Fleiri fréttir

Dæmdur fyrir fjölda brota

Maður á fertugsaldri var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í eins og hálfs árs fangelsi fyrir fjölmörg brot, m.a. fyrir tilraun til ráns á Péturspöbb á Höfðabakka, hann var tekinn próflaus og undir áhrifum fíkniefna við akstur, braut vopnalög og sveik vörur út úr verslunum með skjalafalsi.

Óvandaðar umsagnir Eflingar

Vinnumálastofnun hefur sent frá sér athugasemd vegna yfirlýsingar stéttarfélagsins Eflingar um málefni Pólverjanna tólf sem kvörtuðu til stéttarfélagsins undan bágum kjörum og slæmum aðbúnaði. Í athugasemdinni segir m.a. að Efling hafi þann háttinn á að hafna nánast öllum umsóknum á grundvelli atvinnuástandsins í landinu. Því sé ekki um að ræða vandaðar og ígrundaðar umsagnir.

Í forsæti Eystrasaltsráðsins

Ísland tekur við formennsku í Eystrasaltsráðinu í fyrsta sinn þann 1. júlí næstkomandi og mun gegna formennskunni í eitt ár. Helstu áhersluatriðin í formennskutíð Íslands verða samvinna aðildarríkja á sviði orku- og umhverfismála, samvinna Eystrasaltsráðsins við önnur svæðisbundin samtök og efling á starfi nefnda um efnahagssamvinnu og um málefni barna.

Hugsanleg tollalækkun

Tollar á landbúnaðarvörum munu hugsanlega lækka um 50 til 70 prósent á næsta ári í kjölfar nýs samnings við alþjóðaviðskiptastofnunina WTO sem unnið er að. Þetta segir Ólafur Friðriksson skrifstofustjóri í landbúnaðarráðuneytinu en í nýrri skýrslu efnahags- og framfarastofnunarinnar OECD kemur fram að opinberir styrkir til bænda séu hlutfallslega hæstir á Íslandi.

Sveitarfélagið sýknað af kröfunni

Sveitarfélagið Rangárþing eystra var í dag sýknað af kröfu Eggerts Haukdals, fyrrum alþingismanns og oddvita Vestur-Landeyjahrepps til þrjátíu ára, um greiðslu ríflega fjögurra milljóna króna með vöxtum og dráttarvöxtum.

Standa við auglýsingar sínar

Byggingavörufyrirtækið Byko hefur lagt fram kvörtun til Samkeppnisstofnunnar vegna auglýsinga Múrbúðarinnar sem birst hafa í fjölmiðlum að undanförnu. Í þeim kemur fram verðsamanburður á vörum hjá Múrbúðinni annars vegar og þremur samkeppnisaðilum hins vegar og er samkeppninni verulega í óhag.

Vandræði vegna gjaldtöku

Vandræðaástand hefur skapast við Leifsstöð vegna þeirrar ákvörðunar flugvallarstjórnar að taka gjald af öllum er nýta sér skammtímastæði við stöðina.

Ungar konur reyna oftar sjálfsvíg

Af þeim hundruðum sem reyna að fremja sjálfsvíg á ári hverju eru tveir þriðju ungar konur. Sjálfsvígum hjá ungum mönnum hefur fækkað verulega á undanförnum þremur árum. Þunglyndi og námsörðugleikar fara oft saman

Hætt að prenta Lögbirtingablaðið

Hætt verður að prenta Lögbirtingablaðið í núverandi formi frá 1. júlí. Útgáfan verður rafræn frá þeim degi og réttaráhrif auglýsinga í blaðinu verða bundin við hina rafrænu útgáfu. Áfram verður þó hægt að vera áskrifandi að vikulegri prentaðri útgáfu blaðsins en þá þarf að greiða tólf þúsund krónur fyrir prentun og póstburð.

Víðtækur harmleikur

"Við tölum um sjálfsvíg sem harmleik, sem heldur áfram meðal ættingja og vina sem eftir lifa," segir Salbjörg Bjarnadóttir er stýrir verkefninu Þjóð gegn þunglyndi, sem er á vegum Landlæknisembættisins.

Sjálfsvígum fækkar

Sjálfsvígum 24 ára og yngri karla hefur fækkað um rúmlega helming frá árabilinu 1999 til 2001.

