Fleiri fréttir

Greiði kostnað vegna fingurbits

Kona sem ákærð var fyrir að hafa bitið aðra manneskju í baugfingur á Ísafirði í mars var dæmd til að greiða 9.200 krónur í sakarkostnað í Héraðsdómi Vestfjarða í gær en þar sem hún hefur ekki gerst brotleg við lög áður var ákvörðun refsingar frestað skilorðsbundið í tvö ár.

Fagna yfirlýsingu Þorgerðar

Landssamband sjálfstæðiskvenna fagnar yfirlýsingu Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur menntamálaráðherra um að hún ætli að bjóða sig fram til embættis varaformanns Sjálfstæðisflokksins á landsfundi flokksins sem haldinn verður um miðjan næsta mánuð.

Allt stefnir í verkfall

Allt stefnir í verkfall hjá starfsmannafélagi Akraness náist ekki kjarasamningar fyrir 3. október. Atkvæðagreiðsla um vinnustöðvun félagsmanna fór fram í gær og voru níutíu og sjö prósent samþykk henni en rúmlega sjötíu prósent félagsmanna tóku þátt í atkvæðagreiðslunni.

Þrennt handtekið fyrir þjófnað

Tveir menn voru handteknir fyrir þjófnað af lögreglunni í Reykjavík í nótt. Þá var kona handtekin af tveimur óeinkennisklæddum lögreglumönnum í sjoppu á bensínstöð í nótt en þeim þótti grunsamlegt hversu mikið hún verslaði þar.

1.200 fermetra húsnæði byggt

Þrenn hjón á Ísafirði hafa tekið sig saman og áforma að byggja liðlega 1.200 fermetra íbúðar- og verslunarhúsnæði í miðbæ Ísafjarðar. Á vef Bæjarins besta segir Sigurjón Sigurjónsson, einn húsbyggjenda, ætlunina að hýsa verslanir á neðri hæðinni en fjórar íbúðir verði á annarri hæð.

21 milljón í hugmyndasamkeppnina

Reykjavíkurborg hefur gert samstarfssamning við Íslandsbanka, KB banka, Landsbankann og fasteignafélagið Þyrpingu vegna alþjóðlegrar hugmyndasamkeppni um heildarskipulag Vatnsmýrarinnar. Hefur verið ákveðið að bankarnir og Þyrping leggi til 21 milljón króna í hugmyndasamkeppni um skipulag svæðisins.

Franska ferðamannsins enn leitað

Björgunarsveitir af Suðurlandi og höfuðborgarsvæðinu hafa síðan í gærkvöldi leitað að franska ferðamanninum Christian Apalléa en síðast sást til hans 23. ágúst síðastliðinn. Leitað hefur verið út frá skála Ferðafélags Íslands við Álftavatn og þaðan áleiðis í Þórsmörk.

Fagna opnun jarðgangnanna

Aðalfundur fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Fljótsdalshéraði fagnar þeim „glæsilega áfanga“ sem næst í samgöngumálum Austurlands með opnun jarðgangna á milli Reyðarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar.

Bjarni hefur ekki tekið ákvörðun

Bjarni Benediktsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segist ekki hafa leitt hugann mikið að varaformannsframboði í flokknum. Það sé enginn þrýstingur á hann og honum liggi ekkert á að ákveða hvort hann fari fram eða ekki. Það komi bara í ljós þegar þar að kemur.

Kjarasamningum sagt upp?

Miðstjórn Samiðnar telur forsendur kjarasamninga brostnar miðað við núverandi verðbólgu og ástand efnahagsmála. Formaður Samiðnar segir að nái endurskoðunarnefnd um forsendur kjarasamninga ekki viðunandi niðurstöðu, komi ekki annað til greina en að segja upp samningum.

Starfsemin lagfærð að mestu

Norska fjármálaeftirlitið segir að starfsemi dótturfyrirtækis Kaupþings í Noregi hafi verið lagfærð að flestu leyti, eftir að eftirlitið gagnrýndi Kaupþing harðlega fyrir óreiðu í rekstri og fyrir skort á eiginfé. Áfram verður þó fylgst grannt með því að fyrirtækið uppfylli skilyrði fjármálaeftirlitsins ytra.

