Ráðherrakapallinn lagður á morgun Breki Logason. skrifar 24. ágúst 2012 21:15
Jóhanna Sigurðardóttir kynnir í fyrramálið tillögur sínar að nýrri ráðherraskipan í ríkisstjórn. Líklegast þykir að Katrín Júlíusdóttir snúi aftur í ráðherrastól. Um mánaðarmótin taka gildi breytingar á ráðuneytunum þannig að þeim mun fækka í átta. Nýtt atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti mun taka til starfa, iðnaðarráðuneytið verður aflagt og Umhverfisráðuneytið mun hér eftir heita umhverfis- og auðlindaráðuneyti. Þá verður til ráðuneyti fjármála- og efnahags, en verkefni efnahags- og viðskiptaráðuneytisins færast til fjármálaráðuneytisins annars vegar og atvinnuvegaráðuneytisins hins vegar. Á sama tíma mun Katrín Júlíusdóttir snúa aftur úr barneignaleyfi en hún var iðnaðarráðherra áður en hún fór í leyfi. Við því embætti tók Oddný G. Harðardóttir en hún færðist síðar yfir í fjármálaráðuneytið. Um áramótin var ekki annað að skilja á Oddnýju en að hún liti svo á að hún væri að verma sætið fyrir Katrínu:„Það er bara þannig að þegar einhvern fer í barneignarleyfi, þá kemur einhvern annar tímabundið í staðinn." En átta mánuðir eru langur tími í pólitík og því ekki endilega loku fyrir það skotið að Oddný sitji áfram í embætti. Þrjár útfærslur þykja því líklegastar: Sú fyrsta, og jafnframt kannski sú ólíklegasta, er að engar breytingar verði gerðar. Oddný verði áfram fjármálaráðherra og Katrín óbreyttur þingmaður. Önnur útfærslan er á þá leið að Oddný hverfi á braut og Katrín taki við fjármálaráðuneytinu. Þriðji möguleikinn sem margir telja líklegastan, er sá að Katrín taki við velferðarráðuneytinu af Guðbjarti Hannessyni sem verði fjármálaráðherra, og að Oddný hverfi á braut. Þetta er rökstutt á þann veg að Guðbjartur hafi mikla reynslu, hafandi verið fremur farsæll formaður fjárlaganefndar. Eins og fyrr sagði eru þetta aðeins vangaveltur, forsætisráðherra hefur farið afar hljótt með áform sín og lítið látið uppi. Á morgun heldur Samfylkingin flokksstjórnarfund sinn og þar mun Jóhanna kynna tillögur sínar um ráðherraskipan. Fyrst verða þingmönnum kynntar tillögurnar á fundi sem hefst klukkan hálf níu. Það skýrist því í fyrramálið hvernig þessi ráðherrakapall mun á endanum leggjast sig.
Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Innlent Fleiri fréttir Ráðst í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Sjá meira