Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Þrjú ár fyrir kynferðisbrot Fertugur karl var dæmdur til þriggja ára fangelsisvistar í Héraðsdómi Reykjaness í dag fyrir að hafa beitt fósturdóttur sína grófu kynferðislegu ofbeldi og leitað á vinkonu hennar. Dómarinn segir ákærða ekki eiga sér neinar málsbætur og ljóst að brot hans geti valdið stúlkunum margvíslegum sálrænum erfiðleikum. 25.10.2004 00:01
Góð rödd gerir gæfumuninn Nýleg rannsókn á röddum formanna íslensku stjórnmálaflokkanna sýnir að djúpar, yfirvegaðar raddir eru mest sannfærandi. Leiðtogarnir fimm eru afar misjafnir í þessu tilliti. 25.10.2004 00:01
Vímuefnaneysla eykst í verkfalli Kennaraverkfallið er að skapa hættulegt ástand í sumum hverfum borgarinnar að mati Láru Björnsdóttur, félagsmálastjóra Reykjavíkurborgar. Félagsmálaráð borgarinnar ákvað að fylgjast sérstaklega með ungmennum í borginni eftir að verkfallið hófst. Unglingafulltrúar sem hafa farið um hverfin sjá að vímuefnaneysla unglinga er að aukast að sögn Láru. 25.10.2004 00:01
Þremenningarnir á leiðinni heim Íslensku friðargæsluliðarnir sem særðust í sjálfsvígssprengjuárás í Kabúl í Afganistan á laugardag koma heim í sjúkraleyfi á föstudag. Tveir þeirra fara aftur til Kabúl eftir viku til tíu daga en óvíst er hvort Stefán Gunnarsson fari aftur út. Hann slasaðist mest af Íslendingunum í árásinni, fékk sprengjubrot í fót og neðri hluta líkamans. Afgönsk stúlka og bandarísk kona létust í árásinni. 25.10.2004 00:01
Misbeita ríkisvaldi vegna R-lista Sveitarfélögin fá ekki auknar tekjur á meðan Sjálfstæðisflokkurinn er í ríkisstjórn og Reykjavíkurlistinn er við völd í Reykjavík. Þetta segir Stefán Jón Hafstein, borgarfulltrúi Reykjavíkurlistans og formaður framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar. 25.10.2004 00:01
Koma heim í lok vikunnar Íslendingarnir þrír sem særðust í sjálfsmorðsárásinni í Kabúl á laugardag koma heim til Íslands í lok vikunnar. Þeir ætla að hugsa sinn gang og meta framhaldið, en halda líklega aftur til Afganistans eftir sjúkraleyfi. 25.10.2004 00:01
Vilja álit Umboðsmanns barna Reykjavíkurborg ætlar að fá Umboðsmann barna til að svara því hvort réttur kennara til að fara í verkfall, eða skylda sveitarfélaganna til að veita börnum fræðslu sé sterkari Foreldrar grunnskólabarna hafa bent á í verkfallinu að á Íslandi sé skólaskylda og réttur barna til menntunar skilgreindur í lögum. 25.10.2004 00:01
Bólusetning virkar bara á 25% Bólusetning gegn flensu virkar einungis á einn af hverjum fjórum sem láta bólusetja sig, samkvæmt nýrri viðamikilli rannsókn. Ítalskur læknir sem stóð að henni segir það ekki góða fjárfestingu fyrir fyrirtæki að bólusetja alla starfsmenn sína eða að stuðla að því að bólusetja stóran hluta þjóðar. 25.10.2004 00:01
Fundur á morgun Ríkissáttasemjari hefur boðað samningafund í kennaradeilunni á morgun, eftir fundahöld með forsætisráðherra í dag. Áður stóð ekki til að halda fund fyrr en eftir tíu daga. Lög á deiluna eru ekki í bígerð, og ólíklegt að gripið verði til þess að setja málið í gerðardóm. Sveitarfélögin segja að síðasta tilboð standi enn. 25.10.2004 00:01
