Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Leit vegna ólöglegrar dreifingar Þrjátíu manna lið Ríkislögreglustjóra og lögregluembætta víða um land gerði í gær húsleit hjá tólf einstaklingum á nokkrum stöðum á landinu vegna gruns um að þeir sæktu og dreifðu ólöglega til annarra, kvikmyndum, tónlist og tölvuforritum í gegnum Netið. Nokkrir voru handteknir. 29.9.2004 00:01
Stjórnmálasamband við þrjú smáríki Geir H. Haarde fjármálaráðherra hefur á síðustu dögum undirritað yfirlýsingar um stofnun stjórnmálasambands fyrir Íslands hönd við þrjú ríki: Gíneu-Bissá, Míkrónesíu og Vanúatú. Geir hefur setið 59. allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í New York undanfarna daga í fjarveru Davíðs Oddssonar utanríkisráðherra. 29.9.2004 00:01
LÍÚ segir þróunina uggvænlega Landsamband íslenskra útvegsmanna segir þróun á hráolíumarkaði hafa verið uggvænlega undanfarin tvö ár. Verð á hráolíu er nú komið í 50 dollara tunnan og af fréttum að dæma virðast meiri líkur en minni á að verð á hráolíu geti stigið enn frekar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá LÍÚ. 29.9.2004 00:01
Jón Steinar ráðinn Fréttastofan hefur heimildir fyrir því að gengið verði frá ráðningu Jóns Steinars Gunnlaugssonar í embætti Hæstaréttardómara síðar í dag. Það mun koma í hlut fjármálaráðherra, sem er settur dómsmálaráðherra í málinu, að skipa í embættið. 29.9.2004 00:01
Refsing fyrir að segja skoðun sína Þingflokkur Framsóknarflokksins útlokaði í gær Kristin H. Gunnarsson, þingmann flokksins, frá öllum fastanefndum Alþingis. Hann segir þetta vera refsingu fyrir að hafa sagt skoðun sína í viðkvæmum málum en ætlar engu að síður að starfa áfram innan flokksins. Honum er lítt gefið um áframhaldandi ríkisstjórnarsamstarf Framsóknar við Sjálfstæðisflokkinn. 29.9.2004 00:01
Metið á a.m.k. hundruðir milljóna Þrjátíu manna lið Ríkislögreglustjóra og lögregluembætta víða um land gerði í gær húsleit hjá tólf einstaklingum á nokkrum stöðum á landinu og handtóku nokkra vegna gruns um að þeir sæktu og dreifðu ólöglega kvikmyndum, tónlist og tölvuforritum í gegnum Netið. Verðmæti notkunar þess efnis sem um ræðir hleypur a.m.k. á hundruðum milljóna króna. 29.9.2004 00:01
Enginn bæjarstjóri mætir Enginn forystumanna stærstu sveitarfélaga landsins ætlar að mæta á fund sem Kennarasambandið hafði boðið þeim á í dag til að útskýra fyrir þeim sjónarmið kennara. Formaður Félags grunnskólakennara segir deiluna í hnút og ekki útlit fyrir að neitt uppbyggilegt verði á borðinu á fundi deilenda með ríkissáttasemjara á morgun. 29.9.2004 00:01
Axarmaður las Snorra Eddu í dómi Börkur Birgissson, sem ákærður er fyrir að hafa ráðist á mann með exi í Hafnarfirðir í byrjun september, las Snorra Eddu í réttarsal í gær. Börkur segist vera saklaus og stundar nám af kappi á Litla Hrauni. Fórnarlambið, Karl Ingi Þorleifsson, lá óvígur á eftir en lifði árásina af. Móðir Karls segir DV að hann sé enn með höfuðverk eftir árásina. 29.9.2004 00:01
Ráðuneytið staðfestir skipunina Dómsmálaráðuneytið hefur staðfest að Jón Steinar Gunnlaugsson, prófessor og hæstaréttarlögmaður, hafi verið skipaður dómari við Hæstarétt Íslands frá og með 15. október næstkomandi. 29.9.2004 00:01
Grunur um íkveikju á Blönduósi Talið er víst að rekja megi eldsvoðann á Blönduósi í fyrrakvöld til íkveikju. Þá brann fjögur þúsund fermetra iðnaðarhús við Efstubraut til grunna. Í fréttatilkynningu lögreglunnar á Blönduósi segir að rannsókn tæknideildar lögreglunnar í Reykjavík á vettvangi eldsvoðans hafi leitt í ljós rökstuddan grun um um íkveikju. 29.9.2004 00:01
