Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Þrír létust í eldsvoða á gjörgæslu Þrír létu lífið á gjörgæslu í Úkraínu eftir að eldsvoði braust út þegar kveikt var á minningarkerti, til minningar þeirra sem látist höfðu úr kórónuveirunni. Fjórir hlutu lífshættuleg brunasár. 30.12.2021 00:06
Alþingi veitir engum ríkisborgararétt vegna tafa Útlendingastofnunar Alþingi hyggst ekki veita neinum umsækjanda ríkisborgararétt fyrir áramót en 178 umsóknir hafa borist löggjafanum. Ástæðan er sú að Útlendingastofnun hefur ekki afhent forunnin gögn sem eiga að berast nefnd sem ber ábyrgð á ferlinu með umsóknunum. Samkvæmt venju eru umsóknir afgreiddar fyrir áramót ár hvert en í þetta skipti verður það líklega ekki fyrr en í febrúar á nýju ári. 29.12.2021 23:20
Maxwell sakfelld fyrir mansal og gæti átt yfir höfði sér 65 ára fangelsi Ghislaine Maxwell var í dag sakfelld í New York fyrir mansal á börnum og að hafa útvegað Jeffrey Epstein ungar stúlkur sem hann misnotaði kynferðislega. 29.12.2021 23:03
Skoða hvort fleirum verði leyft að vinna í sóttkví Mikill fjöldi landsmanna er nú í einangrun og sóttkví sem hefur eðli málsins samkvæmt áhrif á vinnustaði víðsvegar um landið. Viðræður hafa staðið yfir, meðal annars við Samtök atvinnulífsins, um hvort koma megi á sérstakri vinnusóttkví. 29.12.2021 22:27
Ákvað að vinna aldrei öðruvísi en í fjarvinnu til þess að geta ferðast Kona sem tók ákvörðun um að vinna aldrei örðuvísi en í fjarvinnu til þess að geta unnið hvar sem er í heiminum hvetur fólk til að elta drauma sína um einfaldan lífstíl og ferðalög. Hún segir Covid-19 hafa gjörbreytt landslagi þeirra vem vilja vinna í formi fjarvinnu. 29.12.2021 22:00
Íslandsbanki skraca godziny otwarcia W wielu oddziałach Íslandsbanki skrócone zostaną godziny otwarcia. Decyzję taką podjęto w związku ze spadkiem liczby wizyt w bankach. 29.12.2021 21:21
Kínverjar smána sóttvarnabrjóta opinberlega Lögreglan í Suður-Kína smánaði opinberlega fjóra menn í vikunni sem sakaðir voru um að hafa brotið gegn sóttvarnalögum. Mennirnir áttu að hafa smyglað fólki yfir landamæri Kína en strangar takmarkanir eru á landamærunum vegna kórónuveirufaraldursins. 29.12.2021 21:21
Konferencja poświęcona COVID w kraju W związku z rosnącą liczbą zakażonych, ponownie zwołano konferencję prasową, podczas której omówiono sytuację w kraju. 29.12.2021 21:13
Áslaug vill endurskoða einangrun barna Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, vísinda- iðnaðar og nýsköpunarráðherra, velti því upp á Twitter-síðu sinni fyrr í dag hvort tilefni væri til að stytta einangrun og sóttkví barna. Eins og stendur er lengd einangrunar þeirra sem smitast af kórónuveirunni almennt tíu dagar. 29.12.2021 20:36
„Kúgun almennings í Rússlandi eykst stöðugt” Hæstiréttur í Rússlandi úrskurðaði í dag að elstu og einni virtustu mannréttindaskrifstofu landsins skyldi lokað. Ástæðan er sögð hryðjuverkaógn og brot á hinum ýmsu lögum um erlend samskipti. Þýska ríkisstjórnin gagnrýnir dóminn. Þekktur blaðamaður féll til bana úr glugga íbúðar sinnar í miðborg Moskvu á sunnudag. 29.12.2021 20:30
Margverðlaunað jólahús á Selfossi Eitt glæsilegasta jólahús landsins á Suðurlandi og þó víðar væri leitað stendur við þjóðveg númer eitt í gegnum Selfoss. Húsið er myndað í bak og fyrir og þá hafa eigendur þess margneitað að taka á móti verðlaunum fyrir jólahúsið sitt. 29.12.2021 20:19
