Fleiri fréttir

Einstæðir karlar vaxandi hópur

Fátækt og einangrun er vaxandi vandamál á Íslandi, að mati viðmælenda í nýrri athugun Rauða krossins. Aldraðir, fatlaðir, öryrkjar og einstæðar mæður eru sem fyrr mesti áhættuhópurinn, en einstæðir karlmenn og innflytjendur eru vaxandi hópur og jafnframt þeir sem erfiðast er að hjálpa.

Guðrún Kristjánsdóttir hlýtur viðurkenningu úr Pollock-Krasner sjóðnum

Nýlega hlaut Guðrún Kristjánsdóttir myndlistarkona, styrk úr Pollock-Krasner sjóðnum, sem er alþjóðlegur listasjóður, stofnaður af Lee Krasner, ekkju Jacksons Pollock, en þau voru bæði heimsþekktir bandarískir listamenn. Sjóðurinn er mikils virtur, valnefnd hans er skipuð viðurkenndu fagfólki innan hins alþjóðlega listgeira og miklar kröfur gerðar til styrkþega. Styrkurinn þykir vera mikil viðurkenning fyrir þá listamenn sem hann hljóta. Guðrún stundaði myndlistarnám í Reykjavík og í Frakklandi og hefur sýnt verk sín víða um heim á undanförnum tveimur áratugum. Á síðasta ári voru tvær einkasýningar á verkum hennar í New York, auk sýningar í Gallerí 100° í húsi Orkuveitunnar í Reykjavík. Framundan hjá Guðrúnu eru ýmis verkefni og sýningar, bæði hér heima og erlendis.

FL Group skilar 6.644 milljóna króna hagnaði

Hagnaður FL Group samstæðunnar fyrir skatta á fyrsta ársfjórðungi 2006 var 6.644 milljónir króna samanborið við 28 milljóna króna hagnað árið áður. Að teknu tilliti til skatta var hagnaður tímabilsins 5.839 milljónir króna, samanborið við 25 milljónir króna árið áður. Arðsemi eiginfjár á tímabilinu nam 33,8%.

Lífeyrissjóðirnir sem sveiflujöfnun

Lífeyrissjóðirnir geta verið nokkurs konar varagjaldeyrissjóður vegna fjárfestinga sinna erlendis segir Seðlabankastjóri. Hann telur að lífeyrissjóðirnir geti dregið úr gengissveiflum vegna þess hvernig þeir stýra fjárfestingum sínum erlendis.

Rændi lyfjum í apóteki vopnaður exi

Lögreglan í Kópavogi leitar manns sem ruddist inn í apótek Lyfs og heilsu við Smiðjuveg á ellefta tímanum í morgun og rændi þaðan lyfjum. Maðurinn kom inn í verslunina vopnaður exi og heimtaði lyf af starfsfólki sem hann fékk.

Bankarnir verða að efna loforðin

Bankarnir verða að standa við loforð sín um að draga úr útlánum segir Davíð Oddsson Seðlabankastjóri. Hann segir jafnframt að enn hafi ekkert komið fram sem sýni fram á að fasteignamarkaðurinn sé að kólna.

Tveggja ára dómur fyrir fíkniefnabrot

Hæstiréttur dæmdi í dag karlmann í tveggja ára fangelsi fyrir að eiga og ætla að selja umtalsvert magn af fíkniefnum. Fíkniefnin fundust við leit á veitingastað í eigu mannsins en um var að ræða amfetamín í ýmsu formi.

Fyrsta skóflustungan tekin að byggingu knattspyrnuhúss við Vallarkór

Á morgun föstudag mun Kópavogsbær og Ístak h.f. undirrita samning um byggingu fullkomins knattspyrnuhúss við Vallarkór í Kópavogi. Um leið verður tekin fyrsta skóflustunga að húsinu en þar með er hafin bygging heilsu-, Íþrótta- og fræðaseturs í Kópavogi í samræmi við samning Kópavogsbæjar og Íþróttaakademíu Íslands sem undirritaður var í nóvember s.l.

