Fleiri fréttir

Stöðumælagjöld greidd með gsm

Á næstunni verður hægt að greiða stöðumælagjöld í Reykjavík með gsm-símum. Samningur Reykjavíkurborgar um þetta við félögin Góðar lausnir ehf. og Farsímagreiðslur ehf. verður undirritaður í dag. Árni Þór Sigurðsson, formaður samgöngunefndar Reykjavíkur, segir að það muni líða tvær til fjórar vikur frá undirritun samningsins þar til kerfið verði tekið í notkun. "Við vonum að þetta verði komið fyrir jólatraffíkina," segir Árni.

Verðbólga verður rúm 6%

Verðbólga verður rúm sex prósent í upphafi árs 2007 samkvæmt hagspá Landsbankans fyrir árin 2004 til 2010. Í spám fjármálaráðuneytisins er hins vegar gert ráð fyrir að verðbólga haldist á bilinu þrjú til 3,5 prósent fram til ársins 2007, en þá muni hún lækka í tvö prósent.

Þrýstingi létt af ríkisstjórninni

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, skrifaði undir viljayfirlýsingu sambandsins, félagsmálaráðherra og fjármálaráðherra um áhersluatriði í samningaviðræðum ríkis og sveitarfélaga án þess að bera hana undir stjórn sambandsins eða fulltrúa sambandsins í svonefndri tekjustofnanefnd. Fjallar sú nefnd meðal annars um tekjuskiptingu ríkis og sveitarfélaga.

Segir herþoturnar óþarfar

Framtíðarhópur Samfylkingarinnar undir forystu Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur varaformanns skilaði af sér áfangaskýrslum á flokksstjórnarfundi á laugardag. Þar kemur meðal annars fram sú skoðun að Íslendingar eigi að taka við rekstri flugvallarins í Keflavík.

Herþoturnar mikilvægar

Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra og einn helsti talsmaður Sjálfstæðisflokksins í utanríkismálum, segir að pólitískt gildi varnarbúnaðar, eins og orrustuþotna, skipti verulegu máli við öryggisgæslu.

Hléið varð til happs

Betur fór en á horfðist þegar eldur kom upp í þjóðleikhúskjallaranum í gærkvöldi. Um 800 manns voru í þjóðleikhúsinu á tveimur leiksýningum en greiðlega gekk að rýma hússið. Það vildi til happs að hlé var á leiksýningunni þegar brunavarnakerfið fór í gang.

Teknir fyrir að hafa í haldi dóp

Lögreglan í Kópavogi handtók í gær tvo menn og gerði upptæk tæplega 400 grömm af kannabisefnum, e-töflum og amfetamíni í húsi í austurbæ Kópavogs. Þá fannst líka töluvert af landa í húsinu. Mönnunum var sleppt að loknum yfirheyrslum og telst málið upplýst. Einn ökumaður var tekinn í Kópavogi grunaður um ölvun við akstur, og annar í Keflavík.

Hrefna heldur suður um höf

Ingibjörg Helga heitir hrefna ein sem merkt var með gervihnattamerki í Faxaflóa í haust. Samkvæmt upplýsingum Hafrannsóknarstofnunar hefur hún nú haldið suður í höf, yfir þúsund sjómílna leið. Hrefnan Ingibjörg var merkt þann 14. september, en rúmri viku síðar synti hún hratt vestur að landgrunnsbrún og hélt sig þar í nokkra daga.

Fljúgandi hálka á Holtavörðuheiði

Fljúgandi hálka er efst á Holtavörðuheiði að sögn lögreglunnar í Borgarnesi. Hún biður fólk að fara varlega og hafa í huga að ísing á vegum geti verið lúmsk þannig að fólk átti sig ekki á hálkunni fyrr en í vandræði er komið. Lítill jeppi valt á tíunda tímanum, en farþegi og ökumaður sluppu án teljandi meiðsla. Að mati lögreglu skipti bílbeltanotkun þar sköpum. Nánast á sama tíma fór annar bíll út af veginum en þar urðu heldur ekki nein slys.

Sjálfstæðismenn nota verkfallið

Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, segir Sjálfstæðisflokkinn vera að notfæra sér verkfall grunnskólakennara til að ýta undir hugmyndir um einkavæðingu skólakerfisins. Það sé ástæða þess að flokkurinn þráast gegn því að ríkisstjórnin komi að lausn deilunnar.

