Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sex leikskólar opnir í allt sumar: Kostnaðurinn í fyrra 44 milljónir Sex leikskólar á vegum Reykjavíkurborgar verða opnir í allt sumar; einn í hverju hverfi. Um er að ræða framhald af tilraunaverkefni sem var sett af stað sumarið 2019 en í nýlegri viðhorfskönnun sögðust 97% foreldra mjög eða frekar ánægðir með fyrirkomulagið. 26.1.2021 18:04
Þriggja metra djúpur „krapahaugur“ lokar þjóðveginum Krapastífla flæðir nú yfir þjóðveg 1 við brúna yfir Jökulsá á Fjöllum. Vegurinn milli Mývatns og Egillstaða er lokaður af þessum sökum. Lögregla segir „krapahauginn“ einna líkastan snjóflóði; hann sé um þriggja metra djúpur og nái yfir um 200 metra vegkafla. 26.1.2021 18:04
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Von er á bóluefni frá Janssen fyrr en áður var talið og segist heilbrigðisráðherra enn gera ráð fyrir að þorri þjóðarinnar verði bólusettur á fyrri hluta ársins. Málið var rætt á þingi í dag og verður fjallað um það í kvöldfréttum Stöðvar 2. Þá verður rætt við yfirlækni ónæmisfræðideildar um hvað sé vitað um bóluefni Janssen. 26.1.2021 18:01
Tilkynningar um andlát orðnar átta Lyfjastofnun var í gær tilkynnt um andlát aldraðrar manneskju sem fengið hafði bólusetningu gegn kórónuveirunni með bóluefni Pfizer. Engar vísbendingar eru um tengsl bólusetningarinnar og andlátsins. Stofnuninni hefur nú verið tilkynnt um átta andlát eftir bólusetningu. 26.1.2021 17:48
Hundrað þúsund dánir í Bretlandi Rúmlega hundrað þúsund manns hafa nú dáið vegna Covid-19 í Bretlandi. Það er samkvæmt opinberum tölum en um 3,7 milljónir manna hafa smitast af nýju kórónuveirunni, sem veldur Covid-19. 26.1.2021 17:01
Mótmæli bænda urðu að óeirðum Þúsundir indverskra bænda lentu í átökum við lögreglu í Nýju Delí, höfuðborg landsins, í dag. Bændurnir hafa fjölmennt í borginni í nærri því tvo mánuði til að mótmæla nýjum lögum sem þeir segja að komi verulega niður á þeim en einn bóndi lét lífið í mótmælunum í dag. 26.1.2021 16:20
Söguleg skipun forstöðumanns Fjölmenningarseturs Nicole Leigh Mosty hefur verið skipuð í embætti forstöðumanns Fjölmenningarseturs til fimm ára. Hún tekur til starfa þann 1. mars. Greint er frá skipun Ásmundar Einar Daðasonar, félags- og barnamálaráðherra, á vef stjórnarráðsins. 26.1.2021 16:18
Mistök ástæða vatnstjóns í Háskóla Íslands Veitur segja að mistök hafi verið gerðar við framkvæmdir á vegum fyrirtækisins við Suðurgötu sem olli því að stofnlögn vatns fór í sundur þannig að vatn flæddi inn í byggingar Háskóla Íslands. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veitum sem viðurkenna mistök og segjast líta atvikið alvarlegum augum. 26.1.2021 14:55
Heilbrigðisráðherra býst við bóluefni Janssen fyrr en áður var talið Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, segir von á bóluefni Janssen fyrr en áður var talið. Þetta kom fram í máli Svandísar í umræðum um skýrslu sem hún flutti um öflun og dreifingu bóluefnis á Alþingi í dag. 26.1.2021 14:54
Minnst einn dáinn og miklar skemmdir vegna skýstróks í Alabama Minnst einn er látinn og tugir sagðir slasaðir eftir skýstrók sem gekk yfir Alabama í Bandaríkjunum í nótt. Skýstrókurinn olli miklum skemmdum í bænum Fultondale. Björgunarstarf stendur enn yfir. 26.1.2021 14:53
Hreyfing að komast á störf öldungadeildarinnar eftir margra daga stopp Leiðtogar öldungadeildar Bandaríkjaþings, Demókratinn Charles Schumer og Repúblikaninn Mitch McConnell, virðast ætla að komast að samkomulagi um það hvernig deila eigi völdum í öldungadeildinni þegar báðir flokkar eru með jafnmarga þingmenn. 26.1.2021 13:33
