Fleiri fréttir

Raunverulegt síldarævintýri í Kolgrafafirði

Mikið líf er í Kolgrafafirði þessa stundina en talið er að um hundrað þúsund tonn af síld séu í firðinum þessa stundina. Mikil stilla er í veðri en það eru alls ekki kjöraðstæður fyrir síldina sem fær þá minna súrefni. Nokkuð er af fólki á svæðinu sem reynir að bjarga þessum verðmætum. Breki Logason ræddi við Hrund Þórsdóttur fréttamann sem var á svæðinu fyrir hönd Stöð 2 og Bylgjunnar.

,,Ekki hætta Eiður Smári''

Útvarpsmennirnir Rúnar Freyr Gíslason og Jóhannes Haukur Jóhannesson hafa samið lag til heiðurs Eiðs Smára Guðjohnsen og biðla þeir félagar til leikmannsins að hætta við að leggja skóna á hilluna.

Heimildamynd um lygi

Alex Gibney var nýbúinn að klára heimildamynd um hetjudáðir og sigra Lance Armstrong þegar hjólreiðakappinn játaði áralanga lyfjamisnotkun. Nú, einum þremur árum síðar, er ný útgáfa myndarinnar tilbúin sem ber titilinn: Lygi Armstrongs.

Á fimmta tug létust í olíusprengingu í Kína

Að minnsta kosti 47 fórust þegar sprenging varð í olíuleiðslu í borginni Qingdao í norðausturhluta Kína í gærkvöldi en leki mun hafi komið upp í leiðslunni fyrr um morguninn.

Reyndi að stinga lögreglumenn af

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu veitti bifreið eftirför í Kópavogi rétt fyrir klukkan 11 í gærkvöldi en grunar var á að bílstjórinn væri í annarlegu ástandi.

Bíða eftir fyrsta "lækinu“

Á sunnudagskvöld verður frumsýndur á RÚV nýr þáttur um íslenskt mál sem heitir Orðbragð. Stjórnendur þáttarins segjast hafa kynnst nýjum hliðum á íslenskri tungu og hvort öðru.

Samfylkingin i Reykjavík prófkjör eða uppstilling

Kosið verður um hvort að uppsillingarnefnd raði á lista Samfylkingarinnar fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor eða hvor að haldið verður lokað prófkjör, þar einungis þeir sem eru flokksbundnir í Samfylkingunni fá að taka þátt.

Ég hlakka til að gera allt

Edda Heiðrún Bachmann steig fyrst á svið í atvinnuleikhúsi fyrir 30 árum en fyrir tíu árum greindist hún með MND sjúkdóminn. Hún á fallegan feril sem leikari, söngvari, leikstjóri, verslunar- og myndlistarmaður. Nú undirbýr hún nýja starfsemi.

Prófkjör leiða konur og ungt fólk frekar til áhrifa

Rannsókn á íslenskum prófkjörum hrekur fyrri kenningar um að konur og ungt fólk nái síður árangri. Konur ná frekar þingsætum þar sem prófkjör eru haldin og kjörnir fulltrúar eru að jafnaði fimm árum yngri.

Þrjú þúsund manns í húsaleigulottói

Reykjavíkurborg leggur til að fjórðungur leigjenda Félagsbústaða fari í umsóknarpott. Óháður aðili sjái um útdráttinn. Um 3.000 manns, sem ekki eiga rétt á sérstökum húsaleigubótum, ættu möguleika á að taka þátt.

Skilorð fyrir tómatakastið

Þrítugur Dani var í gær dæmdur í 20 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa kastað tómat í Helle Thorning-Schmidt forsætisráðherra.

Youtube loki á veðbankana

Norska happdrættiseftirlitið skipar Youtube að loka á öll auglýsingamyndbönd erlendra veðmálafyrirtækja sem ætluð eru norskum notendum.

Viðræður að komast í gang

Verkalýðshreyfingin ætlar að ganga sameinuð til kjaraviðræðna við atvinnurekendur. Semja á til tólf mánaða. Ekki enn verið rætt um launahækkanir.

Íhuga skíðalyftu við Digraneskirkju

Bæjaryfirvöld í Kópavogi skoða nú tillögu frá Arnþóri Sigurðssyni um að kanna möguleika á því að koma upp barnaskíðalyftu við brekkuna við Digraneskirkju.