Skortur er á sykursýkislyfi

Skortur er á sykursýkislyfinu Glucophage á landinu. Innflytjandinn segir ástæðuna vera nýjar íslenskar pakkningar sem hafi þurft að fara sérstaklega yfir.

Icepharma ekki eitt um innflutning

Vegna fréttar Bylgjunnar í hádeginu um skort á sykursýkislyfinu Glucophage þá er rétt að taka fram að Icepharma er ekki eini innflutningsaðili lyfsins, heldur hefur Lyfjaver einnig heimild til samhliða innflutnings.

Húsfélag sýknað af skaðabótakröfu

Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í dag Húsfélagið að Lágmúla 5 af skaðabótakröfum konu sem datt fyrir utan húsið í lok janúar árið 2002 og ökklabrotnaði við það og sneri sig á hné. Varanleg örorka hennar var metin 15% eftir slysið.

Um helmingur bankastjóra ráðherrar

Tólf af sautján seðlabankastjórum hafa verið pólitískt ráðnir. Flestir þeirra voru framsóknarmenn. Átta seðlabankastjórar voru áður ráðherrar. <em>Sigríður Dögg Auðunsdóttir</em> skoðar menntun og starfsreynslu seðlabankastjóra frá stofnun bankans 1961 </font /></b />

Davíð á rétt á tvöföldum launum

Eftirlaun Davíðs Oddssonar leggjast ofan á laun hans sem seðlabankastjóri. Fyrst í stað verða eftirlaunin 334 þúsund en hækka í 718 þúsund í lok ráðningartímabilsins. Laun seðlabankastjóra hækkuðu nýverið og eru nú tæplega 1,3 milljónir á mánuði. </font /></b />

Davíð stöðvaði breytingu laga

Í kjölfar gagnrýnisradda í byrjun árs á að ráðherrar gætu þegið eftirlaun meðan þeir gegndu öðrum störfum á vegum ríkisins hét Halldór Ásgrímsson því að lögin yrðu endurskoðuð. Davíð Oddsson og Sjálfstæðisflokkurinn stóðu í vegi fyrir því einn flokka. </font /></b />

Anna vill leiða Framsókn

Anna Kristinsdóttir borgarfulltrúi hefur ákveðið að gefa kost á sér í fyrsta sæti á lista Framsóknarflokksins í Reykjavík í næstu borgarstjórnarkosningum.

Ósáttur við skipun Davíðs

Ágúst Einarsson deildarforseti viðskipta- og hagfræðideildar Háskóla Íslands er ósáttur við skipun Davíðs Oddssonar í stöðu seðlabankastjóra og segir stöðuna ekki fyrir stjórnmálamenn sem eru að setjast í helgan stein.

Einkarekinn spítali innan 5 ára

Augljóst er að einkarekinn spítali verður settur á stofn hér á landi innan næstu fimm ára, segir formaður Læknafélags Íslands. Hópur fólks var vel á veg kominn með slíkar hugmyndir, en bakkaði vegna andspyrnu sem það varð fyrir </font /></b />

Valdabarátta og togstreita

Ástæður deilumála lækna og yfirstjórnar á Landspítala háskólasjúkrahúsi eru margþættar. Valdabarátta og togstreita af ýmsum toga hafa birst á margvíslegan hátt, allt frá stöðulækkunum til deilna um stimpilklukku.</font /></b />

Læknum líður mjög illa

"Ég hitti daglega lækna á Landspítalanum sem líður mjög illa andlega.Þeim finnst þeir ekki fá tækifæri til að sinna sjúklingnum eins og þeir ættu að gera og þora ekki að segja neitt. Ef menn gera það þá eru þeir teknir í gegn."

Anna stefnir á fyrsta sætið

Anna Kristinsdóttir, borgarfulltrúi Reykjavíkurlistans, hefur ákveðið að gefa kost á sér í fyrsta sæti á lista Framsóknarflokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Anna tilkynnti þetta á blaðamannafundi fyrir stundu.