Greiða atkvæði um rannsóknir

Vestmannaeyingar greiða atkvæði um það á næstunni hvort bæjarsjóður eigi að greiða fyrir rannsóknir vegna jarðganga milli lands og eyja. Samþykkt var í bæjarstjórn á fimmtudag að kanna vilja bæjarbúa vegna þessa en búist er við að rannsóknirnar muni kosta á bilinu fimmtíu til áttatíu milljónir króna.

Þjóðleikhúsið rýmt eftir eld

Rýma þurfti Þjóðleikhúsið í gærkvöld eftir að eldur kom upp í eldhúsi Þjóðleikhúskjallarans. Um átta hundruð manns voru í húsinu þegar brunavarnarkerfið fór í gang en svo vel vildi til að hlé var á leiksýningunum Edith Piaf og Svört mjólk.

Eiga að hætta í aukaatriðum

Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra og varaformaður Framsóknarflokksins segist hafa þungar áhyggjur af áhrifum verkfalls grunnskólakennara á fjölskyldurnar í landinu. Hann segir nausynlegt að deiluaðilar hætti að hugsa um aukaatriði og fari að snúa sér að því að leysa deiluna.

Líklega öll farin

Landhelgisgæslan telur allar líkur á að Rússaskipin sem voru austur fyrir landi séu farin. Gæslan er nú í könnunarflugi yfir staðinn. Á miðvikudag bárust þau skilaboð að skipin myndu verða á Þistilfjarðargrunni fram á sunnudag.

Fimm ára afmæli Krafts

Lífið er núna var yfirskrift fimm ára afmælishátíðar Krafts sem haldin var í miðborg Reykjavíkur í dag. Kraftur er stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur þeirra. Félagsmenn hvöttu fólk til að fagna lífinu og minnast þess að átta þúsund Íslendingar sem greinst hafa með krabbamein eru á lífi á Íslandi í dag.

Kjúklingabaunir valda bruna

Eldur kom upp í eldhúsi kaffihússins Café Puccini við Vitastíg seinnipart laugardags. Kokkurinn hafði skilið eftir pott með kjúklingabaunum á heitri hellu á meðan hann brá sér frá í Bónus

Feðgar týnast á Esjunni

Neyðarlínunni barst símtal úr farsíma um fimmleytið í gær frá karlmanni sem var týndur ásamt sex ára syni sínum á Esjunni og báðu þeir um hjálp.

Rússarnir farnir

Landhelgisgæslan ályktar að rússnesku herskipin sem hafa verið við æfingar við strendur landsins séu farin en flogið var yfir svæðið í gærmorgun þar sem þau höfðu haldið sig og sást ekki lengur til skipanna.

Tækjakostur sýndur fólki

Í tilefni af 30 ára afmæli gjörgæslunnar við Hringbraut var boðið upp á opna dagskrá á Landspítalanum í gær.

Tölur liggja fyrir upp úr 11

Sveitarstjórnarkosningar voru haldnar í nýja sveitarfélaginu á Héraði í dag. Ekki er von á fyrstu tölum fyrr en upp úr klukkan ellefu í kvöld. Kjörsókn í sveitarstjórnarkosningunum í nýja sameinaða sveitarfélaginu á Héraði fór rólega af stað, en tók þó við sér þegar líða tók á daginn. Ríflega 2100 manns eru á kjörskrá og geta þeir valið á milli fjögurra lista.

Auðvelt að klúðra uppeldi hunda

Ekki eru allir á eitt sáttir að banna eigi innflutning á Doberman og Rottweiler-hundum, en hundar þessarar tegundar ollu ótta í Seljahverfinu fyrir rúmri viku þegar þeir rifu í sig kött og veltu barnavagni með barni í.

Mótmælir einkarétti verslana

Bónus og Hagkaup hafa haft einkarétt á því í átta ár að versla með matvörur í Spönginni í Grafarvogi. Nóg er komið af einokunarverslun segir fyrrverandi borgarfulltrúi sem stefnir borginni fyrir hönd íbúa og fyrirtækis í grenndinni.

