Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Rækjuveiðar- og vinnsla að hrynja Rækjuveiðar og vinnsla eru að hrynja hér á landi eins og greint var frá nýverið og í gær var öllum 25 starfsmönnum rækjuvinnslunnar Íshafs á Húsavík sagt upp frá og með morgundeginum. Einnig var tilkynnt í gær að fækkað yrði um helming, eða 30 manns, í rækjuvinnslu Strýtu á Akureyri og framvegis yrði unnið þar á einni vakt. 30.9.2005 00:01
Ekki verkfall á hjúkrunarheimilum Félagar í SFR, stéttarfélagi í almannaþjónustu, hafa samþykkt nýgerðan kjarasamning við Samtök fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu. 71 prósent greiddu atkvæði með samningnum en rúmlega helmingur þeirra tæplega þrjú hundruð félagsmanna sem voru á kjörskrá greiddu atkvæði. Þar með er ljóst að ekkert verður af verkfalli á hjúkrunarheimilum og öðrum stofnunum sem nýi samningurinn gildir á. 30.9.2005 00:01
Komu í veg fyrir bruna í Skútuvogi Lögreglu- og slökkviliðsmönnum tókst með snaræði að koma í veg fyrir eldsvoða í lyftarageymslu við Skútuvog í nótt þar sem ofhitnun hafði orðið í rafgeymum. Með því að aftengja allt og kæla geymana var komið í veg fyrir að verr færi. Ekki er vitað hvers vegna geymarnir ofhitnuðu. 30.9.2005 00:01
Borunarkostnaður gæti hækkað mikið Kostnaður Landsvirkjunar af borun ganga fyrir Kárahnjúkavirkjun gæti hækkað um milljarða króna frá því sem samningur fyrirtækisins við Impregilo hljóðaði upp á.<em> Fréttablaðið</em> segir frá þessu í dag og segir vatn og misgengi í jarðlögum vera ástæðuna. Við þetta er því að bæta að einn boranna þriggja hefur ekki verið í notkun svo vikum skiptir. Það er vegna þess að verið er að snúa honum við eftir að hann gat ekki lokið sínum áfanga vegna aðstæðna. Þeim kafla verður lokið með eldri aðferðum. 30.9.2005 00:01
Varað við óveðri á Gemlufallsheiði Vegagerðin varar við við óveðri á Gemlufallsheiði og þá er Hrafnseyrarheiði ófær. Aðrar heiðar á Vestfjörðum er verið að moka. Hálkublettir eru á Holtavörðuheiði og í Bröttubrekku og eins eru hálkublettir eða snjóþekja sumstaðar á Snæfellsnesi og í Dölum. 30.9.2005 00:01
Opna tilboð í eignir og skuldir LL Framkvæmdanefnd um einkavæðingu mun í dag opna tilboð í eignir og skuldir Lánasjóðs landbúnaðarins í viðurvist allra bjóðenda. Þetta kemur fram í tilkynningu frá nefndinni. Ákveðið var á Alþingi í vor að selja allar eignir sjóðsins og semja um yfirtöku skulda hans, en frá 20. júní síðastliðnum hefur framkvæmdanefnd um einkavæðingu að annast undirbúning sölunnar. 30.9.2005 00:01
Björn sækist eftir 7. sæti Björn Gíslason, framkvæmdastjóri SHS fasteigna, hefur ákveðið að sækjast eftir 7. sæti á lista sjálstæðismanna í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fyrir kosningar til borgarstjórnar. 30.9.2005 00:01
Sameiginlegt framboð í Garðabæ Framsóknarflokkurinn og Samfylkingin í Garðabæ hafa ákveðið að bjóða fram sameiginlegan lista í bæjarstjórnarkosningunum næsta vor. Efnt verður til sameiginlegs opins prófkjörs um efstu sæti framboðslistans fyrir janúarlok og verður það bindandi fyrir þrjú efstu sæti listans. 30.9.2005 00:01
