Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Kannabislyktin jókst um helming þegar húsráðandinn opnaði hurðina Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í gær, eftir að grunur hafði vaknað um að hann væri með fíkniefni í fórum sínum. 23.8.2012 15:38
Ók langt yfir hámarkshraða nærri skólanum sem hann vinnur í Þessa vikuna hefur lögreglan aukið umferðareftirlit á höfuðborgarsvæðinu, en eftirlit hennar beinist ekki síst að akstri við grunnskólana enda skólaárið nýhafið. 23.8.2012 15:21
Mark David Chapman synjað um reynslulausn Skilorðsnefnd fangelsismálastofnunar í New York hafnaði í dag í sjöunda skiptið að sleppa Mark David Chapman lausum, en hann myrti tónlistarmanninn John Lennon í desember árið 1980. 23.8.2012 14:52
Sonur Gaddafis fyrir rétt í september Réttarhöld yfir Saif al-Islam Gaddafi, syni og erfingja fyrrverandi einræðisherra Líbíu, Mumars Gaddafi, fara fram í Líbíu í september. 23.8.2012 14:39
Breiðholtshrottarnir játuðu sök Tveir karlmenn sem réðust inn á heimili aldraðs karlmanns í Breiðholti fyrr í sumar játuðu sakargiftir í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Mennirnir eru ákærðir fyrir að svipta manninn frelsi sínu í rúmlega sex klukkustundir og neyða hann til að millifæra pening af bankareikningi sínum yfir á þeirra bankareikning. Þá hótuðu þeir honum með skotvopni en fallið var frá ákæru hvað það varðar hjá öðrum manninum. 23.8.2012 14:19
Laugalandsskógur verður opinn skógur Frú Vigdís Finnbogadóttir mun opna Laugalandsskóg sem "Opin skóg“ sunnudaginn 26. ágúst næstkomandi. Markmið verkefnisins er að opna skógræktarsvæði við alfaraleiðir, sem eru í umsjón skógræktarfélaga. 23.8.2012 14:15
Nýja brúin fær vegtengingu á næsta ári Vegagerðin hefur boðið út lagningu vega að nýrri brú yfir Reykjadalsá í Reykholtsdal í Borgarfirði og samkvæmt útboðsauglýsingu eiga þeir að vera tilbúnir 15. júlí næsta sumar. Nýja brúin, sem lokið var við í vor, mun því standa ónotuð án vegtengingar í heilt ár áður en vegfarendur fá að aka yfir hana. 23.8.2012 14:15
Ökumaður í vímu með þýfi Lögreglan á Suðurnesjum handtók í fyrradag ökumann sem grunaður var um akstur undir áhrifum fíkniefna. Hann heimilaði leit í bifreið sinni. Í farangurgeymslu hennar fundust fimm verkfæratöskur og tvö iðnaðarvesti. 23.8.2012 14:07
Svifhjólið úr Star Wars í prufukeyrslu Bandaríska tæknifyrirtækið Aeorfex hefur opinberað nýstárlegt svifhjól sem minnir óneitanlega á þau sem notuð voru í Stjörnustríðsmyndinni Return of the Jedi. 23.8.2012 13:53
Segja meirihluta borgarstjórnar skattleggja að óþörfu Í tillögu um endurskoðun útsvarstekna sem lögð var fram á borgarráðsfundi í dag kemur í ljós að enn og aftur innheimta borgaryfirvöld meiri skatta en gert er ráð fyrir í áætlun. Þetta kemur meðal annars fram i tilkynningu frá borgarstjórnarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins. 23.8.2012 13:01
"Fólk brosir bara að þessu öllu" "Það þarf ekkert að halda víni frá þessu fólki. Þetta er fullorðið fólk sem kann sínum fótum forráð." Þetta segir Sigurður Einarsson, framkvæmdastjóri Félags eldri borgara. 23.8.2012 13:00
Hjálmlaus, í símanum á ljóslausri vespu Lögreglan á Suðurnesjum hafði í gær afskipti af ungri stúlku á rafmagnsvespu, sem ekki fór alveg að þeim reglum sem gilda um akstur slíkra farartækja. 23.8.2012 12:51
Hjólbarði undan rútu skall á bíl Það óhapp varð á Reykjanesbrautinni í gær að hjólbarði losnaði undan rútu, sem ekið var áleiðis til Reykjavíkur. Hjólbarðinn kastaðist yfir veginn og lenti á afturhorni nálægrar bifreiðar samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurnesjum. Engin slys urðu á fólki vegna þessa atviks. 23.8.2012 12:50
