Fleiri fréttir

Nýr vefur sýslumanna

Sýslumannafélag Íslands hefur í samstarfi við dóms- og kirkjumálaráðuneytið opnað nýjan vef, syslumenn.is, sem inniheldur upplýsingar um verkefni sýslumanna og ýmsar leiðbeiningar til þeirra sem til embætta sýslumanna þurfa að leita.

Búnaður vari við leka

Væntanleg er reglugerð frá samgönguráðuneytinu um búnað til að vara við leka í fiskiskipum, að því er fram kemur á vef Landssambands íslenskra útvegsmanna.

Breytingar á Hellisheiði

Ákveðið hefur verið að hafa þrjár akreinar frá Litlu kaffistofunni að Hveradalabrekku og mislæg gatnamót við Þrengslaafleggjara á Hellisheiði, að því er sunnlenska vikublaðið Glugginn greinir frá.

Vorboðinn snemma á ferðinni

"Rauðmaginn er snemma á ferðinni, vorboðinn og við höfum verið að fá mikið af honum ," sagði Óskar Guðmundsson útgerðarmaður, en rauðmagi hefur verið nefndur vorboði. "Við erum farnir að fá rauðmaga í desember."

Bíll á varnargarði

Hálfþrítugur maður slasaðist alvarlega þegar hann missti stjórn á bifreið sinni og hafnaði á sjóvarnargarði við Faxagötu í Reykjavík skömmu fyrir klukkan átta í gærmorgun.

Segir risarækjueldi áhugavert

Sveitarstjóri Reykhólahrepps segir risarækjueldi vera mjög áhugavert verkefni við fyrstu sýn og á næstunni verði það skoðað betur. Ákvörðun um næstu skref verður tekin eftir að hreppsnefnd hefur kynnt sér viðskiptaáætlun sem starfsmenn Orkuveitu Reykjavíkur hafa gert um verkefnið.

Sextán árekstrar á þremur tímum

Sextán árekstrar urðu í höfuðborginni í gær á þremur klukkustundum, frá klukkan 10 í gærmorgun til klukkan 13. Lögregla kennir um hálku og mikilli umferð. Engin alvarleg slys urðu á fólki.

Mikið af loðnu fyrir norðan land

Hægt verður að auka útgefinn loðnukvóta verulega miðað við mælingar rannsóknarskipsins Árna Friðrikssonar sem nú standa yfir fyrir norðan land. Mikið er af loðnu þar. Leitarsvæði rannsóknarskipsins og níu loðnuskipa nær út af sunnanverðum Vestfjörðum norður og austur um til móts við Norðfjarðarflóa.

Úlit fyrir gott ferðaveður

Það er útlit fyrir gott ferðaveður á landinu í dag, að mati Vegagerðarinnar. Á helstu leiðum er annaðhvort fært eða verið að moka. Á Vestfjörðum er verið að opna bæði í Barðastrandarsýslu, Ísafjarðardjúpi og á Ströndum.

Misjafnar aðstæður á skíðasvæðum

Skíðasvæði landsmanna eru mörg hver opin í dag. Í Skálafelli er hæg austanátt og góðar aðstæður. Veður er hins vegar að versna í Bláfjöllum og aðeins diskalyftur eru opnar þar. Opið er í Hlíðarfjalli frá kl.10 til 17 í dag, en þar var norðvestan 2-4 og sjö stiga frost rétt fyrir kl. 10. Á Hengilssvæðinu var léttskýjað, 8-10 metrar á sekúndu og fjögurra stiga frost, en þar er opið til 17 í dag.

Segir ummæli Davíðs ömurleg

Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, segir ömurlegt að hlusta á viðbrögð utanríkisráðherra við skoðanakönnun Gallups um afstöðu almennings til Íraksstríðsins. Hann segir að forystumönnum ríkisstjórnarinnar væri nær að biðja þjóðina afsökunar.

Nefnd kanni stöðu sjávarútvegsins

Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra kynnti á fundi í Stykkishólmi í morgun að hann hygðist skipa nefnd sem ætlað er að gera úttekt á stöðu sjávarútvegsins í ljósi þeirrar hækkunar sem orðið hefur á gengi íslensku krónunnar og væntinga um að gengið haldist hátt um nokkurn tíma.

