Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Halda sig inni vegna gosmóðu Viðkvæmustu hóparnir hafa haldið sig við inni við síðustu daga vegna gosmóðu frá Eldgosinu í Geldingadölum að sögn varaformanns Samtaka lungnasjúklinga . Sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun brýnir fyrir fólki að fylgjast vel með loftgæðum. 5.7.2021 18:33
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Viðkvæmustu hóparnir hafa haldið sig við inni við síðustu daga vegna gosmóðu frá Eldgosinu í Geldingadölum á höfuðborgarsvæðinu. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður rætt við lungnasjúkling sem fer ekki út úr húsi vegna loftgæðanna. 5.7.2021 18:00
Hæsti hestur í heimi er allur Hesturinn Big Jake lést á dögunum tuttugu ára gamall. Hann var árið 2010 útnefndur hæsti hestur í heimi af heimsmetabók Guinness. 5.7.2021 17:48
„Verðum að læra að lifa með vírusnum“ Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, tilkynnti í dag nýja áætlun ríkisstjórnar hans um það að „lifa með Covid-19“ en sú áætlun snýr að því að fella niður sóttvarnaaðgerðir og félagsforðun á Englandi. Niðurfellingarnar munu hefjast þann 19. júlí. 5.7.2021 16:49
Segir gagnrýni í garð þolenda afhjúpa kvenhatur Helga Baldvins Bjargardóttir, lögfræðingur og aðgerðarsinni, segir þá umræðu sem myndast hefur gegn brotaþolum í kynferðisbrotamálum í athugasemdakerfum undanfarna daga vera virkilega afhjúpandi. 5.7.2021 16:40
Umsátursástand þegar lögregla eltist við þungvopnaða „mára“ Íbúum í bænum Wakefield í Massachusetts í Bandaríkjunum var skipað að halda kyrru fyrir heima hjá sér á meðan lögreglumenn leituðu uppi hóp þungvopnaðra manna sem flúði inn í skóglendi á laugardag. Ellefu manns voru handteknir eftir umsátrið sem stóð yfir í hátt í níu klukkustundir. 5.7.2021 15:55
Vilja að borgin rannsaki starfsemi vöggustofa Fimm karlmenn sem voru vistaðir á vöggustofum sem reknar voru á vegum Reykjavíkurborgar á síðustu öld krefjast þess að borgaryfirvöld rannsaki starfsemi þeirra og afleiðingar hennar á börn. Þeir segja að vistunin á vöggustofunum hafi valdið þeim og fjölskyldum þeirra skaða. 5.7.2021 14:55
Braust inn á heimili fyrrverandi sambýliskonu og réðst á kærastann hennar Þrítugur karlmaður hefur verið ákærður fyrir líkamsárás, brot gegn nálgunarbanni, húsbrot og hótanir í garð fyrrverandi sambýliskonu sinnar og kærasta hennar. Karlmaðurinn var tekinn þrisvar fyrir of hraðan akstur sama kvöldið í mars í fyrra. 5.7.2021 14:53
Skemmtun skólafélags í Þrastalundi fór „algerlega úr böndunum“ Lögregla á Suðurlandi var kölluð út þegar skemmtun skólafélags í Þrastalundi í Grímsnesi var „algerlega komin úr böndunum“ síðasta laugardagskvöld. 5.7.2021 14:44
Lýðræðissinnum bannað að syrgja félaga sinn sem sakaður er um hryðjuverk Lögreglan í Hong Kong hefur varað lýðræðissinna við því að syrgi þeir dauða mótmælanda, sem stakk lögreglumann með kuta, verði litið á það sem stuðning við hryðjuverk. Það sé vegna þess að árásin sé nú til rannsóknar hjá þjóðaröryggisstofnun Hong Kong. 5.7.2021 14:24