Heppni Íslendinga heldur áfram Fyrsti vinningur í Víkingalottó fór ekki út að þessu sinni en Íslendingur var með allar tölur réttar í Jókernum og tryggði sér þar með tvær milljónir. Þá skipaði einn sér í annað sæti og hlaut hann hundrað þúsund krónur í sinn hlut. 29.12.2021 19:56
Willum segir foreldra ráða Heilbrigðisráðherra segir það alltaf val foreldra að ákveða hvort börn þeirra verði bólusett gegn kórónuveirunni. Mikilvægt sé að vanda til verka þegar komi að framkvæmd bólusetningarinnar. 29.12.2021 19:01
Lokuðu skammtímavistun fyrir fötluð börn vegna manneklu Loka þurfti skammtímavistheimili fyrir fötluð börn í Reykjavík í nokkra daga í síðustu viku vegna manneklu. Velferðarsvið hefur umsjón með heimilinu en sviðið hefur þar að auki umsjón með heimaþjónustu og búsetukjörnum. Neyðarstjórn velferðarsviðs Reykjavíkurborgar hefur nú verið virkjuð. 29.12.2021 18:51
Fólk með kvef beðið um að fara í PCR áður en mætt er á heilsugæslu Fólk með kvefeinkenni eða önnur einkenni sem geta bent til kórónuveirusýkingar er beðið um sýna nýlega niðurstöðu úr PCR-einkennasýnatöku áður en það mætir á heilsugæslustöðvar á höfuðborgarsvæðinu. Gera þarf ráð fyrir því að bið eftir niðurstöðum geti verið allt að 48 klukkustundir. 29.12.2021 18:42
Reykjavíkurborg hafi byggt ákvörðun á röngum upplýsingum Kærunefnd úrskurðaði nýlega að Reykjavíkurborg bæri að greiða fyrirtækinu Vörðubergi skaðabætur eftir að hafa hafnað tilboði fyrirtækisins í gangstéttaviðgerðir borgarinnar. Reykjavíkurborg byggði ákvörðunina á því að meintur eigandi fyrirtækisins hafi áður verið dæmdur fyrir skattsvik. 29.12.2021 18:24
Þrefalt fleiri í bólusetningu en gert hafði verið ráð fyrir Þrefalt fleiri hafa komið í bólusetningu í hjá Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu í þessari viku en gert var ráð fyrir. Fólk getur valið á milli tveggja bóluefna. Langflestir eru að koma í örvunarbólusetningu þó einhverjir séu að koma í fyrsta skipti. 29.12.2021 18:02
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum heyrum við í sóttvarnalækni sem vonar að vegna hraðrar útbreiðslu ómikron afbrigðisins verði hjarðónæmi gagnvart covid 19 náð undir lok núverandi bylgju faraldursins. Vonandi renni hún sitt skeið án þess að margir verði alvarlega veikir. 29.12.2021 18:01
Leiðrétta misskilning um hágæslurými Landspítalans Nýlega voru opnuð tvö hágæslurými á Landspítalanum á Hringbraut og til stendur að opna tvö til viðbótar í Fossvogi við fyrsta tækifæri. Landspítalinn hefur sent frá sér stutta tilkynningu um rýmin en þar segir að „ákveðins misskilnings“ hafi gætt um þau. 29.12.2021 17:21
James Webb tekur á sig mynd en ekkert má bregða útaf Byrjað er að opna geimsjónaukann James Webb sem skotið var út í geim á jóladag. Sjónaukinn er svo stór að brjóta þurfti hann saman til að koma honum af yfirborði jarðar og má ekkert fara úrskeiðis á meðan verið er að opna hann. 29.12.2021 17:00
Áhyggjur af flóðbylgju Covid: Smituðum fjölgaði um ellefu prósent á einni viku Tedros Adhanom Ghebreyesus, yfirmaður Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) hefur áhyggjur af mikilli fjölgun þeirra sem smitast hafa af Covid-19 á heimsvísu. Sagði hann að dreifing bæði ómíkron- og delta-afbrigðum kórónuveirunnar hefði leitt til flóðbylgju smita á heimsvísu. 29.12.2021 16:49
Sölvi Tryggva snýr aftur með hlaðvarp sitt Sölvi Tryggvason, sem rak um skeið langvinsælasta hlaðvarp landsins, mun taka upp þráðinn þar sem frá var horfið á nýju ári. Þetta er samkvæmt áreiðanlegum heimildum Vísis. 29.12.2021 16:32