Suðurstrandarvegur endurbyggður

Langþráð endurbygging Suðurstrandarvegar milli Grindavíkur og Þorlákshafnar er að hefjast. Vegagerðin hefur boðið út fyrsta kaflann en óvíst er um framhald verksins þar sem hluti fjárveitingar verður fluttur í mislæg gatnamót í Svínahrauni.

Sjávarútvegsráðherra skipar nefnd

Nefnd hefur verið skipuð til þess að fjalla um sjávarútveginn og hágengið. Henni er ætlað að gera úttekt á stöðu sjávarútvegsins í ljósi þeirrar hækkunar sem orðið hefur á gengi íslensku krónunnar og væntinga um að gengið haldist hátt um nokkurn tíma.

Þjóðin eigi inni afsökunarbeiðni

Formaður Samfylkingarinnar segir að þjóðin eigi inni afsökunarbeiðni hjá utanríks- og forsætisráðherra vegna veru Íslands á lista þeirra þjóða sem studdu innrásina í Írak. Hann hvikar hvergi frá þeirri skoðun sinni að Ísland verði að taka af listanum.

Samningar í uppnámi

Í umræðum um málefni ítalska verktakafyrirtækisins Impregilo hafa forystumenn Alþýðusambandsins minnt félagsmálaráðherra á að kjarasamningar verða endurskoðaðir 1. nóvember.

Mikið mjólkað í fyrra

Mjólkurframleiðslan var með ágætum á árinu 2004 og lögðu bændur inn meiri mjólk í mjólkurbúin en þeir hafa gert í tæp tuttugu ár.

Grænmetisframleiðslan í óvissu

Að öllu óbreyttu stórhækkar verð á rafmagni til garðyrkjubænda um næstu mánaðamót. Unnið er að lausn málsins því verði ekki að gert mun grænmetisframleiðsla í landinu leggjast af.

Finni leiðir til þjóðaratkvæðis

Davíð Oddsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir að við endurskoðun stjórnarskrárinnar sé sjálfsagt að fundnar verði lýðræðislegar leiðir til þess að koma mikilvægum málum í þjóðaratkvæðagreiðslu.

Verðmæti eigna um 15 milljarðar

Verðmæti þeirra eigna sem seldar yrðu í tengslum við byggingu nýs sjúkrahúss við Hringbraut er um fimmtán milljarðar króna, segir Kristján L. Möller, þingmaður Samfylkingarinnar. Ekki hefur verið rætt í ríkisstjórn hvort nota eigi fjárhæðina sem fæst fyrir sölu Símans til að byggja nýjan spítala en málið verður rætt á næstunni.

Rýra kjör hinna lægst launuðu

Meint brot Impregilo á íslenskri vinnulöggjöf rýrir kjör þeirra lægst launuðu og veikir samkeppnisstöðu íslenskra fyrirtækja, að mati formanns Rafiðnaðarsambandsins. Hann bindur vonir við að Impregilo verði beitt sömu viðurlögum og íslensk fyrirtæki vegna brotanna.

Ólíkt hlutskipti kvennastétta

Fleiri flugfreyjur reykja og þær drekka oftar áfengi en kennarar eða hjúkrunarfræðingar. Flugfreyjurnar eru líka duglegri að stunda líkamsrækt. Þetta sýna nýjar niðurstöður rannsóknar sem tók til tengsla vinnu, heilsufars og lífsstíls í þremur hefðbundnum kvennastéttum.

Mikil loðna og kvóti aukinn

Hægt verður að auka loðnukvótann verulega miðað við þá loðnu sem fundist hefur í rannsóknarleiðangri Hafrannsóknastofnunarinnar. Rannsóknarskipið Árni Friðriksson hélt til leitar ásamt níu loðnuskipum fyrir um viku síðan og hefur verið leitað frá sunnanverðum Vestfjörðum austur að Norðfjarðarflóa.

Söfnuður stýri ekki Framsókn

Alfreð Þorsteinsson er harðorður í garð flokksbræðra sinna sem gagnrýna borgarfulltrúa flokksins. Formaður Framsóknarfélags vill nýja forystu en Alfreð segir hreinar línur að Hvítasunnusöfnuðurinn eigi ekki að stjórna flokknum. </font /></b />

Samhljómur Davíðs og Samfylkingar

Kristján Möller, þingmaður Samfylkingarinnar, fagnar hugmynd Davíðs Oddssonar utanríkisráðherra um að fjármagn sem ríkið fengi fyrir sölu Símans verði notað til stórs verkefnis, til dæmis að byggja nýtt sjúkrahús fyrir Landspítalann. Fyrir ári síðan lagði Kristján og fleiri þingmenn Samfylkingar fram þingsályktunartillögu þar sem þetta var lagt til.