Helmingur farþega leigubíla ekki í beltum

Annar hver farþegi í leigubílum spennir ekki beltið. Þetta kom fram í talningu sem bílstjórar hjá Hreyfli/Bæjarleiðum gerðu fyrir VÍS um helgarnótt nú í haust.

Kanna þróun ESB og valkosti

Alþýðusamband Íslands, Félag atvinnurekenda, Samtök atvinnulífsins og Viðskiptaráð Íslands hafa undirritað samning við Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands um úttekt á viðræðum við ESB.

Nær öll börn með farsíma

96 prósent barna í 4. - 10. bekk segjist eiga farsíma eða snjallsíma og ríflega helmingur segist eiga snjallsíma.

Synd að skemma falleg og gömul tré

Reykvíkingar eiga að klippa gróður sem vex út fyrir lóðarmörk. Nær að vernda gróður en að skemma gömul og fagursköpuð tré segja garðeigendur. Upplýsingastjóri borgarinnar bendir fólki á að fá fagmenn í verkið.

Enn eru óleyst ágreiningsmál

Svo virðist sem það sé krafa Írana um að mega framleiða eigin kjarnorkueldsneyti sem helst strandar á í viðræðum þeirra við sex ríki um kjarnorkuáætlun sína.

Tala látinna hækkar enn

Meira en fimm þúsund manns eru látnir af völdum fellibylsins Haiyan, sem reið yfir á Filippseyjum fyrir hálfum mánuði.

Dauðinn má ekki vera tabú

"Dauðinn er eðlilegur hluti af lífinu, þó að hann sé stundum ósanngjarn og erfiður. Við þurfum að ræða þessa hluti, dauðinn má ekki vera tabú," segir Áslaug Baldursdóttir, sem nýverið frumsýndi heimildarmynd sína, Dauðans alvara.

Oddviti Sjálfstæðismanna boðar skattalækkanir í Reykjavík

Nýr oddviti Sjálfstæðismanna í Reykjavík vill fækka starfsmönnum borgarinnar með því að ráða ekki í nýjar stöður á vissum sviðum og segir svigrúm geta skapast til skattalækkunar í Reykjavík. Oddviti Samfylkingarinnar segir þetta fráleita leið.

Innflutt kjúklingakjöt selt á veitingahús

Kjúklingakjöt er flutt inn í stórum stíl en neytendum er ekki gefið til kynna á pakkningum þegar um erlent kjöt er að ræða. Kjúklingaframleiðendur nota innflutt kjöt í ýmsar unnar vörur og selja það einnig til mötuneyta og veitingahúsa.

Vítissódi brenndi 50 prósent af líkamanum

"Þegar við vorum að byrja að afla okkur gagna um óupplýst lögreglumál á Íslandi þá fundum við gamalt viðtal í Helgarpóstinum frá 1982 við geðlæknana Gísla H. Guðjónsson og Hannes Pétursson en þeir voru þá að ljúka nýlegri rannsókn um morð á Íslandi. Fjögur morðmál reyndust vera óupplýst og þau verða öll til umfjöllunar í þáttunum,” segir Brynja Dögg Friðriksdóttir, framleiðandi Óupplýstra lögreglumála, nýrrar þáttaraðar í umsjón Helgu Arnardóttur, sem hefst næstkomandi sunnudag.

Dæmdur fyrir að kasta glasi í andlit fyrrverandi eiginkonu sinnar

Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í dag tvo karlmenn í fangelsi fyrir líkamsárásir. Annar fyrir líkamsárás gegn fyrrverandi eiginkonu sinni sem og hótanir gegn henni. Hann var dæmdur til tíu mánaða fangelsisvistar en níu af þeim tíu mánuðum eru skilorðsbundnir til þriggja ára.

Eftirlitsmyndavél í Vesturbænum

Lögreglan hefur oft verið kölluð í Ánanaust vegna ógætilegs aksturs ökumanna og hefur hún haft afskipti af ökumönnum sem eiga erfitt með að virða lög og reglur.

Segir lögreglumanninn hafa verið pirraðan

Á myndbandi úr eftirlitsmyndavél á svæðinu sést að aðeins 80 sekúndur liðu frá því að lögreglan gaf konunni fyrst merki um að standa upp af götunni þar sem hún sat og þar til hún hafði verið handtekin og sett inn í lögreglubifreið.

Sjá næstu 50 fréttir