganum Kristján Sveinbjörnsson, bæjarfulltrúi og forseti bæjarstjórnar Álftaness, gefur kost á sér í eitt af efstu sætum í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi. Fram kemur í tilkynningu frá honum að hann hafi lengi starfað að sveitarstjórnarmálum á Álftanesi en áður í Kópavogi. 27.9.2006 10:24
Sigríður stefnir aftur á þing fyrir Samfylkinguna Sigríður Jóhannesdóttir, kennari og fyrrverandi þingmaður, hefur ákveðið að bjóða sig fram í 2.-3. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi fyrir komandi þingkosningar. Prófkjörið fer fram þann 4. nóvember. 27.9.2006 10:19
Verð hækkar hér á landi en lækkar annars staðar á Norðurlöndum Íslenski farsímamarkaðurinn einkennist af fákeppni og þá hefur verð til til neytenda hækkað hérlendis frá árinu 2002 á meðan það hefur lækkað annars staðar á Norðurlöndum. Þetta er meðal meginniðurstaðna skýrslu þar sem bornir voru saman farsímamarkaðir á Norðurlöndum. 27.9.2006 10:08
Vilja breytingar á tollum, sköttum og vörugjöldum sem allra fyrst Stjórn Heimdallar, ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, hvetur ríkisstjórnina til að ráðast í breytingar á fyrirkomulagi vörugjalda, virðisaukaskatts, tolla og annarra innflutningshafta á íslenskum matvörumarkaði og tryggja að þær breytingar nái að ganga í gegn sem allra fyrst. 27.9.2006 09:56
Skjálftahrina undan Reykjanesi Vel á þriðja tug jarðskjálfta hafa orðið undan Reykjanesi í nótt og í morgun. Allir voru þeir minni en 3 á Richter. Hrinan kemur í framhaldi af talsverðri hrinu nærri Bárðarbungu í gær og fyrradag, þar sem öflugasti skjálftinn mældist 3,8 á Richter á sunnudagskvöld. Að sögn veðurstofunnar bendir þó ekkert til þess að eldgos sé hafið eða að hefjast á Vatnajökli. 27.9.2006 09:15
15 ára féll af torfæruhjóli 15 ára piltur slasaðist þegar hann féll af torfæruhjóli skammt frá Flúðum, og var hann fluttur með sjúkrabíl á Slysadeild Landssítalans, þar sem gert var að sárum hans. Hann tognaði, marðist og handleggsbrotnaði. Lögregla þakkar það mjög góðum hlífðarbúnaði piltsins að ekki fór verr, en hann hefur réttindi til að aka hjólinu utan vega á æfingasvæðum. 27.9.2006 08:30
Byggð á landfyllingu hafnað á Seltjarnarnesi Skipulagsnefnd Seltjarnarness hafnaði hugmyndum fasteignafélagsins Klasa um hátt í fjögur þúsund manna byggð á landfyllingu, sem gerð yrði við sunnanvert Nesið, og NFS greindi frá á sunnudag. 27.9.2006 07:45
Heilsufarsupplýsingar áfram á Íslandi Bandaríski herinn hefur ekki á brott með sér þær heilsufarsupplýsingar sem safnað hefur verið í herstöðinni, meðal íslenskra starfsmanna, síðustu ár og áratugi. Vefur Víkurfrétta hefur þetta hefur traustum heimildum. 26.9.2006 23:05
Um eitt hundrað starfsmenn Varnarliðsins án vinnu Eitt hundrað og fimm starfsmenn Varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli, sem hætta stöfum á föstudaginn, eru ekki komnir með aðra vinnu. Fréttavefur Víkurfrétta greinir frá þessu en þar segir að um sé að ræða 61 karl og 44 konur. Stærsti hópurinn sé fólk á aldrinum 40 til 59 ára. 26.9.2006 22:46
Riðusmit greindist í kind á bæ í Flóa Riðusmit hefur verið staðfest í kind á bænum Syðri-Velli í Flóa. Frá þessu er greint á fréttavefnum Sudurland.is. Riðusmit hefur aldrei fyrr komið upp í Flóa eða á Skeiðum. Á milli fimmtíu og sextíu kindur eru á bænum og verða þær allar felldar auk þess sem sýni verða tekin úr sláturfé á Skeiðum og í Flóa. 26.9.2006 22:32
Engar forsendur til að hætta við virkjunarframkvæmdir Framkvæmdir við Kárahnjúkavirkjun halda áfram eins og samþykkt var í upphafi og mótmæli hafa ekki áhrif á hana. Þetta segir Sigurður Arnalds, talsmaður Landvirkjunar, en þúsundir manna söfnuðust saman í kvöld á Austurvelli til að fara fram á að fyllingu Hálslóns verði frestað. 26.9.2006 21:05