Slys í Bandaríkjunum vekur ótta

Ekki er vitað hve mikið klórgas er á svæði Mjallar-Friggjar í Kópavogi. Fyrirtækið fær að klára að vinna birgðir sem það flutti með sér úr Reykjavík þó að starfsleyfi vanti. Íbúar eru áhyggjufullir. Bæjaryfirvöld taka ákvörðun 13. janúar. Slökkviliðið segir umhverfisslys geta orðið.

Vill banna starfsemina

Ómar Stefánsson, framsóknarmaður í bæjarráði Kópavogs, er mótfallinn því að klórgasverksmiðja fái starfsleyfi í Kópavogi. Hann vill að umhverfisráðherra beiti sér fyrir því að banna klórgasverksmiðjur í byggð.

Sluppu ótrúlega í bílveltu

Fimm manna fjölskylda virðist hafa sloppið þegar jeppi sem hún var í valt. Atvikið varð á Vesturlandsvegi sunnan við afleggjarann á Bröttubrekku um kvöldmatarleytið í gær.

Sendiherra í viðskiptum

Júlíus Hafstein, fyrrverandi borgarfulltrúi hóf störf í utanríkisráðuneytinu um áramótin. Júlíus mun hafa sendiherratign en starfa sem yfirmaður viðskiptaþjónustu utanríkisráðuneytisins. Verður hún aðskilin frá viðskiptaskrifstofu ráðuneytisins og einbeitir sér að útrás íslensks atvinnulífs.

Kveikt í bíl í Kópavogi í nótt

Kveikt var í sendibíl á Smiðjuvegi í Kópavogi í nótt og er málið í rannsókn. Í Hafnarfirði var maður tekin grunaður um ölvun við akstur og einn í Keflavík. Þar var líka tilkynnt um rúðubrot í hesthúsunum en lögregla á eftir að kanna það nánar.

Snjóflóð lokar veginum um Óshlíð

Hálka og vetrarfærð er í öllum landshlutum. Í Barðastrandarsýslu er ófærð og óveður milli Flókalundar og Reykhóla. Snjóflóð lokar veginum um Óshlíð en vonast er til að þar verði orðið fært fyrir hádegi. Í Ísafjarðardjúpi innan Súðavíkur er ófærð og þar verður ekki mokað í dag.

Skíðasvæði víða opin

Búið er að opna mörg af skíðasvæðum landsmanna og verða þau opin fram eftir degi. Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli við Akureyri er opið í dag milli kl.10 og17. Hólabraut, Fjarkinn og Hjallabraut eru opnar og göngubrautin er opin. Þar voru norðvestan fimm til sjö metrar á sekúndu klukkan 8.45 í morgun og sex stiga frost. Í Bláfjöllum verður opið frá kl.10 til 18 í dag og líka á Hengilssvæðinu. Þar er norðaustan átta til tíu og frost sjö til átta stig.

Miklar skemmdir í bruna í miðbænum

Miklar skemmdir urðu á húsi á horni Frakkastígs og Hverfisgötu þegar eldur kom þar upp laust eftir klukkan þrjú í nótt. Allt tiltækt slökkvilið var kallað á staðinn og gekk vel að ráða niðurlögum eldsins sem blossaði upp í bakhúsi.

Ísland ekki með í Íraksstríði

Íslendingar taka ekki þátt í stríðsrekstrinum í Írak. Þetta sagði Davíð Oddsson utanríkisráðherra á fjölmennum fundi Sjálfstæðisflokksins í Valhöll í dag. Ráðherra sagði að í aðdraganda ákvörðunar um stuðning við aðgerðir Bandaríkjamanna og Breta í Írak hefði verið ljóst að Íslendingar gerðu enga stóra hluti en stjórnvöld hefðu ekki viljað sitja hjá.

