Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
„Þetta var bara áfall“ Kristinn Már Jóhannesson, slökkviliðsmaður á Austfjörðum, var við störf í námunda við húsin sem urðu fyrir stóru skriðunni sem féll á Seyðisfirði um þrjúleytið í dag. Slökkviliðsmenn voru við dæluvinnu þegar drunurnar byrjuðu. Kristinn Már var að ganga frá slöngu með félögum sínum í slökkviliðinu. 18.12.2020 17:47
Kanna hve margir bjuggu í húsunum Ekki er vitað til að nokkurs sé saknað eftir seinni skriðuna sem féll á Seyðisfirði í dag. Rögnvaldur Ólafsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá almannavörnum, segir í samtali við Vísi að á þessari stundu sé ekki vitað til þess að slys hafi orðið á fólki. 18.12.2020 17:20
Myndband af stóru skriðunni sem féll á Seyðisfirði Neyðarstigi hefur verið lýst yfir á Seyðisfirði eftir að skriður féllu síðdegis í dag. Stefnt er að því að rýma bæinn. 18.12.2020 16:41
Stefnt að því að rýma Seyðisfjörð Allir íbúar Seyðisfjarðar eru beðnir um að gefa sig fram í fjöldahjálparstöðinni í bænum. Almannavarnir stefna að því að rýma bæinn. Stór aurskriða féll þar um klukkan þrjú. Óttast er að hún hafi fallið á stærra svæði en í fyrstu var talið og að tjónið sé mikið. 18.12.2020 15:56
Sex handteknir í aðgerðum tengdum barnaníði og vændi Sex voru nýverið handteknir í aðgerðum lögreglu gegn barnaníði á netinu og vændi. Fjórir voru handteknir grunaðir um að hafa haft barnaníðsefni í sinni vörslu og tveir handteknir vegna gruns um vændiskaup. 18.12.2020 15:49
Takmarkanir hertar í Svíþjóð og metfjöldi smitaðra Svíar þurfa að bera grímur þegar þeir nýta sér almenningssamgöngur og fleiri en fjórir mega ekki vera inni á veitingastöðum í einu frá og með 24. desember. 18.12.2020 15:38
Minnst tíu hús skemmdust þegar stór skriða féll Aurskriða féll á hús á Seyðisfirði um klukkan þrjú. Hún er mögulega sú stærsta sem fallið hefur á svæðinu á síðustu dögum. Ekki er vitað um nein slys á fólki að svo stöddu. Almannavarnarstig á Seyðisfirði hefur verið hækkað úr hættustigi í neyðarstig. Stefnt er að því að rýma bæinn. 18.12.2020 15:08
Borgarleikhúsið og Kristín sýknuð af kröfu Atla Rafns í Landsrétti Landsréttur sýknaði í dag Leikfélag Reykjavíkur og Kristínu Eysteinsdóttur fyrrverandi Borgarleikhússtjóra af kröfu Atla Rafns Sigurðssonar leikara. Héraðsdómur dæmdi stjórn leikfélagsins og Kristínu í fyrra til að greiða Atla Rafni 5,5 milljónir króna í bætur vegna ólögmætrar uppsagnar og ærumeiðingar. 18.12.2020 15:05
Fjöldatakmarkanir eigi við innandyra sem utandyra Reglur um fjöldatakmarkanir gilda jafnt innandyra sem utandyra. Þetta kemur fram í svari heilbrigðisráðuneytisins við fyrirspurn fréttastofu. 18.12.2020 14:48
Varasamar aðstæður vegna slitlagsskemmda Umtalsverðar slitlagsskemmdir hafa orðið á Bíldudalsvegi í Mikladal og Tálknafirði vegna veðurs. Unnið er að bráðabirgðaviðgerðum á svæðinu. 18.12.2020 14:37
Beina sjónum sínum að Fóðurblöndunni vegna tíðrar ólyktar í Laugarneshverfi og nágrenni Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkurborgar hefur krafist þess að Fóðurblandan, sem staðsett er í Korngörðum í Reykjavík, grípi til aðgerða til að koma megi í veg fyrir að óþef leggi yfir nálæga byggð. Tilkynningum til borgaryfirvalda um vonda lykt á svæðinu hefur fjölgað mikið síðan haust. Forstjóri Fóðurblöndunnar segir enga breytingu hafa orðið í starfseminni sem skýri fjölgunina og kveðst vona að heilbrigðiseftirlitið sé í málinu ekki að hengja bakara fyrir smið. 18.12.2020 14:30
