Fleiri fréttir

Sameinumst um að sýna lit

"Appelsínuguli liturinn er einkennislitur UN Women og á að minna okkur á réttindabaráttuna fyrir betra lífi kvenna," segir Inga Dóra Pétursdóttir, framkvæmdastýra UN Women á Íslandi. Samtökin halda appelsínugulan dag 25. hvers mánaðar í fimm mánuði sem á að vekja almenning til vitundar um ofbeldi gegn konum í heiminum og þörfina á að berjast gegn því. "Verslanir við Laugaveginn ætla að gera miðbæinn svolítið appelsínugulan í dag með því að vera með þann lit í gluggunum. Svo hvetjum við líka alla til að klæðast appelsínugulu og sýna þannig stuðning sinn í verki á táknrænan hátt," segir Inga Dóra og biður fólk að senda sér myndir.

Hvetur strandveiðimenn til samstöðu

Margir strandveiðimenn eru ósáttir við uppskiptingu strandveiðisvæða, en landinu er skipt í fjögur svæði og skiptingin hefur verið óbreytt síðan veiðarnar voru aftur leyfðar. Formaður smábátafélags á norðanverðum Vestfjörðum hvetur strandveiðimenn til að sýna samstöðu, fjölmenna á aðalfund Landsambands smábátaeigenda til að láta í sér heyra.

Aldrei verið jafnfljótir að sjá hlaupið

"Við höfum aldrei verið svona fljótir að sjá þetta," segir Snorri Zóphóníasson, jarðfræðingur hjá Veðurstofunni, um Skaftárhlaup sem hófst í nótt. Hlaupið er enn ekki komið undan jöklinum, er í um 20 km fjarlægð frá jökulsporðinum og mun ekki ná í Skaftá fyrr en seint í kvöld eða á morgun.

Hlaup að hefjast í Skaftá

Hlaup hófst í Skaftá í gærkveldi eða nótta. Þetta var staðfest fyrir hádegi í dag þegar flugmaður flaug yfir svæðið. Hlaupið kemur úr vestri katlinum og staðsetning ísskjálfta bendir til að hlaupvatnið sí nú í um 20 km fjarlægð frá jökulsporðinum. Því mun hlaupið ekki ná í Skaftá fyrr en seint í kvöld eða snemma á morgun.

Katrín: Stærstu vonbrigðin eru átök innan flokksins

Hópur innan vinstri grænna virðist vilja að flokkurinn gerist einsmálshreyfing sem byggi afstöðu sína til allra mála á andstöðu sinni við Evrópusambandið. Þetta kom meðal annars fram í opnunarræðu varaformanns á flokkráðfundi í gærkvöld. Segist hún ánægð með árangurinn í ríkisstjórn, stæstu vonbrigðin séu átök innan eigin flokks.

Norðmenn ánægðir með dóminn yfir Breivik

Norðmenn virðast almennt sáttir við dóminn yfir Anders Breivik sem í gær var dæmdur í tuttugu og eins árs fangelsi fyrir fjöldamorðin í Útey og sprengjuárásina í Osló í fyrra.

Flugbjörgunarsveit sækir mótorhjólamann

Flugbjörgunarsveitin Hellu var kölluð út nú á ellefta tímanum þegar tilkynning barst um slasaðan mótorhjólamann á veginum milli Landmannalauga og Eldgjár. Maðurinn, sem var á ferð með hópi hjólamanna, féll af hjóli sínu og er talið að hann sé bæði handleggs- og fótbrotinn. Sjúkrabíll frá Hvolsvelli var einnig sendur á staðinn og er talið að björgunarlið verði komið að hinum slasaða um klukkan 13:00 í dag.

Öflugasta hraðskákmót ársins í Kringlu

Skáksamband Íslands sendir tvö lið á Ólympíuskákmótið sem fram fer í Istanbul í Tyrklandi dagana 27. ágúst - 10. september. Bæði er um að ræða lið í opnum flokki og svo í kvennaflokki. Fjórir stórmeistarar eru í sveit Íslands í opnum flokki. Kvennaliðið er einnig þrautreynt þrátt fyrir ungan aldur en fyrir því fer Lenka Ptácníková, stórmeistari kvenna.

