Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ölvaður á ferð og nýkominn með bílpróf Lögreglan á Akureyri stöðvaði ökumann við reglubundið eftirlit í nótt og reyndist hann vera ölvaður, sem er vart í frá sögu færandi, nema hvað hann er aðeins 17 ára og nýlega kominn með bílprófið. Hann missir það og getur þurft að bíða lengi eftir að fá það aftur, í ljósi aðstæðna. 7.4.2006 08:00
Nokkrir festust í bíl sínum vegna veðurs Þónokkrir ökumenn lentu í erfiðleikum við Eyjafjörð í gærkvöldi þegar þar gerði mikinn skafrenning svo vart sá út úr augum. Lögreglan á Akureyri og björgunarsveit aðstoðuðu nokkra ökumenn, sem komust hvorki lönd né strönd og bóndi söðlaði dráttarvél sína og hélt til aðstoðar við nokkra bíla á Ólafsfjarðarvegi. 7.4.2006 07:45
FL Group og Vífilfell undirbúa kaup á Refresco FL Group og Vífilfell, sem meðal annars framleiðir Kók, eru að undirbúa kaup á hollenska drykkjarvöruframleiðandanum Refresco fyrir 44 milljarða króna, að því er Viðskiptablaðið greinir frá. KB banki mun að líkindum koma að kaupunum og verða hluthafi til að byrja með, að minnstakosti. FL Group á fyrir all stórann hlut í danska drykkjarvöruframleiðandanum Royal Unibrew. 7.4.2006 07:30
Engan sakaði í óveðrinu á Austfjörðum Stórhríð og hvassviðri geysuðu á Austfjörðum langt fram á kvöld með mikilli ófærð og urðu vegagerðarmenn að hætta við mokstur, því snjó skóf jafn harðann í ruðningana. Björgunarsveitarmenn þurftu hvað eftir annað að aðstoða fólk í föstum bílum, einkum í Oddsskarði, en engan sakaði. Veður hefur lægt í nótt og liggur nú fyrir vegagerðarmönnum að ryðja Oddskarð, Fagradal og fjarðarheiði, auk þess að hreinsa aðra vegi þar sem þæfingur er. 7.4.2006 06:57
Engar heildarreglur um lágmarksaðbúnað aldraðra Engar heildarreglur gilda um lágmarksaðbúnað aldraðra á dvalar- og hjúkrunarheimilum. Félag eldri borgara segir þetta ótækt. 6.4.2006 22:30
Sektað í stæðum fatlaðra Bráðlega verður farið að sekta ökumenn sem leggja í stæði fyrir fatlaða án þess að eiga þangað erindi ef frumvarp þessa efnis nær fram að ganga. Valdimar Leó Friðriksson, þingmaður Samfylkingar, vill að sektirnar verði tiltölulega háar til þess að ökumenn sem einu sinni brenni sig á þeim geri þau mistök ekki aftur. 6.4.2006 22:19
Kjarasamningar í uppnámi seinna á árinu Kjarasamningar verða í uppnámi þegar líður á árið að mati Alþýðusambands Íslands ef spá hagdeildar ASÍ gengur eftir. Spáin gerir ráð fyrir að hagvöxtur verði 4,3 prósent á þessu ári og 3,1 prósent á því næsta sem er rúmu prósentustigi minna en árið 2005 en þá var hagvöxtur 5,5 prósent. Verðbólguspáin er þó dökk en hagdeild ASÍ gerir ráð fyrir 4,8 prósenta verðbólgu í ár og 4,2 prósenta verðbólgu á næsta ári. 6.4.2006 22:15
MA sigraði í Gettu betur í kvöld Menntaskólinn á Akureyri sigraði spurningakeppnina Gettu betur nú í kvöld með 34 stigum á móti 22 stigum Verslunarskóla Íslands. MA hefur ekki sigrað keppnina síðan 1992. 6.4.2006 21:34
Dagur B. Eggertsson leiðir lista Samfylkingarinnar Framboðslisti Samfylkingarinnar og óháðra vegna borgarstjórnarkosninga í Reykjavík var samþykktur á fundi fulltrúaráðs flokksins í kvöld. 6.4.2006 21:32
Menningarverðlaun DV voru afhent í dag Menningarverðlaun DV voru afhent á Hótel Borg í dag. Í flokki fræða fengu Hjörleifur Guttormsson og Sigurður Blöndal verðlaun fyrir ritið Hallormsstaður í Skógum. 6.4.2006 20:29
