Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Auka framlög til mannúðarmála um 200 milljónir Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að auka framlög sín til mannúðarmála um 200 milljónir króna en viðbótar framlögin renna til tveggja stofnana Sameinuð þjóðanna. Utanríkisráðherra segir mikilvægt að bregðast við alvarlegu ástandi þar sem fleiri hafa aldrei verið á flótta og hundruð milljónir manna þurfi á mannúðaraðstoð að halda í ár. 19.10.2022 17:09
Innanríkisráðherra Bretlands segir af sér og skýtur á Truss Suella Braverman, innanríkisráðherra Bretlands, mun láta af embætti eftir að hafa sent tölvupóst frá persónulegu netfangi sínu. Braverman hafði áður gagnrýnt u-beygju Truss og ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum harðlega en ríkisstjórnin er sögð hanga á bláðþræði. Talið er að fyrrverandi samgönguráðherra muni taka við af Braverman. 19.10.2022 16:28
Sláandi og sorglegt að sjá hatur framsett á sakleysislegan hátt í barnaefni Umdeilt kennslumyndband Votta Jehóva þar sem samkynhneigð er rædd hefur sætt mikilli gagnrýni. Myndbandið hefur lengi verið sýnt börnum innan safnaðarins. Stofnandi Hinseginleikans segir hatur matreitt ofan í börnin og þau beri það síðan með sér í sitt nærumhverfi. Óásættanlegt sé að trúfélag sem ríkið styrki dreifi hatri í skjóli trúfrelsis. Lög landsins verði að eiga um þau líka. 19.10.2022 15:45
Webb endurgerði frægustu mynd Hubble Hluti Arnarþokunnar sem hlaut nafnið Stöplar sköpunarinnar þegar Hubble-geimsjónaukinn gerði hann frægan fyrir meira en aldarfjórðungi er skarpari en nokkru sinni fyrr á mynd sem James Webb-geimsjónaukinn, arftaki Hubble, náði. 19.10.2022 15:43
Tunglið gæti hafa myndast á nokkrum klukkustundum Mögulegt er að tunglið hafi myndast mun hraðar en talið hefur verið fram að þessu. Hermun tölvulíkans bendir til þess að það kunni að hafa myndast á aðeins nokkrum klukkustundum eftir árekstur jarðarinnar við aðra frumreikistjörnu. 19.10.2022 15:04
Vísbendingar um að einelti hafi aukist eftir Covid Móðir tólf ára stúlku, sem reyndi að svipta sig lífi vegna hrottalegs eineltis, lýsir nær algjöru vonleysi í máli dóttur sinnar. Myndbönd af árásum jafnaldra á stúlkunna hafa vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum. Verkefnastjóri hjá Barnaheillum segir málið ólýsanlega sorglegt og að vísbendingar séu um að einelti hafi jafnvel aukist hér á landi eftir Covid. 19.10.2022 14:31
Ekki frítt í stæði fyrir rafmagnsbíla frá og með áramótum Reglur sem veita rétt til þess að leggja rafmagns- og metan-bílum endurgjaldslaust í gjaldskyld bílastæði í Reykjavík falla úr gildi um áramótin. Ekki er lengur talin þörf á slíkum ívilnunum. 19.10.2022 14:27
Bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar sækist eftir ritaraembættinu Arna Lára Jónsdóttir, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, ætlar að blanda sér í baráttuna um embætti ritara á landsfundi Samfylkingarinnar 28. og 29. október næstkomandi. Alexandra Ýr van Erven, hefur þegar greint frá því að hún hyggist bjóða sig fram til endurkjörs. 19.10.2022 14:16
Anna María hlaut Hugrekkisviðurkenningu Stígamóta Anna María Bjarnadóttir hlaut Hugrekkisverðlaun Stígamóta í ár. Anna María steig fram á samfélagsmiðlum í maí á þessu ári og sagði að tveir íslenskir karlmenn, annar þjóðþekktur, hefðu nauðgað sér árið 2010. 19.10.2022 14:08
„Alvarleg vanræksla og mistök“ hjúkrunarheimilis í aðdraganda andláts manns Heilbrigðisráðuneytið hefur staðfest málsmeðferð embættis landlæknis í máli þar sem aðstandandur látins manns kvörtuðu til landlæknis vegna meðferðar sem manninum hafi verið veitt á hjúkrunarheimili síðasta rúma ár ævi hans. Embætti landlæknis hafði komist að þeirri niðurstöðu að „alvarleg vanræksla og mistök“ hefðu átt sér stað þegar manninum var veitt heilbrigðisþjónusta, mánuðina fyrir andlátið. 19.10.2022 13:54
