Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Gagnárásin hafi engin áhrif á Rússa Gagnárás Úkraínumanna síðustu daga mun engin áhrif hafa á áætlanir Rússa, að sögn Vladímírs Pútíns Rússlandsforseta. Pútín tjáði sig í fyrsta sinn um stöðuna í gær. 17.9.2022 09:59
Bein útsending: Aðalfundur Pírata Aðalfundur Pírata fer fram í dag klukkan 10 í veislusal Ostabúðarinnar á Fiskislóð 26. Flokkurinn fagnar tíu ára afmæli í nóvember og verður þema fundarins fortíð og framtíð Pírata á Íslandi. 17.9.2022 09:29
Pólitísk upplausn í aðsigi í Evrópu: „Þetta lítur út fyrir að vera einhvers konar leikrit“ Sigríður Á. Andersen fyrrverandi ráðherra segir að evrópskir ráðamenn hafi átt að vera betur undirbúnir fyrir afleiðingarnar sem refsiaðgerðir gegn Rússum hefðu á hagkerfin heima fyrir. Sumar refsiaðgerðirnar séu að reynast refsiaðgerðir ríkja gegn eigin borgurum. 17.9.2022 09:15
Mættir aftur til Indlands eftir sjötíu ára fjarveru Blettatígrar voru sagðir útdauðir í Indlandi árið 1952 en nú hafa átta tígrar verið sendir þangað í tilefni af afmæli Narendra Modi, forsætisráðherra landsins. Þeir munu dvelja í einangrun í mánuð áður en þeim verður sleppt í þjóðgarði. 17.9.2022 08:57
Útvarpi Sögu hafnað um rekstrarstuðning SagaNet-Útvarp Saga ehf. sem rekur bæði útvarpsstöðina Útvarp Saga og samnefndan vefmiðil var hafnað um rekstrarstuðning frá fjölmiðlanefnd. Félagið var eitt þriggja sem var hafnað um stuðning. 17.9.2022 08:10
Tónlistarnám í Reykjavík allt að tvöfalt dýrara Skólagjöld tónlistarskóla í Reykjavík eru þau dýrustu á landinu en borgin, ólíkt flestum öðrum sveitarfélögum, rekur ekki tónlistarskóla á eigin vegum. Veturinn í tónlistarskóla getur kostað rúmlega tvö hundruð þúsund krónur. 17.9.2022 07:39
Maður og kona réðust á dreng og flúðu vettvang Lögreglu barst tilkynning í gær um að maður og kona hafi ráðist á dreng og sparkað í hann. Þegar lögregla kom á staðinn voru þau farin en lögreglu hefur ekki tekist að bera kennsl á parið. 17.9.2022 07:19
Þriðja kynslóð Kia Niro frumsýnd Nýr Kia Niro verður frumsýndur um allt land í dag, laugardag frá 12-16. Þetta er þriðja kynslóð Niro sem hefur verið einn allra vinsælasti bílinn frá Kia á Íslandi og um allan heim undanfarin ár. Kia Niro mætir nú til leiks með nýtt útlit og enn rafmagnaðri en áður. 17.9.2022 07:00
Beraði sig við syrgjendur drottningar og stakk sér svo í ána Thames Nítján ára karlmaður hefur verið handtekinn og sakaður um að hafa beitt tvær konur kynferðisofbeldi í röð syrgjenda sem bíða þess þolinmóðir að sjá líkkistu Elísabetar II Bretlandsdottningar. 16.9.2022 23:41
Klæddust kvenmannsfötum, settu á sig hárkollu og rændu tugi lestarfarþega Meðlimir í frönsku glæpagengi eru sagðir hafa klæðst kvenmansfatnaði, sett á sig hárkollur og rænt í það minnsta 170 farþega í fyrsta farrými lesta í Frakklandi. Lögreglan í Marseille fann þýfið og reynir nú að finna réttmætu eigendur þess. 16.9.2022 22:50
„Það má næstum kalla þetta bara dauðagildru“ Gatnamót tengja Vogabyggð við Langholtshverfi líkjast dauðagildru að sögn íbúa. Margir óttist að senda börnin sín yfir Sæbraut þar sem umferðin sé þung og bílstjórar sýni lítið tillit til gangandi vegfarenda. Innviðir og samgöngur í hverfinu séu ekki í takt við þau loforð sem kaupendur hafi fengið á sínum tíma. 16.9.2022 22:32
