Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Framsókn í Reykjavík klofin Framsóknarfélög í norðurkjördæmi Reykjavíkur þakka Halldóri Ásgrímssyni fyrir að víkja til að efla frið innan flokksins og hvetja um leið Guðna Ágústsson og Siv Friðleifsdóttur til að axla ábyrgð með sama hætti og víkja. Framsóknarmenn í borginni eru klofnir í afstöðu sinni: Framsóknarfélögin í Reykjavík suður taka ekki undir þessa kröfu. 7.6.2006 18:54
Sjálfstæðismenn þrýsta á endurnýjun ríkisstjórnar Sjálfstæðismenn leggja ofurkapp á að endurnýjuð ríkisstjórn undir forsæti Geirs H. Haarde taki til starfa á allra næstu dögum. Varaformaður Sjálfstæðisflokksins, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, segir að of löng óvissa geti reynst skaðleg. Björn Bjarnason er nú talinn líklegastur til að verða utanríkisráðherra, fari fjármálaráðuneytið til framsóknarmanna. 7.6.2006 18:43
Íslenska ríkið sýknað af kröfum Nígeríumanns sem sótti um hæli hér á landi Íslenska ríkið var í dag sýknað í Héraðsdómi Reykjavíkur af kröfum Nígeríumanns sem sótt hafði um hæli hér á landi sem flóttamaður en umsókn hans var hafnað. 7.6.2006 18:23
Oddný Hanna er fundin Oddný Hanna Helgadóttir, sem lögreglan í Kópavogi hefur leitað að frá því síðastliðinn sunnudag, er fundin heil á húfi. Lögreglan í Kópavogi vill þakka öllum sem komu að málinu og veittu aðstoð. 7.6.2006 17:52
Tilnefningar til Íslensku leiklistarverðlaunanna kynnt Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, og verndari Íslensku leiklistarverðlaunanna kynnti þá sem tilnefndir eru til Grímunnar árið 2006 í Borgarleikhúsinu í dag og var leikkonan Björk Jakobsdóttir honum til halds og trausts. Þetta er í fjórða sinn sem tilnefningar til verðlaunanna fara fram en þau voru fyrst veitt sumarið 2003. 7.6.2006 17:06
Engin sérstök rök fyrir því að einkaaðilar leggi Sundabraut Engin sérstök rök mæla með því að einkaaðilar leggi og reki Sundabraut fremur en ríkið þar sem lítil óvissa er um verkið og kostnað við það. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar um mat á kostum og göllum einkaframkvæmdar. 7.6.2006 15:46
Vilja að Siv og Guðni víki Öll Framsóknarfélög í kjördæmi Halldórs Ásgrímssonar, Reykjavík norður, vilja að Guðni Ágústsson og Siv Friðleifsdóttir víki líka úr forystusveit flokksins til þess að binda enda á áralanga togstreitu í flokknum. 7.6.2006 14:12
Aðalmeðferð í meiðyrðamáli vegna Skerjafjarðarskýrslu Aðalmeðferð var í morgun í meiðyrðamáli Friðriks Þór Guðmundssonar á hendur Sigurði Líndal lagaprófessor vegna ummæla Sigurðar í tenglsum við rannsókn flugslyssins í Skerjafirði. Sigurður Líndal var formaður nefndar sem rannsakaði rannsóknina á flugslysinu og fleiri skýrslur því tengdu og skilaði skýrslu um málið. 7.6.2006 13:15
