Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Tyrkir áhugasamir um Ástarfleyið Upptökur á raunveruleikaþættinum Ástarfleyið, sem sýndur verður á sjónvarpsstöðinni Sirkús, hafa vakið athygli í Tyrklandi. Þarlendir sjónvarpsmenn mættu á tökustað fyrir nokkrum dögum og tóku viðtöl við keppendur og umsjónarmenn. 17.10.2005 00:01
Börnunum haldið heima Leikskólar í Kópavogi og víðar hafa brugðið á það ráð að loka einni deild á dag, svo foreldrar verða annað hvort að vera heima með börnum sínum þann dag eða bregða á önnur ráð þegar kemur að barnagæslu. 17.10.2005 00:01
Sambýli illa mönnuð á Reykjanesi Illa gengur að manna sambýli og visheimili hvers konar í Reykjavík og nágrenni. Á vistheimilinu Dimmuhvarfi á Reykjanesi vantar í níu stöðugildi af tuttugu og einu. Sambýli og vistheimili eru mörg hver í sama vanda og leikskólar og fleiri opinberar stofnanir um þessar mundir. Það gengur ekkert að ráða nýtt starfsfólk. Víða á höfuðborgarsvæðinu vantar starfsmenn og því treysta yfirmenn á að þeir starfsmenn sem eru til staðar vinni meira en fullt starf. 17.10.2005 00:01
Aragrúi óþekktra barna Gagnagrunnur Interpol geymir netmyndir af meira en 20.000 börnum sem beitt hafa verið kynferðislegu ofbeldi. Aðeins 350 þessara barna hafa fengið hjálp. Í fæstum tilvikum hafa kennsl verið borin á börnin. 17.10.2005 00:01
Aragrúi óþekktra barna Gagnagrunnur Interpol geymir netmyndir af meira en 20.000 börnum sem beitt hafa verið kynferðislegu ofbeldi. Aðeins 350 þessara barna hafa fengið hjálp. Í fæstum tilvikum hafa kennsl verið borin á börnin. 17.10.2005 00:01
Berjast fyrir togveiðibanni Umhverfisverndarsinnar sem berjast gegn togveiðum á alþjóðlegum hafsvæðum barst liðsauki breskra vísindamanna í morgun þar sem þeir skora á bresk stjórnvöld að beita sér fyrir togveiðivanni á alþjóðlegum hafsvæðum. 17.10.2005 00:01
Faldi hass í holri bók 37 ára gömul dönsk kona hefur verið dæmd í mánaðarfangelsi fyrir að reyna að smygla hingað 320,19 grömmum af hassi 30. september síðastliðinn. Dómurinn, sem upp var kveðinn í Héraðsdómi Reykjaness, er skilorðsbundinn í þrjú ár. 17.10.2005 00:01
Maður ógnaði með hnífi 24 ára gamall maður hefur verið dæmdur í mánaðarfangelsi fyrir að leggja vasahníf að hálsi annars sem sat í bíl í Kópavogi í mars á þessu ári. 17.10.2005 00:01
Sektaður fyrir landasölu Ungur maður þarf að greiða 60.000 krónur í sekt fyrir að hafa í apríl 2003, þá 19 ára, selt landa úr bíl í nágrenni Korpúlfsstaða. Lögregla sá til landasölunnar og fann bæði peninga og landa á manninum og félaga hans. 17.10.2005 00:01
Fleiri útgerðir ætla að kæra Enn bætist í hóp útgerðarfélaga sem höfða ætla skaðabótamál á hendur olíufélögunum vegna ólöglegs verðsamráðs þeirra, að sögn Friðriks J. Arngrímssonar, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna. 17.10.2005 00:01
Fá eftirlaun en gegna öðru starfi Níu fyrrverandi ráðherrar þiggja nú eftirlaun þótt þeir séu í öðrum störfum hjá ríkinu. Fjárlaganefnd Alþingis ætlar að skoða sérstaklega hvers vegna 250 milljón krónum meira hefur farið í eftirlaun þingmanna, ráðherra og æðstu embættismanna, en ráð var fyrir gert. 17.10.2005 00:01
Fólkið neitar sök Par sem skvetti grænlituðu skyri á gesti álráðstefnu neitar sakargiftum um stórfelld eignaspjöll og húsbrot. Skemmdir eru mun minni en taldar voru í fyrstu. Breskur maður hefur þegar hlotið fangelsisdóm vegna málsins. 17.10.2005 00:01
Svikamylla í gervi leikjarpósts Í tölvupósti biðja þrjótar sem þykjast vera frá tölvuleiknum Eve-Online um staðfestingu skráningarupplýsinga áskrifenda leiksins. Svikamillan er ein af fjölmörgum svipuðum undir yfirskini heiðvirðra netfyrirtækja. 17.10.2005 00:01