Kallar eftir frelsun bænda Daði Már Kristófersson prófessor í umhverfis- og auðlindafræði segir að aukin jarðrækt, grænmetis og annarra afurða, geti skipt sköpum í loftslagsmálum í framtíðinni en þá þurfi að frelsa bændur undan regluverki. Enginn mælanlegur árangur er af loftslagsaðgerðum stjórnvalda þrátt fyrir metnaðarfull áform þeirra að mati Einars Sveinbjörnssonar veðurfræðings. 16.9.2022 20:47
Segja niðurskurðinn brjóta í bága við kvikmyndastefnu stjórnvalda Mikil umræða hefur skapast nýverið um ákvörðun stjórnvalda að skera niður fjármagn til kvikmyndasjóðs. Í vikunni voru fjárlögin fyrir komandi ár kynnt og samkvæmt þeim stendur til að skera framlag til kvikmyndasjóðs niður um 33 prósent. Stjórn Sambands íslenskra kvikmyndaframleiðenda segist harma þessa ákvörðun stjórnvalda. 16.9.2022 20:22
Tekist á um ríkiseign á bönkunum á Alþingi Þingmaður Viðreisnar telur enga ástæðu fyrir ríkið að halda áfram að eiga hlut í Íslandsbanka og Landsbanka. Hægt væri að leysa út allt að fjögur hundruð milljarða með sölu þeirra til greiðslu skulda. Forsætisráðherra vill hins vegar að ríkið haldi ráðandi eign í Landsbankanum. 16.9.2022 19:21
Sex sóttu um stöðu lögreglustjórans á Vestfjörðum Karl Ingi Vilbergsson fyrrverandi lögreglustjóri á Vestfjörðum lét af störfum í ágúst síðastliðnum. Sex einstaklingar sóttu um stöðu lögreglustjórans sem auglýst var af dómsmálaráðuneytinu. 16.9.2022 18:47
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum greinum við frá því að hættustigi hefur verið lýst yfir á landamærunum vegna fordæmalauss fjölda hælisleitenda. Hátt í þrjú þúsund manns hafa sótt um alþjóðlega vernd á það sem af er ári og eru innviðir við það að bresta. 16.9.2022 18:00
Allir farþegar slasaðir eftir harðan árekstur Alvarlegt bílslys varð á Snæfellsvegi á þriðja tímanum í dag. Ásmundur Kr. Ásmundsson, yfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á Vesturlandi segir tvo bíla hafa lent saman, framan á hvor annan. Allir farþegar séu slasaðir. 16.9.2022 17:49
Hollenskur bær í mál við Twitter vegna sögusagna um sataníska barnaníðinga Hollenski bærinn Bodegraven-Reeuwijk hefur krafist þess að Twitter fjarlægi færslur sem bendla bæinn við satanískan söfnuð barnaníðinga. Sögusagnir um söfnuðinn hafa fengið að viðgangast á miðlinum síðan árið 2020. 16.9.2022 16:46
Karlmaður sem beit dyravörð undi ekki dómnum eftir allt saman Karlmaður sem í fyrra var dæmdur í héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að bíta dyravörð hætti við að una dómnum nokkrum dögum eftir því að dómurinn var birtur honum. Áfrýjun mannsins var vísað frá í Landsrétti. 16.9.2022 16:30
Ómar Ragnarsson verðlaunaður á Degi íslenskrar náttúru Þúsundþjalasmiðurinn Ómar Ragnarsson hlaut í dag Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti. Þetta er í þrettánda sinn sem náttúruverndarviðurkenningin er afhent á Degi íslenskrar náttúru. 16.9.2022 16:20
Ingvar kemur í stað Teits Ingvar S. Birgisson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra. Hann kemur í stað Teits Björn Einarssonar sem er nýorðinn aðstoðarmaður ríkisstjórnarinnar. 16.9.2022 15:40
Selenskí kallar Rússa morðingja vegna fjöldagrafa Flestir þeirra sem grafnir hafa verið upp í fjöldagröf sem fannst nærri Izyum í Úkraínu eru óbreyttir borgarar. Minnst eitt líkanna var með bundnar hendur en Úkraínumenn hafa fundið vísbendingar um að íbúar bæjarins og aðrir hafi verið pyntaðir. 16.9.2022 15:33