Höfðu uppi á týndri rauðri pöndu í dýragarði Starfsmenn dýragarðsins í Duisburg í Þýskalandi hafa haft uppi á Jang, rauðri pöndu, sem hafði sloppið úr gerði sínu og haldið á vit ævindýranna í dýragarðinum. Jang fannst uppi í nálægri trjákrónu á lóð dýragarðsins eftir að leit hafði staðið yfir í um 36 klukkustundir. 5.7.2021 14:06
Rekordowa liczba pasażerów na lotnisku w Keflaviku W ostatnią sobotę lotnisko obsłużyło łącznie 10580 osób, takiego ruchu nie było tam od 15 miesięcy. 5.7.2021 13:36
„Ég mun bregðast við þessu af fullum þunga“ Ingólfur Þórarinsson, betur þekktur sem Ingó Veðurguð, mun bregðast við ákvörðun þjóðhátíðarnefndar af fullum þunga og er þegar farinn að leita réttar síns. 5.7.2021 13:25
Ræða hvort taka skuli tillit til tilfinninga dýra Breskir þingmenn rökræða nú um hvort að rétt sé að taka tillit til tilfinninga dýra þegar menn setja sér lög og reglur. Frumvarp þessa efnis er sagt ganga enn lengra en Evrópulög sem eru talin ganga hvað lengst í þá átt í heiminum. 5.7.2021 13:24
Langtímsamningur UNICEF við Janssen fyrir hönd COVAX Samningur UNICEF tryggir allt að 200 milljónir skammta af bóluefni frá Janssen á árinu 2021. 5.7.2021 13:08
Þúsund hermenn flúðu Talibana og enduðu í Tadsíkistan Rúmlega þúsund afganskir hermenn flúðu til Tadsíkistan í gær þegar vígamenn Talibana sóttu fram gegn þeim í norðurhluta Afganistan í gær. Talibanar náðu stjórn á nokkrum héruðum í norðurhluta landsins en stjórnarherinn á verulega undir högg að sækja á baráttunni við vígamenn. 5.7.2021 13:01
Ákærð fyrir að svipta barnsföður umsjá yfir börnum þeirra Kona nokkur hefur verið ákærð fyrir sifskaparbrot með því að hafa á tveggja ára tímabili svipt barnsföður sinn valdi og umsjá yfir tveimur börnum þeirra. Málið er til meðferðar hjá Héraðsdómi Reykjaness þar sem það var þingfest á föstudaginn. 5.7.2021 12:45
„Þurfum að setja okkur í loftgæðagosgír“ Sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun brýnir fyrir fólki að tileinka sér að kanna loftgæði í nágrenni við sig vegna mengunar frá eldgosinu í Geldingadölum. Fólk með öndunarfærasjúkdóma eigi að forðast útiveru þegar mengun er mikil. Búast megi við færri sólardögum í sumar vegna gosmóðu og þoku. 5.7.2021 12:01
Tilnefnir Löfven sem forsætisráðherra Andreas Norlén, forseti sænska þingsins, mun tilnefna Stefan Löfven sem forsætisráðherra landsins og mun þingið greiða atkvæði um tillöguna á miðvikudaginn. 5.7.2021 11:57
Norðmenn fresta tilslökunum af ótta við delta Erna Solberg, forsætisráðherra Noregs, tilkynnti í dag að fyrirhuguðum tilslökunum á sóttvarnaaðgerðum verði frestað til mánaðamóta að minnsta kosti. Ástæðan er áhyggjur af því að svonefnt delta-afbrigði kórónuveirunnar gæti hrundið af stað nýrri bylgju faraldursins. 5.7.2021 11:45
Ingó sér ekki um brekkusönginn á Þjóðhátíð Ingólfur Þórarinsson, betur þekktur sem Ingó Veðurguð, mun ekki annast brekkusöng á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum í ár. Ingó mun því ekki koma fram á hátíðinni í ár en til stóð að hann flytti þjóðhátíðarlagið frá því í fyrra á laugardagskvöldi hátíðarinnar. 5.7.2021 11:45
Þúsundir „bólusettar“ með saltvatnslausn Þúsundir Indverja féllu fyrir umfangsmikilli svikamyllu þar sem einstaklingum var seld bólusetning við Covid-19 en raunverulega sprautað með saltlausn. Læknar og aðrir heilbrigðisstarfsmenn eru meðal þeirra sem hafa verið handteknir. 5.7.2021 11:43