Menntaskemmtigarður í Laugardalnum

Í dag var undirritaður samningum um þróun Fjölskyldu- og húsdýragarðsins. Reykjavíkurborg hefur breytt deiliskipulagi Laugardalsins og eru framtíðarplönin sú að standa fyrir uppbyggingu á svæðinu sem miðar að því að byggja upp svæði sem verði einskonar "menntaskemmtigarður"

Rafmagn komið á í Grafarvogi

Rafmagn er komið á þann hluta Grafavogs, sem varð rafmagnslaus um kl. 15:00 í dag. Bilun varð í háspennustreng á framkvæmdasvæði við Vesturlandsveg.

Ókeypis á Þjóðminjasafnið 20.- 31. maí

Aðgangur að Þjóðminjasafni Íslands verður ókeypis dagana 20.-31. maí í tilefni af því að safnið fékk sérstaka viðurkenningu í samkeppi Evrópuráðs safna fyrir skömmu.

Hluti af Grafarvogi rafmagnslaus

Fyrir nokkrum mínútum varð háspennubilun í Grafarvogi með þeim afleiðingum að stór hluti hverfisins er án rafmagns. Leit er hafin að biluninni og viðgerð hefst eins fljótt og auðið er. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Orkuveitu Reykjavíkur

18 ára stúlka fékk dóm fyrir líkamsárás

Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í morgun 18 ára stúlku í eins mánaðar skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás, og til greiðslu sakarkostnaðar, en vísaði frá skaðabótakröfu ákæruvaldsins upp á röskar 400 þúsund krónur.

Klekkt á neytendum

Meira ósamræmi er á milli verðs í hillum og afgreiðslukössum í einstökum matvöruverslunum nú en nokkru sinni fyrr, og geta verslanaeigendur átt yfir höfði sér stjórnvaldssektir vegna þessa.

Kjörsókn eykst dag frá degi

2664 höfðu kosið utan kjörfundar fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í Reykjavík rétt fyrir hádegi í dag. Tíu dagar eru í kosningar og eykst kjörsókn dag frá degi.

5 ára fangelsi fyrir manndrápstilraun og fleiri brot

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í gær Ólaf Hrafn Magnússon í fimm ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps, tvær sérstaklega hættulegar líkamsárásir, kynferðisbrot og vörslu barnakláms. Ólafur barði mann þangað til hann missti meðvitund og stakk hann í bakið á Menningarnótt í fyrra.

Segjast ekki hafa boðið Gísla Einarssyni sæti á lista

Forystumenn Frjálslynda flokksins segja ekkert hæft í þeirri „gróusögu" að flokkurinn hafi í undanfara kosningabaráttu boðið Gísla S. Einarssyni, fyrrverandi alþingismanni Samfylkingar, sæti á framboðslista Frjálslyndra og óháðra á Akranesi fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar.

Dæmdur í 5 ára fangelsi fyrir ýmis brot

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í gær Ólaf Hrafn Magnússon í fimm ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps, tvær sérstaklega hættulegar líkamsárásir, kynferðisbrot og vörslu barnakláms.

Efasemdir um ágæti vaxtahækkana

Vaxandi efasemda er farið að gæta um að stýrivaxtahækkanir þjóni lengur tilgangi sínum, og að úr þessu geti þær jafnvel farið að hafa neikvæð áhrif.

Vaxandi skuldsetning ungra einhleypra karla

Ungir einhleypir karlmenn og einstæðar mæður eru skuldsettust allra og í erfiðustu fjárhagskröggunum. Jón Kristjánsson, félagsmálaráðherra, ætlar að láta kanna stöðu einstæðra karla sérstaklega.

Stýrivextir í sögulegu hámarki

Stýrivextir Seðlabankans hækka í 12,25 prósent samkvæmt ákvörðun sem bankastjórn Seðlabankans tilkynnti í morgun. Stýrivextir hafa aldrei verið hærri en þeir eru núna.

Þráðlaust net á vellinum í sumar

Og Vodafone hefur tekið í notkun þráðlaust net (Hot Spot) á öllum völlum í efstu deild karla og kvenna í sumar, alls 13 völlum.

Má sletta skyri eða klifra upp í byggingakrana?

Má sletta skyri eða klifra upp í byggingakrana? Hve langt mega yfirvöld ganga til að hefta mótmælendur? Þetta er meðal þeirra spurninga sem ræddar verða á málþingi um mótmæli og lýðræði sem ReykjavíkurAkademían stendur að í dag.