Stórhríð á austfjörðum og ófærð Enn er stórhríð á austfjörðum og ófærð. Búið er að aflýsa mokstri á Fjarðarheiði, Fagradal og Oddsskarði. Jeppafært er á milli Eskifjarðar og Reyðarfjarðar en þæfingur frá Reyðarfirði suður með fjörðum. Stórhríð er milli Vopnafjarðar og Þórshafnar. Fært er frá Egilsstöðum norður yfir fjöll en þar er þó slæmt ferðaveður, hvasst og skyggni lítið. 6.4.2006 19:50
Reykjavíkurborg stefndi stóru olíufélögunum í morgun Reykjavíkurborg stefndi stóru olíufélögunum í morgun og vill fá 160 milljónir króna í skaðabætur auk dráttarvaxta, fyrir ólögmætt verðsamráð. 6.4.2006 18:57
Viðbúnaðarstig tvö vegna fuglaflensu tekið gildi hér á landi Viðbúnaðarstig tvö vegna fuglaflensu hefur tekið gildi hér á landi eftir að banvænn stofn flensunnar greindist í svani í Skotlandi. Miklar líkur eru á að flensan berist hingað til lands með farfuglunum í vor. 6.4.2006 18:54
Ekki ástæða til að rannsaka fangaflug Utanríkisráðherra segir ástæðulaust að ætla að landhelgi Íslands hafi verið notuð til að fremja mannréttindabrot. Þetta segir hann þrátt fyrir að Amnesty International telji að Keflavíkurflugvöllur hafi verið notaður í tengslum við leynilegt fangaflug CIA. 6.4.2006 18:28
Vill selja Keflavíkurflugvöll Utanríkisráðherra vill stefna að því að selja rekstur Keflavíkurflugvallar. Þetta kom fram þegar ráðherra kynnti skýrslu um utanríkismál á Alþingi í dag. Formaður Samfylkingarinnar sagði í sömu umræðum að það yrði hennar verkefni að útfæra stefnuna í utanríkis- og alþjóðamálum - í næstu ríkisstjórn. 6.4.2006 18:25
Heyrnarlausir geta nú sent 112 SMS Heyrnarlausum, heyrnarskertum og öðrum sem eiga erfitt með að tala býðst nú að senda neyðarboð til Neyðarlínunnar, 112 með SMS-skilaboðum. Þjónustan var þróuð í samvinnu við Öryrkjabandalag Íslands og hafa neyðarverðir fengið nauðsynlega þjálfun til þess að bregðast við neyðarbeiðnum sem berast með þessum hætti. 6.4.2006 17:15
Dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn 3 stúlkum Hæstiréttur mildaði dóm Héraðsdóms sem hafði dæmt karlmann í tveggja ára fangelsi fyrir að hafa tælt þrjár ungar stúlkur til samræðis við sig og annarra kynferðismaka. 6.4.2006 17:12
Stefna að því að einkafyrirtæki reki Keflavíkurflugvöll Utanríkisráðherra telur rétt að stefna að því að einkafyrirtæki annist rekstur Keflavíkurflugvallar og félagið verði síðan einkavætt í framhaldinu. Hann telur ekki þörf á rannsókn hér á landi vegna uppljóstrana í skýrslu Amnesty International um fangaflug Bandaríkjamanna. 6.4.2006 17:04
Reykjavíkurborg krefst 160 milljóna í skaðabætur Reykjavíkurborg stefndi olíufélögunum í morgun og vill fá 160 milljónir króna í skaðabætur auk dráttarvaxta, fyrir ólögmætt verðsamráð. Neytendasamtökin hafa þegar stefnt olíufélögunum og Alcan í Straumsvík, Ríkissjóður og Vestmannaeyjabær eru að kanna hvort þau höfði einnig skaðabótamál 6.4.2006 16:57
Helstu fjallvegir á Austfjörðum lokaðir Lögregla á Eskifirði segir ekkert ferðaveður þar og helstu fjallvegir á Austfjörðum eru lokaðir vegna hvassviðris og mikils fannfergis. 6.4.2006 16:55
Gengi hlutabréfa í Kauphöll Íslands ruku upp í dag Gengi hlutabréfa í Kauphöll Íslands ruku upp í dag. Mest hækkuðu bréf í Fl Group eða um rúm átta prósent. Trú landans á íslenskum hlutabréfum virðist vera að aukast á ný og hækkaði úrvalsvísitalan um 2,2 prósent í dag eftir miklar hækkanir einnig í gær. 6.4.2006 16:52
Íslenskur kafbátur í Reykjavíkurhöfn Íslenskur kafbátur sigldi um Reykjavíkurhöfn í dag í leit að sprengjum. 6.4.2006 16:50
