Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Öryrkjar ósáttir Samkvæmt samþykktum Lífeyrissjóðanna mega samanlagðar bætur frá Tryggingastofnun og Lífeyrissjóði ekki vera hærri en nemur mánaðarlaunum fólks, fyrir örorku. Eins og kom fram í fréttum okkar í gær hefur vegna þessa verið kallað eftir allt að tuttugu til þrjátíu ára gömlum gögnum. 14.7.2005 00:01
Tívolíið slysagildra Er ferðatívolíið við Smáralind slysagildra eða er þar allt í góðu lagi? Opinberir eftirlitsaðilar leggja blessun sína yfir starfsemina en maður sem starfað hefur í svipuðum leikgarði og horfði upp á leiktæki bresta við Smáralindina í gær er lítt hrifinn. Sólveig Bergmann ræddi við hann í dag. 14.7.2005 00:01
Öryrkinn ósigrandi upp Esjuna Allt er hægt ef viljinn er fyrir hendi. Þetta ætlar öryrkinn ósigrandi, eins og hann kallar sig, að sanna í Esjuferð sinni en hann stefnir á að vera kominn á toppinn á miðnætti í kvöld. Ungmennahreyfing Sjálfsbjargar stendur fyrir verkefninu með aðstoð góðra manna. 14.7.2005 00:01
Vogaskóli rifinn að hluta Yngstu bekkirnir í Vogaskóla koma til með að stunda nám sitt í gömlu verslunarhúsnæði næsta vetur. Verið er að rífa niður hluta skólans og nýtt húsnæði verður ekki tilbúið fyrr en undir árslok 2006. 14.7.2005 00:01
Sumarhátíð Vinnuskólans Þrjú þúsund glaðbeittir unglingar gerðu sér dagamun í Laugardalnum í morgun þegar sumarhátíð Vinnuskólans var haldin í sautjánda sinn. Aðstandendur hátíðarinnar völdu svo sannarlega rétta daginn til hófsins, því sólin skein loks sínu skærasta í höfuðborginni í dag, eftir margar heldur gráar vikur. 14.7.2005 00:01
Starfsmenn hætta í Landakotsskóla Ingibjörg Kjartansdóttir, forstöðumaður heilsdagsskólans í Landakotsskóla, sagði upp störfum í vikunni vegna ástandsins í Landakotsskóla. Annar starfsmaður heilsdagsskólans hefur einnig sagt upp störfum, en alls vinna þrír við hann. 14.7.2005 00:01
Fjórir sækja um Landakot Fjórir umsækjendur eru um stöðu skólastjóra í Landakotsskóla. Þeir eru Guðlaug Teitsdóttir, Laufey Jónsdóttir, Regína Höskuldsdóttir og einn sem óskar nafnleyndar. Laufey er einn ósáttu kennaranna við skólann og hinir tveir hafa starfað sem skólastjórar. 14.7.2005 00:01
Sumir öryrkjar gætu misst bæturnar Landssamtök lífeyrissjóða standa nú að heildarathugun á tekjum þeirra öryrkja sem fá bætur og hefur framkvæmd athugunarinnar sætt nokkurri gagnrýni. 14.7.2005 00:01
Bréf send til 1300 öryrkja Alls voru um 1300 öryrkjar krafðir um skattframtöl síðustu þriggja ára fyrir örorkumat. "Skattstofur hafa brugðist vel við fólki sem leitar til þeirra," segir Matthildur Hermannsdóttir, framkvæmdastjóri greiðslustofu lífeyrissjóðanna. 14.7.2005 00:01
Íbúðalánasjóður í kringum lögin Af samkomulagi um innheimtu krafna, sem er viðuaki við lánasamning Íbúðalánasjóðs við banka og öðrum gögnum sem Fréttastofa Stöðvar 2 hefur undir höndum, er ekki annað hægt að ráða en að bankarnir leppi í raun lánveitingar Íbúðalánasjóðs til einstaklinga sem eru umfram þær heimildir sem sjóðurinn hefur samkvæmt lögum til að lána eða tæpar sextán milljónir. 14.7.2005 00:01
Hert landamæraeftirlit Ríkislögreglustjóri hefur óskað eftir hertri landamæragæslu af ótta við að mótmælendur frá G8- fundinum í Skotlandi komi hingað til lands og mótmæli virkjanaframkvæmdum. Frést hefur af íslenskum mótmælendum þar og þá hefur verið sett upp heimasíða með ferðaleiðbeiningum fyrir mótmælendur. RÚV greindi frá þessu. 14.7.2005 00:01
