Fleiri fréttir

Um níu af hverjum tíu stjórnendum hér á landi eru karlar

Um níu af hverjum tíu stjórnendum í 100 stærstu fyrirtækjum landsins eru karlar. Þetta kemur meðal annars fram í athugun sem Rannsóknarsetur vinnuréttar og jafnréttismála við Viðskiptaháskólann á Bifröst hefur birt.

Vilja stunda hvalarannsóknir við Ísland

Áhugasömum Íslendingum býðst tækifæri á að taka þátt í rannsóknum á hvölum við Íslandsstrendur í sumar. En Alþjóðleg dýraverndunarsamtök hafa sótt um að fá að stunda hvalarannsóknir við Ísland í sumar og bjóða almenningi meðal annars að slást með í för.

Patreksskóli vann ferð til Kaupmannahafnar

Verðlaunaafhending í samkeppninni Unglingalýðræði í sveit og bæ fór fram í Þjóðmenningarhúsinu í dag. Það var Ungfrú heimur, fröken Unnur Birna Vilhjálmsdóttir sem afhenti verðlaunin en hún var jafnframt verndari samkeppninnar.

Styðja stækkun álversins í Straumsvík

Framsóknarmenn í Hafnarfirði kynntu stefnumál sín á fundi í dag. Framsóknarflokkurinn hefur ekki verið sterkur í bæjarstjórn Hafnarfjarðar. Sigurður Eyþórsson sem skipar 1. sæti B-lista og óháðra í bænum segist þó ekki líta til fortíðar. Hann segir Framsóknarflokkinn hafa sett fram metnaðarfulla stefnuskrá þar sem málefni fjölskyldufólks séu höfð að leiðarljósi.

Stimpilgjöld skila 9 milljörðum

Stimpilgjöld skiluðu tvöfalt hærri fjárhæð í ríkissjóð í fyrra en áætlað var. Þessi skuldaskattur skilaði fjórum komma fimm milljörðum meira en vænst var, aðallega vegna skuldbreytinga íbúðalána. Engin merki eru um að þessi skattur verði afnumin þrátt fyrir að leiðtogar stjórnarflokkana hafa kallað hann "úreltan og gamaldags hortitt".

Tap Framsóknar skaðar stjórnarsamstarf

Sjálfstæðisflokkurinn fengi meirihluta í borginni, samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins, frjálslyndir ná inn manni en Framsókn ekki. Björn Ingi Hrafnsson, oddviti Framsóknar og aðstoðarmaður forsætisráðherra, segir að ef niðurstaðan verði á þessum nótum muni það hafa alvarleg áhrif á ríkisstjórnarsamstarfið. Framsóknarmenn sitji ekki undir því að taka einir á sig óvinsældir ríkisstjórnarinnar.

ESB menn deila um aðild Íslands að ESB

Tveir hæst settu menn Evrópusambandsins gáfu í dag misvísandi yfirlýsingar um hugsanlega aðild Íslands að sambandinu. Yfirmaður stækkunarmála sagði að Ísland gæti orðið næst í röðinni, á eftir Rúmeníu og Búlgaríu, en framkvæmdastjóri ESB sagði síðdegis að ekki væri hægt að horfa til fleiri landa en þeirra sem þegar hafa sótt um aðild.

"Mama Africa" tók lagið á fundi Unicef

Miriam Makeba, velgjörðarsendiherra Sameinuðu þjóðanna og einn virtasti tónlistamaður síðustu aldar, hitti aðstandendur Unicef á Íslandi á Hótel Nordica í dag.

Gæsluvarðhaldi framlengt

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur framlengt gæsluvarðhaldi yfir mönnunum fjórum sem grunaðir eru um aðild að stóru fíkniefnamáli sem upp kom í apríl. Mennirnir voru staðnir að verki við að taka á þriðja tug kílóa af amfetamíni og hassi úr bíl sem fluttur var hingað frá Hollandi. Þrír mannanna eru íslenskir en sá fjórði er hollenskur.

Deila um styrkveitingu til Fram

Samstaða Sjálfstæðismanna og Alfreðs Þorsteinssonar um styrkveitingu til Fram sýnir að fyrirgreiðslupólitíkin ræður völdum í Reykjavík ef Sjálfstæðismenn komast til valda segir borgarfulltrúi Samfylkingar. Ómerkilegur málflutningur segja hvort tveggja oddviti Sjálfstæðisflokks og formaður Fram.