Aldur feðra ráðandi þáttur þegar kemur að stökkbreytingum Aldur feðra, þegar getnaður á sér stað, er ráðandi þáttur þegar kemur að stökkbreytingum. Þetta leiðir ný rannsókn Íslenskrar erfðagreiningar, eða deCode í ljós. 23.8.2012 12:21
Henti sígarettu og velti bíl Ökumaður á þrítugsaldri missti stjórn á bifreið sinni í fyrradag, þegar hann var að henda sígarettu út um þaklúgu bílsins með þeim afleiðingum að bíllinn valt tvo hringi og stórskemmdist. Sauma þurfti á annan tug spora í höfuð ökumannsins og allmörg í hægri hendi hans. 23.8.2012 12:06
Hvað skal gera ef barnið kemur að innbroti á heimili sínu Sjóvá hefur gefið út leiðbeiningar fyrir foreldra og börn varðandi atriði eins og þjófnað, öryggi fatnaðar og fleira. Það er Fjóla Guðjónsdóttir, forstöðumaður forvarna hjá Sjóvá sem bendir á nokkur góð ráð nú í skólabyrjun. 23.8.2012 11:58
Bændur vilja ferðamenn í réttir Bændur eiga sumstaðar í erfiðleikum að manna gangnamannaflokka til að fara á fjall í haust til smalamennsku. sú hugmynd hefur kviknað að virkja jafnvel erlenda ferðamenn til aðstoðar, í formi ævintýraferða. 23.8.2012 11:34
Reknir af Ólympíuleikum fatlaðra Þremur Jórdönum sem áttu að keppa í kraftlyftingum á Ólympíuleikum fatlaðra í Lundúnum í næstu viku hefur verið meinuð þátttaka vegna meintra kynferðisafbrota. Tveir mannanna eru grunaður um að hafa brotið kynferðislega gegn börnum. 23.8.2012 11:33
Fjölskylduharmleikur í Garðabæ: Hleypti af byssu inni á heimilinu Einn maður var handtekinn í íbúðarhúsi í Garðabæ seinni partinn í gær eftir að hleypt var af skotvopni. 23.8.2012 10:44
Væntingavísitalan ekki hærri síðan fyrir hrun Væntingavísitala Capacent Gallups mælist nú rösklega 84 stig og hefur hækkað fjóra mánuði í röð, en hún mælir meðal annars væntingar fólks til atvinnu- og efnahagslífs. Flestar undirvísitölur væntingavísitölunnar hækka frá fyrri mánuði og hefur hún ekki mælst hærri síðan í maí árið 2008, eða fyrir hrun. 23.8.2012 09:38
Púuðu á skólameistarann - busun lögð af á Suðurlandi Eldri nemendur fjölbrautaskóla Suðurland púuðu á skólameistara sinn, Olgu Lísu Garðarsdóttur, þegar hún setti formlega skólastarf í morgun. Hún naut aftur á móti stuðnings yngri nemanda sem klöppuðu fyrir ræðu hennar. 23.8.2012 09:36
Réttarhöldum í Guantanamo frestað vegna fellibyls Hitabeltisstormurinn Isaac, sem gengur nú fyrir karabískahafið, verður líklega orðinn að fellibyl síðdegis í dag. Þetta er mat veðurfræðinga við veðurathuganarstöð Flórída-ríkis í Bandaríkjunum. 23.8.2012 09:08
Lilja vill ekki verða formaður Samstöðu Lilja Mósesdóttir, stofnandi Samstöðu - flokks lýðræðis og velferðar, ætlar ekki að gefa kost á sér í embætti formanns flokksins á landsfundi flokksins í byrjun október. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem hún sendi fjölmiðlum í morgun. Hún segist ætla að axla þannig ábyrgð á fylgistapi flokksins undanfarna mánuði. Hún verður þó áfram félagsmaður í Samstöðu. Fram að næstu alþingiskosningum ætlar hún að einbeita sér að störfum sínum á þingi sem hún segist hafa leitast við að nýta fagþekkingu sína til að bæta stöðu almennings á Íslandi í kjölfar efnahagshrunsins. Yfirlýsinguna má sjá í heild sinni hér fyrir neðana. 23.8.2012 07:14
Sofnaði um borð og lenti sama stað aftur Frönsk kona sem ætlaði að halda heim á leið eftir frí í Pakistan sofnaði um borð í flugvélinni. Það sem gerðist í kjölfarið er lyginni líkast. 23.8.2012 07:09