Ólæsi er enn mikið á Íslandi

Starfshópur á vegum menntamálaráðuneytisins komst að þeirri niðurstöðu fyrir tveimur árum að líklega ættu um fimmtán þúsund Íslendingar á fullorðinsaldri við umtalsverða lestrarörðugleika að stríða. Starfshópurinn lagði til hugmyndir um úrbætur en síðan þá hefur ekkert gerst þó svo að kostnaðurinn við úrlausn vandans sé ekki mikill.

Geðheilbrigðisþjónusta í ólestri

Sveinn Magnússon framkvæmdastjóri Geðhjálpar segir geðheilbrigðisþjónustu í fangelsum á Íslandi óviðunandi. Hann segir að stofnanir sem heyri undir ólík ráðuneyti verði að vinna saman og sníða lausnir sem henti þörfum fólks en ekki varpa því út á götu ef það á ekki heima á viðkomandi stofnunum.

Umber ástandið í bili

Íslensk stjórnvöld voru ekki með puttana í kaupum Landssímans á meirihluta bréfa í Skjá einum, segir Geir H. Haarde fjármálaráðherra. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra segist umbera þetta um tíma þar sem Landssíminn verði seldur.

Voru komnir óþægilega nálægt

Æfingar rússneska flotans voru óþægilega nærri ströndum landsins, að mati íslenskra stjórnvalda. Því var beðið um upplýsingar frá rússneskum stjórnvöldum. Flotinn hefur lokið æfingum sínum og er farinn. Rússnesk stjórnvöld segjast ekki hafa ætlað að ógna öryggi landsins. Skipin hafa undanfarna daga verið á Þistilfjarðargrunni.

Sjálfstæðismenn misnota verkfallið

Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, sakar Sjálfstæðisflokkinn um að nýta sér kennaraverkfallið til að ýta undir hugmyndir um einkavæðingu skólakerfisins.

Össur gagnrýnir aðgerðarleysi

Sjálfstæðisflokkurinn er að notfæra sér verkfallið til að ýta undir hugmyndir um einkavæðingu skólakerfisins að sögn Össurar Skarphéðinssonar, formanns Samfylkingarinnar.

Kjósendur velji lista

Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, sagði í ræðu sinni á flokkstjórnarfundinum í gær að það væri sérstakt hlutverk hreyfingar jafnaðarmanna að bregðast við því sem hann kallaði "lýðræðislega firringu" eða áhuga- og þátttökuleysi almennings í stjórnmálum.

Átján fíkniefnamál á tónleikum

Átján ungmenn, flest um og undir tvítugu, voru tekin með fíkniefni fyrir utan Laugardalshöllina áður en tónleikar hljómsveitarinnar Prodigy hófust á föstudagskvöldið.

Mikilvægast er að skipta máli

Eitt það mikilvægasta fyrir geðsjúkt fólk er að skipta máli í lífinu, hafa hlutverk í samfélaginu og finna að hlustað sé á það, segja fjórir geðsjúkir viðmælendur. Allir eru þeir nú þátttakendur í samfélaginu, án innlagna, með stuðningi Hugarafls.

Kristján kjörinn formaður

Kristján Gunnarsson var fyrir nokkrum mínútum kjörinn formaður Starfsgreinasambandsins. Fráfarandi formaður sambandsins er svartsýnn við þessi tímamót og óttast að forsendur kjarasamninga séu að bresta. 

Hundruð bíða eftir meðferð

Fleiri hundruð manns bíða eftir meðferð vegna geðsjúkdóma og sumstaðar eru læknar hættir að taka fólk á biðlista, segir Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir Samfylkingunni. Heilbrigðisráðherra vísar því á bug að stór hópur þessa fólks sé á götunni.

Tóbaksuppljóstrarinn á Íslandi

Maðurinn sem vann sér frægð fyrir að ljóstra upp um tóbaksframleiðendur er staddur hér á landi til að halda fyrirlestur um skaðsemi reykinga. 

Hlutabréfin í 507 krónur

Hlutabréf í KB banka hækkuðu upp í 507 krónur á markaði í gær eftir hlutafjárútboðið í fyrradag og hafa aldrei verið jafn hátt skráð. Lokagengi var 500 krónur og nam hækkun dagsins 1,1%. Gegngi í útboðinu var 480 krónur á hlut þannig að þeir sem keyptu þá fyrir væna fúlgu, hafa ávaxtað pund sitt vel á einum sólarhring. Seldir voru hlutir í bankanum fyrir rúma fimmtíu milljarða króna sem bankinn ætlar að nýta til frekari útrásar til Finnalnds og Bretlands.