Býst við að 60 þúsund skammtar verði komnir í lok mars Heilbrigðisráðherra segir að samkvæmt áætlunum sem nú liggi fyrir komi um þrjú til fjögur þúsund skammtar af bóluefni Pfizer til landsins í hverri viku frá því í lok desember og út mars. Þá verði komnir um 60 þúsund skammtar til landsins. 18.12.2020 14:26
Vill heimila frekari rannsóknir á flaki Estonia Rannsóknarnefnd samgönguslysa í Svíþjóð hefur krafist þess að frekari rannsóknir verði gerðar á flaki farþegaferjunnar Estonia sem sökk í Eystrasalti árið 1994 og farið fram á að ríkisstjórn landsins aflétti grafhelgi flaksins. 18.12.2020 14:21
Framhald á samstarfi við orkusjóð Alþjóðabankans Ísland fjármagnar stöðu jarðhitasérfræðings hjá orkusjóði Alþjóðabankans. Framhald verður á samstarfinu til fjögurra ára. 18.12.2020 14:18
Bruninn á Bræðraborgarstíg: Ekki hægt að bjarga þeim sem létust Rannsakendur brunans á Bræðraborgarstíg telja líkur á að kveikt hafi verið í á tveimur stöðum í húsinu. Þeir telja að óháð því hvort um íkveikju var að ræða þá hafi fleiri samverkandi þættir haft áhrif á að eldsvoðinn varð jafn mannskæður og raun ber vitni. 18.12.2020 14:08
Unnusta Khashoggi vill að Biden birti skýrslu CIA um morðið Hatice Cengiz, unnusta Jamal Khashoggi, hefur skorað á nýkjörinn forseta Bandaríkjanna að birta skýrslu leyniþjónustunnar (CIA) um morðið á blaðamanninum. Segir hún birtinguna munu skipta sköpum í því að leiða sannleikann í ljós. 18.12.2020 13:50
Kom til landsins til að bjarga eigum sínum en húsið fór degi seinna Cordoula Fchrand, eigandi einbýlishússins Breiðabliks við Austurveg á Seyðisfirði, segist ekki bjartsýn á að eitthvað sé eftir af eignum hennar í húsinu. Stór aurskriða úr Nautaklauf tók húsið með sér í nótt og flutti það til um fimmtíu metra 18.12.2020 13:20
Flýta mati á bóluefni Moderna um viku Sérfræðinganefnd Lyfjastofnunar Evrópu (EMA) mun flýta mati á bóluefni frá Moderna . Fundurinn, sem áður átti að halda 12. janúar, fer fram 6. janúar í staðinn. Reynt verður að ljúka mati á bóluefninu á fundinum og þegar það liggur fyrir mun framkvæmdastjórn Evrópusambandsins reyna að gefa út markaðsleyfi á fáeinum dögum. 18.12.2020 13:17
Þau eru tilnefnd sem Maður ársins 2020 Vísir og Bylgjan standa fyrir vali á Manni ársins 2020 og geta lesendur nú tekið þátt í að velja þá manneskju sem þeim þykir eiga nafnbótina skilið. Um fimm þúsund tilnefningar bárust í gegnum vefinn og í símatíma Reykjavík síðdegis. Þær hafa aldrei verið fleiri. 18.12.2020 13:00
Laun Katrínar munu líklega hækka um 170 þúsund krónur í sumar Björn Leví Gunnarsson Pírati segir miklar launahækkanir þingmanna ekki forsvaranlegar en boltinn sé hjá ríkisstjórninni. 18.12.2020 12:46
Áhyggjuefni að fólkið viti ekki hvar eða hvernig það smitaðist Sóttvarnalæknir segir áhyggjuefni að hluti þeirra sem greinst hafa með kórónuveiruna í gær hafi engin tengsl við aðra smitaða. Þetta sé vísbending um útbreiðslu veirunnar. Hann áréttar að nú sé mikill áhættutími genginn í garð. 18.12.2020 12:33
Enn fækkar þeim sem senda jólakort Enn fækkar í hópi þeirra sem senda jólakort. Einungis sextán prósent segjast ætla að senda jólakort í bréfpóst í ár, að því er segir í niðurstöðum skoðanakönnunar MMR. Um 57 prósent segjast ekki ætla senda nein jólakort í ár, en 23 prósent segjast ætla að senda jólakort með rafrænum hætti. 18.12.2020 12:21