Sjúklingum mismunað eftir sjúkdómum og efnum Formaður Læknafélags Íslands, Sigurbjörn Sveinsson, segir fólk sem þurfi að leita til hjartalækna ekki hafa sömu fjárhagslegu stöðu og aðra sem þurfi að leita sér lækninga. Það fyrirkomulag sem nú er í gildi mismuni fólki eftir sjúkdómi þeirra og efnum. Til útskýringar bendir Sigurbjörn á að erfitt geti reynst öldruðum og efnalitlu fólki að leggja út fyrir þeim rannsóknum sem það þarf að ganga í gegnum. Sigurbjörn bendir einnig á að þó sjúklingar geti fengið endurgreiðslu frá Tryggingastofnun eftir að hafa fengið greiðsluheimild frá heimilislækni geti falist í því mikil fyrirhöfn fyrir aldraða eða sjúka einstaklinga. Stjórn Læknafélags Íslands fer fram á það við stjórnvöld að hyggist þau koma á tvöföldu heilbrigðiskerfi, þá verði þær fyrirætlanir gerðar opinberar og ræddar undanbragðalaust með þátttöku þjóðarinnar. Stjórn Læknafélags Íslands lýsti í ályktun sem gerð var í gær yfir áhyggjum sínum yfir að heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra skuli ekki geta boðið landsmönnum þjónustu samningsbundinna hjartalækna. Ástæður þeirra stöðu sem hjartalæknar og sjúklingar þeirra eru nú komir í segir Sigurbjörn þá að hjartalæknar vildu ekki starfa lengur undir þeim samningum sem þeim voru gerðir. Ekki hafi verið ágreiningur um taxta heldur afsláttarákvæði sem fól í sér að læknum voru ætluð ákveðið mörg verk á ári og ef þeir fóru fram úr þeim fjölda áttu þeir að gefa ríkinu afslátt af verulegum hluta af andvirði verka þeirra. Litlar sem engar viðræður hafi verið til að rétta hlut þeirra. 7.6.2006 12:37
Þurfa að endurskoða frístundabyggð við Úlfljótsvatn Orkuveita Reykjavíkur og fasteignafélagið Klasi þurfa að endurskoða hugmyndir sínar um frístundabyggð við Úlfljótsvatn vegna óskar borgarstjórnar Reykjavíkur þar um. Endurskoðunin hefst þó væntanlega ekki fyrr en ný stjórn Orkuveitunnar hefur verið kosin. 7.6.2006 12:30
Olíufélagið hækkar bensínverð Olíufélagið, sem rekur meðal annars ESSO-stöðvarnar, hefur hækkað verð á öllu eldsneyti. Bensín hækkar um tvær og hálfa krónu á lítrann og verður algengasta verð á bensíni tæpar 127 krónur eftir hækkunina. Skýringin er hækkandi heimsmarkaðsverð á olíu og veik staða krónunnar gagnvart Bandaríkjadal. 7.6.2006 12:20
Von á svari á tilboði Samtaka avinnulífsins um launahækkanir Alþýðusamband Íslands mun að öllum líkindum svara tilboði Samtaka atvinnulífsins um taxta- og launahækkanir í kringum helgina. Tilboðið miðar að því að koma í veg fyrir uppsögn kjarasamninga um næstu áramót, en miðað við verðbólguhorfur í landinu eru forsendur kjarasamninga að óbreyttu brostnar. Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri ASÍ, segir aðildarfélög sambandsins enn að skoða hugmyndir Samtaka atvinnulífsins en svör ættu að liggja fyrir í kringum helgina. 7.6.2006 12:11
Íslensku menntaverðlaunin afhent Íslensku menntaverðlaunin verða veitt annað sinni í kvöld. Athöfnin fer fram í Hjallaskóla og er það Ólafur Ragnar Grímsson sem afhendir verðlaunahöfum þau. 7.6.2006 11:38
Íþróttasamband Fatlaðra styrkt til næstu Ólympíuleika Íþróttasamband Fatlaðra og Visa Ísland hafa framlengt samstarfssamningi sínum til þriggja ára. Styrkurinn er ætlaður til undirbúning og þátttöku á Ólympíumóti fatlaðra sem fram fer í Peking 2008. Í fréttatilkynningu segir að árangur fatlaðra íþróttamanna að undanförnu árum hafi vakið verðskuldaða athygli og hafi íslenskt íþróttafólk staðið sig afar vel á Ólympíumótum sem og öðrum mótum. Árangurinn sé afrakstur