Réttarhöldin kostað 3,3 milljarða Kostnaðurinn vegna réttarhaldanna yfir hryðjuverkamanninum Anders Behring Breivik í Osló síðustu vikur er kominn upp í 165 milljónir norskra króna, eða um 3,3 milljarða íslenskra króna. Fjallað er um málið á vef Aftenposten í morgun. 23.8.2012 06:43
Amnesty: Óbreyttir borgarar skotmörk í Aleppo Mannréttindasamtökin Amnesty International hafa birt skýrslu um átökin í Aleppo, fjölmennustu borg Sýrlands. Uppreisnarmenn og öryggissveitir yfirvalda hafa barist um yfirráð yfir borginni í rúman mánuð en Aleppo er sögð gegna veigamiklu hernaðarlegu hlutverki og gæti ráðið úrslitum um niðurstöðu stjórnarbyltingarinnar í Sýrlandi. 23.8.2012 00:00
Ætlar að selja líf sitt á eBay Tuttugu og níu ára kaupsýslumaður frá Tampa Bay í Flórída hefur sett líf sitt til sölu á uppboðsvefnum eBay. 23.8.2012 08:31
Búist við að 600 þúsund fjár verði slátrað í haust Bændur eru nú farnir að undirbúa göngur og smalamennsku og verða fyrstu fjárréttir annan september. Rösklega 580 þúsund fjár var slátrað í fyrrahaust og er búist við að sú tala hækki upp í 600 þúsund fjár í haust, meðal annars vegna þess að einhverjir bændur munu fækka fé sínu í haust umfram áætlanir, að því er fram kemur í Bændablaðinu í dag. 23.8.2012 08:20
Hækkuðu verð á bensíni í gær Íslensku olíufélögin hækkuðu öll verð á bensíni og Dísilolíu í gær um nokkrar krónur og er algengt bensínverð nú röskar 252 krónur fyrir lítrann og Dílillítrinn kostar hátt í 255 krónur. Olíufélögin bera við hækkandi verði á heimsmarkaði, en benda má á að krónan hefur verið að styrkjast gagnvart bandaríkjadollar að undanförnu og öll olíuviðskipti eru gerð í dollurum. 23.8.2012 06:45
Ísmagn í Norður-Íshafi aldrei minna Ísmagn við norðurheimskautið mun ná sögulegu lágmarki í lok mánaðarins samkvæmt mælingum Cryosat-gervihnattar ESA, evrópsku geimferðastofnunarinnar. 23.8.2012 00:15
Námsefni tengt kjarnorkuárásum Um þrjú hundruð tíundu bekkingar hafa verið bókaðir á Ljósmynda- og fræðslusýningu um kjarnorkuárásirnar á Hírósíma og Nagasaki sem stendur yfir í Borgarbókasafninu við Tryggvagötu til 13. september. Nýr námsvefur er til í tengslum við hana. 23.8.2012 15:00
Heilsuefling verðlaunuð Verzlunarskóli Íslands skaraði fram úr í heilsueflingu á síðasta skólaári að mati Embættis landlæknis. 23.8.2012 13:00
Ferðamenn fórust í flugslysi Tveir kenískir flugmenn og tveir þýskir ferðamenn fórust þegar lítil flugvél fórst í grennd við Masai Mara-garðinn í Kenýa í gær. Ellefu farþegar voru um borð í vélinni, fimm Þjóðverjar, fjórir bandaríkjamenn og tveir tjékkar, að því er AFP-fréttastofan greinir frá. Þrír eru alvarlega slasaðir. Vélin var á leið með ferðamennina á einn vinsælasta ferðamannastað Afríku. Ekki er vitað hvað olli slysinu, en vélin hrapaði stuttu eftir flugtak. 23.8.2012 07:26
Nina Bawden látin Rithöfundurinn Nina Bawden er látin áttatíu og sjö ára að aldri en hún er hvað þekktust fyrir skáldsöguna Carrie's War. Bókin náði miklum vinsældum á áttunda áratugnum en hún fjallaði um flótta hennar úr síðari heimstyrjöldinni til suður-Wales. Hún skrifaði yfir fimmtíu bækur fyrir fullorðna og börn. Fyrir tíu árum lenti hún í lestarslysi þar sem eiginmaður hennar lést. Samkvæmt fréttavef BBC lést Bawden á heimili sínu í Lundúnum í gærkvöldi, umvafin fjölskyldu og ástvinum. 23.8.2012 07:24
Tortryggni sem jókst stig af stigi Vantrú Julians Assange á sænsku réttarfari kemur mörgum undarlega fyrir sjónir, en á sér engu að síður aðdraganda og ástæður. Kristinn Hrafnsson segir málið aldrei hætta að koma sér á óvart. 23.8.2012 07:00