Meirihluti atvinnuveganefndar bakkar í tollkvótamálinu Meirihluti atvinnuveganefndar hefur fallið frá fyrri tillögu sinni um auknar álögur á tollkvóta á innfluttar landbúnaðarvörur frá evrópusambandsríkjunum í þrjú ár og leggur nú til að álögurnar verði auknar um eitt og hálft ár. 18.12.2020 11:59
„Örugglega mjög erfitt fyrir marga bæjarbúa að upplifa þetta“ Þórhallur Árnason, varðstjóri hjá lögreglunni á Austurlandi, segir að nú þegar fari að birta verði staðan metin á Seyðisfirði varðandi það hvort mögulegt sé að fara í hreinsunarstarf eftir aurskriðurnar tvær sem féllu á bæinn í nótt. Hann segir bæjarbúa taka einn dag í einu. 18.12.2020 11:54
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum okkar klukkan tólf tökum við stöðuna á hamförunum á Seyðisfirði þar sem heilt hús fór af grunni sínum í aurskriðu í nótt og færðist til um tugi metra. 18.12.2020 11:27
Helgustaðavegur lokaður vegna aurskriðu Aurskriða féll á Helgustaðaveg, út með Eskifirði milli Engjabakka og Högnastaða, í nótt og er vegurinn því lokaður. 18.12.2020 11:17
Gert að selja íbúðina: Lögregla kölluð til 27 sinnum á níu mánuðum Héraðsdómur Reykjavíkur kvað í gær upp þann dóm að konu bæri að flytja úr íbúð sinni innan mánaðar og selja hana innan þriggja, vegna grófra og ítrekaðra brota á skyldum sínum gagnvart öðrum íbúum í umræddu fjölbýlishúsi. 18.12.2020 11:12
Lögreglan lokar Golfklúbbnum með látum Eigandi Golfklúbbsins er afar ósáttur með aðgerðir lögreglunnar og er kominn með lögfræðing sinn í málið. 18.12.2020 11:11
Gripið verði til viðeigandi ráðstafana og stuðnings vegna hamfaranna á Seyðisfirði Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, segir ríkisstjórnina fylgjast vel með gangi mála á Seyðisfirði. Verið sé að leggja mat á umfang þess tjóns sem orðið hefur í aurskriðunum sem fallið hafa á bæinn í vikunni og áhrif þeirra á samfélagið og sveitarfélagið. 18.12.2020 11:01
Tólf greindust innanlands Tólf greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Átta þeirra sem greindust voru í sóttkví, en fjórir ekki. 18.12.2020 10:50
Ríkið sýknað af skaðabótakröfu vegna afleiðinga svínaflensusprautu Íslenska ríkið var í gær sýknað af skaðabótakröfu vegna drómasýki sem stefnandi taldi sig hafa fengið í kjölfar bólusetningar með lyfinu Pandemrix gegn svínaflensunni árið 2009. Einkenni fóru að gera vart við sig í kjölfar sprautunnar og var það niðurstaða sérfræðings í taugalækningum að hann hefði fengið drómasýki og slekjuköst í kjölfar bólusetningarinnar. 18.12.2020 10:49
Engin sannanleg tengsl milli bólusetningarinnar og drómasýki Engin sannanleg tengsl eru milli bólusetningar gegn svínaflensunni og drómasýki, að því er fram kemur í nýju svari Björns Rúnars Lúðvíkssonar, prófessors í ónæmisfræði, á Vísindavefnum. Þeir sem sýktust af H1N1-inflúensuveirunni hafi líklega verið í enn meiri áhættu á að þróa með sér drómasýki en þeir sem voru bólusettir með Pandemrix-bóluefninu. 18.12.2020 10:48
Þórólfur fékk neikvæða niðurstöðu úr sýnatöku Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir fékk neikvæða niðurstöðu úr sýnatöku dagsins í gær. Frá þessu segir í tilkynningu frá embætti landlæknis sem barst í gærkvöldi. 18.12.2020 10:21
Örlítill grenjandi minnihluti Steingríms er mikill minnihluti Athyglisverðar orðskýringar Steingríms J. Sigfússonar vekja athygli. 18.12.2020 10:08