Um ellefu þúsund manns á Austurvelli Þátttakendur í Jökulsárgöngu Ómars Ragnarssonar segja um ellefu þúsund manns séu á Austurvelli en hópurinn gekk þangað frá Hlemmi. Ómar hóf ræðu sína þegar hópurinn kom á Austurvöll. Ómar sagði marga segja að þeir sem berðust á móti fyllingu Hálslón væru fallnir á tíma en það væri greinilega misreikningur. 26.9.2006 20:44
Tvö til þrjú þúsund manns í Jökulsárgöngu í Reykjavík Tvö til þrjú þúsund manns eru nú að ganga niður Laugarveginn í átt að Austurvelli. Gengið er til stuðnings hugmyndum Ómars Ragnarssonar um að fresta fyllingu Hálslóns við Kárahnjúkastíflu. Gangan hófst klukkan átta en einnig er gengið á Ísafirði, Akureyri og á Héraði. 26.9.2006 20:22
Um hundrað og þrjátíu skjálftar við Kistufell Um hundrað og þrjátíu jarðskjálftar hafa fundist við Kistufell, norðaustan í Bárðarbungu, frá því á sunnudagskvöld. Virknin virðist hins vegar vera í rénun. Stærstu skjálftarnir urðu á sunnudagskvöld 3,8 á richter og í nótt fylgdu margir skjálftar á stærðarbilinu einn til þrír. 26.9.2006 20:16
Úrvalsvísitalan hækkar Úrvalsvísitala Kauphallar Íslands hefur hækkað um 14,6% á þriðja fjórðungi ársins. Úrvalsvístalan er nú 6.275,3 stig en aðeins eru þrír dagar eftir af þessum þriðja fjórðungi. 26.9.2006 19:41
Stjórnmálasamband milli Íslands og Svartfjallalands Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, og Miodrag Vlahovic, utanríkisráðherra Svartfjallalands, undirrituðu í dag yfirlýsingu um stofnun stjórnmálasambands milli ríkjanna tveggja. 26.9.2006 19:19
Vill sannleiksnefnd til að rannsaka njósnir Steingrímur J. Sigfússon, formaður vinstri grænna, vill að sett verði á laggirnar sérstök sannleiksnefnd til að rannsaka símhleranir og leyniþjónustustarfsemi á Íslandi. 26.9.2006 19:07
Fagna brottför hersins Stjórnarandstaðan fagnar því heilshugar að herinn sé á förum. Formenn Samfylkingar og Vinstri grænna telja hins vegar alvarlega ágalla á samningum við Bandaríkjamenn. 26.9.2006 19:04
Gengið til styrktar hugmyndum Ómars Boðað hefur verið til fjöldagöngu í kvöld klukkan átta í Reykjavík, Ísafirði og á Akureyri. Gangan í Reykjavík leggur af stað frá Hlemmi og endar á Austurvelli en gengið er til stuðnings hugmyndum Ómars Ragnarssonar um að fresta fyllingu Hálslóns. 26.9.2006 18:54
Íbúðalánasjóður ekki lagður niður Íbúðalánasjóður verður ekki lagður niður en ríkisábyrgð á húsnæðislánum verður víkjandi á næstu árum, ef tillögur stýrihóps ná fram að ganga. 26.9.2006 18:36
Aukin framlög Íslendinga til þróunarsamvinnu Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, sagði í ræðu sinni á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í dag að Íslendingar öxluðu ábyrgð með auknum framlögum til þróunarsamvinnu. Hún lagði einnig áherslu á stöðu kvenna og barna. 26.9.2006 18:20
Taka bíla af ökuníðingum? Sigurður Helgason hjá Umferðarstofu vill skoða þann möguleika að dæma bíla af mönnum sem verða uppvísir að ofsaakstri. 26.9.2006 18:02
Telur enga þörf á áframhaldandi varnarsamstarfi Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri-grænna, telur enga þörf á áframhaldandi varnarsamstarfi og er á móti því að Bandaríkjamönnum sé heitið aðstöðu hér á landi til heræfinga eða annarra umsvifa á næstu árum. 26.9.2006 17:51
SBV gagnrýnir niðurstöðu stýrihóps félagsmálaráðherra Samtök banka og verðbréfafyrirtækja (SBV) harma niðurstöðu stýrihóps félagsmálaráðherra sem skilaði af sér tillögum um aðkomu ríkisins að húsnæðislánamarkaði. Hópurinn leggur til að komið verði á fót heildsölubanaka sem sinni fjármögnun íbúðarlaána sem síðan yrðu veitt í gengum banka og sparisjóði. 26.9.2006 17:28