Fulltrúar sýslumanns á Fréttablaði Fulltrúar frá Sýslumanninum í Reykjavík komu á ritstjórnarskrifstofu Fréttablaðsins skömmu fyrir hádegi og lögðu fram lögbann á birtingu gagna að beiðni Jónínu Benediktsdóttur. Lagt var hald á birt og óbirt gögn í tengslum við fréttir blaðsins af samskiptum Jónínu Benediktsdóttur við Styrmi Gunnarsson og fleiri í tenglum við málareksturinn gegn Baugi. 30.9.2005 00:01
Ráðist í jarðgöng undir Óshlíð Ríkisstórnin ákvað á fundi sínum í morgun að ráðast nú þegar í gerð jarðganga undir Óshlíð á milli Bolungarvíkur og Ísafjarðar, en Óshlíðarvegurinn er eina tenging Bolvíkinga við umheiminn landleiðina. Þar hefur grjóthrun færst í vöxt og hvað eftir annað legið við slysum. Ráðgert er að göngin verði 120 metra löng og leysi af hólmi hættulegasta kafla Óshlíðarvegar. 30.9.2005 00:01
Rækjuveiðar og -vinnsla í uppnámi Rækjuveiðar og -vinnsla er að hrynja hér á landi eins og við greindum frá nýverið og í gær var öllum 25 starfsmönnum rækjuvinnslunnar Íshafs á Húsavík sagt upp frá og með morgundeginum. 30.9.2005 00:01
Framboð verði með minni kostnaði Geir H. Haarde utanríkisráðherra segir að ríkisstjórnin hafi náð samstöðu um að standa við framboð Íslands til öryggisráðs Sameinu þjóðanna en að það verði gert með minni tilkostnaði. Geir gekk á fund utanríkismálanefndar klukkan ellefu í morgun, til að tilkynna nefndinni um afstöðu sína í málinu en áður hafði málið verið rætt á ríkisstjórnarfundi í morgun. 30.9.2005 00:01
Hafi ekki fengið syndakvittun Stjórnarandstæðingar segja af og frá að Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra hafi fengið syndakvittun, þrátt fyrir að umboðsmaður Alþingis kanni ekki að eigin frumkvæði, hvort ráðherra hafi verið vanhæfur þegar kom að sölu Búnaðarbankans. 30.9.2005 00:01
Geta misst allt að 2 mánuði úr Hjartveik börn geta misst allt að tveimur mánuðum á ári úr skóla án þess að þeim sé bætt það upp. Margrét Ragnars, formaður Neistans, segir að það fari eftir skólum hvort börnin fái aukakennslu eða ekki. 30.9.2005 00:01
Hafnaði kröfum beggja aðila Hæstiréttur hefur sýknað Samskip af sjö milljóna króna skaðabótakröfu útgerðarkonu í Ólafsvík og útgerðarkonuna af þriggja milljóna kröfu Samskipa. Samskip fluttu hundrað tonn af frosnum sandsílum til landsins fyrir konuna árið 1999. Deilt var um hvort flytja ætti sílin alla leið til Ólafsvíkur eða aðeins til Reykjavíkur þar sem þau urðu innlyksa á gámasvæði Samskipa næstu þrjú árin. 30.9.2005 00:01
Dæmt til að borga starfsmanni laun Fyrirtækið Norðan heiða á Hvammstanga verður að greiða fyrrverandi starfsmanni sínum 1,3 milljónir króna auk dráttarvaxta, samkvæmt dómi Hæstaréttar. Starfsmanninum var sagt upp störfum vorið 2004 og skömmu eftir uppsögnina lét hann af störfum. Hann og yfirmann hans greindi á um hvort starfslokin væru að ósk starfsmannsins eða fyrirtækisins og höfðaði hann mál til að fá greidd laun í uppsagnarfresti. 30.9.2005 00:01
GSM-sambandslaust fyrir vestan Vegna slitins ljósleiðara í Tungudal á Ísafirði er GSM-símasambandslaust á Suðureyri og Flateyri. Einnig eru neyðarsímar í jarðgöngunum undir Botns- og Breiðadalsheiðar óvirkir. Lögreglan á Ísafirði verður með aukið eftirlit í jarðgöngum meðan á viðgerð stendur. 30.9.2005 00:01