Vilja bíða með útgöngubann og skyldubólusetningu Velferðarnefnd Alþingis leggur til að heimild til setningar útgöngubanns og skyldubólusetningar á landamærunum verði felldar brott úr frumvarpi til breytinga á sóttvarnalögum. 26.1.2021 13:30
Nowe mutacje wirusa poważnym powodem do bycia ostrożnym Konieczne jest utrzymanie silnych kontroli granicznych i zwracanie uwagi na kontrolę zakażeń osobistych. 26.1.2021 13:27
Persónur og leikendur í málsvörn Jóns Ásgeirs Verulegur titringur er vegna óútkominnar bókar Einars Kárasonar: Málsvörn Jóns Ásgeirs Jóhannessonar en þar gerir Jón Ásgeir fjárfestir og athafnamaður upp feril sinn hingað til, einkum í því sem snýr að viðamiklum dómsmálum sem honum var gert að eiga í. 26.1.2021 13:21
Sundhöllin er með skynjara sem sendir viðbragð ef manneskja liggur hreyfingarlaus á botni sundlaugar Sundhöll Reykjavíkur er með eftirlitskerfi í innilaug sem sendir frá sér viðvörun ef manneskja liggur hreyfingarlaus á botni laugarinnar. Fyrirtækið Swimeye sem selur búnaðinn segir búnaðinn bregðast fyrr við en sundlaugarverðir. Faðir manns sem lést eftir að hafa legið á botni sundlaugarinnar á fimmtudag veltir fyrir sér hvað fór úrskeiðis. 26.1.2021 13:18
Branża turystyczna z optymizmem patrzy w przyszłość Przedstawiciele branży turystycznej mają nadzieję na lepszą przyszłość. 26.1.2021 12:56
Forsætisráðherra Ítalíu búinn að segja af sér Giuseppe Conte, forsætisráðherra Ítalíu, hefur sagt af sér embætti og er óljóst hvort að honum muni takast að setja saman nýja ríkisstjórn. Conte gekk á fund forsetans Sergio Mattarella í dag og tilkynnti um afsögn sína. 26.1.2021 12:45
Róbert liggur undir feldi Róbert Marshall, upplýsingafulltrúi ríkisstjórnarinnar, íhugar nú að bjóða sig fram í forvali Vinstri grænna í Reykjavík fyrir þingkosningarnar sem fram fara næsta haust. 26.1.2021 12:18
Uppfært: Bóluefni fyrir 35 þúsund manns væntanlegt fyrir lok mars Ísland á von á bóluefni fyrir 33.500 manns í febrúar mánuði. Enn sé stefnt að því að þorri þjóðar verði bólusettur fyrir mitt ár, þó engu sé slegið á föstu. 26.1.2021 12:10
Ferðaþjónustan bjartsýn en kallar eftir frekari aðgerðum stjórnvalda Mikillar bjartsýni gætir meðal ferðaþjónustufyrirtækja en stór meirihluti þeirra ætlar að halda sínu striki samkvæmt könnun KPMG sem unnin var fyrir Nýársmálstofu Samtaka ferðaþjónustunnar, Ferðaklasans og KPMG. Á málstofu klasans kom fram að flest ferðaþjónustufyrirtæki skorti fjármagn til fjárfestinga og að nauðsynlegt væri að byggja upp innviði landsins eins og vegakerfi. 26.1.2021 11:54
Halda heræfingar og vara við köldu stríði Yfirvöld í Kína opinberuðu í morgun að til stæði að halda heræfingar í Suður-Kínahafi í vikunni. Það er í kjölfar þess að Bandaríkjamenn sigldu flugmóðurskipi og öðrum herskipum í gegnum hafsvæðið umdeilda sem Kínverjar gera tilkall til. Þá varar Xi Jinping, forseti Kína, við nýju köldu stríði. 26.1.2021 11:51
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum okkar er rætt við Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra um væntanlega afhendingu bóluefnis hingað til lands en hún gerir ráð fyrir að hægt verði að bólusetja um 33 þúsund manns í febrúarmánuði. 26.1.2021 11:35