Umferð gengur hægt á Reykjanesbraut Umferð um Reykjanesbraut gengur hægt þessa stundina vegna aftanákeyrslu sem þar varð. Ekið var aftan á sendibíl. Ekki er vitað til þess að alvarleg slys hafi orðið á fólki. 6.4.2006 16:49
Dæmdur í 16 ára fangelsi Hæstiréttur dæmdi nú í dag Phu Tién Nguyén í 16 ára fangelsi fyrir manndráp og staðfestir þar með dóm Héraðsdóms Reykjavíkur. Einnig var ákærði dæmdur til að greiða fjölsyldu hins myrta á elleftu milljón króna. Phu varð manni að bana inn á baðherbergi íbúðar í Kópavogi í október árið 2004. 6.4.2006 16:48
Viðbúnaðarstig hækkað hér á landi ef fuglaflensuveiran berst til Bretlands Halldór Runólfsson yfirdýralæknir segir viðbúnaðarstig hér á landi verða aukið ef H5N1 gerð fuglaflensuveirunnar berst til Bretlands. Rannsóknarstofa Evrópusambandsins í Surrey á Englandi hefur staðfest að svanur, sem fannst dauður í höfninni í Cellardyke norður af Edinborg í Skotlandi fyrir átta dögum, var með H5N1 fuglaflensuveiru. 6.4.2006 16:04
Um átta tonn bóka á bókamarkaði Braga Um átta tonn bóka eru nú til sölu á bókamarkaði Fornbókabúðinnar Bókin á Klapparstígnum. Óhætt er að segja að þar sé eitt og annað áhugavert að finna. 6.4.2006 15:57
Dregið úr brottkasti fisks á Íslandsmiðum Verulega hefur dregið úr brottkasti fisks á Íslandsmiðum samkvæmt nýrri könnun sem IMG Gallup gerði fyrir sjávarútvegsráðuneytið, en tímabil könnunarinnar var frá 29. desember 2005 - 24. janúar 2006. 6.4.2006 15:05
Tveggja milljóna króna aukafjárveiting til Námsflokka Reykjavíkur Borgarráð samþykkti í morgun 2 milljóna króna aukafjárveitingu til Námsflokka Reykjavíkur vegna íslenskunáms innflytjenda. Samningur sem borgin gerði við Mími símenntun var rammasamningur um 700 nemendur, en þeim fjölda hefur þegar verið sinnt á liðnu námsári. 6.4.2006 14:55
Lítil áhrif gengis á ferðaþjónustu Ferðaþjónustan kemur ekki til með að njóta góðs af því ef gengið lækkar, sagði Sturla Böðvarsson samgönguráðherra á aðalfundi Samtaka ferðaþjónustunnar í dag. 6.4.2006 14:09
Félag lesblindra fær styrk Félag lesblindra fékk í dag úthlutað fjögra og hálfrar milljónar króna styrk frá Velferðarsjóði barna. Á næstunni verður gengið frá veitingu sumargjafa sjóðsins til þurfandi barna á Íslandi en þær nema tólf milljónum króna. 6.4.2006 12:58
Skert þjónusta á tíu dvalarheimilum Á annað þúsund íbúar á dvalarheimilum fá skerta þjónustu í dag þar sem ófaglærðir starfsmenn heimilanna eru í tveggja daga setuverkfalli. Starfsmennirnir segja laun sín óviðunandi og eru ósáttir við það sem þeir kalla skeytingarleysi ráðamanna. 6.4.2006 12:32
Norskir bankar taka áhættuþóknun Norskir bankar eru farnir að taka eins konar áhættuþóknun fyrir að höndla með íslenskar krónur, sem endurspeglar litla trú þeirra á krónunni. 6.4.2006 12:30
Hafa áhyggjur af þorskstofninum Stjórnarandstæðingar lýstu miklum áhyggjum af stöðu þorsksins og gagnrýndu kvótakerfið harðlega við upphaf þingfundar í morgun. Sjávarútvegsráðherra sagði fréttir af togararalli Hafrannsóknastofnunar ekki góðar en hvatti menn til að bíða lokaniðurstaðna. 6.4.2006 12:15
Bálhvasst á Austfjörðum Bálhvasst hefur verið á Austfjörðum í morgun og stórhríð geisað á fjallvegum. Veður er hins vegar gengið niður á Vestfjörðum og þeir Bolvíkingar, sem urðu að yfirgefa hús sín í gærkvöldi vegna snjóflóðahættu, fengu að snúa aftur heim í morgun. 6.4.2006 12:02
Snjóar fyrir norðan Akureyringar þurftu enn á ný að grípa til snjósköfunnar í morgun en töluvert hefur snjóað í nótt og í dag fyrir norðan. Meiri snjór er nú á Akureyri en um langt skeið og mega íbúar enn bíða vorsins. 6.4.2006 11:45