60 ábendingar um klámsíður Um sextíu ábendingar um klámsíður á netinu berast ábendingarlínu Barnaheilla á Íslandi að meðaltali á mánuði, af þeim birtir þriðjungur barnaklám. Þetta segir Kristín Jónasdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla. 17.10.2005 00:01
Misráðin ályktun Formenn stjórnarandstöðuflokkanna segja að ályktun Sjálfstæðisflokksins um að synjunarvald forsetans verði fellt úr gildi, sé misráðin og beri ekki vott um sáttatón. Flokkurinn sé hikandi við að ákveða hvað eigi að koma í staðinn. 17.10.2005 00:01
Sjálfstæðisflokkurinn mildast Sjórnmálafræðingar virðast nokkuð sammála um að yfirbragð Sjálfstæðisflokksins muni mildast við brotthvarf Davíðs Oddssonar. Að öðru leyti er ekki búist við miklum breytingum. Úlfar Hauksson, stjórnmálafræðingur á ekki von á miklum breytingum og benti á að forystan hefði náð kjöri með miklum yfirborðum á landsfundinum. Því hefði forystan í góðan styrk á bakvið sig og gott umboð. Hann sagði að flokkurinn héldi sínu striki. 17.10.2005 00:01
Biðtími flóttamanna 7-8 vikur Að jafnaði tekur sjö til átta vikur að afgreiða umsóknir útlendinga um hæli hér á landi. Dæmi eru þó um að hælisleitendur hafi þurft að bíða á annað ár eftir endanlegu svari. 17.10.2005 00:01
Ólíklegt að neytendur sjái lækkun Ólíklegt er að lækkun á matarskatti skili sér í vasa neytenda. Líklegra er að verslanir og heildsalar hækki álagningu sem skattalækkuninni nemur segir Guðmundur Ólafsson lektor í hagfræði. Allsherjarskattalækkanir skili sér mun betur til almennings. 17.10.2005 00:01
Dæmd fyrir að aka á pilt Kona á Akureyri var í dag dæmd til þrjátíu daga skilorðsbundinnar fangelsisvistar og svipt ökuleyfi í tvo mánuði fyrir að keyra yfir gatnamót á rauðu ljósi og aka á ungan pilt sem var á leið yfir gangbraut. 17.10.2005 00:01
Vilja flytja inn erfðaefni í kýr Borgfirskir kúabændur segja vísbendingar um að íslenska búkolla fullnægi ekki til frambúðar aukinni eftirspurn eftir mjólkurvörum og vilja því að hafinn verði undirbúningur að innflutningi erfðaefnis frá útlöndum. 17.10.2005 00:01
Vatnstjón á tuttugu húsum Um tuttugu hús urðu fyrir vatnstjóni á Höfn í Hornafirði um helgina eftir einhverja mestu úrkomu á svæðinu í manna minnum. Enn er verið að meta skemmdir. 17.10.2005 00:01
Málið snýst um krónur og aura Krónur og aurar eru vandamálið í varnarviðræðum Íslendinga og Bandaríkjamanna. Hvað mega varnir landsins kosta og hvað telst til þeirra er lykilspurningin. 17.10.2005 00:01
Lokað prófkjör Ákveðið hefur verið að hafa lokað prófkjör hjá Samfylkingunni í Hafnarfirði við uppstillingu á lista flokksins fyrir næstu sveitastjórnarkosningar. Tillaga kom fram á félagsfundi um að hafa opið prófkjör en aðeins um fjórðungur félagsmanna var hlynntur því. 17.10.2005 00:01
Hnútukast um bensínstyrk Framsóknarmenn telja Árna Mathiesen fjármálaráðherra varpa áformum um afnám bensínstyrks öryrkja og aldraðra yfir á heilbrigðisráðherra. Rýtingsstunga í bak Jóns Kristjánssonar segir stjórnarandstaðan. 17.10.2005 00:01
Vatnið að sjatna á götum Hafnar Töluvert hefur sjatnað í vatninu á götum Hafnar í Hornafirði eftir einn mesta vatnselg í manna minnum í gær. Þá flæddi inni tíu til fimmtán hús í bænum og höfðu bæjarstarfsmenn og slökkvilið í nógu að snúast að dæla vatninu burt og var vatn eins metra hátt á sumum stöðum í bænum. Rigningunni slotaði í nótt eftir að það hafði rignt stanslaust í nær tvo sólarhringa og að sögn lögreglu sjatnaði vatnið af sjálfu sér í kjölfarið. 16.10.2005 00:01
Lagði til manns með hnífi á balli Maður er í haldi lögreglunnar á Selfossi eftir að hann lagði til annars manns með hnífi á dansleik í bænum í gærkvöld. Sá sem lagt var til slasaðist lítillega á höfði og var hann færður undir læknishendur og voru saumuð nokkur sporið í höfuðið á honum. Árásarmaðurinn mun hafa verið ölvaður og verður hann yfirheyrður þegar ölvíman rennur af honum. 16.10.2005 00:01