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við um aukna umferð um Keflavíkurflugvöll en síðastliðinn laugardag fóru tíu þúsund farþegar um völlinn og hafa þeir ekki verið svo margir síðan í mars á síðasta ári. 5.7.2021 11:34
Tveir greinst innanlands frá því á fimmtudag Tveir hafa greinst með kórónuveiruna innanlands frá því á fimmtudag - einn á fimmtudag og einn á laugardag. Báðir voru utan sóttkvíar við greiningu. 5.7.2021 11:01
Vísbendingar um galla í blokkinni sem hrundi Sérfræðingar sem hafa skoðað rústir íbúðablokkarinnar á Surfside á Flórida sem hrundi í síðasta mánuði sjá merki um galla í grunni hennar. Að minnsta kosti 24 eru látnir en 121 er enn saknað og óhugsandi er talið að nokkur finnist á lífi. 5.7.2021 10:41
Átján og tólf ára systur létust á Melshornet Lögregla í Noregi greindi frá því í morgun að þær sem létust eftir að hafa orðið fyrir eldingu á fjallinu Melshornet í Noregi í gær hafi verið systur, tólf og átján ára gamlar. 5.7.2021 10:21
Leirgos líklegasta skýringin á sprengingunni í Kaspíahafi Forsvarsmenn SOCAR, ríkisolíufyrirtækis Aserbaídsjan, segja svokallað leirgos vera líklegustu skýringuna fyrir sprengingunni í Kaspíhafi í gær. Mikið eldhaf lýsti upp himininn á svæðinu og vakti mikla furðu. 5.7.2021 09:41
Krefjast milljarða til leysa gögn úr haldi Tölvuþrjótar sem tóku gögn hundraða fyrirtækja víða um heim í gíslingu fyrir helgi krefjast nú jafnvirði um 8,7 milljarða króna í lausnargjald. Sænska verslanakeðjan Coop þurfti að loka hundruðum verslana sinna þegar kassakerfi þeirra læstist. 5.7.2021 09:04
Á annað hundrað enn saknað eftir aurskriðu í Japan Að minnsta kosti þrír eru látnir og á annað hundrað enn saknað eftir að mikil aurskriða féll í bænum Atami, suðvestur af japönsku höfuðborginni Tókýó á laugardag. 5.7.2021 08:09
Skaut golfþjálfara með tvo látna á pallinum Lögreglan í Atlanta í Bandaríkjunum leitar nú einstaklings sem skaut golfþjálfarann Gene Siller til bana á golfvelli norður af borginni á laugardag. Viðkomandi er einnig grunaður um að hafa orðið tveimur öðrum að bana. 5.7.2021 07:53
Miðflokkurinn sagður ætla að samþykkja áframhaldandi stjórn Löfvens Flokkstjórn sænska Miðflokksins er sögð reiðubúin að verja nýrri ríkisstjórn Stefans Löfven falli. Frá þessu greinir Svenska dagbladet (SvD) í morgun, en Löfven mun í dag tilkynna þingforsetanum Andreas Norlén hvort hann telji grundvöll fyrir því að mynda nýrri stjórn undir hans forsæti sem nyti stuðnings meirihluta þings. 5.7.2021 07:36
Búið að rífa restina af húsinu og leit hafin á ný Leifar íbúðahússins í Flórída sem hrundi á dögunum með hörmulegum afleiðingum hafa nú verið jafnaðar við jörðu. Hluti byggingarinnar hrundi til grunna þann 24. júní síðastliðinn og er 121 enn saknað en 24 hafa fundist látnir í rústunum. 5.7.2021 07:25
Víða þungbúið með þoku en rofar til þegar líður á morguninn Það stefnir í breytilega átt í dag, þrír til átta metrar á sekúndu. Þungbúið verður með þoku víða í morgunsárið, en rofar til þegar líður á morguninn. 5.7.2021 07:07