Svifryk í Reykjavík frá Rússlandi

Svifryksmengun í Reykjavík var yfir heilsuverndarmörkum samfellt í tvo sólarhringa í síðustu viku vegna mengunar sem barst frá Rússlandi. Mengunin var viðvarandi í tvo sólarhringa og féll ekki niður yfir nóttina eins og vant er þegar mengunin er af völdum bílaumferðar í Reykjavík.

Ágúst verður forstjóri

Bræðurnir Lýður og Ágúst Guðmundssynir hafa skipt um störf hjá Bakkavör, fyrirtæki sem er að mestu í þeirra eigu. Ágúst tekur við forstjórastarfinu af Lýði sem tekur við stjórnarformennsku af Ágústi.

Þyrlurnar ekki komnar í gagnið

Ekki tókst að koma stóru þyrlu Landhelgisgæslunnar, TF- LÍF, í lag í gær en vonast er til að hún komist í gagnið fyrir helgina. Litla þyrlan, TF-SIF, er enn í Noregi þar sem meðal annars er verið að ganga frá nætursjónauka í henni.

Seðlabankinn hækkar stýrivexti

Seðlabanki Íslands hefur hækkað stýrivexti um 0,75 prósentustig í 12,25 prósent. Hækkunin er í samræmi við spár greiningadeilda bankanna, sem spáðu um 50 til 75 punkta hækkun stýrivaxta.

Þjófar gripnir glóðvolgir

Lögreglumenn gripu þrjá menn glóðvolga þar sem þeir munduðu sig við að brjótast inn í íbúðarhús við Laufásveg um fjögurleytið í nótt. Þeir voru með margvíslegan búnað til innbrota í fórum sínum, eins og kúbein, skrúfjárn, hnífa og fleira. Þeir hafa allir gerst brotlegir við lög áður og gista fangageymslur þar til þeir verða yfirheyrðir í dag.

Keyrði á ljósastaur

Ökumaður, sem grunaður er um ölvun, missti stjórn á jeppa sínum í Árbæjarhverfi í gærkvöldi og hafnaði á ljósastaur. Við það féll staurinn ofan á strætóskýli, en svo vel vildi til að þar var enginn þá stundina. Við höggið meiddist ökumaðurinn, en þó ekki alvarlega, og voru stafsmenn Orkuveitunnar kallaðir út til að aftengja staurinn.

Mikil verðmunur á verði í hillum og á kassa

Meira ósamræmi er á milli verðs í hillum og afgreiðslukössum í einstökum matvörverslunum en nokkru sinni fyrr, og vekur Neytendastofa sérstaka athygli á þessu. Af tilkynningu Neytendastofu má ráða að í öllum tilvikum sé fólk að greiða meira fyrir vöruna en það taldi sig vera að kaupa hana á.

Matarverð í Reykjavík nær helmingi hærra en í Stokkhólmi

Matarkarfan í Reykjavík er nærri tvöfalt dýrari en í Stokkhólmi samkvæmt nýrri verðkönnun Alþýðusambands Íslands í matvöruverslunum á Norðurlöndum. Af íbúum í höfuðborgum norrænu ríkjanna borga Oslóbúar einir svipað verð og Reykvíkingar fyrir matinn.

Kosningaþátttaka innflytjenda geti hugsanlega ráðið úrslitum

Þátttaka innflytjenda getur hugsanlega skipt sköpum varðandi úrslit kosninga í einstökum bæjarfélögum, að mati framkvæmdastjóra Alþjóðahúss. Hann bendir á hópurinn sé stór og mikilvægur og að stjórnmálaflokkarnir séu að átta sig á þeirri staðreynd.

Boða aðgerðir til að draga úr vanda Landspítalans

Ákveðið hefur verið að grípa til fjölþættra aðgerða til að draga úr útskriftarvanda Landsspítalans og slá á þá manneklu sem hann stendur frammi fyrir Þetta var ákveðið á fundi sem Siv Friðleifsdóttir átti með stjórnendum spítalans.