Norræna hættir að sigla til Íslands yfir háveturinn Norræna mun hætta siglingum til Íslands yfir háveturinn frá og með næsta ári. 19.10.2022 13:12
Sprengdu upp inngang stærsta fangelsis Mjanmar Tvær sprengjur voru sprengdar við inngang Insein-fangelsisins í Yangon í Mjanmar í dag. Þrír starfsmenn fangelsisins létu lífið í sprengingunni og fimm gestir sem voru að heimsækja vini eða ættingja sem sitja inni í fangelsinu. 19.10.2022 12:36
Rússar reyna að innlima losun hernumdra svæða Tilraunir Rússa til þess að innlima landsvæði sem þeir hafa hernumið í Úkraínu taka á sig ýmsar myndir. Nú þurfa úkraínsk stjórnvöld að verjast því að Rússar reyni að taka ábyrgð á losun gróðurhúsalofttegunda á hernumndu svæðunum á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. 19.10.2022 12:29
Herlög taka gildi á „innlimuðum“ svæðum í Úkraínu Herlög taka gildi í dag í héruðunum fjórum í Úkraínu sem Rússar vilja meina að þeir hafi innlimað á dögunum. Frá þessu greindi Vladimir Pútín Rússlandsforseti þegar hann ávarpaði fund þjóðaröryggis Rússlands nú fyrir stundu. 19.10.2022 12:29
Uczennica próbowała odebrać sobie życie z powodu prześladowań Dwunastoletnia dziewczynka z Hafnarfjörður była prześladowana i maltretowana przez grupę dzieci w tym samym wieku. Dziewczyna od kilku dni nie pojawiała się w szkole, a teraz jest w szpitalu po próbie odebrania sobie życia. 19.10.2022 12:19
Útlendingafrumvarp Jóns situr fast í þingflokki Sjálfstæðisflokksins Frumvarp dómsmálaráðherra um breytingar á útlendingalögum situr fast í þingflokki Sjálfstæðisflokksins en báðir hinir þingflokkar stjórnarflokkanna hafa afgreitt málið frá sér til þinglegrar meðferðar. Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins segir hnífinn ekki fara á milli þingmanna flokksins og dómsmálaráðherra en gera þurfi breytingar á frumvarpinu. 19.10.2022 11:46
Persónulegar erjur og mismunandi áherslur áður komið í veg fyrir sameiningu Skógræktarstjóri segir mikilvægt að halda því til haga að fjölmargar tilraunir til að sameina Skógræktina og Landgræðsluna hafi klúðrast í gegn um tíðina. Hann er hóflega bjartsýnn á að það takist í þetta skiptið en ætlar að leggja sig allan fram. 19.10.2022 11:42
Hvert er eiginlega „pointið“? Krakkar í fimmta bekk í Grandaskóla segjast alltaf stressuð fyrir leshraðapróf og skilja ekki alveg tilganginn með því að lesa hratt - upphátt. Fréttamaður ræddi við krakkana og þreytti sjálfur hið umdeilda próf. 19.10.2022 11:31
Bein útsending: Maður, manneskja, man eða menni? Eiríkur Rögnvaldsson flytur þriðja fyrirlestur hádegisraðar RIKK – Rannsóknastofnunar í jafnréttisfræðum við Háskóla Íslands á haustmisseri 2022 en yfirskrift raðarinnar er sú sama og á vormisseri: Hinsegin Ísland í alþjóðlegu samhengi. Fyrirlestur Eiríks nefnist „Maður, manneskja, man eða menni?“ og mun hann fjalla um merkingu orðsins maður í sögulegu samhengi og vandkvæði á að nota það í kynhlutlausri merkingu. 19.10.2022 11:31
Hádegisfréttir Bylgjunnar Breytingar á útlendingalögum, hrottalegt einelti í Hafnarfirði, sameining Skógræktarinnar og Landgræðslunnar og matvælaverð verða meðal umfjöllunarefna í hádegisfréttum Bylgjunnar. 19.10.2022 11:30
Barátta grindvískra barna fyrir lengri opnun í sundlauginni skilar árangri Frístunda- og menningarnefnd Grindavíkurbæjar hefur lagt til að opnunartími sundlaugarinnar í bænum verði lengdur til klukkan 18 um helgar yfir vetrartímann í stað klukkan 16. Breytingin kemur í kjölfar undirskriftarsöfnunar grunnskólabarna í bænum. 19.10.2022 11:26