Fjárlög: Alvarlegir misbrestir

Alvarlegir misbrestir eru við framkvæmd fjárlaga samkvæmt greinargerð Ríkisendurskoðunar um framkvæmd fjárlaga árið 2004. Í greinargerðinni segir að margir fjárlagaliðir fari oft langt fram úr fjárheimildum án þess að forstöðumenn og ráðuneyti bregðist við með tilskildum hætti.

Fengu sprengiefnistunnu í nótina

Skipstjórinn á Aðalbjörgu RE-5 hafði samband við Landhelgisgæsluna í morgun og óskaði eftir aðstoð vegna torkennilegs hlutar sem hann hafði fengið í dragnót. Sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar fengu far með björgunarbát út í skipið sem var statt út af Þorlákshöfn.

Telur ASÍ brjóta meiðyrðalöggjöf

Eiríkur Elís Þorláksson, lögmaður Geymis ehf, segir að mögulegt sé að ASÍ hafi brotið gegn meiðyrðalöggjöf með ummælum sínum um fyrirtækið í gær. Þetta kemur fram í bréfi sem Eiríkur hefur skrifað ASÍ fyrir hönd umbjóðanda síns

Ný umferðarmerki tekin í gagnið

Í þjóðarátaki VÍS gegn umferðarslysum er sjónum að þessu sinni beint að umferðarhraða. Í samvinnu við Vegagerð ríkisins verða sett upp leiðbeinandi viðvörunarmerki á stöðum þar sem mörg slys hafa orðið og fólk hvatt til að draga úr hraða ökutækja. Merktar verða krappar beygjur, brýr og fleiri staðir þar sem slys hafa orðið.

Ekkert sést til mótmælenda

Ekkert hefur sést til mótmælenda á Kárahnjúkum en þeir hugðust setja upp tjaldbúðir þar í gær á lengsta degi ársins. Lögregla hefur verið á svæðinu í dag en þar hefur verið kalt og var hiti aðeins tvær gráður í morgun.

Kom ekki að samrunaheimild

Gylfi Magnússon, formaður stjórnar Samkeppniseftirlitsins, vísar á bug yfirlýsingum framkvæmdastjóra Iceland Express um meint vanhæfi samkeppnisyfirvalda til að taka á deilum tengdum Flugleiðum.

Slógust tveir við lögreglu

Tveir menn um tvítugt voru handteknir snemma í gærmorgun eftir tilraun til að brjótast inn í söluturninn Sunnutorg við Langholtsveg um nóttina. Til mannanna sást þar sem þeir voru að reyna að komast inn um klukkan hálf fimm um nóttina, en að sögn lögreglu virtist sem styggð hafi komið að þeim þegar þjófavarnarkerfi fór í gang.

Ungs manns enn leitað

Lögregla leitar enn ungs manns sem komst undan í Heiðmörk á mánudagsmorguninn eftir að þar var kveikt í stolnum bíl. Lögreglan í Hafnarfirði var kölluð til og handsamaði hún á staðnum tvo 17 ára pilta og 15 ára gamla stúlku.

Kleifarvatnshrina að ganga niður

Klukkan hálf átta í gærmorgun reið yfir jarðskjálfti upp á 3,5 á Richter við vestanvert Kleifarvatn á Reykjanesi. Sekúndu fyrr mældist annar um 2,5 á Richter. Að sögn Steinunnar S. Jakobsdóttur, deildarstjóra hjá Veðurstofunni, virtist hrinan í gær vera að ganga niður með eðlilegum hætti.

Rotaðist í Brynjudal í Hvalfirði

Maður var fluttur á slysadeild Landspítala-Háskólasjúkrahúss eftir vinnuslys í Brynjudal í Hvalfirði nokkru fyrir hádegi í gær. Maðurinn fékk högg á höfuðið og missti við það meðvitund þegar hann var að losa slyskju sem rann til og skall á hann.

Eldur í ónýtri rútu

Slökkvilið Reykjanesbæjar var kallað að Helguvík rétt eftir klukkan fjögur á aðfararnótt miðvikudags en þar logaði eldur í ónýtri rútu á ruslahaug. Í greinargerð lögreglu um málið kemur fram að tjón hafi ekki hlotist af og slökkvilið slökkti í rútunni.