Torkennilegur hlutur reyndist vera rafsígaretta Sprengjusérfræðingar ríkislögreglustjóra voru kallaðar til við Ránargötu í miðbæ Reykjavíkur í dag eftir að tilkynnt var um torkennilegan hlut. Hluturinn reyndist vera rafsígaretta sem einhver hafði skilið eftir. 16.9.2022 15:21
Alvarlegt bílslys á Mýrum Alvarlegt bílslys varð á Snæfellsnesvegi á þriðja tímanum í dag. Tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar hafa verið kallaðar út og lokað fyrir umferð á veginum í báðar áttir. Um er að ræða veginn frá Borgarnesi upp á Snæfellsnes. 16.9.2022 15:18
Þau sóttu um stöðu framkvæmdastjóra Loftslagsráðs Alls sóttu 25 um stöðu framkvæmdastjóra Loftslagsráðs sem auglýst var laus til umsóknar í júlí síðastliðinn. Í hópi umsækjenda eru meðal annars fyrrverandi þingmaður og sveitarstjórar. 16.9.2022 14:44
Sagðist líka skilja áhyggjur Modi og vill binda skjótan enda á stríðið Vladimír Pútín, forseti Rússlands, sagði Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands, að hann vildi binda enda á innrás Rússa í Úkraínu eins fljótt og auðið væri. Þá sagðist hann hafa skilning á áhyggjum Modi af átökunum. 16.9.2022 14:27
Segir mælanlegan árangur af loftslagsaðgerðum engan: „Þyngra en tárum taki“ Þrátt fyrir metnaðarfull áform er mælanlegur árangur af loftslagsaðgerðum stjórnvalda enn sem komið er enginn, að sögn veðurfræðings. Það er staðreynd sem hann segir að við verðum að horfast blákalt í augu við - á degi íslenskrar náttúru. 16.9.2022 14:20
Reyndi að stinga lögreglu af fullur og próflaus Lögreglan á Suðurlandi hefur ákært pólskan ríkisborgara á þrítugsaldri fyrir að aka undir áhrifum áfengis án ökuréttinda en ökumaðurinn sinnti ekki fyrirmælum lögreglu um að stöðva akstur. Hann olli árekstri er hann reyndi að flýja lögreglu. Ákæran er birt í Lögbirtingablaðinu. 16.9.2022 14:06
Bretar bíða þolinmóðir í biðröð allra biðraða Svo mikill fjöldi hefur raðað sér í röð til að votta Elísabet II Bretadrottningu virðingu sína í Lundúnum að fleiri komast ekki að í bili. Sjálfir hafa Bretar gert góðlátlegt grín að því að biðröðin sjálf sé það breskasta sem til er. 16.9.2022 14:04
Allir töldu Þröst vanhæfan nema Þröstur sjálfur sem ákallaði drottinn guð sinn Tíu af ellefu sveitarstjórnarmönnum Múlaþings samþykktu tillögu um vanhæfi Þrastar Jónsson, sveitarstjórnarfulltrúa Miðflokksins, sem sneri að því að hann myndi víkja af fundi sveitarstjórnar í umræðum um breytingu á aðalskipulagi varðandi leiðarval Fjarðaheiðarganga. Þröstur segir hart að sér vegið og sakar aðra fulltrúa um pólitískt ofbeldi. 16.9.2022 13:24
Háhýsi stóð í ljósum logum Gífurlega mikill eldur kviknaði í háhýsi í borginni Changsha í Kína í morgun. Húsið er 218 metrar á hæð og 42 hæðir en engan sakaði í brunanum. 16.9.2022 12:34
Forsætisráðherra segir réttlætismál að greitt sé útsvar af fjármagnstekjum Forsætisráðherra segir réttlætismál að þeir sem einungis hafi fjármagnstekjur greiði útsvar til sveitarfélaga. Á næsta ári verði helsta verkefnið að draga úr verðbólgu og styrkja um leið og verja almannaþjónustuna, almannatryggingakerfið og húsnæðismarkaðinn. 16.9.2022 12:17
Vantraustsyfirlýsing kvenpresta byggð á „hreinum rangfærslum og lygi“ Arnaldur Bárðarson formaður Prestafélags Íslands segir vantraustsyfirlýsingu Félags prestvígðra kvenna gagnvart honum byggða á lygum. Hún sé ómarktæk. Hann gengst þó við mistökum í viðtali við Útvarp sögu, sem vantraustsyfirlýsingin snýr meðal annars að. 16.9.2022 12:11