Ekki hægt að sjá hver sendi gögn Sigurjón M. Egilsson, fréttaritstjóri <em>Fréttablaðsins</em>, segir ekki hægt að sjá af tölvupóstum, sem fulltrúar Sýslumannsins í Reykjavík lögðu hald á í hádeginu, hver hefði látið <em>Fréttablaðið</em> hafa þá. Ef svo væri hefði blaðið eytt þeim frekar en að afhenda þá segir Sigurjón. Tölvupóstarnir sem um ræðir eru þeir sem <em>Fréttablaðið</em> hefur byggt fréttir sínar af aðdraganda Baugsrannsóknarinnar á. 30.9.2005 00:01
Mótmælaaðgerðir við Slippstöðina Allir starfsmenn Slippstöðvarinnar á Akureyri lögðu niður vinnu fyrr í dag og komu í veg fyrir að hráefni sem nota átti við Kárahnjúka yrði flutt frá Slippstöðinni, en með þesu vilja þeir mótmæla því að þeir hafi ekki fengið greidd laun í gær eins og til stóð og ekki heldur í dag. 30.9.2005 00:01
Þekkingarsamfélag í Borgarfirði Borgarbyggð, Borgarfjarðasveit, Viðskiptaháskólinn á Bifröst, Landbúnaðarháskóli Íslands og Orkuveita Reykjavíkur undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um samstarf við mótun og þróun þekkingarsamfélags í Borgarfirði. 30.9.2005 00:01
Þorsteinn ritar sögu þingræðis Forsætisnefnd hefur ráðið Þorstein Pálsson, fyrrverandi forsætisráðherra og formann Sjálfstæðisflokksins og síðar sendiherra, til að rita sögu þingræðis á Íslandi. Tilefnið er að um þessar mundir er öld liðin frá því þingræði var tekið upp á Íslandi. Skipuð hefur verið tveggja manna ritnefnd sem í eiga sæti Helgi Skúli Kjartansson, prófessor í sagnfræði, og dr. Ragnhildur Helgadóttir, lektor í stjórnskipunarrétti við Háskólann í Reykjavík. 30.9.2005 00:01
Komufarþegum fjölgaði um 7,7% Farþegum sem komu til landsins um Keflavíkurflugvöll fjölgaði um tæp átta prósent á fyrstu átta mánuðum ársins miðað við sama tímabil í fyrra, samkvæmt tölum Hagstofunnar. Á þessu ári höfðu 534 þúsund farþegar lent á Keflavíkurflugvelli í byrjun september borið saman við 496 þúsund farþega á síðasta ári sem er 7,7 prósenta aukning. 30.9.2005 00:01
Kjarasamningar felldir í Kópavogi Félagar í Starfsmannafélagi Kópavogs felldu kjarasamning við Launanefnd sveitarfélaga. Þetta er í annað skipti á rúmum tveimur mánuðum sem félagar fella kjarasamning sem lagður er fyrir þá. 30.9.2005 00:01
100 manns eiga inni laun Um hundrað manns eiga inni laun hjá Slippstöðinni á Akureyri og vita ekki hvort eða hvenær þeir fá útborgað. Starfsmennirnir brugðu því á það ráð að loka Slippstöðinni og logsjóða aftur dyr til að knýja á um lausn sinna mála. 30.9.2005 00:01
Umferðarslys í Ártúnsbrekkunni Umferðarslys varð í Ártúnsbrekkunni fyrir skemmstu og umferð um brekkuna er því stífluð til vesturs að öðru leyti en því að ein akrein er opin. Því má búast við einhverjum töfum á umferð næstu mínúturnar eða jafnvel lengur og því ráðlagt fyrir ökumenn að velja aðra leið ef mögulegt er. 30.9.2005 00:01
Samkomulag um að sækja tækin Landsvirkjun hafði náð samkomulagi við stjórnendur Slippstöðvarinnar á Akureyri um að sækja tæki sem nota átti við Kárahnjúka og fengið fyrirtæki til að sækja þau, segir Sigurður Arnalds, upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar á Kárahnjúkum. 30.9.2005 00:01