Fannst látinn í Markarfljóti

Franski ferðamaðurinn Christian Apalléa, sem björgunarsveitir hafa leitað að í dag, fannst látinn í Markarfljóti um klukkan þrjú. Að sögn Þorsteins Þorkelssonar hjá Landsbjörgu virðist sem Apalléa hafi farið ranga leið, aðeins vestar en leiðin liggur, þegar gengið er inn í Húsadal í Þórsmörk frá Álftavatni.

Guðfríður Lilja kjörin

Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, forseti Skáksambands Íslands og alþjóðlegur meistari kvenna í skák, var kjörin forseti Skáksambands Norðurlanda á nýafstöðnu þingi sambandsins sem fram fór í Vammala í Finnlandi. Guðfríður Lilja er fyrsta konan sem gegnir þessu embætti í 106 ára sögu sambandsins.

Fáskrúðsfjarðargöng opnuð

Sturla Böðvarsson samgönguráðherra opnaði jarðgöng undir Kollufjall við hátíðlega athöfn klukkan fjögur í dag. Göngin stytta leiðina milli Fáskrúðsfjarðar og Reyðarfjarðar um 31 kílómetra en þau eru tæplega sex kílómetra löng. Áætlaður kostnaður við gerð ganganna er um fjórir milljarðar króna.

Bíleigandi fær ekki bætt tjón

Maður á fertugsaldri fær ekki bætta rúmlega 2,5 milljón króna Audi-bifreið sem hann lánaði öðrum um mitt sumar árið 2002. Sá sem fékk bílinn lánaðan gjöreyðilagði hann með ofsaakstri um vegþrenginu á Laugavegi fyrir ofan Hlemm og skemmdi fjölda annarra bíla í leiðinni.

16 ára í haldi fram í október

Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði í gær sextán ára pilt í gæsluvarðhald til 21. október eða þar til dómur fellur í máli hans. Pilturinn rændi ásamt fjórum öðrum tæplega tvítugum starfsmanni Bónuss á föstudaginn fyrir viku og daginn eftir voru þeir úrskurðaðir í sex daga gæsluvarðhald. Hinum fjórum hefur verið sleppt.

Ráðning Davíðs til skammar

Ágúst Einarsson, prófessor við Háskóla Íslands, segir vinnubrögð við ráðningu Davíðs Oddssonar í Seðlabankann til háborinnar skammar og sýna að ráðamenn hafi ekkert lært í þessum efnum. Alþingi hefur í þrígang fellt frumvörp þess efnis að auglýsa beri stöðu seðlabankastjóra.

Þjófar gripnir glóðvolgir

Tveir menn voru handteknir í Reykjavík á aðfararnótt föstudags fyrir árvekni starfsmanna Ríkislögreglustjóra sem tekið höfðu eftir golfsetti við bílageymsludyr embættisins.

Beit konu í baugfingur

Ákvörðun um refsingu rétt tæplega 26 ára gamallar konu var í gær frestað í Héraðsdómi Vestfjarða, en hún hafði verið kærð fyrir líkamsárás. Haldi konan skilorð í tvö ár fellur refsingin niður.

Mátti berja mann

Ísfirðingi á þrítugsaldri var ekki gerð refsing í Héraðsdómi Vestfjarða í gær fyrir að hafa slegið mann nokkrum sinnum í andlitið aðfaranótt sunnudagsins 13. febrúar síðastliðins.

Sluppu vel úr árekstri í Njarðvík

Allharður árekstur tveggja bíla varð á Njarðarbraut í Njarðvík um klukkan eitt aðfararnótt föstudags. Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar í Keflavík voru ökumenn og farþegar bílanna fluttir með sjúkrabifreið á Heilbrigðsstofnun Suðurnesja til skoðunar, en meiðsl þeirra voru ekki talin alvarleg.

Franskur ferðamaður fannst látinn

Franskur ferðamaður sem leitað hafði verið að Fjallabaki fannst látinn um klukkan þrjú í gær. Í tilkynningu frá Landsbjörgu kemur fram að komið hafi verið auga á líkið úr þyrlu Landhelgisgæslunnar í Markarfljóti fyrir neðan Húsadal í Þórsmörk.