Átök framundan

Kristján Gunnarsson, formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur, sem var kjörinn formaður Starfsgreinasambandsins til næstu tveggja ára á ársfundi sambandsins í gær, segir að framundan séu átök um tilverurétt verkalýðshreyfingarinnar.

Lögreglustöðin endurvígð

Lögreglustöðin á Akureyri verður endurvígð í dag eftir gagngerar breytingar á húsnæðinu. Þar verður jafnframt opnuð einskonar varabjörgunarmiðstöð fyrir björgunarmiðstöðina í Skógarhlíð, ef allt færi þar úrskeiðis á hamfaratímum. Þar er hægt að svara neyðarlínunni og þar er varafjarskiptamiðstöð fyrir ríkislögreglustjóra.

Varar við afskiptum

Arthur Bogason formaður Landssambands smábátaeigenda varaði í ræðu sinni á ársfundi Landssambands smábátaeigenda, við afskiptum sjálfskipaðra afla, sem berjast gegn fiskveiðum með örökstuddum fullyrðingum. Vitnaði hann þar til þess að alþjóðlegt bann vð við trollveiðum væri nú komið til umfjöllunar hjá Sameinuðuþjóðunum

Meðferð á Torfastöðum í lagi

Meðferð sem veitt var á Meðferðarheimilinu á Torfastöðum var í viðunandi samræmi við samning heimilisins við ríkið, samkvæmt úttekt Ríkisendurskoðunar. Hún telur að meðferðarheimilið gæti átt rétt á uppbótargreiðslu frá ríkinu.

Kögun kaupir í Opnum Kerfum

Kögun hefur keypt 33% hlut í Opnum Kerfum og á þá tæp 69% með þeim 35 prósentum sem fyrirtækið átti fyrir í Opnum kerfum. Kögun ætlar að gera öðrum hluthöfum í Opnum kerfum yfirtökutilboð á næstunni. Seljendur eru Fjárfestingabankinn Straumur, Íslandsbanki og Frosti Bergsson og félög honum tengd, en Frosti stofnaði Opin Kerfi. Í

Varar við sjálfskipuðum öflum

Arthur Bogason formaður Landssambands smábátaeigenda varar við afskiptum sjálfskipaðra afla, sem berjast gegn fiskveiðum með órökstuddum fullyrðingum.

Íslenskt félag með 3200 starfsmenn

Verið er stofna íslenskt eignarhaldsfélag, sem hefur yfir 60 flugvélar á sínum snærum í öllum heimsálfum og 3200 starfsmenn. Félagið heitir Avion group og er stofnað um Rekstur Atlanta í Bretlandi, breska félagið EXEL airways, Íslandsflug og Atlanta á Íslandi. Félagið tekur formlega til starfa um áramótin og verður Magnús Þorsteinsson stjórnarformaður þess.

Nóg komið af bullinu

Stjórn Foreldrafélagsins í Grandaskóla hvetur foreldra til að senda borgarfulltrúum Reykjavíkur bréf í dag þar sem þeim er sagt að axla ábyrgð sína í verkfallinu. Stjórnarmaður félagsins segir að borgarfulltrúum beri skylda til að bregðast við óskum foreldra og hann segir nóg komið af þessu bulli.

Deilt um fordæmi fyrir sektum

Olíufélögin höfnuðu tilboði Samkeppnisstofnunar í janúar um að greiða sektir á bilinu 300 til 480 milljónir því þau töldu víst að dómstólar lækki sektina umtalsvert. Það sé í samræmi við fordæmi í dómum á Norðurlöndunum. Samkeppnisráð lítur hins vegar til EES-reglna um sektir.

Skatttekjur aukast um tíund

Skatttekjur ríkisins fyrstu átta mánuði ársins voru 170 milljarðar sem er um tólf prósentum meira en á sama tímabili í fyrra. Innheimtir skattar á tekjur og hagnað einstaklinga og lögaðila námu 53,4 milljörðum króna og hækkuðu um 10,4% frá sama tíma í fyrra, að því er fram kemur í Vefriti fjármálaráðuneytisins.

Sjá næstu 50 fréttir