Fleiri fréttir

Fá tíu milljónir í Faktorshúsið

Minjastofnun Íslands hefur veitt 10 milljóna króna styrk úr húsafriðunarsjóði vegna hins 167 ára gamla Faktorshúss á Djúpavogi. Sveitarstjórn þar segir styrkinn mjög mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu við húsið.

Vilja vita hvað hefur sparast

„Mikils ósamræmis gætir í aksturssamningum hjá borginni annars vegar og fyrirtækjum í meirihlutaeigu borgarinnar hins vegar,“ segir í bókun sjálfstæðismanna í borgarráði.

Óttast lög á verkfallið

Formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga segir hjúkrunarfræðinga ekki geta sætt sig við að vera 59 þúsund krónum yfir lægstu launum. Lög á verkfallið leysi ekki vandann. Ekkert miðar áfram í kjaraviðræðum.

Bláa blokkin stærst

Bláa blokkin svokallaða er með meirihluta í skoðanakönnun Berlingske um fylgi stjórnmálaflokkanna í þingkosningum í Danmörku.

Hundruð barna njóta styrkja í sumar

Nær tvö hundruð gjafakort Hjálparstarfs kirkjunnar hafa selst í verslunum Hagkaups nú í maímánuði. Ágóðanum af sölu gjafakortsins "Gleðilegt sumar“, sem kostar 1.200 krónur, verður varið til að styrkja efnaminni barnafjölskyldur í sumar.

Frumvarp um afnám hafta í þessari viku

Vinna við frumvarp um afnám hafta er á lokastigi. Stefnt að því að kynna það fyrir ríkisstjórn á morgun. Stjórnarandstaðan fær kynningu í kjölfarið. Aðeins örfáir utan oddvita stjórnarflokkanna upplýstir. Átti að kynna málið fyrir helgi.

Enginn sótti um 11 lausar stöður nyrðra

Enginn sérfræðilæknir sótti um starf hjá sjúkrahúsinu á Akureyri nú nýverið. Sjúkrahúsið auglýsti ellefu lausar stöður sérfræðilækna í vor.

Kúguðu milljón af öldruðum bónda

Þrír einstaklingar játuðu fyrir héraðsdómi Norðurlands eystra að hafa farið óboðnir á heimili bónda á áttræðisaldri í apríl í fyrra, haldið honum nauðugum á heimili hans, millifært fé af reikningi hans og stolið greiðslukortum mannsins.

Sjávarútvegurinn í alþjóðlegt markaðsátak

Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi halda utan um herferð í markaðsmálum íslensks sjávarfangs. Kastljósinu er beint að neytendum. Tækifærin eru mikil enda selja íslensk fyrirtæki 20 milljónir fiskmáltíða á hverjum degi.

Eigandinn ákærður fyrir morð

Eigandi fataverksmiðjunnar sem hrundi árið 2013 í Banglades með þeim afleiðingum að rúmlega 1100 manns létu lífið gæti átt yfir höfð sér dauðadóm.

Klukkan tifar á hlerunarheimildir Bandaríkjanna

Öldungardeild bandaríska þingsins vinnur nú dyrum og dyngjum að því að endurnýja umdeild lög sem veita þarlendum stjórnvöldum víðtækar heimildir til að njósna um þegna sína.

Pólitísk samstaða um kísilverið í Helguvík

Bæjarráð Reykjanesbæjar hefur samþykkt að taka þátt í undirskriftarsöfnun í bænum vegna Thorsils kísilversins sem rísa á í Helguvík. Óánægðir íbúar hafa krafist kosninga um málið.

Sjá næstu 50 fréttir