Fötluð börn fá gæslu Rúmlega 60 fötluðum börnum í Reykjavík hefur verið boðið að nýta frístundarheimili Íþrótta- og tómstundaráðs í verkfalli kennara. 25.10.2004 00:01
Enginn fundur hjá undanþágunefnd Ekki hefur verið boðað til fundar hjá undanþágunefnd Kennarasambandsins og sveitarfélaga. 25.10.2004 00:01
Aftur í Karphúsið án lausnar "Menn koma fullkomlega óbundnir til fundarins," segir Ásmundur Stefánsson ríkissáttasemjari sem boðað hefur samninganefndir kennara og sveitarfélaganna í Karphúsið eftir fund með forsætisráðherra. 25.10.2004 00:01
Áhyggjur 10. bekkinga í verkfalli Rannveig Elba Magnúsdóttir nemandi í tíunda bekk Háteigsskóla hefur miklar áhyggjur af áhrifum af verkfalli kennara á nám hennar. 25.10.2004 00:01
Átta í verkfalli Átta kennarar einkaskóla á höfuðborgarsvæðinu eru í verkfalli. Þar af eru sex kennarar af sextán í Ísaksskóla sem eru æviráðnir og á ábyrgð borgaryfirvalda, samkvæmt Eddu Huld Sigurðardóttur skólastjóra Ísaksskóla. 25.10.2004 00:01
Hagar kaupa Skeljung Hagar, sem reka Bónus og Hagkaup, hafa nú keypt Skeljung. Forstjóri Haga segir að neytendur njóti góðs af. Ekki stendur til að gera neinar breytingar á rekstrarfyrirkomulagi Skeljungs og verður fyrirtækið áfram rekið sem sjálfstætt hlutafélag. 25.10.2004 00:01
Kaldaljós með 8 tilnefningar Kvikmyndin Kaldaljós hlýtur átta tilnefningar til Eddunnar, íslensku kvikmyndaverðlaunanna. Karlar og konur eru nú í fyrsta sinn tilnefnd saman til leikaraverðlauna. Páll Steingrímsson fær heiðursverðlaun Eddunnar í ár, fyrstur íslenskra kvikmyndagerðarmanna. 25.10.2004 00:01
Börn hringja meira sjálf Börn eru í auknum mæli sjálf farin að tilkynna um ofbeldi og vanrækslu. Sjöfalt fleiri börn hringja í Neyðarlínuna vegna þessara mála nú en um síðustu áramót. Neyðarlínan, 112, hefur tekið á móti símtölum er varða barnavernd síðan rétt fyrir síðustu áramót, en í febrúar var þessi leið auglýst sérstaklega. 25.10.2004 00:01
Þolendurnir þurfa aðstoð Þolendur eineltis brotna saman og ná sér ekki nema með utanaðkomandi aðstoð hafi eineltið verið langt og viðvarandi. Rannsóknir sýna að í fyrstu hafa þolendur eineltis tilhneigingu til að leiða það hjá sér. 25.10.2004 00:01
Eitt hús á hættusvæði Stefanía Traustadóttir, bæjarstjóri í Ólafsfirði, segir húsið sem hýsir bæði heilsugæsluna og dvalarheimili bæjarins vera það eina sem er inni á hættusvæði samkvæmt nýju ofanflóðamati. Hún segir rétt að hafa í huga að líkurnar á flóði á húsin séu samt sem áður mjög litlar. 25.10.2004 00:01
Afneitun mæðra algeng Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu, segir almennt að þegar brotið er kynferðislega gegn börnum geti það oft valdið svo miklum sársauka hjá mæðrum barnanna að þær bregðist við með afneitun. Slíkt segir hann geta komið illa út gagnvart barninu sem sé skelfilegt en jafnframt segir hann að hægt sé að vinna með slíka hluti. 25.10.2004 00:01
Tveir fyrir dóm vegna bankaráns Tuttugu og eins árs maður hefur játað fyrir dómi að hafa framið vopnað bankarán í útibúi Búnaðarbanka Íslands á Vesturgötu í Reykjavík 17. nóvember í fyrra. Aðalmeðferð málsins var í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. 25.10.2004 00:01
