Segir gagnrýni í garð þolenda afhjúpa kvenhatur Elma Rut Valtýsdóttir skrifar 5. júlí 2021 16:40 Helga Baldvins Bjargardóttir, lögfræðingur og aðgerðasinni, segir tímabært að endurskoða það kerfi sem mætir brotaþolum í kynferðisbrotamálum og veltir því fyrir sér hvort aðrar leiðir en sakamálaréttarfarið gætu verið vænlegar til árangurs. Vísir/Baldur Helga Baldvins Bjargardóttir, lögfræðingur og aðgerðarsinni, segir þá umræðu sem myndast hefur gegn brotaþolum í kynferðisbrotamálum í athugasemdakerfum undanfarna daga vera virkilega afhjúpandi.
Fjöldi kvenna steig fram um helgina og deildi sögum af kynferðisofbeldi af hálfu þjóðþekkts einstaklings, án þess að koma undir nafni. Ákveðinn hópur fólks hefur gagnrýnt þetta harkalega í athugasemdakerfum fjölmiðla og á samfélagsmiðlum. Helga segir djúpstætt kvenhatur búa þar að baki. „Við elskum strákana okkar og sérstaklega flottu strákana okkar og hefjum þá svo upp til skýjanna, að konur sem stíga fram og hvað þá konur sem stíga nafnlaust fram, við erum til í að slátra þeim.“ Konur ekki almennt að ljúga upp á saklausa menn Hún segir allt of marga efast um sannleiksgildi frásagna þeirra kvenna sem stíga fram. Fyrir þær sakir segir Helga Me-too bylgjurnar vera sérstaklega mikilvægar. „Eins og það sé bara eitthvað sem konur séu bara almennt að gera, að ljúga upp á saklausa, dásamlega, yndislega menn. Þegar svona margar konur opna sig um sína reynslu þá verður vakning. Þá rofar aðeins til í þessari mýtu um konuna sem lýgur. Bíddu þetta eru allar konur.“ Helga telur tímabært að endurskoða það kerfi sem mætir brotaþolum í kynferðisbrotamálum. Þeir fáu brotaþolar sem leiti réttar síns fái yfirleitt ekki áheyrn og í þeim málum þar sem gerendur séu dæmdir, séu dómar gjarnan mildaðir. Þannig bregðist réttarkerfið brotaþolum ítrekað og því veltir Helga fyrir sér hinum ýmsu möguleikum. „Þetta er bæði manneklu vandi og réttarfarsvandi. Þannig hvað eiga brotaþolar að gera?“ Ábyrgðarferli vænlegra en refsing? „Hvað ef brotaþolar gætu kallað gerendur sínar í svona ábyrgðarferli þar sem býðst að fara ekki í fangelsi, heldur að þeir hlusti á brotaþola, axli ábyrgð á því að hafa valdið brotaþola sársauka og greiði allan sálfræðikostnað og allt tjón sem brotaþoli hefur orðið fyrir og sleppi þá við refsingu. Væri það möguleiki?,“ spyr Helga. Hún veltir því einnig fyrir sér hvort vægari refsirammi væri æskilegur. „Refsiramminn er alveg sextán ár. Er það endilega til góðs? Ef fangelsi væri bara eitt ár eða fjársekt, þá væru miklu fleiri sakfelldir.“ Hún telur umræðuna vera lykilatriði í þessum málum og þar sé skrímslavæðing versti óvinurinn. „Það eiga allir mannréttindi, líka þeir sem eru sakaðir um hræðilegustu glæpi, þeir eiga líka mannréttindi. Ég held að rétta leiðin sé ekki útskúfun úr samfélaginu.“ Út frá sinni eigin reynslu sem brotaþoli segir Helga einlæga afsökunarbeiðni og ábyrgð vera það sem mestu máli skiptir. „Ef ég saka þig um að hafa farið yfir mörk, þá vil ég að þú viðurkennir það og biðjist afsökunar á því. Ég vil ekki að þú farir í vörn, ég vil ekki að þú gaslýsir mig og segir að þetta sé ekki þín upplifun. En vil ég endilega að þú fáir aldrei vinnu í útvarpi framar?“ Helga telur jafnframt ólíklegt að nokkur manneskja líti á sig sem kynferðisbrotamann. „Við erum flest með þá sjálfsmynd að við séum gott fólk. Þá skilgreinir fólk sig held ég aldrei sem kynferðisbrotamenn. Það er frekar fórnarlamb rangra ásakana og einhvers konar nornaveiða. Við eigum rosalega erfitt með að líta í eigin barm.“ Hér má hlusta á viðtalið við Helgu í Bítinu í heild sinni.
MeToo Kynferðisofbeldi Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Fleiri fréttir Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Sjá meira