Harma umræðu um manneklu Trúnaðarmenn leikskólakennara í Reykjavík taka undir yfirlýsingu stjórnar Félags leikskólakennara og telja miður í hvaða farveg umræðan um manneklu í leikskólum hefur farið. Í ályktun fundar trúnaðarmanna segir að leikskólar hafi haldið deildum og faglegu starfi skólanna gangandi eins lengi og mögulegt sé áður en gripið hefur verið til þeirra örþrifaráða að loka deildum eða senda börn heim. 30.9.2005 00:01
Vinsældir Villepin aukast Forsætisráðherra Frakklands, Dominique de Villepin, mælist nú í fyrsta sinn með meira persónulegt fylgi en innanríkisráðherra landsins, Nicolas Sarkozy, en talið er að þeir muni keppa um forsetaembættið í Frakklandi árið 2007. 30.9.2005 00:01
Bifhjólaslys í Ártúnsbrekku Ökumaður og farþegi á bifhjóli slösuðust í umferðarslysi í Ártúnsbrekkunni nú á fjórða tímanum. Bæði voru flutt á slysavarðsstofu. Umferð um Ártúnsbrekkuna tafðist til vesturs á meðan verið var að gera að sárum fólksins og koma því í sjúkrabíl og koma bifhjólinu af veginum. 30.9.2005 00:01
25 manns sagt upp í Stykkishólmi Tuttugu og fimm manns hefur verið sagt upp störfum hjá rækjuvinnslu Sigurðar Ágústssonar ehf. í Stykkishólmi. Fyrirtækið mun hætta rækjuvinnslu sinni frá og með næstu áramótum. Ástæða lokunarinnar er, samkvæmt fréttatilkynningu, langvarandi óhagstæð ytri skilyrði í rækjuvinnslu. 30.9.2005 00:01
Þurfti að draga skipið til hafnar Akureyrin EA, áður Guðbjörg ÍS, festi trollið í skrúfunni á Vestfjarðamiðum í morgun í vonskuveðri og draga þurfti skipið til hafnar. Baldvin Þorsteinsson EA kom á vettvang og sá um að draga Akureyrina inn í Skutulsfjörðinn og svo kom fjölveiðiskipið Vilhelm Þorsteinsson og dró Akureyrina síðasta spölinn inn í Ísafjarðarhöfn. 30.9.2005 00:01
Var rétt yfir 30 kílómetra hraða Skemmtibáturinn sem fórst á Viðeyjarsundi aðfaranótt 10. september var á 17 sjómílna hraða þegar hann sigldi á Skarfasker, en það jafngildir tæplega 31 kílómetra hraða á klukkustund. 30.9.2005 00:01
Fleiri ætla í bótamál Heldur hefur fjölgað í hópi útgerðarfélaga sem hyggjast sækja bætur fyrir dómi vegna ólöglegs samráðs olíufélaganna. Einungis eitt félag hefur þó enn lýst þeirri fyrirætlan sinni opinberlega, en það er Guðmundur Runólfsson hf. á Grundarfirði. 30.9.2005 00:01
Framkvæmdastjórinn svarar ekki Fréttastofan hefur reynt að ná í framkvæmdastjóra Slippstöðvarinnar á Akureyri í dag, vegna aðgerða starfsmanna sem brugðu á það ráð að loka Slippstöðinni vegna vangoldinna launa, en án árangurs. Að sögn lögreglunnar á Akureyri hefur hvorki verið óskað eftir aðkomu þeirra að málinu né Sýslumanns. 30.9.2005 00:01
BÍ mótmælir aðgerð sýslumannsins Stjórn Blaðamannafélags Íslands mótmælir þeirri aðgerð sýslumannsins í Reykjavík að krefja blaðamenn á <em>Fréttablaðinu</em> um gögn sem sýslumaður telur þá hafa undir höndum. Eins og greint var frá fyrr í dag komu fulltrúar sýslumanns á ritstjórn Fréttablaðsins rétt fyrir hádegi með lögbannsúrskurð á frekari birtingu upplýsinga úr nafnlausum tölvupóstum. 30.9.2005 00:01
Innflutningurinn hefur tvöfaldast Innflutningur á dýrum sem notuð eru við tilraunir hefur snaraukist á síðustu árum. Ólíkt því sem gerist í nágrannalöndunum hafa dýraverndunarsinnar ekki beint spjótum sínum að íslenskum tilraunastofum enda gilda mjög strangar reglur um meðferð dýranna. 30.9.2005 00:01