Gæslukonur funda í næstu viku "Við erum baráttukonur og ætlum að standa á okkar máli," segir Guðrún Guðjónsdóttir, forstöðukona á gæsluvellinum í Malarási í Reykjavík, en henni ásamt rúmlega tuttugu öðrum konum hefur verið sagt upp störfum þegar gæsluvöllum borgarinnar verður lokað 1. september næstkomandi. 14.7.2005 00:01
Icelandair ógildir greidda farmiða Icelandair ógildir farmiða þeirra farþega sem kaupa miða með félaginu og hafa ekki nýtt fyrri helming farseðilsins. Þannig hefur farþegi sem kaupir sér far fram og til baka til einhvers áfangastaðar félagsins og nýtir ekki fyrri ferðina, glatað rétti sínum til að nýta sér seinni hluta farmiðans enda þótt viðkomandi eigi bókað sæti. 14.7.2005 00:01
Styttra milli ferða á háannatímum Leiðakerfi strætisvagna á höfuðborgarsvæðinu hefur verið gjörbylt og verður nýja kerfið tekið í notkun laugardaginn 23. júlí. Það miðar að því að koma farþegum á milli hverfa á sem stystum tíma og verða farnar ferðir á tíu mínútna fresti á háannatímum á sex stofnleiðum sem aka með fáum stoppum á milli helstu íbúðar- og atvinnuhverfa. 14.7.2005 00:01
Starfsleyfi Alcoa dregið í efa Ólöglegt er að halda áfram framkvæmdum við álverksmiðju Alcoa í Reyðarfirði þar til nýtt mat á umhverfisáhrifum hefur farið fram. Þessu heldur Hjörleifur Guttormsson fyrrverandi alþingismaður og náttúrufræðingur fram. 14.7.2005 00:01
Stefán Jón gegn Steinunni? Kúvending á málflutningi viðræðunefndar Samfylkingarinnar eftir fund með ráðamönnum í flokknum olli því að sátt náðist á fundi R-lista flokkanna í gær. Náist sátt um áframhaldandi samstarf stefnir í baráttu núverandi borgarstjóra og Stefáns Jóns Hafstein um borgarstjórastólinn. 13.7.2005 00:01
Kríuvarp nánast horfið sumstaðar Fádæma lélegt kríuvarp hefur verið við vestanvert landið, í Breiðafirði, á Snæfellsnesi og Reykjanesi og á Norðurlandi. Fuglinn verpir seint eða ekki og sumstaðar er kríuvarp nánast horfið. 13.7.2005 00:01
Gjaldfrjáls leikskóli um allt land Gjaldfrjáls leikskóli er það sem koma skal um allt land, segir sveitarstjóri Súðavíkurhrepps. Frá og með 1. september borga Súðvíkingar ekkert fyrir að senda börn sín í leikskóla. 13.7.2005 00:01
Þrívíddarskönnun við jarðgangagerð Ný tækni, þrívíddarskönnun með leysigeislum, gefur bormönnum Arnarfells á Eyjabökkum mun nákvæmari mynd af framvindu jarðgangagerðar en hingað til hefur þekkst hérlendis. 13.7.2005 00:01
Gegnumlýsing í Leifsstöð biluð Gegnumlýsingartæki í Leifsstöð bilaði í gær og tókst ekki að gegumlýsa allan farangur einnar flugvélar sem hélt utan í gærdag. Reynt var að notast við sérstaka bifreið sem notuð er til að gegnumlýsa farangur en hún er ekki jafn afkastamikil og tækin inni í flugstöðinni. Því voru tólf töskur skildar eftir og verða þær sendar með öðrum flugvélum í dag, en frá þessu er greint á vef Víkurfrétta. 13.7.2005 00:01
Verð á íbúðarhúsnæði fer lækkandi Vísbendingar eru um að íbúðarhúsnæði sé hætt að hækka í verði og hafi jafnvel lækkað lítillega síðustu daga, að mati Greiningardeildar Íslandsbanka. Deildin byggir þetta á gögnum frá Fasteignamati Ríkisins þar sem fram komi að verð á íbúðum í fjölbýli hafi hækkað mjög lítið síðustu dagana og lækkað um nokkur prósent í sérbýli á sama tímabili. 13.7.2005 00:01
Ofsaakstur á nýju Hringbrautinni Ökumaður var stöðvaður á nýju Hringbrautinni í Reykjavík í gærkvöldi eftir að lögregla hafði mælt hann á hundrað sextíu og fjögurra kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 70 kílómetrar. Hann var því á rösklega tvöföldum leyfilegum hámarkshraða, eða níutíu og fjórum kílómetrum yfir hámarkshraðanum. 13.7.2005 00:01
