Innlent

Meirihluti atvinnuveganefndar bakkar í tollkvótamálinu

Heimir Már Pétursson skrifar
Meirihluti atvinnuveganefndar er allur skipaður þingmönnum úr norðurkjördæmunum.
Meirihluti atvinnuveganefndar er allur skipaður þingmönnum úr norðurkjördæmunum. Grafík/HÞ

Meirihluti atvinnuveganefndar hefur fallið frá fyrri tillögu sinni um auknar álögur á tollkvóta á innfluttar landbúnaðarvörur frá evrópusambandsríkjunum í þrjú ár og leggur nú til að álögurnar verði auknar um eitt og hálft ár.

Kristján Þór Júlíusson landbúnaðarráðherra lagði til í frumvarpi um málið í haust að vegna töluverðs samdráttar í sölu íslenskra landbúnaðarvara í framhaldi af mikilli fækkun ferðamanna yrði horfið til fyrra horfs í uppboði á tollkvótum í eitt ár. En ný aðferð var tekin upp um síðustu áramót sem lækkaði álögurnar og hefur innflutningur eftir það aukist mjög mikið og umfram tollkvóta en mjög lítið hefur verið flutt út af íslenskum landbúnaðarvörum á móti.

Íslenskir framleiðendur landbúnaðarvara hafa lítið sem ekkert nýtt heimildir sínar til tollfrjáls útflutnings á landbúnaðarvörum til ríkja Evrópusambandsins. Mest hafa 56 prósent lambakjötskvótans verið flutt út og þá aðallega til Bretlands sem er á leið út úr Evrópusambandinu.Grafík/utanríkisráðuneytið

Í gær fór Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra síðan fram á viðræður við Evrópusambandið um endurskoðun samninga um þessi mál. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 sagði hann halla mjög á Ísland í þessum viðskiptum eins og úttekt ráðuneytis hans og atvinnuvegaráðuneytisins hefði leitt í ljós.

Mikil andstaða varð strax við frumvarp landbúnaðarráðherra í haust. Neytendasamtökin, Samtök verslunar og þjónustu, Samkeppniseftirlitið og Félag atvinnurekenda sendu öll inn neiðkvæðar umsagnir um frumvarpið.

Innflytjendur hafa flutt inn mun meira af landbúnaðarvörum umfram tollfrjálsa kvóta einstakra tegunda.Grafík/utanríkisráðuneytið

Þegar meirihluti atvinnuveganefndar lagði síðan til að álögurnar yrðu auknar í þrjú ár í stað eins jókst gagnrýni á frumvarpið til muna.

Landssamband kúabænda lýsti hins vegar yfir stuðningi við frumvarpið. Í tilkynningu frá sambandinu var fullyrt að verðlækkanir á nautakjöti í ríkjum Evrópusambandsins sem og lækkun álags á tollkvóta hér á landi hefði ekki skilað sér í sambærilegri lækkun verðs til neytenda.


Tengdar fréttir

Utanríkisráðherra fer fram á endurskoðun tollasamninga við ESB

Utanríkisráðherra hefur formlega óskað eftir því við Evrópusambandið að tollasamningur Íslands og sambandsins um landbúnaðarvörur verði endurskoðaður. Þá hafa Bretar og Íslendingar gert með sér nýjan loftferðasamning sem tryggir flugsamgöngur milli þjóðanna til framtíðar.

Sakar þingmenn um að taka sérhagsmuni framyfir hagsmuni neytenda

Verð á innfluttum landbúnaðarvörum frá ríkjum Evrópusambandsins mun að öllum líkindum hækka töluvert í verði upp úr áramótum vegna lagabreytinga sem verið er að ganga frá á Alþingi. Fjölmörg samtök leggjast gegn breytingunni en hún er rökstudd með stuðningi við innlendan landbúnað.

FA sakar ráðherra um að láta undan þrýstingi frá sérhagsmunum

Félag atvinnurekenda sakar landbúnaðarráðherra um láta undan þrýstingi frá sérhagsmunum og fara gegn hagsmunum innflutningsfyrirtækja og neytenda. Það sé gert í nýju frumvarpi Kristjáns Þórs Júlíussonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, um fyrirkomulag útboðs tollkvóta fyrir búvörur.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×