Þreföldun símtala úr heimasíma

Fjöldi símtala úr heimasíma í símakerfi Og Vodafone á höfuðborgarsvæðinu þrefaldaðist á meðan símakosning fyrir forkeppni Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva (Eurovision) fór fram í gærkvöldi.

Margæsadagurinn á Álftanesi

Nemendur í Álftanesskóla fögnuðu margæsinni í dag. Meðal viðburða var uppsetning listaverks á Bessastaðatúni sem forseti Íslands veitti viðtöku. Margæsadagurinn er orðinn árlegur viðburður í Álftanesskóla og var haldinn í þriðja sinn í dag. Honum er ætlað að flétta saman fræðslu og skemmtun og er í samstarfi við bæjarfélagið og forsetaembættið.

400 stúdentaíbúðir byggðar við Hlemm

400 stúdentaíbúðir munu rísa við Hlemm á næstu árum, en Skipulagsráð Reykjavíkur og Byggingafélag námsmanna kynnti þessi áform á blaðamannafundi í dag.

Dorrit ekki búin að sækja um ríkisborgararétt

Forsetahjónin fögnuðu nýlega þriggja ára brúðkaupsafmæli sínu og því getur Dorrit Moussaief sótt um að gerast íslenskur ríkisborgari. Í viðtali við NFS hinn 10. maí sagðist Dorrit ætla að sækja um ríkisborgararétt, en hún hafði skömmu áður átt í útistöðum við starfsmenn innflytjendaeftirlitsins í Ísrael.

Harður árekstur í Mývatnssveit

Harður árekstur var á þjóðveginum við gömlu Kísiliðjuna við Mývatn á þriðja tímanum í dag. Tildrög slyssins eru óljós en annar bílanna valt við áreksturinn en hinn fór út af veginum. Ekki munu hafa orðið alvarleg slys á fólki en lögregla er nú á vettvangi.

Allir viðskiptabankarnir og SPRON hafa hækkað vexti

Allir stóru viðskiptabankarnir og SPRON hafa hækkað vexti sína í kjölfar stýrivaxtahækkunar Seðalbankans í gær. Glitnir reið á vaðið í gær og hækkaði bæði verðtryggða og óverðtryggða vexti. Sama gerði SPRON í morgun og nú eftir hádegið hækkauðu KB banki og Landsbankinn sína vexti.

Deilt um hvort bílastæðum fækki í miðborginni

Þróunarfélag miðborgarinnar mótmælir líkt og Laugavegssamtökin áformum Reykjavíkurborgar um að fækka bílastæðum við götur miðborgarinnar eins og kemur fram í samþykkt borgarstjórnar. Þessari túlkun á samþykktum mótmælir formaður umhverfisráðs.

Atlanta leigir Saudi Arabian Airlines flugvélar

Atlanta hefur gengið frá samningi um leigu Boeing 747-200 fraktvélar til Saudi Arabian Airlines. Þetta mun vera í fyrsta sinn sem Saudi Arabian Airlines leigir fraktvél af félaginu en hún bætist í hóp tveggja Boeing 747-300 farþegavéla sem Saudi Arabian Airlines leigir af Atlanta.

KB banki hækkar líka vexti sína

KB banki fylgir í kjölfar Glitnis og SPRON og hyggst hækka vexti óverðtryggðra og verðtryggðra lána. Er það gert eftir tilkynningu Seðlabankans í gær um hækkun stýrivaxta um 0,75 prósentustig.

Einsdæmi að púað sé fyrir flutning lags

Fjöldi áhorfenda púaði og baulaði á Silvíu Nótt áður en hún hóf að flytja lag Íslendinga í undankeppni Eurovision í Ólympíuhöllinni í Grikklandi í gærkvöldi, sem mun vera einsdæmi í sögu keppninnar.

Fjallað um Ísland í rússnesku morgunsjónvarpi

Fjallað verður um Geysi, álfa og íslenska náttúru í rússnesku morgunsjónvarpi á næstu vikum. Annar aðalstjórnenda þáttarins hefur verið hér á landi ásamt tökuliði að kynna sér land og þjóð og ber hvoru tveggja vel söguna.

Fjárvakur kaupir ASE í Eistlandi

Fjárvakur - fjármálaþjónusta, sem er dótturfélag Icelandair Group, hefur fest kaup á fyrirtækinu Airline Services Estonia í Tallinn í Eistlandi. Fyrirtækið er sérhæft í fjármálaþjónustu fyrir flugfélög.