„Dóttir mín dó í fanginu á mér“ Móðir fjórtán ára stúlku sem varð fyrir skoti úr byssu lögregluþjóns og dó í Los Angeles segist ekkert hafa getað gert til að bjarga lífi dóttur sinnar. Þær höfðu leitað skjóls í mátunarklefa verslunar eftir að maður réðst á konur með hjólalás í versluninni. 29.12.2021 16:31
Bíll Strætó kominn í leitirnar Dráttarbíll sem stolið var af athafnasvæði Strætó að Hesthálsi í gær er kominn í leitirnar. 29.12.2021 15:44
Fyrirhugaður ísfirskur milljarðakláfur þarf í umhverfismat Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur staðfest ákvörðun Skipulagsstofnunar þess efnis að fyrirhugaður kláfur í hlíðum Eyrarfjalls í Ísafirði þurfi í umhverfismat. 29.12.2021 15:42
Klukkutíma sýnatökuröð úr sögunni eftir breytingar hjá heilsugæslunni Vel hefur gengið að taka Covid-sýni á Suðurlandsbraut síðustu daga, eftir að fréttir bárust af því nú um helgina að löng röð hafi myndast við sýnatökuhúsið og fólk jafnvel þurft að bíða í röð fyrir utan í meira en klukkustund. 29.12.2021 15:34
Þríbólusettur og í 23 daga sóttkví gefst ekki upp fyrir dómstólum Þríbólusettur einstaklingur sem þarf samkvæmt úrskurði héraðsdóms að sæta sóttkví í 23 daga hefur kært niðurstöðuna til Landsréttar. Viðkomandi segist hafa verið útsettur fyrir smiti á heimili sínu frá 10. desember án þess að smitast. Það staðfesti fjölmörg PCR-próf sem hann hafi farið í. 29.12.2021 15:15
Telja ekki á ábyrgð strætóbílstjóra að fylgjast með grímunotkun farþega Það er ekki í verkahring vagnstjóra Strætó að fylgja því eftir hvort farþegar séu með grímu, óháð því hvort unnt sé að hlíta fjarlægðartakmörkunum í vögnum eða ekki. Upplýsingafulltrúi Strætó segir fyrirtækið túlka reglugerð heilbrigðisráðherra á þá leið að fólk þurfi að bera sjálft ábyrgð á smitvörnum. 29.12.2021 15:04
Vert fullyrðir að veitingageirinn sé kominn á heljarþröm Jón Bjarni Steinsson skattalögfræðingur og veitingamaður, heldur því fram að Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra hafi logið um að til standi að rétta veitingageiranum hjálparhönd. Þess sjáist ekki staður í nýjum fjárlögum. 29.12.2021 14:20
Einn gestur á dag um áramótin Sjúklingar á Landspítala mega fá til sín einn gest á dag frá hádegi á gamlársdag og á nýársdag, en annars gildir heimsóknarbann á spítalanum. 29.12.2021 14:18
Guðmundur Felix predikar á nýársdag í Vídalínskirkju Áramótin verða með öðruvísi hætti í ár en kórónuveirufaraldurinn setur annað árið í röð strik í reikninginn. Engar brennur verða til að mynda á höfuðborgarsvæðinu og hefur biskup tekið þá ákvörðun að aflýsa helgihaldi. Biskupsritari segir mikilvægt að bregðast við óvenjulegum og krefjandi aðstæðum í samfélaginu. 29.12.2021 14:00
Von til staðar en ekki hægt að „láta þetta gossa“ Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir að ákveðin von sé til staðar í þeirri stöðu sem komin er upp núna í kórónuveirufaraldrinum ef rétt reynist að ómíkronafbrigðið sé mildara en önnur afbrigði veirunnar. Hann segir að það sé þó skynsamlegra að bíða eftir því að slíkt liggi fyrir, fremur en að láta veiruna gossa yfir samfélagið. 29.12.2021 13:53
Ríkisráð kemur ekki saman á gamlársdag vegna smitaðra ráðherra Ríkisráð kemur ekki saman á gamlársdag líkt og venja hefur verið undanfarna áratugi. Ástæðan er sú að í það minnsta þrír ráðherrar verða í einangrun um áramótin vegna kórónuveirusmits. 29.12.2021 13:31