Sýður gulrætur í hver á Flúðum „Þetta hefur verið ótrúlega spennandi,“ segir hinn heimsþekkti norski sjónvarpskokkur Andreas Viestad sem er staddur hér á landi við upptökur á tíundu þáttaröð af þætti sínum New Scandinavian Cooking. 23.8.2012 06:30
Rúta skemmdist við Herjólf Rúta stórskemmdist í Landeyjahöfn á þriðjudag þegar henni var ekið upp undir landgöngubrú Herjólfs. Ekki er talið að brúin hafi skemmst. 23.8.2012 06:00
Segja brettagarð og breytt bílastæði þrengja að Þrótti Verið er að ljúka framkvæmdum á brettagarði í Laugardal, á sama stað og Þróttur hafði hugsað sér íþróttahús. Einnig á að lagfæra bílastæðin við gervigrasvöllinn en þá missa Þróttur og Ármann um 50 til 60 stæði. 23.8.2012 06:00
Féll næstum í gildru alþjóðlegra þrjóta Auglýsing á íslensku vefsölutorgi rataði fyrir augu erlendra glæpamanna sem reyndu að ræna fé af Einari Skúlasyni, notanda á sölutorginu. Glæpamaðurinn þóttist vera norskur en vildi að Einar borgaði flutningskostnað til Barcelona. 23.8.2012 05:30
Enn óvissa um Jóhönnu Samfylkingin heldur flokksstjórnarfund um helgina og Vinstri græn flokksráðsfund. Undirbúningur kosninga verður í forgrunni og rætt verður um hvernig valið verður á lista. ESB-mál rædd, en ekki búist við samþykktum. Ekki er talið að Jóhanna Sigurðardóttir gefi neitt út um framtíð sína. 23.8.2012 05:30
Aðeins að birta yfir lundanum Vísbendingar eru um að nokkuð sé að birta yfir lundastofninum í Vestmannaeyjum. Pysjan er ekki að drepast í stórum stíl eins og undangengin ár og þær sem hafa komist upp virðast sprækar. 23.8.2012 05:00
Axli pólitíska ábyrgð á sjónvarpsgjörningi Bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks segir framsóknarmenn, sem hafa meirihluta í bæjarstjórn Hornafjarðar, þurfa að skýra hvernig þeir ætli að axla pólitíska ábyrgð á því að útgjöld sveitarfélagsins í tilefni sjónvarpsþátta margfölduðust. 23.8.2012 05:00
Nýir foreldrar fá Svanspoka Umhverfisstofnun býður nýbökuðum foreldrum að koma og sækja svokallaða Svanspoka með bæklingi sem fjallar um umhverfismerkið Svaninn og mikilvægi þess að velja umhverfisvottað fyrir ungbörn. Í pokanum eru einnig vöruprufur. 23.8.2012 04:30
2.500 króna verðmunur á sögubók Nýjar skólabækur fyrir framhaldsskóla eru ódýrastar í ritfangaversluninni A4 - Office 1, samkvæmt nýrri könnun ASÍ. Eymundsson í Kringlunni er oftast með hæst verð á nýjum bókum. 23.8.2012 04:30
Lýsir eftir blárri bjöllu „Ég er óskaplega óminnugur á smáhluti, föt og annað slíkt,“ segir Ómar Ragnarsson þegar hann er spurður út í hver hafi verið hans bestu og verstu kaup. Hann kveðst hins vegar minntur daglega á bestu bílakaupin. „Upphaflega keypti ég bílinn á 60 þúsund krónur norður á Akureyri og er búinn að keyra hann síðan. Bílinn hefur þjónað mér óskaplega vel, enda sá ódýrasti sem hægt er að hugsa sér í rekstri. Hann er að verða fornbíll og þar að auki einn af allra minnstu bílum í umferð, Daihatsu Cuore 1988 módel.“ Seljandann segir Ómar að hafi verið sá næstbesti sem hægt sé að hugsa sér, gömul kona á Akureyri. „En best væri þá gömul kona á Fljótsdalshéraði því þar er enginn sjór nálægt.“ Bílinn segir Ómar að hafi verið svo lítið ekinn og í svo góðu standi að öll þessi ár hafi hann flogið athugasemdalaust í gegn um skoðun. „Ég sef í honum, hann er vinnustaður, gististaður og farartæki búinn að vera í þessi fimm ár. Ég held að kalla megi þetta vel heppnaða naumhyggju í bifreiðum í efsta stigi.“ 23.8.2012 04:00