Átak gegn ofþyngd barna

Lýðheilsustöð er að ýta úr vör þróunarverkefni í samvinnu við sveitarfélögin í landinu til að bregðast við þeirri þróun að börn og ungmenni á Íslandi eru að þyngjast. Þetta er vaxandi vandamál í vestrænum löndum og samkvæmt niðurstöðum rannsókna er fimmtungur íslenskra barna yfir kjörþyngd.

Fárviðri í Danmörku

Þrír menn hafa látist í dag í fellibyl sem nú gengur yfir Danmörku og hluta Svíþjóðar. Karlmaður lést þegar tré féll á bíl við Ålykkeskóg í Óðinsvéum í Danmörku. Tveir aðrir létust þegar þak fauk af húsi í bænum Assens sem einnig er á Fjóni. Þá hafa heimilismenn á hjúkrunarheimili við bæinn Middelfart verið fluttir burt eftir að þakið fauk af húsinu.

Segir Íraksumræðu á villigötum

Davíð Oddsson utanríkisráðherra segir umræðu hér á landi um stuðning Íslands við innrásina í Írak á villigötum. Þá undrast hann að Gallup skuli hafa tekið þátt í uppþoti stjórnarandstöðunnar með því að kanna hug landsmanna til stríðsins. Spurningin hefði verið svo vitlaus að hann hefði sjálfur átt í vandræðum með að svara henni.

Á fjórða þúsund lagt fram fé

Á fjórða þúsund manns hefur lagt fram fé í söfnun Þjóðarhreyfingarinnar til að birta afsökunarbeiðni til íröksku þjóðarinnar í bandarísku dagblaði vegna stuðnings Íslands við innrásina í Írak. Þrátt fyrir gagnrýni á Gallup-könnun um hug þjóðarinnar til þess stuðnings verður niðurstöðum hennar gert hátt undir höfði.

Mótmæla stöðvun á vítamíndrykk

Forstjóri Ölgerðinnar Egils Skallagrímssonar, Andri Þór Guðmundsson, gagnrýnir að dreifing vítamínbætta drykkjarins Kristals Plús hafi verið stöðvuð.

Fé skynsamlegra en hjálpargögn

Litlar líkur eru á því að söfnunarféð vegna flóðanna í Asíu fari forgörðum að sögn Þóris Guðmundssonar, talsmanns Rauða krossins. Hann segir langtum skynsamlegra að senda peninga en hjálpargögn.

Nota mætti Símafé í sjúkrahús

Nota mætti þá fjármuni sem ríkið fær við sölu Símans til að reisa fullkomið sjúkrahús. Hugmyndinni varpaði Davíð Oddsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, fram og lét að því liggja að hugmyndinni hefði verið sprautað í æðar sér þegar hann gekkst undir sjúkrahúsmeðferð á síðasta ári. Þingmenn Samfylkingarinnar sjá ástæðu til að fagna.

Of feitum börnum fjölgar ekki

Of feitum börnum fjölgar ekki á Íslandi, öfugt við þá þróun sem margir telja að eigi sér stað. Samkvæmt nýrri íslenskri rannsókn virðist sem tekist hafi að sporna við henni.

Raforkuinnkaup eftir ár

Rafmagn verður að neysluvöru sem almenningur getur valið sér eftir hentugleika og verðsamanburði að ári liðnu. Í dag geta íbúar í fjölbýlishúsi í Breiðholti, eftir breytingar á raforkulögum, stofnað með sér félag um raforkukaup.

Hryggbrotnaði í vélsleðaslysi

Vélsleðamaður hryggbrotnaði þegar hann kastaðist af vélsleða sínum austan við Sauðafell á Mosfellsheiði á tólfta tímanum í gærmorgun. Maðurinn hafði ekið sleðanum ofan í dæld í landslaginu og kastaðist við það af sleðanum.

Ekið á barn í Breiðholti

Ekið var á barn á gangbraut á gatnamótunum við Stekkjarbakka og Þarabakka í Breiðholti laust fyrir klukkan tvö í gær. Barnið hlaut höfuðhögg við ákeyrsluna og var flutt á gjörgæsludeild Landspítala - háskólasjúkrahúss í Fossvogi til aðhlynningar. Betur fór en á horfðist og komst barnið fljótt til meðvitundar en það er enn á sjúkrahúsi.

Sjá næstu 50 fréttir