Sprenging í olíuhreinsistöð

Að minnsta kosti sjö eru látnir og tugir eru slasaðir eftir að sprenging varð í olíuhreinsistöð í Venúsúela í nótt. Breska ríkisútvarpið BBC greinir frá því að enn logi miklir eldar á svæðinu en ekki sé óttast um að ferkari sprengingar verði. Olíuhreinsistöðin nefnist Amuay og er í norðurhluta landsins. Rafael Ramirez, orkumálaráðherra landsins, segir gasleka hafa valdið sprengingunni. Í Venesúela er framleitt mest af olíu í Suður-Ameríku en fjöldi slysa og dauðsfalla tengist framleiðslunni.

Hollusta í Grasagarðinum en subbufæði í miðbænum

Hinn árlegi beikondagur er haldinn í annað sinn í dag á Skólavörðustíg frá kl. 14 - 17 og á KEX Hostel í kvöld frá kl. 19-23. Í orðsendingu frá aðstandendum hátíðarinnar segir að boðið verði upp á beikon-innblásna rétti frá Snaps, Sjávargrillinu og Þremur frökkum. Þá er fólk hvatt til þess að dansa og gleðjast saman undir beikon-innblásnum tónum frá hljómsveitinni Klaufum, en einnig verður boðið upp á Beikon-kappát og aðrar beikonuppákomur.

Katrín verður fjármálaráðherra

Katrín Júlíusdóttir tekur við embætti fjármálaráðherra þann 1. október næstkomandi. Þetta er tillaga Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra sem hún kynnti þingmönnum flokksins á fundi sem hófst klukkan hálfníu í morgun.

Sagður plataður til Moskvu

Iraida Spasskaja, systir rússneska stórmeistarans Boris Spasskí, segist sannfærð um að hann hafi ekki flúið til Moskvu í síðustu viku heldur hafi honum verið rænt þegar eiginkona hans brá sér af heimili þeirra.

Bærinn íhugar skaðabótamál

Bæjaryfirvöld í bænum Borja á Spáni er nokkur vandi á höndum eftir að áttatíu og eins árs kona, Cecilia Giménez að nafni, ætlaði að endurbæta aldargamalt málverk af Jesú Kristi á vegg kirkju einnar í bænum með misheppnuðum árangri.

Biður Merkel um lengri frest

Angela Merkel Þýskalandskanslari ítrekaði í gær að hún teldi að Grikkland ætti ekki að yfirgefa evrusvæðið, þrátt fyrir alvarlegan skuldavanda sem hefur valdið evrusvæðinu öllu verulegu tjóni.

Til ákæruvalds með haustinu

Til stendur að senda mál Annþórs Kristjáns Karlssonar og Barkar Birgissonar, sem grunaðir eru um manndráp á Litla-Hrauni, til ákærumeðferðar hjá Ríkissaksóknara "með haustinu“, eins og það er orðað hjá lögreglunni á Selfossi sem annast rannsókn málsins.

Strætó býður ferðir til fjörutíu kaupstaða

Um áramótin hefst reglubundinn akstur Strætó um allt norðaustanvert landið. Hægt verður að taka strætó frá Reykjavík til Egilsstaða. Akstur til Leifsstöðvar í skoðun. Aust- og Vestfirðir einu byggðu landshlutarnir sem eru undanskildir.

Deilur um lóð sem Eiður Smári skilaði

Eiður Smári Guðjohnsen skilaði einbýlishúsalóð á besta stað við Elliðavatn sem Kópavogsbær úthlutaði. Eina tilboðið sem bænum hefur borist er sagt of lágt. Það er frá tengdasyni formanns framkvæmdaráðs sem vék er málið var afgreitt.