Ekið á pilt á Hverfisgötu í gær Ekið var á pilt á Hverfisgötu um klukkan hálfellefu í gærkvöld. Að sögn lögreglu er hann kominn til meðvitundar. Mikil ölvun var í miðborg Reykjavíkur í gærkvöld og nótt og höfðu laganna verðir í nógu að snúast, meðal annars við að ganga á milli manna sem slógust í borginni. Þá voru fimm teknir ölvaðir við akstur. 16.10.2005 00:01
Fjöldi veiðimanna í Árnessýslu Töluverður fjöldi rjúpnaveiðimanna var á ferð um uppsveitir Árnessýslu í gær þegar veiðitímabilið hófst og hafði lögregla á Selfossi eftirlit með þeim. Lögreglu barst ein tilkynning um skyttu á veiðum á óleyfilegum stað og þegar betur var að gáð hafði hún ruglast og farið öfugum megin girðingar sem skilur að veiðisvæði og bannsvæði. 16.10.2005 00:01
Lét ófriðlega á skemmtistöðum Lögregla í Kerflavík þurfti í nótt að hafa afskipti af manni sem lét ófriðlega á skemmtistöðum í miðbæ Keflavíkur. Maðurinn mun hafa ráðist á annan mann á skemmtistað og slegið hann og var það tilkynnt til lögreglu. Þegar hún kom á vettvang var maðurinn á bak og burt og hafði þá farið á annan veitingastað. Þar handtók lögregla hann þar sem hann var við það að lenda í stimpingum við annan mann og var hann látinn gista fangageymslur á meðan hann róaði sig. 16.10.2005 00:01
Ekki vitað hversu mikið tjónið er Vatnið á götum Hafnar í Hornafirði sjatnaði mikið í nótt eftir eina mestu úrkomu og vatnselg í manna minnum þar í bæ í gær. Ekki liggur fyrir hversu mikið tjónið varð í flóðunum. 16.10.2005 00:01
Frumvarp kosti 650 milljónir Gróft mat frá Fjársýslu ríkisins segir að eftirlaunafrumvarpið umdeilda kosti 650 milljónir króna, eða 50 prósentum meira en haldið var fram á þingi. 16.10.2005 00:01
Snarpur skjálfti í Vatnajökli Jarðskjálfti, upp á 3,6 stig á Richter, reið yfir í Vatnajökli í gærkvöld, fjórtán kílómetra suður af Trölladyngju og fleiri skjálftar fylgdu í kjölfarið í nótt og í morgun. Heilmikil virkni hefur einnig verið austur af Grímsey frá því fyrir helgi. Síðustu ár hafa viðlíka hrinur gengið yfir á þessum svæðum og enn er ekki sjá að þær boði nokkuð sérstakt, að sögn Ragnars Stefánssonar jarðskjálftafræðings. 16.10.2005 00:01
Hafi hugsanlega verið ýtt Nítján ára piltur hlaut alvarlega áverka á höfði þegar ekið var á hann á Hverfisgötu klukkan hálfellefu í gærkvöld. Hann var í litlum hópi ungmenna að skemmta sér, að sögn lögreglu, og var áfengi haft um hönd. Svo virðist sem pilturinn hafa annað hvort farið út á götuna eða verið ýtt. Ökumaður bílsins var 21 árs gömul stúlka. Enginn var handtekinn, en þrjú ungmenni voru flutt á lögreglustöð í áfalli. 16.10.2005 00:01
Flestir fara að lögum og reglum Rjúpnaveiðiðimenn virðast flestir hafa farið að lögum og virt tilmæli um hóflegar veiðar þann sólarhring sem liðinn er af veiðitímabilinu, en misjafnlega hefur viðrað til veiða á landinu. 16.10.2005 00:01
Barátta um varaformannsembætti Landsfundi Sjálfstæðisflokksins í Laugardalshöll, sem staðið hefur síðan á fimmtudag, lýkur um miðjan dag í dag. Geir H. Haarde utanríkisráðherra tekur við sem formaður flokksins af Davíð Oddssyni en Geir er sá eini sem hefur boðið sig fram til starfans. Þá verður kosið um eftirmann Geirs í embætti varaformanns flokksins klukkan þrjú í dag, en þau Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra og Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri hafa þegar gefið kost á sér. 16.10.2005 00:01