markvissrar vinnu en Íþróttasambands Fatlaðra kappkosti að undirbúa keppendur sína sem best undir þau verkefni sem framundan séu hverju sinni. .Ljóst sé að á næstu Óllympíuleikum muni nýtt afreksfólk halda hróðri landsins og því sé nauðsyn á markvissum undirbúningi. Styrkveiting til Íþróttasambands Fatlaðra, fellur að mati Visa Íslands því vel að stefnu fyrirtækisins varðandi stuðning við framúrskarandi afreksfólk hvort heldur úr röðum fatlaðra eða ófatlaðra en fatlaðir íslenskir afreksmenn hafa um langt árabil verið á meðal þeirra bestu í heiminum. 7.6.2006 11:04
Orri verður framkvæmdastjóri Frumherja Orri Hlöðversson, fráfarandi bæjarstjóri í Hveragerði, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Frumherja í Reykjavík frá og með 1. ágúst. Á fréttavefnum suðurland.is kemur fram að Orra hafi verið boðin staða bæjarstjóra í mörgum nýmynduðum meirihlutum á landinu, meðal annars Árborg, Mosfellsbæ og Fjarðarbyggð. 7.6.2006 10:00
Ólína formaður Vestfjarðaakademíunnar Ólína Þorvarðardóttir, fráfarandi skólameistari Menntaskólans á Ísafirði, var kjörin formaður Vestfjarðaakademíunnar á fyrsta aðalfundi félagsins fyrir helgi. Þetta kemur fram á fréttavef Bæjarins besta í dag. 7.6.2006 09:30
Ölvaður í hraðakstri í Ártúnsbrekkunni Lögreglan í Reykjavík stöðvaði í nótt ökumann sem mælst hafði á yfir hundrað og tuttugu kílómetra hraða í Ártúnsbrekku, þar sem hámarkshraði er áttatíu. Kom þá í ljós að hann var talsvert ölvaður og var því bundinn endir á ferðarlag hans. 7.6.2006 09:00
Frjáls markaður að bregðast á sviði lyfjainnflutnings Halda má því fram með fullum rétti að frjáls markaður sé að bregðast landsmönnum á sviði lyfjainnflutnings, ef innflutningur á ódýrum samheitalyfjum verður ekki stór aukinn, segir Sigurður Guðmundsson landlæknir í grein í Morgunblaðinu í morgun. 7.6.2006 08:30
Féll af vélhjóli og slasaðist á Reykjavíkurvegi Ökumaður mótorhjóls slasaðist þegar hann féll af hjólinu á Reykjavíkurvegi í Hafnarfirði í gærkvöldi og veltist eftir götunni en hjólið hafnaði mannlaust framan á bíl sem kom úr gagnstæðri átt. 7.6.2006 08:00
Líkur á harðri lendingu vaxandi að mati Danske Bank Danske Bank telur að líkur á harðri lendingu í íslensku efnahagslífi fari vaxandi og telur að mat Standard og Poors frá í fyrradag um horfur á versnandi lánshæfismati sé slæmt fyrir íslenskt efnahagslíf. 7.6.2006 07:45
Viðskiptahalli aldrei meiri á fyrsta ársfjórðungi Viðskiptahalli Íslands gagnvart útlöndum hefur aldrei verið meiri en á fyrsta fjórðungi þessa árs. Bæði viðskiptahalli og vöruskiptajöfnuður eru tvöfalt meiri en á sama tíma í fyrra. Viðskiptahalli við útlönd nam rúmum 66 milljörðum á fyrsta ársfjórðungi en stóð 32 komma 6 milljörðum á sama tíma í fyrra. 7.6.2006 07:34
Banaslys á Elliðavatnsvegi í gærkvöld Maður á þrítugsaldri beið bana þegar bíll hans fór út af Elliðavatnsvegi við gatnamótin að Kaldárselsvegi og valt, á tólfta tímanum í gærkvöldi. Annar maður á svipuðum aldri, sem var farþegi í bílnum, slasaðist og var fluttur á slysadeild Landspítalans en mun ekki vera í lífshættu. 7.6.2006 07:32