Fyrsta skóflustungan tekin að byggingu Háskólatorgs Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra og Björgólfur Guðmundsson, formaður stjórnar Háskólasjóðs h/f Eimskipafélags Íslands, tóku í sameiningu fyrstu skóflustunguna að Háskólatorgi í morgun. Ekki dugði minna til en stærðarinnar skurðgrafa enda miklar framkvæmdir framundan. 6.4.2006 11:00
Hvasst á Austurlandi Verulega hefur hvesst á Austurlandi í morgun með ofankomu og skafrenningi. Stórhríð er á fjallvegum og beðið með mokstur þar til veður lægir. 6.4.2006 09:45
Fíkniefni fundust í fórum farþega með Norrænu Tveir karlmenn, sem komu með Norrænu til Seyðisfjarðar í gærmorgun hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald , en fíkniefni fundust í fórum þeirra. 6.4.2006 09:30
Fíkniefni fundust við húsleit í Kópavogi Lögreglan í Kópavogi fann 30 grömm af anfetamíni og eitthvað af kannabisefnum við húsleit á heimili í bænum í gærkvöldi. Einn maður var handtekinn, en sleppt að loknum yfirheyrslum í nótt. Málið verður rannsakað nánar. 6.4.2006 07:45
Ökumaður missti stjórn á bíl sínum í Miðbænum Ökumaður slasaðist og var fluttur á Slysadeild Landsspítalans-háskólasjúkrahús til aðhlynningar, eftir að hann missti stjórn á bíl sínum á móts við Kolaportið í Reykjavík og ók á umferðarljós. Ljósavitinn brotnaði niður og bíllin stór skemmdist, en maðurinn slasaðist ekki alvarlega. 6.4.2006 07:15
Um 64% Akureyringa vilja nýjan meirihluta í bæjarstjórn Rúmlega 64% Akureyringa vilja fá nýjan meirihluta í bæjarstjórn samkvæmt niðurstöðum í nýlegri Gallup könnun. Fréttavefurinn Dagur greinir frá niðurstöðum könnunarinnar en í henni var spurt um ánægju með meiri- eða minnihluta í bæjar- og sveitafélögum víða um land. 6.4.2006 07:10
Bætir í vindinn á Austurlandi Verulega hefur hvesst á Austurlandi í morgun með ofankomu og skafrenningi. Stórhríð er á fjallvegum og beðið með mokstur þartil veður lægir. Vindhraði fer víða vel yfir 20 metra á sekúndu og er skólahaldi í grunnskólanum á Eskifirði frestað til hádegis vegna óveðurs og leikskólinn verður lokaðaur í dag. 6.4.2006 07:02
Nokkrir festust í bílum sínum vegna óveðurs Björgunarsveitarmenn aðstoðuðu fólk í föstum bílum á Holtavörðuheiði og í Víðidal í gærkvöldi og bóndi kom konu til hjálpar, sem var föst í bíl sínum á Eyrarfjalli við Ísafjarðardjúp, en óveðrinu tók að slota upp úr klukkan þrjú í nótt. 6.4.2006 06:57
Aftakaveður og nokkur snjóflóð fallið Um tuttugu manns gista nú hjá vinum og ættingjum á Bolungarvík vegna snjóflóðahættu og verða þar fram á morgun. Veðrinu hefur lítið slotað en fyrr í dag lýsti Veðurstofan yfir viðbúnaðarstigi vegna snjóflóðahættu á norðanverðum Vestfjörðum. Sex hús hafa verið rýmd á Bolungarvík vegna þessa. Húsin standa við Dísarland og Traðarland, efst í hlíðum Traðarhyrnu. Göturnar sem um ræðir eru efst í bænum og hefur oft þurft að rýma þar hús áður vegna snjóflóðahættu. Ekki er lengur búið í öllum húsunum þar sem Ofanflóðasjóður hefur keypt upp hús í götunum til þess að þetta svæði tæmist varanlega. 5.4.2006 22:18
Hús rýmd í Bolungarvík vegna snjóflóðahættu Verið er að rýma 8 hús í Bolungarvík vegna snjóflóðahættu og á það að verða búið fyrir klukkan 21:00. Þessi hús standa við Dísarland og Traðarland, sem er það svæði á Bolungarvík sem er hvað oftast rýmt vegna snjóflóðahættu. Fólkið gistir flest hjá ættingjum og vinum. 5.4.2006 19:13