Maður slasast í Esjugöngu Björgunarsveit og neyðarsveit frá Slökkviliðinu voru kallaðar út í gærkvöld til að leita að rosknum manni sem saknað var í hlíðum Esjunnar. Áður en skipuleg leit hófst, fann kona manninn skammt frá bílastæðunum neðan við aðal uppgönguleiðina í Kollafirði. Hann hafði dottið og meiðst á höfði, og vankast við það. 13.7.2005 00:01
Kennsl borin á líkið Maðurinn sem fannst myrtur í Boksburg í Suður Afríku á sunnudag hét Gísli Þorkelsson. Hann var fæddur árið 1951 og hafði búið í Suður Afríku í ellefu ár. Dánarorsök er ókunn en búist er við að líkið verði krufið á morgun Kona og karl eru grunuð um að hafa myrt manninn og mæta þau fyrir rétt í dag þar sem þeim verða birtar ákærur. Þau verða ákærð fyrir morð og fjársvik. 13.7.2005 00:01
Atvinnuréttindi útlendinga aukin Vinnuhópur á vegum Félagsmálaráðuneytisins og Dómsmálaráðuneytisins er að vinna hugmyndir að lagabreytingu, sem miða að því að afnema takmarkanir á atvinnuréttindum útlendinga frá nýju Evrópusambandsríkjunum. 13.7.2005 00:01
Sprengdi sektarskala lögreglunnar Ökumaður, sem var stöðvaður á nýju Hringbrautinni í Reykjavík í gærkvöldi eftir að lögregla hafði mælt hann á hundrað sextíu og fjögurra kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 70 kílómetrar, sprengdi sektarskala lögreglunnar. 13.7.2005 00:01
Met í Norðurá Veiðifélagarnir Þórarinn Sigþórsson tannlæknir og Ingólfur Ásgeirsson flugmaður veiddu í sameiningu sjötíu og tvo laxa á eina stöng á þremur dögum í Norðurá í vikunni og hefur aldrei fyrr fengist annar eins afli á eina stöng úr ánni. 13.7.2005 00:01
Stuðningsfundur í Garðasókn Stuðningsmenn og velunnarar séra Hans Markúsar Hafsteinssonar sóknarprests í Garðaprestakalli halda stuðningsfund í kvöld í Hofsstaðaskóla í Garðabæ. Sveinn Andri Sveinsson lögmaður mun mæta á fundinn og svara spurningum sem varða deilurnar í Garðasókn sem staðið hafa lengi yfir. 13.7.2005 00:01
Fyrstu kartöflurnar í búðir í dag Fyrstu nýju íslensku kartöflurnar koma í búðir á höfuðborgarsvæðinu í dag eftir að kartöflubændur í Þykkvabæ hófu að taka upp eldsnemma í morgun. Upptaka hófst sama dag í fyrra. Kartöflubændur ætla nú í fyrsta sinn að bjóða daglega upp á nýuppteknar kartöflur, eða eins lengi og uppskerutíminn stendur, og verða þær í sérmerktum umbúðum. 13.7.2005 00:01
Halldór fundar í Japan Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra átti í dag fund með japönskum þingmönnum í Tókýó þar sem hann hélt erindi um efnahagsmál á Íslandi. Á fundinum ítrekaði forsætisráðherra að lokið yrði við gerð loftferðarsamnings milli ríkjanna og einnig undirstrikaði hann ósk íslenskra stjórnvalda um að gerður yrði tvísköttunarsamningur milli ríkjanna. 13.7.2005 00:01
Aron Pálmi fær námssjóð Stuðningshópur Arons Pálma Ágústssonar sem situr í stofufangelsi í Texas í Bandaríkjunum mun á morgun leggja hálfa milljón króna í sérstakan námssjóð fyrir Aron Pálma, en hann verður tuttugu og tveggja ára á morgun. 13.7.2005 00:01
Konan játar að hafa banað Gísla Konan sem kom fyrir rétt í dag í Boksburg í Suður Afríku hefur játað að hafa orðið Gísla Þorkelsyni að bana, en frá þessu er greint á fréttavef News 24 í Suður Afríku. Konan og maðurinn voru úrskurðuð í gæsluvarðhald til 22. ágúst eða þar til þau koma aftur fyrir rétt þar í landi. 13.7.2005 00:01
Ekki dregur úr flugi til Lundúna Hryðjuverkin í Lundúnum á fimmtudag, þar sem að minnsta kosti 52 biðu bana og fjöldi særðist, hafa lítt eða ekki dregið úr áhuga fólks á að ferðast til borgarinnar. 13.7.2005 00:01
