Rýra kjör hinna lægst launuðu 9. janúar 2005 00:01
Meint brot Impregilo á íslenskri vinnulöggjöf rýrir kjör þeirra lægst launuðu og veikir samkeppnisstöðu íslenskra fyrirtækja, að mati formanns Rafiðnaðarsambandsins. Hann bindur vonir við að Impregilo verði beitt sömu viðurlögum og íslensk fyrirtæki vegna brotanna. Impregilo hefur vísað á bug ásökunum ASÍ um að fyrirtækið brjóti samninga um kaup og kjör. Bent er á að forkólfar verkalýðsfélaganna hafi gengið svo langt að telja upp úr launaumslögum starfsmanna. Slík talning þarf þó ekki að segja alla söguna, samkvæmt ASÍ. Ef tekið er dæmi með hundrað þúsund króna heildarlaunum þá greiðir íslenskur starfsmaður um 40 prósent af þeirri upphæð í skatta. 60 þúsund krónur eru greiddar út. Í Portúgal er skattprósentan lægri, eða 20%. Heildarlaun portúgölsku starfsmannanna eru reiknuð niður og þeir fá því 80 þúsund krónur í heildarlaun í stað 100 þúsunda. Útborguð laun eru 60 þúsund. Impregilo sparar 20 þúsund krónur af hverjum 100 þúsundum. Að sögn Guðmundar Gunnarssonar, formanns Rafiðnaðarsambandsins, er skattprósentan í Kína enn lægri en í Portúgal, ef þá nokkur. Það gæti útskýrt áhuga Impregilo á því að ráða 250 kínverska starfsmenn enda hefur hagnaður fyrirtækisins af því að hafa erlenda starfsmenn í vinnu verið talsverður. Guðmundur segir hann skipta hundruðum milljóna. Um 1100 manns starfi að Kárahnjúka og þetta snerti 400-600 þeirra, en það væri þó misjafnt eftir tímabilum. Mennirnir borgi ekki skatta hér á landi og eins og hafi ítrekað komið fram í fréttum hafi fyrirtækið vikið sér undan á öllum sviðum að borga til íslensks samfélags. En af hverju ætti Íslendingum ekki að standa á sama þótt heildarlaun Portúgala eða Kínverja séu lægri ef þeir fá sömu upphæð í vasann og Íslendingur? Guðmundur svarar því á þá leið að ef það eigi að skapa þá aðstöðu að það sé hægt að flytja til landsins vinnuafl sem sé hér fimm til sex mánuði á ári og búi í vinnubúðum en hafi sína fjölskyldu erlendis þá sé verið að opna veiðileyfi á þá sem minnst megi sín, láglaunafólk. Verið að flytja störf úr landi. Þeir sem hafi það skítt hér á landi hafi það enn verr ef til þessa komi. Félagsmálaráðherra hefur verið sakaður um undanlátssemi gagnvart ítalska verktakanum. Hann fór þess á leit við ASÍ að sambandið greindi sér frá því í hvaða atriðum stjórnvöld uppfylltu ekki skuldbindingar sínar gagnvart lögum og alþjóðasamningum. Þá greinargerð fékk hann í hendur nú um helgina. Guðmundur segist vonast til þess að í kjölfarið muni ráðamenn beita sömu viðurlögum gagnvart Impregilo og íslenskum fyrirtækjum sem gerast brotleg. Hann segist hafa staðfestan grun um að Impregilo sé að prófa hvort það komist upp með brot sín þangað til það sé orðið of seint að gera eitthvað í málinu vegna þess að virkjunin verði nánast tilbúin. Þá fari fyrirtækið og skilji eftir sig allan halann.
Fréttir Innlent Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Margaret Hamilton er látin Erlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Erlent Fleiri fréttir Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Sjá meira