Réttargeðdeildin á Sogni yfirfull

Nýjasta vistmanninum á Sogni í Ölfusi var fundinn staður í herbergi sem annars er notað fyrir heimsóknir, kennslu og viðtöl. Á deildinni er pláss fyrir sjö, en hann er áttundi sjúklingurinn. Ráðuneytið hefur til þessa ekki heimilað stækkun réttargeðdeildarinnar.

Kjötmjöl unnið í Flóanum á ný

Sorpstöð Suðurlands hættir að taka við sláturúrgangi til urðunar á mánudaginn. Þá hefst aftur rekstur kjötmjölsverksmiðju í Hraungerðishreppi, en hærra móttökugjald á að tryggja reksturinn. Forstjóri SS segir samkeppnisgrundvöll skekktan.

Dyggasti aðdáandi konu sinnar

"Þetta er í þriðja skipti sem ég er hér á landi og alltaf er ég jafnhrifinn af landi og þjóð. Hér hefur fólkið tekið okkur hjónakornum afar vel enda eru Íslendingar gestrisnir og hafa opnað fyrir okkur heimili sín og hjörtu. Fyrir það erum við ævinlega þakklát."

Sóknarbörn kæra til biskups

Sóknarbörn í Garðasókn kærðu í síðustu viku til biskups brota á fundarsköpum á aðalsafnaðarfundi sem haldinn var 30. ágúst síðastliðinn. Krefjast þau þess að fundurinn verði dæmdur ólögmætur.

20 prósenta launahækkun

Nýr kjarasamningur tryggir félagsmönnum Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu, SFH, tuttugu prósenta launahækkun á samningstímanum. Samningarnir eru afturvirkir og gilda frá 1. febrúar.

Óku ölvaðir af dansleik

Tvær bílveltur urðu á Vesturlandsvegi með stuttu millibili í fyrrinótt skammt sunnan við Bifröst en þar var haldinn dansleikur umrædda nótt. Báðir ökumennirnir eru grunaðir um ölvun við akstur. Engin slys urðu á fólki en bílarnir eru báðir mjög skemmdir eða ónýtir að sögn lögreglunnar í Borgarnesi. Fyrr um nóttina hafði lögreglan afskipti af ökumanni sem hafði fengið sér neðan í því.

Syntu frá Skrúði

Sundgarparnir Hálfdán Freyr Örnólfsson og Heimir Örn Sveinsson gerðu sér lítið fyrir í gær og syntu frá Skrúðnum og í fjöruna við mynni Fáskrúðsfjarðar. Sundið tók um klukkutíma en aðstæður eru afar erfiðar á þessu svæði eins og menn vita sem þekkja söguna af skipinu Synetta sem sökk við Skrúðinn á níunda áratugnum og lifði enginn sjómannanna af.

Framboð til kosninga í Reykjavík

Mun fleiri hafa tilkynnt um framboð í prófkjör Sjálfstæðisflokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar næsta vor en í prófkjör hjá öðrum flokkum. Prófkjör flokksins verður þó ekki haldið fyrr en 4. og 5. nóvember. Kosning á lista hefur verið bindandi hljóti menn 50 prósent atkvæða í það sæti.

Svifryk vandamál í Reykjavík

Svifryk er vandamál í Reykjavík eins og í öðrum borgum Evrópu að því er fram kom á stórborgarráðstefnu Norðurlandanna um helgina. Síðasta vetur þurfti tvisvar að senda út viðvörun til öndunarfærasjúklinga vegna svifryksmengunar í Reykjavík.

Alfreð hræðist ekki Önnu

Anna Kristinsdóttir stefnir að fyrsta sætinu á lista framsóknarmanna í Reykjavík fyrir borgarstjórnarkosningar. Alfreð Þorsteinsson, núverandi oddviti framsóknarmanna, segir Önnu þegar hafa reynt að sigra sig einu sinni og henni sé guðvelkomið að reyna það aftur.

Reiðilestur við Háskóla Íslands

Sigursteinn Másson, formaður Geðhjálpar hélt í hádeginu reiðilestur við Háskóla Íslands. Hann telur Háskóla Íslands ekki hafa hugað að geðheilbrigði stúdenta sinna, auk þess sem svo ómanneskjulega sé víða tekið á móti nýnemum að fjölmargir brotni undan álaginu og veikist hreinlega á geði.

Sjá næstu 50 fréttir