Wiadomości dotyczące planowanych ataków nie będą badane przez psychiatrę Policja nie planuje korzystania z oceny psychiatry, w celu określenia czy wiadomości tekstowe, które do siebie wysyłali podejrzani o planowanie ataków terrorystycznych powinny być traktowane poważnie. 19.10.2022 11:23
Brutu ekki siðareglur með umfjöllun um Óshlíðarmálið Blaðamenn DV og Stundarinnar brutu ekki siðareglur Blaðamannafélags Íslands (BÍ) með umfjöllun sinni um Óshlíðarmálið. Kærandi var ökumaður bifreiðarinnar sem valt á Óshlíðarvegi árið 1973 en einn lést í slysinu. 19.10.2022 11:09
Bandarískir uppgjafarherforingjar flykkjast í þjónustu krónprinsins Tugir uppgjafarherforingja og flotaforingja eru á meðal hundruð bandarískra hermanna sem drýgja eftirlaun sín með því að vinna fyrir erlendar ríkisstjórnir, aðallega í löndum þar sem mannréttindabrot og kúgun er daglegt brauð. Fjöldi þeirra er í þjónustu krónprins Sádi-Arabíu og fjölgaði þeim eftir hrottalegt morð á blaðamanninum Jamal Khashoggi. 19.10.2022 11:01
Fjölmenn lögregluaðgerð í Svarfaðardal í gærkvöldi Fjölmennt lið lögreglu var kallað út að bæ í Svarfaðardal á Norðurlandi í gærkvöldi vegna karlmanns á fimmtugsaldri. Vegur sem liggur að heimili karlmannsins var lokaður um tíma svo nærsveitungar komust ekki heim til sín. 19.10.2022 10:34
„Ótvírætt mesta ógn sem hefur stafað að sjálfstæði Íslands seinustu áratugi“ Ofurvald enskrar tungu og litlir hvatar fyrir nýja íbúa á Íslandi til að læra íslensku er ótvírætt mesta ógn sem stafað hefur að sjálfstæði landsins síðustu áratugi. Ný íslensk sjálfstæðisbarátta þurfi að hefjast á því að margfalda íslenskukennslu nýrra íbúa með aðstoð hins opinbera. 19.10.2022 09:58
Hin hrossin send aftur til eigenda Þrettán hross í Borgarfirði voru aflífuð af Matvælastofnun (MAST) í gær vegna alvarlegs ástands. Önnur hross reyndust vera í ásættanlegum holdum og var skilað til umráðamanns. Tíu þeirra eru þó sögð vera í viðkvæmu ástandi. 19.10.2022 09:43
Losun frá tveimur jörðum sögð jafnast á við 800 bíla Votlendi sem var endurheimt á tveimur jörðum á vestanverðu landinu í haust er sagt hafa stöðvað losun á um 1.600 tonnum af koltvísýringi á ári. Það jafnast á við losun frá 800 fólksbílum árlega. 19.10.2022 09:23
Orðin að þjóðhetju eftir heimkomuna Elnaz Rekabi sneri aftur til Íran snemma í morgun eftir að hafa keppt á Asíumótinu í klifri. Rekabi notaðist ekki við slæðu þegar hún keppti og óttuðust margir um líf hennar um tíma. 19.10.2022 09:17
Allt stopp á meðan beðið var eftir Finnlandsforseta Ökumenn á höfuðborgarsvæðinu í morgun þurftu margir hverjir að bíða lengi á rauðu ljósi án þess að hafa hugmynd um hvers vegna. Í ljós kom að lögregla var að greiða leið Finnlandsforseta á leið í heimsókn til Bessastaða. 19.10.2022 09:10
Tólf ára reyndi að svipta sig lífi eftir langvarandi einelti í Hafnarfirði Tólf ára stúlka í Hafnarfirði hefur orðið fyrir miklu einelti og ofbeldi af hendi hóps barna á sama aldri. Stúlkan hefur ekki mætt í skólann í marga daga og dvelur nú á spítala eftir að hafa reynt að svipta sig lífi. 19.10.2022 09:04
Rafmagnslaust eftir áframhaldandi loftárásir Rússa Fjöldi bæja og þorpa og hluti tveggja borga eru án rafmagns eftir áframhaldandi flugskeytaárásir Rússa á orkuinnviði síðasta sólarhringinn. Volodýmýr Selenskíj forseti hvatti landsmenn til þess að spara orku eins og þeir gætu í gærkvöldi. 19.10.2022 08:44