Krakkarnir segi hinum fullorðnu hvað þeir vilji lesa Samtal, lýðræði og opin skoðanaskipti verða í aðalhlutverki á Fundi fólksins sem stendur yfir í dag og á morgun. Nú í hádeginu ætla krakkarnir sjálfir að segja hinum fullorðnu hvað þeir vilja lesa og af hverju áhuginn virðist dvína á unglingastigi. 16.9.2022 11:53
Hádegisfréttir Bylgjunnar Ólga meðal presta, ráðning þjóðminjavarðar, fjárlög og loftslagsmálin verða meðal umfjöllunarefna í hádegisfréttum Bylgjunnar í dag. 16.9.2022 11:51
Skoða betur í hverju gagnrýni fyrrverandi starfsmanna felst Menningar- og viðskiptaráðherra segir að ráðuneyti sitt kanni nú í hverju óánægja nokkurra fyrrverandi starfsmanna Listasafns Íslands með stjórnunarstíl Hörpu Þórsdóttur, sem ráðherrann réð án auglýsingar í stöðu þjóðminjavarðar, felst. 16.9.2022 11:40
Krefjast afsagnar formanns Prestafélagsins vegna viðtals við Útvarp sögu Félag prestvígðra kvenna krefst þess að Arnaldur Bárðarson formaður Prestafélags Íslands segi af sér vegna ummæla hans í viðtali við Útvarp sögu á dögunum. Þetta kemur fram í yfirlýsingu félags Prestvígðra kvenna sem gefin er út eftir fund félagsins í Langholtskirkju í gær. 16.9.2022 11:15
Teitur Björn ráðinn aðstoðarmaður ríkisstjórnarinnar Teitur Björn Einarsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður ríkisstjórnarinnar. Teitur starfaði áður sem aðstoðarmaður dómsmálaráðherra og er varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins. 16.9.2022 11:14
Olíumengun frá togara reyndist vera sprungið hvalshræ Það sem talin var olíumengun úr togaranum Beiti TFES, og nýverið var tilkynnt um til Landhelgisgæslunnar, reyndist koma frá strungnum hvalshræi sem sat fast á perustefni skipsins. 16.9.2022 11:06
Hættustig á landamærum vegna yfirálags Embætti ríkislögreglustjóra hefur hækkað viðbúnaðarstig á landamærunum á hættustig vegna yfirálags til þess að tryggja örugga móttöku á fólki sem sótt hefur um alþjóðlega vernd á Íslandi. 16.9.2022 10:53
Flokkarnir hafi verið gerðir að ríkisstofnunum með háum framlögum Sex þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa lagt fram lagafrumvarp þess efnis að dregið verði úr opinberum fjárstuðningi við stjórnmálaflokka. Þeir segja há framlög til flokkanna undanfarin ár hafa dregið úr stjórnmálastarfi þeirra. Flokkarnir hafi í raun verið gerðir að ríkisstofnunum. 16.9.2022 10:49
Rennibraut verði komin upp í Dalslaug í vor Reiknað er með að vatnsrennibraut verði komin upp í Dalslaug í Úlfarsárdal næsta vor. Borgarfulltrúi segir að með þessu sé verið að svara ákalli íbúa en upphaflegar áætlanir gerðu ekki ráð fyrir að rennibraut yrði í lauginni sem opnaði í desember á síðasta ári. 16.9.2022 10:48
Árásarmaðurinn ekki ungmenni Maðurinn sem grunaður er um að hafa stungið átján ára pilt í undirgöngum við Sprengisand í Reykjavík í gær er fullorðinn einstaklingur. Hann var í gær handtekinn og úrskurðaður í síbrotagæslu. 16.9.2022 10:44
Bein útsending: Fyrri dagur Fundar fólksins Fundur fólksins hefst í Vatnsmýrinni í dag þar sem fundurinn verðir settur í Norræna húsinu klukkan 11. Dagskrá fer fram víða um Vatnsmýrina en einkum og sér í lagi í Norræna húsinu og Grósku. Hér að neðan má nálgast streymi frá fundinum. 16.9.2022 10:00
Átta látið lífið eftir úrhellisrigningu á Ítalíu Að minnsta kosti átta hafa látið lífið eftir úrhellisrigningu á Ítalíu í nótt. Fjögurra er enn saknað en rigningin í nótt samsvarar helming þess sem venjan er á svæðinu á einu ári. 16.9.2022 09:47