Eggert tapaði í héraði

Eggert Haukdal, fyrrum oddviti Vestur-Landeyjahrepps, tapaði í gær máli sem hann höfðaði á hendur hreppnum í febrúar árið 2002 til greiðslu á rúmlega fjórum milljónum króna auk dráttarvaxta. Sveitarfélagið, sem heitir nú Rangárþing eystra, var sýknað af kröfum Eggerts.

1000 dagar frá síðasta vinnuslysi

Starfsmenn Íslenska járnblendifélagsins á Grundartanga fagna því í dag að 1000 dagar eru liðnir frá því að síðast varð vinnuslys sem leiddi til fjarveru starfsmanns félagsins. Margþætt starf hefur stuðlað að þessum árangri.

Karlar leita sér frekar hjálpar

Meginástæða þess að sjálfsvígum karla hefur fækkað á undanförnum árum er að þeir eru frekar tilbúnir að ræða vandamál sín og leita sér hjálpar en áður. Þetta segir landlæknir.

Óbreyttur heildarkvóti

Árni Mathiesen sjávarútvegsráðherra heldur sig við ráðgjöf Hafrannsóknastofnunarinnar og heimilar veiðar á 198 þúsund tonnum af þorski og 105 þúsund tonnum af ýsu á næsta fiskveiðiári.

Ríkisendurskoðun hirtir ráðherra

Í skýrslu sem Ríkisendurskoðun birti í gær um framkvæmd fjárlaga segir að forstöðumenn og ráðuneyti bregðist of seint við þegar ljóst sé að rekstur stofnana kosti meira en sem nemur fjárveitingum.

Varaformannskosning í lagi

Sérstök athugun á framkvæmd landsfundar Samfylkingarinnar í maí síðastliðnum leiddi meðal annars í ljós að ekki var reynt að kjósa fyrir aðra í varaformannskjöri flokksins.

Forstöðumönnum verði refsað

Mörg dæmi eru um að ríkisstofnanir fari fram úr fjárheimildum ár eftir ár en engin dæmi eru hins vegar um að ráðuneyti áminni forstöðumenn eins og lög gera ráð fyrir. Þetta segir ríkisendurskoðandi sem telur alvarlega misbresti á framkvæmd fjárlaga.

Gaf virkjanaleyfi á einkajörð

Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra braut gegn andmælarétti landeigenda Reykjahlíðar með leyfisveitingu til Landsvirkjunar vorið 2002, samkvæmt dími sem féll í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Leyfið var þó ekki fellt úr gildi en málskostnaður var felldur niður.

Verðmæti heildaraflans eykst

Leyfilegur heildarafli á næsta fiskveiðiári verður ekki meiri en á því fiskveiðiári sem er að ljúka. Samt er búist er við að útflutningsverðmæti aflans aukist um átta milljarða og verði 130 milljarðar króna.

Skilti með leiðbeinandi hraða

Ný umferðarskilti, sem eiga að leiðbeina ökumönnum um að lækka hraðann á hættulegum köflum, verða sett upp á þjóðvegum landsins á næstu vikum. Tölvuútreikningar eru notaðir til að ákvarða hve mikinn hraða einstakir vegarkaflar þola.

Byggingum frestað á Austurlandi

Fólksflutningar til Austurlands hafa gengið hægar en búist var við og hafa verktakar frestað íbúðabyggingum. Talsmenn Alcoa eru þó sannfærðir um að ekki þurfi að leita út fyrir landsteinana til að manna störf í álverinu.

Ráðningar gagnrýndar

Ungir Jafnaðarmenn harma hvernig staðið er að skipun í opinber embætti á Íslandi. Þetta kemur fram í ályktun framkvæmdastjórnar UJ, þar sem nýafstaðin skipun sendiherra Íslands er gagnrýnd.

GPRS-þjónusta hjá Og Vodafone

Og Vodafone hefur gert samning við Landssíma Íslands um GPRS-reikiþjónustu. GPRS er gagnflutningsþjónusta fyrir farsíma og gerir notendum kleift að miðla myndum, hreyfimyndum og gögnum. Einnig er hægt að vafra um á Netinu og sýsla með tölvupóst.