Braut gegn fósturdóttur sinni Maður var í Héraðsdómi Reykjaness dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir að hafa haft samfarir og önnur kynferðismök við fósturdóttur sína. Hann var jafnframt sakfelldur fyrir að hafa káfað á vinkonu hennar og fyrir vörslu barnakláms. 25.10.2004 00:01
Barna íslenskar lesbíur í Danmörku Sambýliskonurnar Íris Dögg Jónsdóttir og Margrét Guðjónsdóttir neyddust til þess að fá tæknifrjóvgun í Danmörku á Írisi til að eignast langþráð barn. Einhleypar konur og lesbíur fá ekki tæknifrjóvgun á Íslandi en danskur hjúkrunarfræðingur nýtir glufu í þarlendri löggjöf til að greiða götu kvenna í þessari stöðu. 25.10.2004 00:01
Eldur í Ósk KE "Við vorum ný hættir að draga og vorum á heimleið þegar við sáum þá veifa til okkar," sagði Sverrir Þór Jónsson, á Brynhildi HF-83, þegar hann var á leið í land með Ósk KE-5 í togi eftir að kviknaði í bátnum um ellefu sjómílur norðvestur af Sandgerði. 25.10.2004 00:01
Ráðherra svarar verkfræðinemum Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra þekktist í gær boð verkfræðinema við Háskóla Íslands um að heimsækja þá og kynna sér skólastarfið. Nemarnir skoruðu á ráðherra að mæta í opnu bréfi sem þeir rituðu síðasta föstudag. 25.10.2004 00:01
Gögnin lágu fyrir Viðeigandi gögn lágu fyrir þegar Kópavogsbær úthlutaði byggingarfélaginu Viðari ehf. byggingarrétt fyrir fjölbýlishús við Ásakór í Kópavogi í febrúar síðastliðnum, að mati Gunnars I. Birgissonar, formanns bæjarráðs. 25.10.2004 00:01
Frestur sorpstöðvar framlengdur Sveitarstjórn Ölfuss hefur veitt stjórn Sorpstöðvar Suðurlands frest fram á miðvikudag í næstu viku til að ná samkomulagi um fyrirkomulag urðunar sorps, að sögn Einars Njálssonar sveitarstjóra Árborgar. 25.10.2004 00:01
Sölvi ráðinn skólastjóri Sölvi Sveinsson, skólameistari Fjölbrautaskólans við Ármúla, hefur verið ráðinn í starf skólastjóra Verslunarskóla Íslands. Núverandi skólastjóri, Þorvarður Elíasson, mun láta af störfum í ágúst á næsta ári. 25.10.2004 00:01
Langflestir eru sómakrakkar "Það hefur verið heldur dauft í verkfallinu," segir Þorleifur G. Sigurðsson, umsjónarmaður í Austurbæjarskóla þar sem hann hefur starfað í tólf ár, þegar hann er spurður að því hvað sé að frétta. 25.10.2004 00:01
Aldraðir fái boðlega þjónustu Framlag hins opinbera til tannlæknaþjónustu eldri borgara þarf að hækka, sagði Heimir Sindrason formaður Tannlæknafélags Íslands á málþingi sem félagið hélt um helgina. 25.10.2004 00:01
Einn Íslendinganna þungt haldinn Einn íslensku friðargæsluliðanna sem lentu í sjálfsmorðsárás í Kabúl í Afganistan í gær er þungt haldinn á sjúkrahúsi, samkvæmt því sem talsmaður friðargæsluliðs NATO í landinu segir. Samkvæmt frétt Reuters voru það íslenskir hermenn sem urðu fyrir árásinni. 24.10.2004 00:01
Skjálftavirkni í Mýrdalsjökli Nokkur skjálftavirkni hefur verið í Mýrdalsjökli í morgun, sá öflugasti 2,8 á Richter. Þá hefur jörð aðeins skolfið á Suðurlandi og á Hengilssvæðinu í nótt og í morgun. 24.10.2004 00:01
Erill hjá lögreglu á Ísafirði Erill var hjá lögreglunni á Ísafirði í gærkvöldi og í nótt, einkum í tengslum við dansleik sem einstaklingar héldu á Suðureyri. Tilkynnt var um eina líkamsárás en kæra hefur ekki borist. 24.10.2004 00:01