Ákvörðun ráðherra kom ekki á óvart Eiríkur Tómasson, lagaprófessor og annar af hæfustu umsækjendum um stöðu dómara við Hæstarétt að mati dómara réttarins, segir að skipan Jóns Steinars Gunnlaugssonar komi honum ekki á óvart. Jón Steinar hefur samkvæmt tillögu Geirs H. Haarde, setts dómsmálaráðherra verið skipaður hæstaréttardómari frá og með 15. október næstkomandi. 29.9.2004 00:01
39 karlmenn og 2 konur Jón Steinar Gunnlaugsson er fertugasti og fyrsti einstaklingurinn sem er ráðinn dómari við Hæstarétt Íslands. Hann er jafnframt þrítugasti og níundi karlmaðurinn sem ráðinn hefur verið í dómarastöðu frá upphafi. 29.9.2004 00:01
Jón ekki einn um pólitík Skipan Jóns Steinars Gunnlaugssonar hæstaréttarlögmanns og prófessors í lögum við Háskólann í Reykjavík er ekki óvenjuleg ef einungis er borið saman við starfsferil núverandi og fyrrverandi dómara við réttinn. 29.9.2004 00:01
Opna skrifstofu í Færeyjum Samskip hafa opnað nýja skrifstofu í Þórshöfn í Færeyjum. Í fréttatilkynningu frá félaginu segir að í kjölfar þessa verði siglingaáætlunin endurskoðuð en skipið hefur siglt vikulega þangað síðan í sumar. 29.9.2004 00:01
2 mánuðir og 17 milljónir Rúmlega fimmtugur maður var dæmdur til tveggja mánaða fangelsisvistar í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag og til greiðslu rúmlega 17 milljóna króna fyrir að hafa ekki staðið skil á greiðslu virðisaukaskatts og staðgreiðslu opinberra gjalda á árunum 2001 og 2002. 29.9.2004 00:01
Netumferð minnkar um 40% Gagnaumferð á Netinu hér á landi hefur minnkað um 40% eftir aðgerð lögreglunnar og samtaka höfundarrétthafa í gær þar sem hald var lagt á tölvur og gögn í tólf húsleitum. 29.9.2004 00:01
Vissi af sviptingu Kristins Magnúsi Ólafssyni, formanni kjördæmissambands Framsóknarflokksins, var tilkynnt fyrir þingflokksfund Framsóknarflokksins í gærkvöld að til stæði að svipta Kristin H. Gunnarsson öllum nefndarsetum á vegum flokksins. Hann sagði í samtali við fréttastofu að honum hefði jafnframt verið sagt að Kristni yrði tilkynnt þessi ákvörðun fyrir fundinn. 29.9.2004 00:01
ADSL notkun hrundi Notkun á ADSL-neti Símans dróst saman um 50 til 60 prósent eftir að menn frá ríkislögreglustjóra lögðu hald á tölvur og tölvubúnað tólf einstaklinga í húsleitum í fimm lögregluumdæmum á þriðjudag. 29.9.2004 00:01
Fartölvum stolið Brotist var inn í þrjá bíla í Reykjavík í fyrrinótt og gærmorgun. Fartölvum var stolið úr tveimur bílanna, sem voru í Þingholtunum. 29.9.2004 00:01
Þarf að greiða milljóna sekt Fyrrum stjórnarformaður og framkvæmdarstjóri einkahlutafélags var í Héraðsdómi Reykjavíkur dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbunið fangelsi fyrir brot á virðisaukaskattslögum. 29.9.2004 00:01
Skemmdarvargarnir ófundnir Lögreglan á Höfn í Hornafirði hefur enn ekki haft upp á skemmdarvarginum eða -vörgunum sem fóru hamförum um Byggðasafn Austur-Skaftfellinga um síðustu helgi. Hún segist vera að vinna úr vísbendingum sem borist hafa og kortleggja ferðir einstakra manna. 29.9.2004 00:01
Þekkja má tengin á skröltinu Brögð eru að því að tjaldvagnar og fellihýsi sem hér eru seld séu með röngum tengibúnaði. Hjá Umferðarstofu fengust þær upplýsingar að vitað sé til þess að umboðsaðilar hefðu fyrir mistök í einhverjum tilvikum selt hér fellihýsi með amerískum tengjum, auk þess sem einstaklingar hafi sjálfir flutt inn vagna með röngum tengjum. 29.9.2004 00:01
