Erlent

Sagðist líka skilja áhyggjur Modi og vill binda skjótan enda á stríðið

Samúel Karl Ólason skrifar
Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands, og Vladimír Pútín, forseti Rússlands, í Samarkand í dag.
Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands, og Vladimír Pútín, forseti Rússlands, í Samarkand í dag. EPA/SERGEI BOBYLEV

Vladimír Pútín, forseti Rússlands, sagði Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands, að hann vildi binda enda á innrás Rússa í Úkraínu eins fljótt og auðið væri. Þá sagðist hann hafa skilning á áhyggjum Modi af átökunum.

Leiðtogarnir funduðu í dag og gagnrýndi Modi innrásina í Úkraínu og sagði að nú væri „ekki tími fyrir stríð“.

„Ég veit af afstöðu þinni af átökunum í Úkraínu, þínum áhyggjum,“ sagði Pútín samkvæmt AFP fréttaveitunni. „Við munum gera okkar besta til að enda þetta eins fljótt og auðið er.“

Þá sakaði hann Úkraínumenn um að vilja ekki eiga í viðræðum við Rússa. Í fyrstu fóru viðræður fram milli Úkraínumanna og Rússa en þær voru stöðvaðar eftir að ódæði rússneskra hermanna í Bucha og öðrum byggðum norður af Kænugarði, höfuðborg Úkraínu, urðu ljós.

Sjá einnig: Hleruðu rússneska hermenn ræða morð á íbúum Bucha

Pútín fundaði í gær með Xi Jinping, forseta Kína, og þá sagðist hann einni hafa skilning á áhyggjum Xi af innrásinni. Pútín er staddur í Samarkand í Úsbekistan á leiðtogafundi Öryggisbandalags Sjanghæ eða SCO.

Sjá einnig: Sagðist skilja áhyggjur Xi af innrásinni í Úkraínu

Rússar gerðu innrás í Úkraínu þann 24. febrúar. Rússar hafa gefið fjölmargar ástæður fyrir innrásinni sem snúast margar um það að Vesturlönd séu að nota Úkraínu gegn Rússlandi. Aðrar uppgefnar ástæður hafa verið á þann veg að Rússar vilji vernda íbúa Úkraínu gegn nasistum sem stjórni landinu.

Heima fyrir hafa skilaboðin frá yfirvöldum í Rússlandi til þjóðarinnar oft verið á þá leið að úkraínska þjóðin eigi ekki tilvistarrétt. Úkraína sé Rússland. 

Innrásin ber þó merki landvinningastríðs og hafa tugir þúsunda dáið vegna hennar. Rússneskir hermenn standa frammi fyrir fjölmörgum trúverðugum ásökunum um stríðsglæpi og fjölmörg ódæði í Úkraínu. Fjölmörg byggðarlög af ýmsum stærðargráðum hafa svo gott sem verið jöfnuð við jörðu í austurhluta Úkraínu.

Sjá einnig: Segja Pútín hafa hafnað málamiðlun og stefnt ótrauðan á innlimun

Fyrst reyndu Rússar að taka Kænugarð, höfuðborg Úkraínu, í skyndiárás. Það gekk ekki eftir og eftir mikið mannfall hörfuðu Rússar með því markmiði að stytta birgðalínur sínar og einbeita sér að austur- og suðurhluta Úkraínu.

Sjá einnig: Stjaksettu höfuð úkraínsks hermanns

Eftir hægan og kostnaðarsaman árangur í austri, og lítinn sem engan í suðri, undanfarna mánuði, hafa Rússar flúið frá Kharkív og virðast í tiltölulega slæmri stöðu. Samhliða versnandi stöðu Rússlands hafa ráðamenn í Moskvu og málpípur Kreml ítrekað hótað notkun kjarnorkuvopna gegn Úkraínu og Vesturlöndum.

Þá hefur innrásin haft slæm áhrif á hagkerfi heimsins og orku- og matvælamarkað.

Sjá einnig: Rússar hafa rænt allt að 1,6 milljónum Úkraínumanna og flutt til Rússlands

Vilja vopn til að vinna sem fyrst

Úkraínumenn, sem hafa notið vopnasendinga og annars konar aðstoðar frá ýmsum Vesturlöndum, hafa frá upphafi innrásarinnar beðið um fleiri og betri vopn en þeir hafa fengið. Eftir vel heppnaða sókn þeirra gegn Rússum í Kharkív segja Úkraínumenn að öllum ætti að vera ljóst að besta leiðin til að binda enda á stríðið sé að hjálpa Úkraínumönnum að sigra Rússa sem fyrst.

Önnur fljótleg leið væri að Pútín skipaði her sínum að hörfa frá Úkraínu en hann þykir ekki líklegur til þess.


Tengdar fréttir

Fundu fjölda­gröf með fjögur hundruð líkum í Izyum

Úkraínumenn hafa fundið merki um fjöldagröf í bænum Izyum í norðausturhluta landsins. Gröfina er að finna á landsvæði sem Úkraínumenn náðu nýverið aftur á sitt vald eftir innrás rússneska hersins.

Pútín sjái ekki bjálkann í eigin auga

Kanslari Þýskalands segir Pútín neita að átta sig á því að hann hafi gert mistök með innrásinni í Úkraínu. Hann sjái ekki bjálkann í eigin auga og hafi ekki breytt afstöðu sinni að neinu leyti.

Selenskí í Izyum og Rússar sagðir í basli í suðri

Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, heimsótti Izyum í Kharkív-hérað í morgun en hersveitir Úkraínu ráku rússneska hermenn þaðan á dögunum í vel heppnaðri gagnsókn. Forsetinn sagði eyðilegginguna mikla en hann hefði séð sambærilega eyðileggingu áður í öðrum bæjum og þorpum sem búið væri að frelsa frá Rússum.

Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Hafa náð frumkvæðinu af Rússum

Rússneskir hermenn lögðu frá sér byssur sína og yfirgáfu skrið- og bryndreka sína í massavís er þeir flúðu frá Kharkív-héraði í Úkraínu um helgina. Heimamenn segja þá hafa reynt að dulbúa sig sem borgara og jafnvel flúið á stolnum reiðhjólum. Mikil óreiða skapaðist meðal hermanna vegna undraverðrar gagnsóknar Úkraínumanna í héraðinu sem hófst í síðustu viku.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×