Ráðuneytið neitar fréttum Reuters Einn íslensku friðargæsluliðanna sem lentu í sjálfsmorðsárás í Kabúl í Afganistan í gær er þungt haldinn á sjúkrahúsi, samkvæmt því sem talsmaður friðargæsluliðs NATO í landinu segir. Hjá utanríkisráðuneytinu er fréttum Reuters vísað á bug. 24.10.2004 00:01
Íslendingar áfram í Afganistan Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segir að íslenska friðargæslan muni starfa áfram í Kabúl þrátt fyrir sjálfsmorðsárásina í gær þar sem þrír Íslendingar særðust. Farið verði yfir öryggisráðstafanir ásamt samstarfsþjóðunum. 24.10.2004 00:01
Ræðumaraþoninu lokið Ræðumaraþoni Kvenréttindafélags Íslands lauk á hádegi en þá hafði það staðið í sólarhring. Rúmlega hundrað konur tóku til máls, sú yngsta sjö ára en sú elsta vel yfir sjötugt. Með maraþoninu var áheitum safnað sem renna eiga í menningar- og minningarsjóð kvenna. 24.10.2004 00:01
Stjórnvöld fordæma árásina Íslensk stjórnvöld fordæma harðlega sprengjuárásina í Kabúl í gær þar sem tveir íslenskir friðargæsluliðar særðust og einn skrámaðist. Þá fordæma stjórnvöld yfirlýsingu talíbana í kjölfar árásarinnar, í garð erlendra friðargæslusveita í Afganistan sem eru í landinu í umboði Sameinuðu þjóðanna við endurreisnarstarf. 24.10.2004 00:01
Holtasóley er þjóðarblóm Sama Sömum brá í brún þegar Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra tilkynnti heimsbyggðinni á föstudag að Íslendingar hefðu valið sér holtasóley sem þjóðarblóm. Holtasóleyin hefur nefnilega verið þjóðarblóm í Lapplandi um árabil enda afar algeng þar í landi. 24.10.2004 00:01
Ferðin ekki verkfallsbrot Skólastjóri Ingunnarskóla segir fyrirhugaða námsferð kennara til Bandaríkjanna á föstudag eiga eftir að gagnast nemendum vel. Formaður Kennarasambandsins segir þegar búið að greiða fyrir þá vinnu sem þarna fari fram og vinnan því ekki verkfallsbrot. 24.10.2004 00:01
Eftirvænting á Hvammstanga Íbúar Hvammstanga bíða spenntir eftir að berja útsendingar Skjás eins augum. 24.10.2004 00:01
Stefán áfram á sjúkrahúsi Stefán Gunnarsson, friðargæsluliði í Afganistan, fékk sprengjubrot í fót og neðri hluta líkamans við sjálfsmorðsárásina í Kabúl í Afganistan á laugardag. Arnór Sigurjónsson, skrifstofustjóri Íslensku friðargæslunnar, segir Stefán verða áfram á sjúkrahúsi. Ellefu ára afgönsk stúlka og 23 ára bandarísk kona létust í sjálfsmorðsárásinni. 24.10.2004 00:01
Varð alvarleikinn ljós í fréttum Eyrún Björnsdóttir, eiginkona Stefáns Gunnarssonar, íslenska friðargæsluliðans sem slasaðist í Kabúl á laugardag, segist hafa það þokkalegt eftir að hún náði í Stefán og gat talað við hann. Sprengjuárásin var á laugardagsmorgun en hún náði ekki tali af honum fyrr en í fyrrinótt. 24.10.2004 00:01
Milljónatjón á Neskaupstað Harður árekstur varð við bryggjuna á Neskaupstað laust fyrir klukkan hálf níu í gærmorgun, þegar skip Samherja, Baldvin Þorsteinsson EA, keyrði á bryggjuna með þeim afleiðingum að hún stórskemmdist. 24.10.2004 00:01
Fíkniefnaneytandi ók undir áhrifum Ökumaður var stöðvaður á Dalvík í fyrrinótt, grunaður um að hafa ekið undir áhrifum fíkniefna 24.10.2004 00:01
Rann út á gatnamótin Ekki urðu meiðsli á fólki við árekstur tveggja bíla á mótum Dalsbrautar og Borgarbrautar á Akureyri í gærdag. 24.10.2004 00:01