18 mánaða fangelsi fyrir nauðgun Þrjátíu og átta ára gamall karlmaður var í Héraðsdómi Vestfjarða í dag dæmdur í 18 mánaða fangelsi fyrir að hafa nauðgað átján ára stúlku á Ísafirði í júní í fyrra. Maðurinn, var ákærður fyrir að hafa haft samræði við stúlkuna á heimili hennar gegn vilja hennar, en stúlkan var mjög ölvuð þegar nauðgunin átti sér stað. 13.7.2005 00:01
Atvinnuleysi í lágmarki Atvinnuleysi á landinu var 2,1 prósent í júní og dróst saman um 0,1 prósent frá fyrri mánuði og hefur atvinnuleysi ekki mælst jafn lágt síðan í desember 2001 en þá mældist það 1,9 prósent. Að því er fram kemur í hálf fimm fréttum KB banka jókst atvinnuleysi á höfuðborgarsvæðinu um 01, prósent en minnkaði á sama tíma á landsbyggðinni um 0,2 prósent. 13.7.2005 00:01
Gæsluvarðhald fellt úr gildi Hæstiréttur hefur fellt úr gildi gæsluvarðhald yfir 27 ára gömlum erlendum manni. Maðurinn hafði áður verið úrskurðaður í gæsluvarðhald í héraðsdómi vegna gruns um að hafa framið kynferðisbrot gegn tveimur stúlkum fæddum árið 1994. 13.7.2005 00:01
202 kærðir fyrir hraðakstur Samkvæmt fréttavef lögreglunnar voru 202 ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur í síðustu viku. Nú stendur yfir sérstakt umferðareftirlit á vegum ríkislögreglustjóra sem hófst 28. júní síðastliðinn. 13.7.2005 00:01
Fleiri vilja skrá sig í sumarhús Skipulagsnefnd sveitarfélaga í uppsveitum Árnessýslu hefur lagt til að ekki verði veitt leyfi til lögheimilis í frístundarbyggð nema að umsækjandi færi fram sannanir fyrir fastri búsetu sinni og skuli það gert með lögregluskýrslu þar sem umsækjandi færir einnig rök fyrir því að hann vilji búa í frístundarbyggð. 13.7.2005 00:01
Hrefnukjötið rokselst Hrefnukjötið rýkur út eins og heitar lummur og eftirspurnin fer ört vaxandi," segir Sólmundur Oddsson innkaupastjóri Kaupáss sem rekur Nóatúnsverslanirnar. "Um síðustu helgi fóru 350 kíló," bætir Sólmundur við en hann er ekki í nokkrum vafa um að markaður sé fyrir því hrefnukjöti sem fellur til við veiðarnar sem nú eru hafnar. 13.7.2005 00:01
Á 164 kílómetra hraða Ökumaður á yfir höfði sér sviptingu ökuréttinda eftir að bifreið hans mældist á 164 kílómetra hraða á Reykjanesbraut við Bústaðaveg á ellefta tímanum í fyrrakvöld. Hámarkshraði þar er 70 kílómetrar á klukkustund og keyrði ökumaðurinn því meira en níutíu kílómetrum á klukkustund of hratt. 13.7.2005 00:01
Ekki of fáar málverkasýningar "Ég er ósammála því að of fáar málverkasýningar séu haldnar hér í listasafninu," segir Eiríkur Þorláksson, forstöðumaður Listasafns Reykjavíkur. Einar Hákonarson listmálari gagnrýndi listasafnið í Fréttablaðinu í gær og sagði að þar væri ekki nægileg áhersla lögð á málverkasýningar. 13.7.2005 00:01
Mikil kjaraskerðing Verðhækkanir á dísilolíu hafa í för með sér gríðarlegan kostnaðarauka," segir Hlynur Snæland Lárusson, deildarstjóri bílaútgerðar hjá ferðaskrifstofunni Snæland Grímssyni. "Sérstaklega er um mikla kjaraskerðingu að ræða fyrir þröngan kjarna manna sem lifa á bílaútgerð." 13.7.2005 00:01
Gæsluvarðhald staðfest Hæstiréttur staðfesti í gær gæsluvarðhaldsúrskurð yfir síbrotamanni sem farið hafði fram á að gæsluvarðhald þða er hann var dæmdur í til 15. júlí yrði fellt niður eða stytt. 13.7.2005 00:01
Varðhald fellt úr gildi Hæstiréttur felldi í gær úr gildi úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur frá 8. júlí þess efnis að meintur kynferðisglæpamaður skyldi sæta gæsluvarðhaldi til 15. júlí eins og Lögreglustjórinn í Reykjavík hafði farið fram á. 13.7.2005 00:01
Nýjar kartöflur eftirsóttar Fyrsta uppskera ársins af nýjum íslenskum kartöflum úr Þykkvabænum sem komu í verslanir á höfuðborgarsvæðinu í gærmorgun kláruðust úr hillum verslana á nokkrum klukkustundum. 13.7.2005 00:01