Tjáningarfrelsi eða persónuvernd? Sýslumaðurinn í Reykjavík fór inn á skrifstofu Fréttablaðins í dag og lagði hald á tölvupóst Jónínu Benediktsdóttur sem Fréttablaðið hafði undir höndum.Lagt var bann við birtingu úr bréfunum að kröfu Jónínu. Dómstólar þurfa nú að kveða upp úr um hvort sé mikilvægara, tjáningarfrelsi fjölmiðla eða persónuvernd. 30.9.2005 00:01
70 iðnaðarmenn fá niðurgang Um sjötíu iðnaðarmenn á Grundartanga veiktust af matareitrun aðfaranótt fimmtudags eftir að hafa borðað svínagúllas á miðvikudag. Sumir voru svo illa haldnir að þeir treystu sér ekki í vinnuna daginn eftir. "Það kom upp sýking, en það er ekkert komið úr rannsóknum enn hvað þetta var. Áður en við vitum nákvæmlega hvað þetta er getum við ekki fullyrt eitt eða neitt," segir Helgi Helgason, framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Vesturlands. 30.9.2005 00:01
200 leigubílar niðri á bryggju Nær allur leigubílafloti Reykjavíkur var kallaður út í eitt og sama verkefnið í dag þegar tvö þúsund og fjögur hundruð manna skemmtiferðaskip lagði að bryggju í Reykjavík. Hátt í tvö hundruð leigubílar voru sendir á kajann, auk fjölda langferðabíla, til að ferja fólkið í landi. 30.9.2005 00:01
Bessastaðir orðnir bleikir Bessastaðir voru lýstir upp í bleikum lit í kvöld og munu vera það til mánudagsmorguns. Þetta er gert í tilefni af því að í októbermánuði verður vakin athygli á brjóstakrabbameini hér á landi, sjötta árið í röð, frætt um sjúkdóminn og konur hvattar til að nýta sér boð Leitarstöðvar Krabbameinsfélagsins um röntgenmyndatöku.> 30.9.2005 00:01
Blaðamenn mótmæla Stjórn Blaðamannafélags Íslands mótmælti í gær aðgerðum sýslumannsins í Reykjavík þegar hann fór inn á fréttastofu Fréttablaðsins og krafðist þess að fá afhent gögn. "Ég held það séu afar fáir, ef nokkrir, blaðamenn á Íslandi sem er ekki misboðið við þessa gjörð sýslumanns, einfaldlega vegna þess að það er verið að vega að störfum okkar, íslenskum fjölmiðlum og tjáningarfrelsinu," segir Jóhann Hlíðar Harðarson varaformaður Blaðamannafélagsins. 30.9.2005 00:01
Jarðgöng til Bolungarvíkur Ríkisstjórnin samþykkti í gær að ráðist verði þegar í stað í undirbúning jarðgangagerðar undir Óshlíð á milli Bolungarvíkur og Ísafjarðar. 30.9.2005 00:01
Arfavitlaus hagstjórn "Hagstjórnin er eins arfavitlaus og hægt er að hugsa sér," segir Guðmundur Kristjánsson, forstjóri útgerðarfélagsins Brims á Akureyri. Fyrirtæki sem byggja afkomu sína á erlendri mynt líða fyrir hátt gengi krónunnar og hækkandi stýrivexti. Gengi krónunnar styrkist enn og Seðlabankinn hefur tilkynnt um hækkun stýrivaxta á þriðjudag. 30.9.2005 00:01
Lögbann á fréttir úr tölvupósti Sýslumaðurinn í Reykjavík setur lögbann á birtingu tölvupósts Jónínu Benediktsdóttur sem Fréttablaðið hefur haft undir höndum. Aðför að rit- og málfrelsi, segir fréttaritstjóri Fréttablaðsins. Skýrt brot á lögum, segir lögmaður Jónínu. 30.9.2005 00:01
Morgublaðið brýtur eigin reglu Í ritstjórnargrein Morgunblaðsins í gær segir að það sé brot á lögum að birta tölvupóstssamskipti einstaklinga. Morgunblaðið hefur þó að minnsta kosti tvívegis birt einkapóst einstaklinga án þeirra samþykkis. 30.9.2005 00:01