Segist vanur brekkunum og hefur engar áhyggjur Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, segist engar áhyggjur hafa af því að Framsóknarflokkurinn mælist ekki með einn þingmann í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur ef kosið yrði til Alþingis nú. Um er að ræða niðurstöður nýrrar könnunar Maskínu fyrir fréttastofuna sem fjalla var um í morgun. 26.1.2021 11:32
Heilbrigðisráðherra gefur þinginu skýrslu um bóluefni Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, mun flytja munnlega skýrslu um öflun og dreifingu bóluefnis á Alþingi í dag. Síðast flutti ráðherra sambærilega skýrslu áður en þingfundum var frestað fyrir jólafrí. 26.1.2021 10:57
Tveir greindust með kórónuveiruna innanlands í gær Tveir greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Báðir voru í sóttkví við greiningu. 26.1.2021 10:56
Guðmundur Magnússon látinn Guðmundur Magnússon, kennari og leiðsögumaður, er látinn 84 ára að aldri. Útför Guðmundar fer fram frá Grensáskirkju klukkan 15 í dag en streymt verður frá athöfninni vegna samkomutakmarkana. 26.1.2021 10:55
Íslensk fyrirtæki á útboðsþingi Sameinuðu þjóðanna Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, áréttaði mikilvægi alþjóðasamvinnu á tímum heimsfaraldurs á tveggja daga rafrænu útboðsþingi Sameinuðu þjóðanna sem hófst í morgun. Sjö íslensk fyrirtæki taka þátt í þinginu og kynna vörur sínar og þjónustu fyrir innkaupadeildum Sameinuðu þjóðanna. 26.1.2021 10:45
Ráðherra fagnar að tekist hafi að afstýra loðnubresti Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, gerði á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun grein fyrir því að hann hefði í samræmi við ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar undirritað reglugerð um veiðar á loðnu. 26.1.2021 10:34
Jódís gefur kost á sér í annað sætið Jódís Skúladóttir, lögfræðingur og oddviti VG í Múlaþingi, hefur ákveðið að gefa kost á sér í 2. sæti á lista Vinstri grænna í Norðausturkjördæmi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Jódísi. 26.1.2021 10:24
Furðar sig á seinagangi við upptöku skimana fyrir ristilkrabbameini Öll Norðurlöndin utan Íslands eru með reglubundna skimun fyrir krabbameini í ristli. Framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins furðar sig á því að sú skimun hafi ekki verið tekin upp þegar þjónustan færðist til heilsugæslunnar. 26.1.2021 10:06
Tólf gefa kost á sér í forvali VG í Norðausturkjördæmi Alls hafa tólf manns gefið kost á sér í forvali Vinstri grænna um fimm efstu sætin á lista flokksins fyrir þingkosningar næsta haust. Forvalið verður rafrænt og haldið 13. til 15. febrúar næstkomandi. 26.1.2021 09:58
Spörkuð harkalega í jörðina og kærir lögreglu Rússnesk kona, sem lögregluþjónn sparkaði harkalega niður á mótmælum í St. Pétursborg á laugardaginn, ætlar að leggja fram kæru gegn lögregluþjóninum. Myndband af atvikinu þegar sparkað var í konuna var í mikilli dreifingu á netinu um helgina. 26.1.2021 09:32
Malbika veginn að Urriðafossi Vegagerðin hefur boðið út endurbyggingu 1,2 kílómetra kafla Urriðafossvegar. Kaflinn nær frá gatnamótunum á hringveginum við Þjórsárbrú að bílaplani við Urriðafoss. 26.1.2021 09:31
Framsókn næði ekki inn manni í Reykjavík Framsóknarflokkurinn næði ekki inn þingmanni í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur ef kosið yrði til Alþingis nú samkvæmt nýrri könnun Maskínu fyrir fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar. Þá mælist Samfylkingin stærsti flokkurinn í Reykjavíkurkjördæmi norður. 26.1.2021 09:13