Til hamingju, Jón Steinar! Einn umdeildasti maður landsins hefur verið skipaður dómari við Hæstarétt. Magnús Thoroddsen segir fréttirnar ánægjulegar. Pólitísk spilling, segir Hreinn Loftsson. Hann er mikið fyrir læri með rauðkáli og grænum baunum, segir Bergþór Pálsson. </font /></b /> 29.9.2004 00:01
Lítið fór fyrir skólamjólk í gær Kjaradeila sveitarfélaga og kennara raskar hátíðahöldum í tilefni af alþjóðaskólamjólkurdeginum sem haldinn var hátíðlegur í fimmta sinn í gær. Í tilefni dagsins var boðað til teiknisamkeppni meðal fjórðubekkjarnemenda landsins. 29.9.2004 00:01
Málshöfðun í farvatninu Hjördís Hákonardóttir mun leita réttar síns af endurnýjuðum krafti, að sögn Atla Gíslasonar lögmanns sem sinnir hagsmunum Hjördísar. Sem kunnugt er var það álit kærunefndar jafnréttismála að lög hefðu verið brotin á Hjördísi þegar síðast var skipað í Hæstarétt og hefur hún átt í samningaviðræðum við dómsmálaráðuneytið um lausn þess máls. </font /></b /> 29.9.2004 00:01
Oft á öndverðum meiði Jón Steinar Gunnlaugsson hefur tjáð sig um marga dóma Hæstaréttar og gagnrýnt hann í nokkrum tilvikum. Má því ætla að sumir dóma hans hefðu fallið á annan veg ef Jón hefði klæðst svörtu skikkjunni. 29.9.2004 00:01
Tekið á stafrænum rummungum Í Bandaríkjunum er verið að herða löggjöf um höfundarréttarbrot. Stafrænn hugverkaþjófnaður er talinn vaxandi vandamál víða um heim. Spjótum er beint bæði að tölvunotendum sem skiptast á skrám og þjófum sem afrita efni til sölu. 29.9.2004 00:01
Synir og tengdasynir hólpnir Aðstoðarslökkviliðsstjóri á Keflavíkurflugvelli vísar því á bug að fjölskyldutengsl ráði um hvort menn haldi vinnunni. 17 slökkviliðsmönnum hefur verið sagt upp á tveimur mánuðum. Fjórir yfirmenn tengjast slökkviliðsmönnum fjölskylduböndum. 29.9.2004 00:01
Kárahnjúkar í netsamband Vinnubúðir Impregilo við Kárahnjúkavirkjun hafa nú verið tengdar Internetinu auk þess sem símasamband við umheiminn hefur verið bætt í kjölfar samnings fyrirtækisins við Atlassíma um rekstur samskiptamiðstöðvar fyrir starfsmenn. 29.9.2004 00:01
Arnbjörg varaformaður þingflokks Sjálfstæðismenn gera nokkrar breytingar á skipan sinna manna í nefndum Alþingis. Þar ber hæst að Guðlaugur Þór Þórðarson verður formaður umhverfisnefndar í stað Sigríðar Önnu Þórðardóttur sem hefur tekið við starfi umhverfisráðherra. Þá hefur Arnbjörg Sveinsdóttir verði kjörin varaformaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins. 29.9.2004 00:01
Takmarkað byggingaleyfi gefið út Byggingafulltrúi gaf síðdegis í gær út takmarkað byggingarleyfi vegna framkvæmda við nýtt hótel í Eimskipafélagshúsinu. Eigendur húss í nágrenninu töldu að ráðist hefði verið í framkvæmdir, sem hófust á mánudag, í leyfisleysi. 29.9.2004 00:01
Ósammála skipan hæstaréttardómara Stjórnarflokkarnir voru ósammála um skipan hæstaréttardómara og segist Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra ekki leyna þeirri skoðun sinni að það hefði styrkt Hæstarétt verulega hefði Eiríkur Tómasson verið valinn í embættið. 29.9.2004 00:01
Hæstiréttur gekk fulllangt Lagaprófessorarnir Eiríkur Tómasson og Stefán Már Stefánsson stóðu að mati Hæstaréttar öðrum umsækjendum töluvert framar að hæfni, en ráðherra segir dóminn hafa gengið fulllangt í mati sínu. 29.9.2004 00:01