Vilja forystursveit sem stillir til friðar innan Framsóknar Stjórn Kjördæmissambands framsóknamanna í Reykjavíkurkjördæmi norður, stjórn Framsóknarfélags Reykjavíkurkjördæmis norður og stjórn félags ungra framsóknarmanna í Reykjavíkurkjördæmi norður, harma þá ákvörðun Halldórs Ásgrímssonar forsætisráðherra að hverfa brátt af vettvangi stjórnmálanna eftir áratuga farsælt starf. 6.6.2006 21:27
Orri ráðinn framkvæmdastjóri Frumherja Orri Hlöðversson, fráfarandi bæjarstjóri í Hveragerði, hefur verið ráðinn framkvæmdarstjóri Frumherja í Reykjavík frá og með 1. ágúst. Á fréttavefnum suðurland punktur is kemur fram að Orra hafi verið boðin staða bæjarstjóri í mörgum nýmynduðum meirihlutum á landinu meðal annars Árborg, Mosfellsbæ og Fjarðarbyggð. 6.6.2006 21:00
Gengi krónunnar heldur áfram að lækka Gengi krónunnar heldur áfram að lækka og er Evran nú komin í um 94 krónur. Þá lækkaði gengi hlutabréfa í Kauphöllinni í dag. 6.6.2006 20:30
Unnið að því að bæta hagkvæmni og skilvirkni í íslenska stjórnkerfinu Einfaldara Ísland var yfirskrift ráðstefnu um gagnsæjara stjórnkerfi og reglugerðasetningu sem haldin var á hótel Nordica í dag. Ráðstefnan er liður í vinnu starfshóps sem vinnur að því að bæta hagkvæmni og skilvirkni reglugerðarsetningar í íslensku stjórnkerfi. 6.6.2006 20:00
Dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir kynferðisafbrot Tvítugur karlmaður var í dag dæmdur í tveggja ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að hafa þvingað stúlku til að hafa við sig munnmök og að hafa reynt að þröngva henni til samræðis. 6.6.2006 18:57
Leiðtogar Eystrasaltsráðsins funda á Íslandi Leiðtogar ellefu ríkja Eystrasaltsráðsins auk Evrópusambandsins funda í Reykjavík á fimmtudag. Með því lýkur formennsku Íslands í ráðinu, sem það hefur gegnt síðan í júlí á síðasta ári. Það verður eitt af síðustu embættisverkum Halldórs Ásgrímssonar, að funda með forsætisráðherrum Rússlands og Póllands í tengslum við fundinn. 6.6.2006 18:54
Krefjast ekki afsagnar Jónasar Jónas Garðarsson var í dag dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir manndráp af gáleysi. Tveir létust þegar bátur hans steytti á Skarfaskeri á Viðeyjarsundi í september. 6.6.2006 18:45
Tónleikaröð að Gljúfrasteini Heimili nóbelskáldsins á að vera sjálfsagður viðkomustaður ferðamanna og heimamanna. Forsvarsmenn Gljúfrasteins kynntu í gær skýrslu um stefnumótun og framtíðarsýn safnsins. 6.6.2006 17:30
Formennsku Íslands í Eystrasaltsráðinu lokið Leiðtogar ellefu ríkja Eystrasaltsráðsins auk Evrópusambandsins funda í Reykjavík á fimmtudag. Með því lýkur formennsku Íslands í ráðinu, sem það hefur gegnt síðan í júlí á síðasta ári. Það verður eitt af síðustu embættisverkum Halldórs Ásgrímssonar, að funda með forsætisráðherrum Rússlands og Póllands í tengslum við fundinn. Í formennsku sinni hafa Íslendingar lagt áherslu á umhverfis- og orkumál og mun þessi mál bera hvað hæst á leiðtogafundinum. Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra, sem situr áfram í því embætti þar til ný stjórn hefur verið skipuð, mun leiða fundi ráðsins. Auk sameiginlegra funda mun Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra, eiga tvíhliða fundi með Fradkov, forsætisráðherra Rússlands og Marcinkiewicz, nýjum forsætisráðherra Póllands, og Geir H. Haarde mun eiga fund með utanríkisráðherra Þýskalands. Eystrasaltsráðið er skipað 11 löndum, - Danmörku, Noregi, Svíþjóð, Finnlandi, Eistlandi, Lettlandi, Litháen, Rússlandi, Póllandi og Rússlandi, auk Íslands. Ráðið var stofnað árið 1992 en Ísland gekk í ráðið árið 1995. 6.6.2006 17:21