Skoða að fella niður skólahald á meðan að börnin verða bólusett Í skoðun er að fella niður skólahald í einn dag í kringum bólusetningar barna á aldrinum 5 til 11 ára en bólusetningin mun fara fram í skólum. Framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu telur að töluverður fjöldi barna muni ekki mæta í bólusetningu annað hvort samkvæmt vali eða vegna þess að þau hafa þegar fengið Covid. 29.12.2021 12:21
Færri skjálftar þýða ekki minni líkur á gosi Nokkuð hefur dregið úr virkninni við Fagradalsfjall undanfarna tvo sólarhringa. Jörð er þó ekki hætt að skjálfa, en engin merki eru um gosóróa enn sem komið er. Í morgun kom einn skjálfti sem fannst víða á höfuðborgarsvæðinu. Svæðið er enn allt undir smásjá vísindamanna, enda minnkaði virknin töluvert í aðdraganda síðasta goss. 29.12.2021 12:01
Vilhjálmur með Covid-19 Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og starfandi þingflokksformaður, er kominn með Covid-19. RÚV greindi fyrst frá. Þingmaðurinn greindist í gær og segir heilsuna mjög góða. 29.12.2021 11:53
Öðrum mannréttindasamtökum gert að hætta í Rússlandi Mannréttindasamtökunum Memorial Human Rights Center hefur verið gert að loka dyrum sínum í Rússlandi. Dómari hefur samþykkt kröfu saksóknarar um að rekstur samtakanna, sem barist hafa fyrir pólitíska fanga, verði stöðvaður. 29.12.2021 11:48
Fljótlega hægt að slaka á ef rétt reynist að ómíkronafbrigðið sé mildara Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir að ýmislegt bendi til þess að ómíkron-afbrigði kórónuveirunnar valdi síður alvarlegri veikindum en önnur afbrigði. Reynist þetta rétt segir hann að hægt verði að slaka flótt á þeim samfélagslegu takmörkunum sem í gildu eru til að hefta útbreiðslu faraldursins. 29.12.2021 11:42
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við um upplýsingafundinn um stöðuna í faraldrinum sem fram fór fyrir hádegið. 29.12.2021 11:33
Bíður með að leggja til styttingu sóttkvíar og einangrunar einkennalausra Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir telur skynsamlegt að bíða með að fara að fordæmi Sóttvarnarstofnunar Bandaríkjanna um að stytta einangrun og sóttkví einkennalausra. 29.12.2021 11:19
744 greindust innanlands í gær 744 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. 298 af þeim 744 sem greindust innanlands í gær voru í sóttkví við greiningu, eða 40 prósent. 446 voru utan sóttkvíar, eða 60 prósent. 29.12.2021 10:51
Norðmenn fá ekki norsk handrit sem Árni færði Dönum að gjöf Danir hafa hafnað ósk Norðmanna um að fá afhent sjö handrit sem segja sögu norsks samfélags á öldum áður. Norðmenn fóru þess á leit síðasta sumar að fá afhent handritin með það í hyggju að þau yrði hluti af varanlegri sýningu á Þjóðarbókasafninu í Osló. 29.12.2021 10:44
Skjálfti upp á 3,7 fannst á höfuðborgarsvæðinu Jarðskjálfti 3,7 að stærð fannst nokkuð vel á höfuðborgarsvæðinu og víða á suðvesturhorninu um klukkan tuttugu mínútur yfir tíu. 29.12.2021 10:27
Hótar harkalegum aðgerðum taki Taívanar skref í átt sjálfstæðis Kína mun grípa til harkalegra aðgerða ef yfirvöld á Taívan taka skref í átt að sjálfstæði. Þetta segir háttsettur embættismaður í Kína sem varar einnig við því að deilurnar vegna eyríkisins muni versna á næsta ári. 29.12.2021 10:03
Fimm nú í öndunarvél vegna Covid-19 21 sjúklingur liggur nú inni á Landspítala vegna Covid-19. Sex eru á gjörgæslu og eru fimm þeirra í öndunarvél. 29.12.2021 09:50