Vísindamenn uggandi yfir afléttingaráætlun stjórnvalda Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, mun í dag tilkynna um afléttingar á öllum sóttvarnaraðgerðum sem taka munu gildi 19. júlí næstkomandi. Vísindamenn hafa fordæmt fyrirætlanir stjórnvalda, þar sem kórónuveirufaraldurinn virðist vera í vexti. 5.7.2021 07:06
Nýskráningar ökutækja aukast um 69% á milli ára Alls voru nýskráð 2203 ný ökutæki í júní sem er aukning um tæp 260 ökutæki á milli mánaða, í maí voru 1947 ökutæki nýskráð. En á milli ára er aukningin nærri því 900 bílar, eða 69% aukning. Flestar nýskráningar bifreiða voru af Toyota gerð í júní. 5.7.2021 07:01
Lögregla vísaði hústökufólki úr íbúð í miðbænum Eigandi íbúðar í miðbænum setti sig í samband við lögreglu í gærkvöldi og sagðist hafa haft fregnir af því að fólk héldi sig til í tómri íbúðinni. Lögregla fór á vettvang og fann sannarlega einstaklinga þar fyrir, sem var vísað á brott. 5.7.2021 06:22
Páfinn við hestaheilsu eftir aðgerð Frans páfi gekkst undir hnífinn í dag þegar framkvæmd var aðgerð á stórþörmum hans. Aðgerðin gekk að vonum vel. 4.7.2021 23:31
Hraunslettur í gígnum á ný eftir sextán stunda goshlé Jarðeldur sást á ný í gígnum í Fagradalsfjalli um níuleytið í kvöld. Eldgosið hafði þá legið niðri frá því um fimmleytið í morgun. 4.7.2021 22:23
Bjóst ekki við að komast lífs af „Ég var ekki búinn að gefa upp vonina um að finnast, en ég var ekki viss um að myndi finnast á lífi,“ segir Scott Estill, ferðamaðurinn sem týndist á Reykjanesi síðustu helgi. 4.7.2021 21:46
Oddi á Rangárvöllum í þjóðbraut á ný með brú til Vestur-Landeyja Hið forni höfuðstaður, Oddi á Rangárvöllum, er aftur kominn í alfaraleið með nýrri brú yfir Þverá, sem styttir verulega leiðina milli Rangárvalla og Vestur-Landeyja. Brúin er 93 metra löng og reist í samstarfi sveitarfélagsins Rangárþings ytra og Vegagerðarinnar. 4.7.2021 21:21
Þyrlan tók slasaðan mótorhjólamann með í bakaleiðinni Þyrla Landhelgisgæslunnar var við æfingar á Norðurlandi þegar útkall barst vegna mótorhjólaslyss á Hveravöllum. 4.7.2021 20:25
Saknar þess tíma þegar skemmtistaðir þurftu að loka fyrr: „Allt of mikið að gera“ Dyraverðir á skemmtistöðum miðbæjarins segja álagið í bænum gríðarlegt um helgar eftir að samkomutakmörkunum var aflétt innanlands. Dyravörður á Prikinu saknar þess tíma þegar hömlur voru á opnunartíma skemmtistaða vegna sóttvarnarreglna. 4.7.2021 19:20
Gríðarleg sprenging í Kaspíahafi Mikil sprenging varð í Kaspíahafi undan ströndum Aserbaídsjan í dag. Sprengingin varð í nokkra kílómetra fjarlægð frá olíuborpalli. 4.7.2021 19:02
Tvær konur létust eftir að hafa orðið fyrir eldingu í Noregi Þrjár konur urðu fyrir eldingu á fjallinu Melshornet í sveitarfélaginu Hareid í Mæri og Raumsdal í dag. Tvær eru látnar og þriðja konan liggur þungt haldin á spítala. 4.7.2021 18:40
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í fréttum okkar í kvöld verður rætt við Gunnar Smára Egilsson, stofnanda Sósíalistaflokksins. Hann gefur kost á sér á lista flokksins fyrir komandi kosningar og segir það sæta tíðindum í íslenskum stjórnmálum að stjórnmálaflokkur mælist með fulltrúa á þingi án þess að hafa kynnt framboðslista flokksins. 4.7.2021 18:22