Stjórnvöld ætla að veita 20 milljónum til Rauða krossins Stjórnvöld ætla að veita 20 milljónum króna til alnæmisverkefna Rauða krossins og Rauða hálfmánans í sunnanverðri Afríku. Framlagið nemur samtals um 320.000 bandaríkjadollurum og verða peningarnir greiddir út í fjórum jöfnum greiðslum á árunum 2006-2009. 6.6.2006 16:53
Féll um sjö metra ofan í húsgrunn Karlmaður féll um það bil sjö metra ofan í húsgrunn í Borgartúni í dag. Neyðarlínunni barst tilkynningin um klukkan 14:36 og voru sjúkraflutninga- og slökkviliðsmenn sendir á staðinn. Aðstæður til björgunar voru talsvert erfiðar að sögn vaktstjóra Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins. Að sögn lögreglunnar í Reykjavík er maðurinn mjög slasaður með höfuðmeiðsl, fótbrot og aðra áverka. Ekki er viðtað hvernig slysið bar að en málið er í rannsókn. 6.6.2006 16:33
Málverkið við góðaheilsu á Norðurlöndum Málverkið er við góða heilsu á Norðurlöndum. Það leiðir sýningin Carnegie Art Award í ljós en hún verður opnuð í Listasafni Reykjavíkur á morgun Carnegie Art Award eru í senn verðlaun og sýning sem komið var á fót fyrir átta árum. Markmið verðlaunanna, sem eru ein þau stærstu í heimi á sviði lista, er að styðja við framúrskarandi listamenn á Norðurlöndum og efla norræna samtímalist. Því er farið með Carnegie Art sýninguna um öll norrænu ríkin og í ár verður einnig farið til Lundúna og Nice í Frakklandi. Verkin sem til sýnis eru í Hafnarhúsinu eru eftir 21 listamann en þeir voru valdir úr hópi 115 listamanna sem tilnefndir voru til þátttöku í sýningunni. Íslendingar eiga fjóra fulltrúa á sýningunni, þá Finnboga Pétursson, Steingrím Eyfjörð, Jón Óskar og Eggert Pétursson. Hafþór Yngvason forstöðumaður Listasafns Reykjavíkur segir sýninguna sanna að málverkið hafi sterka stöðu á Norðurlöndum. Hann bendir á að í fyrsta sinn sé hljóðverk á sýningunni en það er einmitt eftir Finnboga Pétursson. Þegar fréttastofu bar að garði var einn listamannanna að leggja lokahönd á verk sitt. Það var hin 33 ára Josefine Lyche frá Noregi en hún málar nýtt verk á hverjum sýningarstað. Hún hefur stritað í tíu tíma á dag síðan á föstudag og er nokkuð ánægð með niðurstöðuna. Lyche segir að málverkið samanstandi af sparsli og blönduðum akrýllitum. "Ég málaði alls níu lög á vegginn og pússaði þau svo niður með slípara svo yfirborðið yrði alveg slétt. Ég nota mismunandi liti á hverjum stað og litirnir hér tákna græna náttúru landsins." Með verkinu segir Lyche vilja fá fólk til að velta fyrir sér málverkinu sem miðli. Það gerir hún á óvenjulegan hátt því ólíkt því sem gengur og gerist á söfnum má snerta verkið hennar "Þetta er skemmtilegt en maður má ekki snerta öll verkin, bara þetta. Þetta er tímabundið verk, það verður fjarlægt, málað yfir það, og því er gott að geta þreifað á því þann tíma sem það verður á veggnum," segir listakonan. Sem fyrr segir verður sýniningin opnuð á morgun en hún stendur til 20. ágúst. 6.6.2006 15:28
