Fleiri fréttir

Dæmdur fyrir vörslu fíkniefna

Á heimili mannsins í Hafnarfirði fundust átta kannabisplöntur, tæpt kíló af maríjúana og tæp tvö kíló af kannabislaufum en maðurinn hafði um nokkurt skeið ræktað greindar plöntur.

Segir Ísland enga femínistaparadís

Annadís Greta Rúdólfsdóttir, stjórnandi Jafnréttisskóla Sameinuðu þjóðanna við Háskóla Íslands, ritar grein í The Guardian í tilefni af nýrri skýrslu Alþjóðaefnahagsráðsins um jafnrétti kynjanna á heimsvísu.

Segir Framsókn ekki hafa sóst eftir eignarhlut í DV

Hrólfur Ölvisson, framkvæmdastjóri Framsóknarflokksins, segir að hvorki hann fyrir hönd flokksins, né flokkurinn hafi farið þessa á leit og að fullyrðingar Ólafs M Magnússonar þar um séu rangar.

Biskupsritari á Selfoss

Séra Þorvaldur Karl Helgason, fyrrverandi biskupsritari, hefur verið settur sem afleysingaprestur í Selfossprestakalli í vetur.

Drengirnir rata ekki heim til „afa feita“

Rannsókn kynferðisbrotadeildar lögreglunnar á meintum barnaníðingi stendur yfir. Búið er að kæra manninn út af tveimur brotaþolum, fimm ára gömlum vinum.

Um 100 látnir í aurskriðu á Sri Lanka

Talsmenn yfirvalda hafa staðfest að aurskriðan, sem orsakaðist af gríðarlegu úrhelli síðustu vikna, hafi fallið á 140 hús í Badulla-héraði.

Segir kokteilsósuna alíslenska

„Það var Maggi í Aski sem fann þetta upp,“ segir Úlfar Eysteinsson matreiðslumeistari um uppruna kokteilsósunnar.

Fimm hjartaþræðingum frestað í dag vegna verkfalls

Fimm hjartaþræðingum og tveimur sérhæfðum hartaaðgerðum hefur verið frestað á Landspítalanum í dag útaf verkfalli lækna á lyflækningasviði. Deiluaðilar ætla að funda í húsnæði ríkissáttasemjara í dag en launakröfur lækna muni kosta ríkið um fjóra milljarða.

Blokkin hennar Birnu að fyllast

Stærsta fjölbýlishúsið í Grindavík, sem gnæft hefur nánast mannlaust yfir bæinn í þónokkur ár, hefur nú skyndilega öðlast líf og eru allar 32 íbúðirnar að fyllast af fólki.

Hvítur maður nýr forseti Sambíu

Guy Scott, varaforseti Sambíu, hefur tímabundið tekið við forsetaembættinu í landinu eftir að Michael Sata Sambíuforseti lést í London í gær.

Klamydía ógnar stofni kóalabjarna

Klamydía er orðið að viðvarandi vandamál meðal kóalabjarna og er nú farin að ógna stofninum til viðbótar við að stöðugt er verið að þrengja að náttúrulegum heimkynnum þeirra.

Lögreglan nýtur áfram mest trausts

MMR kannaði á dögunum traust til helstu stofnana samfélagsins. Flestir sögðust bera mikið traust til lögreglunnar, Háskóla Íslands, Háskólans í Reykjavík, Ríkisútvarpsins og Landsvirkjunar.

Tekinn án bílbeltis og hótaði lögreglu ofbeldi

Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið ákærður af ríkissaksóknara fyrir að hóta lögreglumanni í kjölfar þess að hann var tekinn undir stýri án bílbeltis í október fyrir tveimur árum.

Úrbætur á aðgangi fatlaðra í forgang

Tinna Gunnlaugsdóttir, þjóðleikhússtjóri, segir það sérstaklega sárt þegar fatlaðir leikhúsgestir þurfi að verða fyrir töfum og jafnvel missa af leiksýningu vegna tæknibilana.

Fáum sendan reikning fyrir byssunum

Reikningur verði sendur fyrir 250 MP5 hríðskotabyssum sem Landhelgisgæslan telur sig hafa fengið að gjöf frá norska hernum.

160 skjálftar síðustu tvo sólahringa

Um 80 jarðskjálftar hafa mælst við Bárðarbungu síðasta sólarhringinn og er það svipuð virkni og sólarhring þar á undan. Fjórir skjálftar voru stærri en fjögur stig.

Er mjólk góð?

Svo virðist sem mikil mjólkurdrykkja dragi ekki úr beinþynningu og líkum á beinbrotum, ef marka má nýja grein í hinu virta læknariti British Medical Journal. Rannsókn var framkvæmd í Svíþjóð og leiddi hún í ljós að konur sem drukku fleiri en þrjú mjólkurglös á dag voru í raun líklegri til þess að brjóta í sér beinin en þær sem drukku minna en þrjú glös.

Nýsjálendingar ætla að kjósa um fánann

Nýsjálendingar hafa ákveðið að halda þjóðaratkvæðagreiðslu árið 2016 þar sem kosið verður um hvort þjóðin breyti fána sínum. Nefnd nokkurra valinkunnra Nýsjálendinga hefur þegar verið sett á laggirnar og er henni ætlað að koma með nokkrar tilllögur að nýjum fána, en málið hefur verið mikið í umræðunni í landinu síðustu misserin.

Máttu skerða fjárhagsaðstoð í Hafnarfirði

Hafnarfjarðarbær mátti skerða fjárhagsaðstoð til manns sem hafnaði boði um að taka þátt í atvinnuátaksverkefni. Þetta er niðurstaða úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála.

Önnur verkfallslota hafin hjá læknum

Læknar á lyflækningasviði Landspítalans og á sjúkrahúsinu á Akureyri lögðu niður störf á miðnætti og stendur verkfall þeirra í tvo sólarhringa. Lyflækningasviðið er umfangsmesta sviðið á Landsspítalanum.

Með kasthníf og kannabis í Kópavogi

Fíknniefni, kasthnífur, peningar og einhverjir munir fundust í fórum fjögurra 16 ára unglingsspilta, sem lögregla hafði afskipti af í Hamraborg í Kópavogi í gærkvöldi.

Sjá næstu 50 fréttir