Eitur í aðeins tveimur sýnum

Niðurstöður liggja nú fyrir úr efnagreiningum á þrávirka efninu hexaklórbenseni (HCB) í flugeldum. Eftir að ljóst var að efnið hefði fundist í flugeldum í nágrannalöndum okkar og að efnið mældist í andrúmslofti á nýársnótt 2011, var ákveðið að taka sýnishorn hjá öllum innflytjendum flugelda og láta greina efnið.

Flóðhesturinn Solly drapst

Flóðhesturinn Solly, sem hafði setið fastur í sundlaug í Limpopo í Suður-Afríku í þrjá daga, drapst í gær áður en björgunarsveitir gátu náð honum upp úr.

Breivik reyndi að ávarpa öfgamenn

Norðmenn virðast almennt sáttir við dóminn yfir Anders Behring Breivik. Hann sjálfur ítrekar að hann viðurkenni ekki dómstólinn og neitar að áfrýja. Dómararnir telja litlar líkur á að hann verði hættuminni með árunum.

Ráðherrakapallinn lagður á morgun

Jóhanna Sigurðardóttir kynnir í fyrramálið tillögur sínar að nýrri ráðherraskipan í ríkisstjórn. Líklegast þykir að Katrín Júlíusdóttir snúi aftur í ráðherrastól.

Beikonhátíð gengur í garð

Alþjóðlega beikonhátíðin verður haldin á Skólavörðustíg í Reykjavík á morgun. Beikonís er á meðal þess sem verður í boði í miðbænum. Skipuleggjendur hátíðarinnar segja að beikonið sé sannarlega ekkert án fólksins og að fleskið sé í raun lífstíll.

Sífellt fleiri börn í meðferð vegna offitu

Hundrað og fimmtíu börn hafa tekið þátt í meðferð vegna offitu á Barnaspítalanum á síðustu sex árum. Nokkur þeirra hafa verið byrjuð að þróa með sér sykursýki og því þurft lyfjagjöf.

Fjórtán hundruð börn skráð í fimleikadeild Gerplu

Fjórtán hundruð börn eru skráð fyrir haustið í fimleikadeild Gerplu. Hætt var að taka börn inn á biðlista eftir Verslunarmannahelgi. Þá var þegar búið að skrá meira en eitt þúsund börn sem dreymir um að æfa fimleika sum þeirra hafa beðið í þrjú ár.

Lýst eftir sextán ára pilt

Lögreglan lýsir nú eftir Guðmundi Árnasyni. Hann er fæddur 29. júní árið 1996. Hann er um 170 til 175 sentímetrar á hæð, með blágrá augu, skolhærður og með hanakamb. Guðmundur er með tvo lokka í augabrún.

Kornrækt verði margfölduð á Íslandi

Fjórfalda mætti kornrækt á Íslandi, að mati tilraunastjóra Landbúnaðarháskóla Íslands. Hann segir að ræktun korns hafi sjaldan verið jafn arðbær sem nú og telur að þarna liggi einhver bestu sóknarfæri íslenskra bænda. Kynbætur á byggi sem miða að því að fá sem sterkust afbrigði fyrir Ísland hafa verið lykillinn að stóraukinni kornrækt íslenskra bænda.

140 þúsund krónur í skólamáltíðir á ári

Skólamáltíðir í grunnskólum landsins kosta að meðaltali þrjú hundruð og áttatíu krónur á dag. Það gera yfir fimmtán þúsund krónur á mánuði fyrir fjölskyldu með tvö börn á grunnskólaaldri. Verð á máltíð er hæst á Álftanesi en lægst í Reykjavík.

Með dólgslæti í millilandaflugi

Kalla þurfti til lögreglu eftir að maður var með dólgslæti um borð í flugvél í millilandaflugi. Maðurinn lét ófriðlega og braut meðal annars borð.

Russell Crowe með skyrfíkn

Hróður skyrsins berst víða. Fyrr í dag birti leikarinn og Íslandsvinurinn Russell Crowe færslu á Twitter þar sem hann lýsti yfir ást sinni á skyri. Þá spyr hann lesendur hvort að hægt sé að nálgast skyrið annars staðar en á Íslandi.