Vélarbilun varð í flugtaki Betur fór en á horfðist þegar lítil flugvél, af gerðinni Cessna 180, missti afl mótors í flugtaki síðdegis í gær með þeim afleiðingum að vélin lenti í Fljótavatni. Einn maður var um borð í vélinni og sakaði hann ekki. Upplýsingafulltrúi Flugmálastjórnar Íslands segir að Rannsóknarnefnd flugslysa hafi farið af staðinn í gær og málið sé nú í rannsókn. 6.6.2006 13:48
Jónas Garðarsson dæmdur í þriggja ára fangelsi Jónas Garðarsson formaður Sjómannafélags Reykjavíkur var nú áðan dæmdur í þriggja ára óskilorðsbundið fangelsi af Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir manndráp af gáleysi. Jónas var ákærður fyrir að hafa þann tíunda september síðastliðinn, stýrt skemmtibátnum Hörpu undir áhrifum áfengis, en báturinn steytti á Skarfaskeri á Viðeyjarsundi með þeim afleiðingum að tveir létust. Jónas var ekki viðstaddur uppkvaðningu dóms í Héraðsdómi Reykjavíkur en fullvíst má telja að dómnum verði áfrýjað til Hæstaréttar. 6.6.2006 13:03
Óvissa í efnahagsmálum gæti aukist Óvissa í efnahagsmálum getur aukist vegna afsagnar Halldórs Ásgrímssonar og stöðunnar sem komin er upp í stjórn landsins. Úrvalsvísitalan lækkaði í morgun um 1,8 prósent og gengi bréfa í viðskiptabönkunum sömuleiðis. 6.6.2006 12:22
Vilja að boðað verði til kosninga Formenn allra stjórnarandstöðuflokkanna telja réttast að boðað verði til þingkosninga sem fyrst vegna þeirra hræringa sem séu í ríkisstjórninni. Þeir segja stjórnina þrotna að kröftum og ekki geta tekist á við þau stóru mál sem blasi við í samfélaginu. Eins og kunnugt er tilkynnti Halldór Ásgrímsson í gærkvöld að hann hygðist bæði segja af sér sem forsætisráðherra og formaður Framsóknarflokksins og að Geir H. Haarde tæki við sem forsætisráðherra á næstunni eftir viðræður stjórnarflokkanna þar um. Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri - hreyfingarinnar græns framboðs, segir um brotthvarf Halldórs úr pólitík að það hafi líklega ekki borið að eins og forsætisráðherra vildi. Steingrímur segir tíðindin sýna að ríkisstjórnin sé laskað fley og því sé réttast að boða til þingkosninga. Steingrímur Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, segir samtarf Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins ekki lengur snúast um málefni og stefnu heldur um að halda völdum. Hún bendir á að ákveðin upplausn sé í efnahagsmálum, kjaramálum og varnarmálu. Ingibjörg Sólrún Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, segir atburði síðustu daga sýna að alger upplausn sé innan Framsóknarflokksins. Halldór hafi ekki fundið sig í embætti forsætisráðherra og feli nú Geir H. Haarde að stjórna þannig að það sé forysta í ríkisstjórninni sem sé ekki alveg sundruð inn á við. En telur hann að boða beri til kosninga 1:11-1:30 Formaður Sjálfstæðisflokksins og verðandi forsætisráðherra gefur hins vegar lítið fyrir þær kröfur. 6.6.2006 11:56