Mótmælir fækkun bílastæða í miðborginni

Stjórn Laugavegssamtakanna mótmælir harðlega fyrirætlunum meirihluta borgarstjórnar um að fækka bílastæðum í miðborginni og þrengja að aðkomu einkabílsins að miðborginni, eins og samtökin segja að standi berum orðum í stefnu meirihlutans. Ekkert samráð hafi verið haft við rekstraraðila eða íbúa um málið.

Styrkjum úr Pokasjóði úthlutað í dag

Styrkjum úr Pokasjóði verslunarinnar verður úthlutað í dag, en þeir nema alls 90 milljónum króna. Þetta er í ellefta sinn sem úthlutað er en sjóðurinn fær tekjur af sölu plastburðarpoka í verslunum. Alls bárust um 700 umsóknir til sjóðsins en í ár fá hátt í eitt hundrað einstaklingar, félagasamtök og stofnanir framlag úr sjóðnum.

Stúdentar ekki sáttir þrátt fyrir hækkun framfærslu

Stúdentar eru alls ekki sáttir við lánakjör sín þrátt fyrir breytingar til hækkunar á framfærslu sem samþykkt hefur verið í stjórn Lánasjóðs íslenskra námsmanna. Framkvæmdastjóri Stúdentaráðs segir óviðunandi að námslán séu undir lágmarkslaunum og atvinnuleysisbótum.

Leit að ungum manni frestað vegna veðurs

Fyrirhugaðri leit björgunarsveita að Pétri Þorvarðarsyni sem fram átti að fara á morgun hefur verið frestað fram til næsta fimmtudags vegna veðurskilyrða. Péturs hefur verið saknað frá Grímsstöðum á Fjöllum síðan á aðfararnótt sunndags en leit heimamanna síðustu daga hefur engum árangri skilað.

Ísland þriðja land inn í ESB

Ísland gæti orðið næsta land inn í Evrópusambandið á eftir Búlgaríu og Rúmeníu. Þetta segir Olli Rehn, sem fer fyrir stækkun sambandsins í framkvæmdastjórn þess. Það verði þó ekki fyrr en búið er að gera nýjan stofnanasáttmála og taka fjárhagsáætlun sambandsins fyrir tímabilið 2008 til 2009 til gaumgæfilegrar skoðunar.

Skriða vaxtahækkana að fara stað

Skriða vaxtahækkana er að fara af stað eftir að Seðlabankinn tilkynnti um hækkun stýrivaxta í gær. Vextir af húsnæðislánum bankanna eru nú komnir upp í það sama og vextir Íbúðalánasjóðs voru, áður en bankarnir fóru inn á þann markað fyrir hálfu öðru ári.

D-listi með meirihluta

Sjálfstæðisflokkurinn fengi annað hvert atkvæði í kosningum til borgarstjórnar samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins. Frjálslyndi flokkurinn mælist í fyrsta sinn í sögu flokksins með nógu mikið fylgi í skoðanakönnun til að ná manni inn í borgarstjórn.

SPRON hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar

SPRON hefur ákveðið að hækka bæði verðtryggða og óverðtryggða vexti eftir að Seðlabankinn hækkaði í gær stýrivexti um 0,75 prósent. Óverðtryggðir vextir hækka um allt að 0,75 prósent en verðtryggðir vextir, það er vextir af nýjum íbúðalánum, um 0,3 prósent. Þeir fara því úr 4,6 prósentum í 4,9 prósent frá og með mánudeginum.

Éljagangur á norðaustanverður landinu í nótt

Éljagangur var sums staðar á norðaustanverðinu í nótt og til dæmið gránaði niður i hlíðar á Vaðlaheiði, gengt Akureyri í nótt. Þar var hiti rétt yfir frostmarkinu klukkan sex í morgun þannig að næturfrost hefur víða verið til fjalla.

Um fimmtungur segir ölvunarakstur hafa áhrif á afstöðu sína

Um það bil tuttugu prósent, eða fimmtungur kjósenda í Árborg, segja að fréttir af ölvunarakstri Eyþórs Arnalds, oddvita Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu, hafi áhrif á afstöðu þeirra í komandi bæjarstjórnarkosningum, samkvæmt nýrri könnun Fréttablaðsins.

Gripinn við innbrot í Síðumúla

Lögreglumenn gripu mann sem ætlaði að brjótast inn í hús við Síðumúla í Reykjavík í nótt og náðu skömmu síðar bíl sem átti að nota til undankomu. Ökumaður hans og þjófurinn voru handteknir og verða þeir yfirheyrðir nánar.

