Synd að skemma falleg og gömul tré Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 23. nóvember 2013 07:00 Ragnheiður Linnet við reynitréð sem hún þurfti að klippa af en henni finnst tréð hafa misst formfegurð sína við það. Mynd / Valli
Bjarni Brynjólfsson, upplýsingastjóri Reykjavíkurborgar, segir brýnt að fólk verði við áskoruninni. Mynd / Stefán Reykjavíkurborg sendi í vikunni ítrekun til 1.400 garðeigenda með hvatningu um að huga að gróðri sem vex út fyrir lóðarmörk. Verði ekki brugðist við áskoruninni muni Reykjavíkurborg klippa trén á kostnað lóðarhafa, sem getur farið upp í 30 þúsund krónur. Í september var sent almennt dreifibréf til garðeigenda. „Það er mjög brýnt að fólk verði við þessu tilmælum okkar. Þetta er fyrst og fremst gert því gróðurinn er til vandræða fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur og tækin sem við notum til að sópa og ryðja snjó á gangstéttum og stígum,“ segir Bjarni Brynjólfsson, upplýsingastjóri Reykjavíkurborgar. „Ef fólk getur ekki gert þetta sjálft þá er því í lófa lagið að ráða fagmenn til verksins.“ Óánægja hefur ríkt meðal einhverra garðeigenda sem vilja fá ítarlegri upplýsingar en erfitt hefur reynst að ná sambandi við starfsmenn Reykjavíkurborgar. „Ég hvet fólk til að hafa samband við starfsmenn umhverfis- og skipulagssviðs ef fólk vill fá nánari upplýsingar. Það má til dæmis senda tölvupóst á Atli.Marel.Vokes@reykjavik.is eða hringja í símaver Reykjavíkurborgar.“ Bjarni segir að á hverju ári séu auglýstar áskoranir til garðeigenda að klippa gróður sem fer út fyrir lóðamörk en í ár sé málinu í fyrsta sinn fylgt svona vel eftir.Gullregnið er mikið prýði og sést hér í fullum blóma yfir sumartímann.Aðsend myndGullregnið fallegasta tréið í götunni „Gullregnið okkar er 2,5 metrar á hæð og slúttar yfir lóðina en það er ekki fyrir neinum, snjóruðningsvél kemst hæglega undir það,“ segir Elín G. Ragnarsdóttir sem klippti eins og hún gat af trénu en hefur fengið ítrekun frá borginni. „Það eina sem ég get gert er þá að skemma tréið eða ég skil ekki hvað þeir vilja að ég geri. Það er svo fallegt og mikið prýði í hverfinu.“ Synd að láta taka af fagursköpuðu tré „Reynitréið var sérlega formfagurt og meira en 40 ára gamalt. Nú hefur það misst formið og er svolítið vanskapað fyrir bragðið,“ segir Ragnheiður Linnet sem þurfti að sneiða af trénu því ljósastaur stendur nálægt. „Mér finnst orka tvímælis að láta taka af svona fagursköpuðu tré á meðan það ætti að vernda þau. Það þarf að vanda betur til og taka til dæmis tillit til aldurs gróðurs. Það er ekki eins og tréið skyggi á vel upplýsta götuna.“
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Innlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Fleiri fréttir „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Loka fyrir umferð vegna bilunar í umferðarljósum Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Sjá meira