Einn handtekinn í viðbót Einn maður til viðbótar var handtekinn í morgun vegna rannsóknar á umfangsmiklu smygli á fíkniefnum til landsins. Hann hefur lítið komið við sögu fíkniefnamála áður. Fjórir sitja í gæsluvarðhaldi vegna málsins hér á landi og tveir til viðbótar eru í haldi lögreglu í Hollandi. 29.9.2004 00:01
Trúnaðarbrestur orsökin Formaður Framsóknarflokksins segir að samstarfsörðugleikar og trúnaðarbrestur hafi valdið því að flokkurinn hafi ekki viljað að Kristinn H. Gunnarsson tæki sæti í þingnefndum. 29.9.2004 00:01
Flugfreyjur ráða sig ekki að nýju Þrjátíu og fjórar flugfreyjur og flugþjónar hjá Iceland Express sem var sagt upp störfum í gær ætla ekki að þiggja endurráðningu hjá Astraeus, bresku flugrekstrarfélagi. Forsvarsmenn Iceland Express buðu fólkinu endurráðningu á sambærilegum kjörum og áður en með lengri vinnuskyldu og breyttum vaktatíma. 29.9.2004 00:01
Íkveikja á Blönduósi Kveikt var í atvinnuhúsinu sem brann á Blönduósi aðfaranótt þriðjudags. Tæknideild lögreglunnar í Reykjavík rannsakaði brunarústirnar og komst að þessari niðurstöðu. Enginn er grunaður um verkið að svo stöddu og er rannsókn málsins á frumstigi. 29.9.2004 00:01
Flugfreyjurnar vinna of lítið Uppsagnir íslenskra flugfreyja hjá Iceland Express eru siðlausar og grafa undan réttindum þeirra, segir formaður Flugfreyjufélagsins. Talsmaður Iceland Express segir flugfreyjurnar vinna of lítið. 29.9.2004 00:01
Vestfirðingar sviptir áhrifum Sveinn Bernódusson, formaður Framsóknarfélagsins í Bolungarvík, segir að þingflokkur Framsóknarflokksins hafi svipt Vestfirðinga eina talsmanninum sem þeir hafi átt í þingliðinu. 29.9.2004 00:01
Grandi vill fjöregg Vopnafirðinga Þreifingar standa nú yfir milli Granda hf og Tanga hf á Vopnafirði um kaup þeirra fyrrnefndu á meirihluta í Tanga. Vopnafjarðarhreppur og heimamenn hafa nú meirihlutavald í fyrirtækinu eftir kaup á hlut Eskju hf í fyrirtækinu fyrir rúmu ári. Grandi gæti þar með verið kominn mjög nærri svokölluðu kvótaþaki. Nánar í DV í dag. 29.9.2004 00:01
Vegið að réttarkerfinu Ráðherra hefur í tvígang hunsað umsögn Hæstaréttar við skipan hæstaréttardómara. Eiríkur Tómasson telur vegið að réttarkerfinu og vill að reglum um skipan dómara verði breytt. 29.9.2004 00:01
Fjárhagsvandi ekki mál kennara Getur verið að sveitarstjórnir landsins noti kennara til að þrýsta á ríkið um að leysa fjárhagsvanda þeirra? Að því spyr Hilmar Ingólfsson, skólastjóri Hofstaðaskóla í Garðabæ. "Ég kalla ríkisstjórnina og forsvarsmenn sveitarfélaganna til ábyrgðar á verkfalli kennara." 29.9.2004 00:01
Stjórnvöld ekki stikkfrí Samfylkingin telur að kennaraverkfallið sé í mjög illleysanlegum hnút sem ekki sé hægt að höggva á nema ríkisvaldið komi að málunum. 29.9.2004 00:01
Höfuðpaurar 100 manna hóps Tólf menn, sem grunaðir eru um stórfellda ólöglega dreifingu á kvikmyndum, tónlist og tölvuforritum á Netinu, voru handteknir í gær eftir umfangsmikla húsleit Ríkislögreglustjóra og lögreglu víða um land. Krafist hefur verið gæsluvarðhalds yfir einum þeirra. Hald var lagt á búnað í fórum mannanna en talið er að þeir séu höfuðpaurar í hundrað manna lokuðum hópi. 29.9.2004 00:01
Völdu kennslu í stað gjaldþrots Hluti kennara í Ísaksskóla, sem er einkarekinn ,hugðust fara í verkfall ásamt grunnskólakennurum sveitarfélaganna. Þeir hættu við þegar skólastjórnendur sögðu skólann verða gjaldþrota kæmi til verkfalls þeirra. 29.9.2004 00:01