Reykhreinsibúnaður bilaði

Bilun varð í einu reykhreinsivirki Íslenska járnblendifélagsins á Grundartanga í gær. Reykur streymdi því út í loftið um fjögurra klukkutímaskeið áður en bilunin uppgötvaðist.

Enn leitað að ræningja

Lögregla leitar enn að manni, sem rændi talsverðu af lyfjum úr apóteki við Smiðjuveg í Kópavogi undir hádegi í gær. Hann ógnaði starfsfólki með öxi en vann engum mein. Hann er talinn vera á fertugsaldri.

Baulað á Silvíu Nótt

Fjöldi áhorfenda púaði og baulaði á Silvíu Nótt, áður en hún hóf að flytja lag Íslendinga í undankeppni Evróvision í Olympiuhöllinni í Grikklandi í gærkvöldi, sem mun vera afar fátítt , ef ekki eins dæmi. Eftir flutning hennar var líka púað, en einnig máti greina fagnaðar hróp. Lagið komst ekki áfram í aðal keppnina en ekki liggur fyrir hversu mörg atkvæði það hlaut í undanekppninni. Þrátt fyrir það söfnuðust íslenskir aðdáendur Silvíu víða saman í gær, bæði á heimilum og á veitingahúsum, og fylgdust spenntir með. Hvað sem sumir segja um áhugann á Evróvision-keppninni, þá voru götur á höfuðborgarsvæðinu nánast auðar, eins og um miðja nótt væri, meðan á keppninni stóð.

Elsti frambjóðandinn 92 ára

Elsti frambjóðandinn í sveitarstjórnarkosningunum í vor er 92 ára. Sá er Vilhjálmur Hjálmarsson fyrrverandi menntamálaráðherra frá Brekku í Mjóafirði. Hann er í framboði fyrir Framsóknarflokkinn í Fjarðabyggð.

Glitnir hækkar vexti af húsnæðislánum

Vextir af húsnæðislánum Glitnis hækka upp í 4,9% á mánudag, úr því að vera 4,15% fyrir hálfu örðu ári, þegar bankarnir hófu samkeppni á íbúðalánamarkaði. Hækkunin hefur ekki áhrif á kjör þeirra, sem þegar hafa tekið lán. Vextir af óverðtryggðum lánum verða líka hækkaðir. Í tilkynningu frá Glitni segir að þetta sé gert eftir að Seðlabankinn tilkynnti hækkun stýrivaxta í gær.

Forkaupsréttur á jörð

Ekki var fallist á forkaupsrétt eins eigenda jarðarinnar Garðs í Aðaldælahreppi að öðrum hlutum hennar samkvæmt dómi Hæstaréttar. Fór maðurinn fram á riftun samninga við aðra kaupendur vegna þessa.

Stefnuskrá Sjálfstæðismanna í Mosfellsbæ kynnt

Sjálfstæðismenn í Mosfellsbæ kynntu stefnuskrá sína í dag og mun megináhersla vera lögð á ábyrga fjármálastjórn, börnin í fyrsta sæti og málefni eldri borgara. Þá stefna Sjálfstæðismenn í bænum á að koma á rafrænni upplýsinga- og þjónustuveitu, tryggja fjölbreytt framboð lóða í bæjarfélaginu og byggingu mennngarhúss í miðbæ Mosfellsbæjar.

Breytingar geti lækkað matarverð um 20 prósent

Samtök verslunar og þjónustu segja að matarverð geti lækkað um hátt í 20 prósent ef breytingar verði gerðar á skatta- og gjaldaumhverfi á matvörumarkaði. Samtökin vilja frjálsan innflutning á landbúnaðarvörum í skrefum en vilja breytingar á vörugjöldum og virðisaukaskatti sem fyrst.

Siðanefnd blaðamanna klofnaði

Siðanefnd Blaðamannafélags Íslands klofnaði í fyrsta sinn í 16 ár þegar nefndin úrskurðaði í kæru Steingríms Ólafssonar á hendur DV fyrir umfjöllun blaðsins á morðinu á Jóni Þór Ólafssyni sem fannst myrtur í El Salvador en Steingrímur er bróðir hins látna. Meirihluti siðanefndar komst að þeirri niðurstöðu að brotið hefði verið gegn þriðju grein siðareglnanna.

Vilja allir hækka laun leikskólakennara

Talsmenn flokkanna sem bjóða fram til borgarstjórnakosninga telja allir að hækka beri laun leikskólakennara og efla faglegt starf innan leikskólanna með fjölgun menntaðra leikskólakennara. Þetta kom fram á fundi haldinn var í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag.

Sjá næstu 50 fréttir