Pompidou-safninu í París lokað í fjögur ár Pompidou-safninu í frönsku höfuðborginni París verður lokað í fjögur ár til að hægt verði að ráðast í nauðsynlegar endurbætur. Menningarmálaráðherra landsins segir þá leið að loka safninu alfarið bæði vera ódýrari lausn og þannig taki endurbæturnar líka skemmri tíma. 26.1.2021 08:43
Sautján milljónir dala úr þrotabúi og til fórnarlamba Dómari í Bandaríkjunum hefur úrskurðað að sautján milljónir dala skuli greiddar í miskabætur til fórnarlamba kvikmyndaframleiðandans Harvey Weinstein sem sökuðu hann um kynferðislegt ofbeldi og áreitni. Upphæðin nemur 2,2 milljarðar íslenskra króna. 26.1.2021 07:37
Verstu óeirðir í Hollandi í fjörutíu ár Lögreglan í Hollandi segir að óeirðirnar í landinu seinustu daga séu þær verstu í landinu í fjörutíu ár. Fjöldi mótmælenda hefur komið saman í hollenskum borgum til þess að mótmæla útgöngubanni sem yfirvöld hafa sett á til þess að reyna að hefta útbreiðslu kórónuveirunnar. 26.1.2021 07:33
Víða allhvöss austan- og norðaustanátt Veðurstofan spáir austan og norðaustanátt í dag, víða allhvassri eða hvassri, tíu til átján metrar á sekúndu, en mun hægari austan til. Dálítil él verða á landinu norðanverðu, en bjart með köflum syðra. Lægir heldur suðvestantil í kvöld. 26.1.2021 07:09
Afhentu öldungadeildinni ákæruna á hendur Trump Þingmenn úr fulltrúadeild Bandaríkjaþings afhentu í gær öldungadeildarþingmönnum ákæruna á hendur Donald Trump, fyrrverandi forseta, sem samþykkt var í fulltrúadeildinni fyrir tveimur vikum, á meðan Trump var enn í embætti. 26.1.2021 06:38
Ný afbrigði og bólusetningar: Full ástæða til að fara varlega Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir að ekki þurfi nema smá óheppni til að smit berist inn í landið. Þess vegna, segir hann, er nauðsynlegt að viðhafa áfram öflugt eftirlit á landamærunum og huga að persónubundnum sóttvörnum. 25.1.2021 23:54
Segja bóluefni AstraZeneca ekki virka fyrir 65 ára og eldri Bóluefni AstraZeneca er sagt ekki munu fá markaðsleyfi í Evrópu til bólusetningar þeirra sem eru 65 ára og eldri. Ástæðan mun vera sú að bóluefnið tryggi eldra fólki ekki næga vörn gegn sjúkdómnum. Þessum fullyrðingum neitar aftur á móti AstraZeneca. 25.1.2021 23:44
Harriet Tubman verði andlit tuttugu dollara seðilsins sem fyrst Ríkisstjórn Joe Biden Bandaríkjaforseta hyggst leita leiða til að flýta ferlinu við að prenta peningaseðla með mynd af Harriet Tubman. Stjórn Donalds Trump, forvera hans í embætti, lét ákvörðun Baracks Obama þess efnis niður falla. 25.1.2021 23:09
Eiga von á því að húsið verði rifið að hluta á morgun Slökkvistarfi við Kaldasel í Seljahverfi í Breiðholti lauk nú á ellefta tímanum í kvöld. Mikill eldur kom upp í þaki hússins fyrr í kvöld, en þar hafði eldur komið upp í morgun og altjón orðið. 25.1.2021 22:54
Erfitt að segja til um hvenær útgöngubanni verður aflétt Matt Hancock, heilbrigðisráðherra Bretlands, segir margt benda til þess að baráttan við faraldurinn þar í landi sé að skila árangri en hann telur erfitt að spá fyrir um hvenær útgöngubanni verði aflétt. Aðgerðirnar virðist vera að virka en nú sé ekki rétti tímapunkturinn til að slaka á. 25.1.2021 22:28
Segir kenningu um nafnið Thymele vera skáldfræði Rannsóknarprófessor við Árnastofnun segir nýja kenningu þess efnis að fyrsta nafn Íslands hafi verið Thymele en ekki Thule aðeins skemmtilega hugdettu í ætt við skáldfræði. Hann segir þó almennt orðið viðurkennt meðal fræðimanna að Thule sé Ísland. 25.1.2021 21:56