Guðni gefur lítið fyrir vantraust Valgerðar Guðni Ágústsson, varaformaður Framsóknarflokksins, gefur ekki mikið fyrir vantraust flokkssystur hans Valgerðar Sverrisdóttur á hann í embætti formanns flokksins. Hann ætlar að kanna vilja stuðningsmanna sinna áður en hann ákveður hvort hann býður sig fram, en segist ekki muni þvælast fyrir í flokknum, ef hann njóti ekki stuðnings til formennsku. Ráðherrar ríkisstjórnarinnar voru fámálir þegar þeir mættu á ríkisstjórnarfund í morgun. Stóra spurningin er auðvitað sú hver tekur við af Halldóri Ásgrímssyni þegar hann lætur af formennsku í Framsóknarflokknum á landsþingi í haust. Guðni Ágústsson er varafromaður flokksins, en ljóst er að ekki er eining innan þingflokksins um hver eigi að taka við af Halldóri. Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, sagði í Ríkisútvarpinu í morgun að hún treysti Guðna ekki til formennsku. En skoðum aðeins myndir af því þegar ráðherrar mættu á ríkisstjórnarfund í morgun. KOMMENT Halldór Ásgrímsson sagði á Þingvöllum í gær að hann og Guðni hefðu báðir sæst á að láta af embættum sínum í fælokknum. Guðni sendi hins vegar frá sér yfirlýsingu í gærkvöldi, þar sem hann gefur sterkelga til kynna að hann kunni að verða í framboði til formennsku í flokknum. Ríkisstjórnarfundi lauk um klukkan hálf ellefu og gaf Guðni þá kost á stuttu viðtali. 6.6.2006 11:16
Hjólað um landið til styrktar langveikum börnum Fjórir lögreglu- og slökkviliðsmenn af Suðurnesjum hjóla nú um landið til að vekja athygli að söfnun fyrir langveik börn. 6.6.2006 10:55
Umferð gekk vel í gær Umferð gekk vel á vegum landsins í gær og er ekki vitað um slys eða meiri háttar óhöpp. Umferðarþunginn fór að aukast til muna upp úr hádegi en dreifðist svo alveg fram á kvöld. 6.6.2006 10:30
Gistinóttum fjölgar um fjögur prósent milli ára Gistinóttum fjölgaði um fjögur prósent í apríl síðastliðnum miðað við sama mánuð í fyrra. Þetta kemur fram í tölum Hagstofunnar. Gistinóttum fjölgaði hlutfallslega mest á Austurlandi, eða um fjórðung, en þeim fjölgaði í öllum landshlutum nema á Suðurlandi þar sem þeim fækkaði um 13,5 prósent. 6.6.2006 10:15
Farið yfir feril Halldórs Ferill Halldórs Ásgrímssonar spannar yfir þrjátíu ár í stjórnmálum. Halldór settist fyrst á þing í Austurlandskjördæmi árið 1974, en hann er fæddur á Vopnafirði. Hann hefur setið á þingi nær óslitiði síðan þá, en flutti sig um set fyrir síðustu alþingiskosningar og leiddi lista Framsóknarflokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður. 6.6.2006 10:10
Dómur kveðinn upp í dag vegna Viðeyjarslyss Dómur verður kveðinn upp í máli Jónasar Garðarssonar, formanns Sjómannafélags Reykjavíkur, í Héraðsdómi Reykjavíkur klukkan eitt í dag. Jónas er sakaður um að hafa þann tíunda september síðastliðinni stýrt skemmtibátnum Hörpu undir áhrifum áfengis, en báturinn steytti á Skarfaskeri á Viðeyjarsundi með þeim afleiðingum að tveir létust. 6.6.2006 10:00
Í hættu eftir að bátur varð eldsneytislaus Tveir fullorðnir menn og tvö börn voru í hættu þegar lítill skemmtibátur, sem þau voru á, varð eldsneytislaus skammt út af Kjalarnesi í gærkvöldi og tók að reka í átt að grýttri fjöru. 6.6.2006 09:00