Tvö umferðaróhöpp í gærkvöld Tvö umferðaróhöpp urðu í umdæmi lögreglunnar í Borgarnesi í gærkvöld og var um útafasktur að ræða í báðum tilvikum. Bíll fór út af veginum við Reykholt um klukkan hálftíu. Engin slys urðu á fólki en fjarlægja þurfti bílinn með dráttarbíl. Svipað var uppi á teningnum á Holtavörðuheiði laust eftir klukkan ellefu í gærkvöld en þá skemmdist fólksbíll nokkuð þegar hann fór út af veginum. Enginn í bílnum slasaðist. 16.10.2005 00:01
Býst við að taka ákvörðun Björn Bjarnason dómsmálaráðherra segist ekki sjá neitt annað í spilunum en að hann taki ákvörðun um nýjan saksóknara sem taka á við þeim 32 ákæruatriðum í Baugsmálinu sem Bogi Nilsson ríkissaksóknari sagði sig frá fyrir helgi. Þetta sagði ráðherrann í Silfri Egils á Stöð 2 fyrr í dag. 16.10.2005 00:01
Níu konur í miðstjórn Kosningu í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins sem fram fór á landsfundi í Laugardalshöll er lokið, en alls börðust 24 um ellefu sæti í stjórninni. Alls voru níu konur kjörnar í miðstjórnina og tveir karlar, en það eru Birna Lárusdóttir, Unnur Brá Konráðsdóttir, Elínbjörg Magnúsdóttir, Grímur Gíslason, Magni Kristjánsson, Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, Björk Guðjónsdóttir, Helga Þorbergsdóttir, Valgerður Sigurðardóttir, Stefanía Katrín Karlsdóttir, Sigríður Ásthildur Andersen. 16.10.2005 00:01
Sjálfstæði fjölmiðla verði tryggt Landsfundur Sjálfstæðisflokksins skorar á Alþingi að setja lög sem tryggja sjálfstæði íslenskra fjölmiðla með hagsmuni samfélagsins af heiðarlegri og vandaðri fjölmiðlun að leiðarljósi. Þetta kemur fram í ályktun nefndar um menningarmál sem samþykkt var á fundinum í dag. 16.10.2005 00:01
Búið að yfirheyra mann á Selfossi Lögregla á Selfossi hefur nú sleppt manni sem handtekinn var á dansleik í nótt eftir að hann lagði til annars manns með hnífi. Að sögn lögreglu var árásarmaðurinn, sem var ölvaður þegar atvikið átti sér stað, yfirheyrður þegar ölvíman rann af honum og honum sleppt í kjölfarið. Málið fer nú til sýslumanns sem tekur ákvörðun um ákæru á hendur manninum. 16.10.2005 00:01
Vill afnema synjunarvald forseta Landsfundur Sjálfstæðisflokksins telur óhjákvæmilegt að ákvæði 26. greinar stjórnarskrárinnar um synjunarvald forseta verði numið úr gildi. Þetta kemur fram í ályktun sem samþykkt var að fundinum í dag. Þá telur fundurinn að huga verði að almennri heimild í stjórnarskrá til þjóðaratkvæðagreiðslu um tiltekin mál. 16.10.2005 00:01
Truflun á netsambandi við útlönd Truflun hefur orðið á netsambandi við útlönd vegna bilunar í endabúnaði Farice-sæstrengsins í Skotlandi. Þetta kemur fram á heimasíðu Farice. Viðgerð á strengnum stendur yfir og er búist við að hann verði kominn í lag síðar í dag. Á meðan fer öll umferð um Cantat 3 sæstrenginn. 16.10.2005 00:01
Pilturinn útskrifaður af gjörgæslu Nítján ára piltur, sem hlaut alvarlega áverka á höfði þegar ekið var á hann á Hverfisgötu í gærkvöld, er á batavegi og hefur verið útskrifaður af gjörgæsludeild. Pilturinn var í litlum hópi ungmenna að skemmta sér þegar hann annað hvort fór út á götuna af sjálfsdáðum, eða var ýtt, að sögn lögreglu. 16.10.2005 00:01
Geir hlaut 94,3 prósent atkvæða Geir H. Haarde utanríkisráðherra var rétt í þessu kjörinn áttundi formaður Sjálfstæðisflokksins á landsfundi flokksins í Laugardalshöll. Geir hlaut 94,3 prósent atkvæða, en hann gaf einn kost á sér til formanns. 23 aðrir sjálfstæðismenn hlutu samtals 65 atkvæði, en auðir seðlar voru 40. Nú stendur yfir varaformannskjör en þar höfðu Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra og Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, gefið kost á sér. 16.10.2005 00:01
Þorgerður kjörin varaformaður Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir var rétt í þessu kjörin varaformaður Sjálfstæðisflokksins. 16.10.2005 00:01