Jökulsárganga Ómars Ragnarssonar kl. 20:20 Bein útsending verður frá Jökulsárgöngu Ómars Ragnarssonar á Vísi.is. Gangan fer frá Hlemmi að Austurvelli klukkan 20:00 en útsending hefst um tuttugu mínútum síðar. Göngur fara einnig fram á Akureyri, Ísafirði og á Héraði. 26.9.2006 17:12
Sekt og svipting skotvopnaleyfis fyrir veiðilagabrot Karlmaður var í Héraðsdómi Austurlands í dag dæmdur til að greiða 70 þúsund króna sekt og var sviptur skotvopnaleyfi í eitt ár vegna ólöglegra veiða. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa brotið veiðilög með því að hafa skotið sex grágæsir og eina heiðagæsir innan sveitarfélagsins Hornafjarðar þrátt fyrir að fuglarnir væru friðaðir. 26.9.2006 17:12
14 ára tekinn á mótorkrosshjóli Nokkuð er kvartað yfir akstri mótorkrosshjóla og ein slík barst lögreglunni í Reykjavík í gær. Hún kannaði málið og skömmu síðar birtust tvö þannig ökutæki en ökumenn þeirra reyndu að aka á brott. Lögreglan náði öðrum þeirra og reyndist ökumaðurinn vera réttindalaus en hann er 14 ára. 26.9.2006 16:47
Lagt til að stofnaður verði heildsölubanki Stýrihópur um framtíðarstefnumótun um hlutverk og aðkomu stjórnvalda að íbúðalánamarkaðnum leggur til að stofnaður verði nýr Íbúðabanki sem sinni fjármögnun íbúðarlána sem síðan yrðu veitt í gengum banka og sparisjóði. Þetta kemur fram í lokaáliti stýrihópsins sem félagsmálaráðherra kynnti á blaðamannafundi í dag. 26.9.2006 15:58
ÍE stefnir fyrrv. starfsmönnum og keppinaut fyrir upplýsingastuld Íslensk erfðagreining hefur höfðað mál í Bandaríkjunum gegn fimm fyrrverandi starfsmönnum fyrirtækisins og bandarískum samkeppnisaðila fyrir stuld og misnotkun á eigum félagsins og margvísleg brot á ráðningarsamningum. 26.9.2006 15:25
Atli Gíslason fer fram í Suðurkjördæmi Atli Gíslason, hæstaréttarlögmaður og varaþingmaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, hefur ákveðið að taka áskorun kjördæmisráðs VG í Suðurkjördæmi og gefa kost á sér í fyrsta sæti framboðslistans. Þetta kemur fram í tilkynningu sem hann sendi frá sér fyrir stundu. 26.9.2006 15:20
Vill að Akureyrarflugvöllur verði lengdur Aðalfundur Eyþings, Sambands sveitarfélaga í Eyjafirði og í Þingyejarsýslum, leggur áherslu á að lenging Akureyrarflugvallar verði forgangsmál við næstu endurskoðun samgönguáætlunar. Ályktun þessa efnis var samþykkt á aðalfundi sambandsins um helgina. 26.9.2006 15:15
Mótmælir harðlega uppsögn Hilmars Arnar Félagsfundur Organistadeildar FÍH lýsir yfir fullum stuðningi við Hilmar Örn Agnarsson dómorganista í Skálholti og störf hans í þágu Skálholtsstaðar og Þjóðkirkjunnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. 26.9.2006 15:00
Forsætisráðherra fundar með utanríkismálanefnd Geir H. Haarde forsætisráðherra situr nú á fundi með utanríkismálanefnd og gerir henni grein fyrir niðurstöðum samningaviðræðna Íslendinga og Bandaríkjamanna um brottflutning Varnarliðsins. Geir fundaði í hádeginu með fulltrúum stjórnarandstöðuflokkanna en greint verður frá niðurstöðunum opinberlega á blaðamannafundi klukkan 4 síðdegis. 26.9.2006 14:49
Ríkisstyrkt flug til Vestmannaeyja boðið út Ríkisstjórnin samþykkti í morgun tillögu Sturlu Böðvarssonar um að undirbúa útboð á ríkisstyrktu áætlunarflugi milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja í framhaldi af því að Landsflug tilkynnti á föstudaginn var að félagið myndi hætta áætlunarflugi frá og með 25. september. 26.9.2006 14:39
Verkefni flutt frá dómsmálaráðuneyti til sýslumanna Dómsmálaráðherra kynnti á ríkisstjórnarfundi í morgun frumvarp til laga um flutning verkefna frá dóms- og kirkjumálaráðuneyti til sýslumannsembætta. 26.9.2006 14:06