Erfiðar aðstæður á Seyðisfirði: „Það er bara vatn alls staðar“ Enn er mikil úrkoma og bleyta á Seyðisfirði þar sem tvær aurskriður féllu í nótt. Urð, grjót og drulla er úti um allt í bænum en eiginlegt hreinsunarstarf getur ekki hafist fyrr en það dregur úr úrkomunni og birtir til. 18.12.2020 09:55
Vonast eftir skýrari svörum um stöðu bóluefnis í dag Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segir verkefni dagsins vera að ræða við dreifingaraðila bóluefnis Pfizer og finna út hver staða mála sé gagnvart Evrópu. Tilkynning var send út frá lyfjarisanum í kjölfar umræðu vestanhafs um að vandræði hafi verið með framleiðslu og dreifingu bóluefnisins. 18.12.2020 09:47
Húsið sem skriðan hreif með sér væntanlega ónýtt Einbýlishúsið Breiðablik á Seyðisfirði er væntanlega ónýtt eftir að aurskriða tók húsið með sér í nótt og flutti það til um fimmtíu metra. Þetta segir Kristján Ólafur Guðnason, yfirlögregluþjónn á Austurlandi, í samtali við fréttastofu. 18.12.2020 08:20
Pfizer: Engin seinkun á sendingum bóluefna Bandaríski lyfjarisinn Pfizer segir að framleiðsla á bóluefni gegn Covid-19 hafi gengið vel og að engin seinkun hafi orðið á sendingum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Pfizer sem send er út í kjölfar umræðu í Bandaríkjunum um að vandræði hafi verið með framleiðslu og dreifingu bóluefnis hjá fyrirtækinu. Pfizer segir engum sendingum hafa verið frestað. 18.12.2020 07:41
Áfram mikil rigning á Austfjörðum en dregur úr vætu síðdegis Spáð er norðaustan 10 til 15 metrum á sekúndu í dag en 15 til 23 metrum norðvestantil. Rigning eða slydda með köflum norðan- og austanlands, talsverð eða mikil rigning á Austfjörðum og snjókoma til fjalla. 18.12.2020 07:11
Ný kynslóð Isuzu D-MAX komin til landsins BL hefur fengið fyrstu sendingu nýrrar og glæsilegrar kynslóðar pallbílsins Isuzu D-MAX sem vinsæll hefur verið hér á landi, en ekki síst meðal atvinnurekenda, verktaka og opinberra aðila á borð við sveitarfélög, segir í fréttatilkynningu frá BL. 18.12.2020 07:00
Aurskriða tók með sér hús á Seyðisfirði Tvær nýjar aurskriður féllu úr Nautaklauf á Seyðisfirði í nótt. Önnur skriðan tók með sér hús og flutti fimmtíu metra. 18.12.2020 06:42
Fundu fjölda hnífa og skotvopna á heimili manns í Reykjavík Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók mann í miðbæ Reykjavíkur um klukkan hálfátta í gærkvöldi. Er maðurinn grunaður um líkamsárás, eignaspjöll, fjársvik, brot á lyfjalögum og vörslu fíkniefna. 18.12.2020 06:33
Bóluefni Moderna fær neyðarleyfi Ráðgjafaráð Lyfjaeftirlits Bandaríkjanna, FDA, hefur lagt til að bóluefni lyfjafyrirtækisins Moderna fái neyðarleyfi stofnunarinnar. Þannig verði hægt að taka bóluefnið í almenna notkun. Búist er við því að stofnunin fylgi ráðleggingum ráðsins fljótt og veiti bóluefninu blessun sína. 17.12.2020 23:47
Menntaskóladrengirnir sloppnir úr haldi Boko Haram Meira en þrjú hundruð menntaskóladrengir í Nígeríu sem var rænt í síðustu viku úr heimavistarskóla í Katsina héraðinu hafa sloppið úr haldi ræningja sinna. 17.12.2020 23:23
Börnin úr Kjálkafirði í skóla á Þingeyri um Dýrafjarðargöng Foreldrarnir sem byggðu eyðijörð í Kjálkafirði kjósa að senda börnin sín í skóla á Þingeyri fremur en á Patreksfjörð og nýta sér þannig nýopnuð Dýrafjarðargöng. Þannig stytta þau tíma barnanna í skólaakstri úr þremur klukkustundum á dag niður í tvær klukkustundir á dag. 17.12.2020 23:11