Heildarafli í samræmi við ráðgjöf

Sjávarútvegsráðherra undirritaði í dag reglugerð um leyfilegan heildarafla á fiskveiðiárinu 2005-6 sem hefst þann 1. september. Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að leyfilegur heildarafli verði í öllum aðalatriðum í samræmi við ráðgjöf Hafrannsóknastofnunarinnar.

Ósamræmi í uppsögnum hjá stofnunum

Umboðsmaður Alþingis segir ósamræmi hjá ríkisstofnunum þegar til uppsagna kemur. Starfsmaður ríkisstofnunar, sem sagt var upp störfum í sparnaðarskyni, kvartaði til umboðsmanns. Hann taldi að um málamyndagjörning hafi verið að ræða enda hefðu aðrir starfsmenn stofnunarinnar gengið í hans störf.

Vildu senda skýr skilaboð

Þremeningarnir sem handteknir voru fyrir að sletta grænu skyri á álráðstefnu gesti á Nordica-hóteli segja að ásetningur sinn hafi verið að trufla ráðstefnuna og senda skýr skilaboð til leiðtoga í þungaiðnaði um að Ísland sé ekki eins notalegt hreiður fyrir þá og þeir haldi. Einnig að veita öðrum innblástur til aðgerða gegn því samsæri fyrirtækja og stjórnvalda að svíkja af Íslendingum mikið af stórbrotinni náttúru landsins.

Vilja gagnabanka um barnaníðinga

Dómsmálaráðherrar átta helstu iðnríkja heims styðja einróma hugmynd Interpol um stofnun gagnabanka um þekkta barnaníðinga. Ráðherrarnir funda nú í Sheffield. Þeir hvetja lögreglu í ríkjunum að nýta sér slíkan banka til hins ítrasta. Þá hétu þeir því að legga þrjár milljónir evra til verkefnisins svo lögregla geti komið sér upp fullkomnasta tölvubúnaði sem völ er á í baráttunni við barnaníðinga.

Leitar fjórða manns vegna bílbruna

Lögreglan leitar enn fjórða mannsins vegna bíls sem kveikt var í í Heiðmörk í gærmorgun. Þremur ungmennum, 15 til 17 ára, var sleppt í gær eftir að þau játuðu sinn þátt í málinu. Lögreglu var tilkynnt um eldinn á sjötta tímanum í gærmorgun og þegar komið var á staðinn stóð bíllinn, sem hafði verið stolið, í ljósum logum og fjögur ungmenni í nágrenninu.

Bílar verði skoðaðir

Eigendur óskoðaðra bíla þurfa að kippa sínum málum í lag ef þeir vilja halda númeraplötunum. Lögreglan í Reykjavík og víðar er nú að veita þeim sem ekki hafa þessi mál á hreinu viðvörun auk þess sem klippt er af bílum þeirra sem augljóslega láta sér ekki segjast. Lögreglan leggur áherslu á að þessir hlutir komist í lag nú þegar sumarferðalögin á vegum landsins eru að hefjast.

Ásta Möller nýr formaður LSK

Ásta Möller, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, var kjörin formaður Landssambands sjálfstæðiskvenna á landsþinig sambandsins á dögunum. Ásta tekur við að Helgu Gurðúnu Jónasdóttur en með henni í stjórn voru kjörnar 11 konur.

Ekki hreyft við hvalveiðibanni

Ekki verður hreyft við hvalveiðibanninu á fundi Alþjóðahvalveiðráðsins sem fram fer í Ulsan í Suður-Kóreu. Tillaga Japana þess efnis að takmarkaðar veiðar í atvinnuskyni yrðu leyfðar eftir nær tveggja áratuga bann var felld. 29 þjóðir greiddu atkvæði gegn tillögunni en 23 voru henni hlynnt.

Tíðindalítill ríkisstjórnarfundur

Ríkisstjórnarfundur var haldinn formsins vegna í morgun og var mjög stuttur þar sem engin mál lágu fyrir. Aðeins mættu sex ráðherrar. Að loknum almennum umræðum var honum slitið.

Veiðar í atvinnuskyni ekki leyfðar

Ekki verður hreyft við hvalveiðibanninu á fundi Alþjóða hvalveiðráðsins sem fram fer í Ulsan í Suður-Kóreu. Ráðið felldi tillögu Japana um að takmarkaðar veiðar í atvinnuskyni yrðu leyfðar eftir nær tveggja áratuga bann.

Sjá næstu 50 fréttir