Svifryksmengun yfir heilsuverndarmörkum í tvo daga

Svifryksmengun yfir Reykjavík var yfir heilsuverndarmörkum samfellt í tvo sólarhringa í síðustu viku vegna mengunar sem barst frá Rússlandi. Þetta kemur fram á vef umhverfissviðs Reykjavíkurborgar.

Varað við ósamræmi í verðmerkingum

Óvenjumikið ósamræmi hefur verið í verðmerkingum í matvöruverslunum þannig að verð á afgreiðslukassa er hærra en hilluverð. Það er Neytendastofa sem vekur athygli á þessu. Á heimasíðu stofnunarinnar kemur fram að í nýlegri könnun hafi komið í ljós meira ósamræmi milli hilluverðs og verðs á kassa en áður hafi þekkst.

Caput í Háskólabíó í kvöld

Caput-tónlistarhópurinn frumflytur í kvöld verkið Tár Díónýsusar. Verkið er flutt undir upplestri úr verkum Friedrichs Nietches og myndskeiði sem unnið er upp úr gömlum klámmyndum.

Engin sérstök náttúrufegurð í landinu sem sekkur!

Nú eru aðeins fjórir mánuðir í það að byrjað verði að safna vatni í lón Kárahnjúkavirkjunar og fer því hver að verða síðastur til að sjá það land sem fer á kaf. Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra segir að engin sérstök náttúrufegurð sé í landinu sem hverfi undir lónið.

Ráðherrar liðka fyrir umdeildu frumvarpi

Ráðherrar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks hafa náð samkomulagi um að gera breytingar á umdeildu frumvarpi iðnaðarráðherra um Nýsköpunarmiðstöð atvinnulífsins. Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra vonast til að þær liðki fyrir því að málið nái fram að ganga án þess að kollvarpa frumvarpinu.

Tvöfalt fleiri erlendir ríkisborgarar á kjörskrá

Um tvöfalt fleiri erlendir ríkisborgarar hafa kosningarétt í sveitarstjórnarkosningum í vor en í kosningunum fyrir fjórum árum. Þá hafa nærri 2500 manns þegar neytt atkvæðisréttar síns í utankjörfundaratkvæðagreiðslu í Laugardalshöll frá mánaðamótum.

Fleyttu kertum vegna Péturs

Grunnskólabörn á Egilsstöðum fleyttu kertum í Tjarnargarðinum á Egilsstöðum í gærkvöldi fyrir Pétur Þorvarðarson sem enn er ófundinn. Með þessu vildu þau sýna samstöðu með þeim sem leita Péturs og þeim sem eiga um sárt að binda heima, meðan hann er ófundinn.

Framsóknarflokkurinn vill sérstakan Kópavogsstrætó

Framsóknarflokkurinn í Kópavogi vill halda áfram að lækka dagvistargjöld og koma á fót sérstökum Kópavogsstrætó. Oddviti B-listans segist ekki leggja áherslu á að Framsóknarflokkurinn endurheimti bæjarstjórastólinn í Kópavogi.

Halda áfram undirbúningi álvers

Alcoa, ríkisstjórnin og Húsavíkurbær undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um að halda áfram rannsóknum á hagkvæmni þess að bygja 250 þúsund tonna álver á Norðurlandi. Viljayfirlýsingin kemur í framhaldi af staðarvalssamkomulagi frá í mars.

Samið um kaup í Fjarðaáli

Í dag var gengið frá kjarasamningum fyrir þá starfsmenn sem koma til með að vinna hjá álveri Fjarðaáls á Reyðarfirði. Fulltrúar Alcoa Fjarðaáls, Starfsgreinafélags Austurlands, Rafiðnaðarsambands Íslands og Verkalýðsfélags Reyðarfjarðar skrifuðu undir vinnustaðasamninginn í dag.

Veita kannski aðstoð við eftirlit

Færeyingar eru reiðubúnir að skoða hvort færeyskt eftirlitsskip geti orðið Landhelgisgæslu Íslands að liði við eftirlit með veiðum á Reykjaneshrygg. Þetta kom fram í viðræðum Einars K. Guðfinnssonar sjávarútvegsráðherra við Björn Kalsö, starfsbróður hans frá Færeyjum.

Sjá næstu 50 fréttir