Heitir því að festa Roe í lög ef demókratar ná meirihluta Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur heitið því að festa niðurstöðu Roe gegn Wade í lög ef demókratar ná meirihluta í báðum deildum í þingkosningunum sem fara fram í nóvember. 19.10.2022 07:53
Til skoðunar að taka í notkun breiðvirkara bóluefni gegn HPV Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra segir þörf á því að skipta um bóluefni gegn HPV-veirunni hér á landi en hingað til hefur bóluefnið Cervarix verið boðið stúlkum við 12 ára aldur. 19.10.2022 07:28
Þungbúið vestantil og fallegur haustdagur í vændum fyrir austan Útlit er fyrir áframhaldandi suðvestanátt í dag. Má reikna með fimm til tíu metrum á sekúndu víðast en tíu til fimmtán metrar á sekúndu um landið norðvestanvert. 19.10.2022 07:13
Rífa niður leikvanginn í Indónesíu Leikvangurinn þar sem yfir 130 manns létu lífið í troðningi í byrjun mánaðar verður rifinn niður og endurbyggður. Meira en fjörutíu börn voru meðal látinna í því sem forseti FIFA hefur kallað „einn svartasta dag fótboltans“. 19.10.2022 07:12
Tekist á um upprekstrarfélagsskyldu í Borgarbyggð Sveitarstjórn Borgarbyggðar hefur hafnað ósk jarðeigenda að Skarðshömrum um úrsögn úr upprekstrarfélagi. 19.10.2022 07:10
Strákar á speglinum tilkynna einelti Nokkrir strákar sem voru bendlaðir við ofbeldi þegar nöfn þeirra voru krotuð á spegil í Menntaskólanum við Hamrahlíð hafa kvartað til skólans vegna eineltis. Skólinn hefur óskað eftir því að utanaðkomandi teymi taki málin til meðferðar. 19.10.2022 06:58
Leggja allt í sölurnar til að aðstoða mótmælendur Sumir læknar í Íran setja sjálfa sig í hættu á hverjum einasta degi til að aðstoða mótmælendur sem koma á bráðamóttökur þar í landi. Búið er að koma fyrir leynilögreglumönnum á spítölum til þess að handtaka þá sem hafa slasast í mótmælum. 19.10.2022 06:34
Policja przestrzega przed internetowymi oszustami Od kilku miesięcy mieszkańcy Islandii są nękani fałszywymi wiadomościami, które mają na celu wyłudzenie na odbiorcach poufnych informacji i pieniędzy. 19.10.2022 01:31
Segja hrossin hafa verið færð í sláturhús og folald fellt á staðnum Tólf af hrossunum í Borgarfirði sem Vísir hefur fjallað um síðan í sumar eru sögð hafa verið felld. Matvælastofnun hafi mætt á vettvang. 18.10.2022 23:45
Hætta við að láta geðlækni skoða skilaboðin Lögreglan ætlar ekki að fá geðlækni til að leggja mat á það hvort mönnum tveimur sem sitja í gæsluvarðhaldi vegna hryðjuverkarannsóknarinnar svokölluðu, hafi verið alvara í skilaboðum sem þeir sendu sín á milli. Þar eru þeir sagðir hafa rætt það að fremja hryðjuverk og tilræði við þekkta Íslendinga. 18.10.2022 23:40
Segir stöðu Rússa erfiða og ýjar að undanhaldi Nýr yfirmaður innrásar Rússa í Úkraínu sagði í dag að taka þyrfti „erfiðar ákvarðanir“ á næstunni í Kherson-héraði í Úkraínu. Leppstjórar Rússlands þar hafa sagt að til standi að flytja fólk frá Kherson-borg en ummælin þykja til marks um að Rússar muni mögulega hörfa yfir Dnipro-á. 18.10.2022 22:19
Svítur á nýju hjúkrunarheimili á Selfossi Heimilismenn á nýju hjúkrunarheimili á Selfossi eru í skýjunum með nýja heimilið sitt enda eru herbergin hálfgerðar svítur. Hjúkrunarheimilið er byggt í hring og þar er pláss fyrir sextíu heimilismenn, 20 Sunnlendinga og 40 íbúa höfuðborgarsvæðisins. Elsti Sunnlendingurinn, 103 ára kona var meðal fyrstu íbúa inn á heimilið. 18.10.2022 21:01
Samþykkja að styrkja rafíþróttir Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti í dag að vísa tillögu um að veita íþróttafélögum sem eru með rafíþróttadeildir styrk á næsta ári til fjárhagsáætlanargerðar. Um er að ræða tuttugu milljóna króna sem verja á til íþróttafélaganna. 18.10.2022 20:34