Flugeldasýning við Jökulsárlón í beinni

Árleg flugeldasýning verður haldin við Jökulsárlón annaðkvöld, laugardagskvöld, Auk þess að skjóta upp flugeldum verða ísjakar í lóninu lýstir upp með kertum svo það má búast við miklu sjónarspili.

Lýst eftir Sigurði Rósant

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Sigurði Rósant Júlíussyni, 16 ára. Talið er að hann sé klæddur í svarta hettupeysu, gular gallabuxur. Sigurður, sem er grannvaxinn, um 170 cm á hæð og skollitað hár. Síðast er vitað um ferðir hans í Reykjavík í gær. Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Sigurðar eru beðnir um að hafa samband við lögreglu í síma 444-1000.

Myrti fyrst yfirmanninn sinn

Skotmaðurinn sem var skotinn til bana í New York í morgun, eftir að hafa myrt tvo og sært níu, skaut fyrst yfirmanninn sinn sem hafði rekið hann úr vinnu á síðasta ári.. Þetta kemur fram á fréttavef New York Post þar sem einnig er rætt við sjónarvotta og særða.

Skotmaður drepinn - minnsta kosti tveir látnir

Óður skotmaður virðist hafa skotið að minnsta kosti tíu einstaklinga fyrir utan Empire State bygginguna í New York samkvæmt fréttastofunni CNN. Meðal annars skaut maðurinn gangandi vegfaranda í höfuðið sem hann elti uppi. Óvopnaður öryggisvörður elti manninn þegar hann ætlaði að flýja af vettvangi. Síðar kom lögreglan og virðist hún hafa skotið manninn til dauða.

Fimm skotnir við Empire state bygginguna

Minnsta kosti fimm einstaklingar hafa verið skotnir fyrir utan Empire State bygginguna í New York en samkvæmt fréttastofunni CNN átti árásin sér stað fyrir um klukkan eitt í dag að íslenskum tíma, eða rúmlega níu um morguninn í New York.

Vilja mæla árangur nemenda í bókstöfum en ekki tölustöfum

Menntamálaráðherra vill að kynnt verði nýtt einkunarkerfi fyrir nemendur í 10. bekk. Nýja kerfið myndi byggja á bókstöfum og verður hugsanlega komið í gagnið á næsta ári. Því er ætlað að nýtast framhaldsskólum við val á nýnemum.

Erfiðum réttarhöldum lokið

Skiptar skoðanir virðast vera á dómnum yfir Breivik í dag. Aðstandendur hafa margir hverjir fagnað niðurstöðunni og lýst yfir ánægju sinni með að málið hafi nú loks verið leitt til lykta. Aðrir eru þó á öðru máli og segja dóminn vera vægan.

Gleymdi potti á eldavélinni

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað að heimili í Vesturbænum um hádegisbilið vegna eldsvoða.

Sagði túlkun lögreglunnar á umferðarlögunum ranga

Afskiptum lögreglu af fólki í umferðinni er ekki alltaf vel tekið. Þetta átti t.d. við um karl sem virti ekki innakstursbann og ók bíl sínum gegn einstefnu í miðborg Reykjavíkur og lögreglan hafði afskipti af. Í framhaldinu lagði hann bílnum á gangstétt í sömu götu og hindraði þannig umferð gangandi vegfarenda.

Þúsund bókaverslanir vildu Auði Övu

Þúsund franskar bókaverslanir óskuðu eftir því að skáldið Auður Alva Ólafsdóttir kæmi í heimsókn og áritaði nýútkomna bók sína, Rigning í nóvember, sem kom nýlega út í franskri þýðingu.

Þingflokkur fundar um breytingar á ráðuneytum í fyrramálið

Þingflokkur Samfylkingarinnar hittist klukkan hálf níu í fyrramálið á Hótel Natura, áður hótel Loftleiðir. Þingflokksformaður Samfylkingarinnar, Magnús Orri Schram, segir að þar verði rætt um breytingar á skipan ríkisstjórnarinnar. Til stendur að fækka ráðuneytum úr tíu í átta.

Sjá næstu 50 fréttir