Fleiri fréttir

Viðræður um verksamning hófust í dag

"Ég met það þannig að verkframkvæmdir, ef allt gengur eftir, gætu verið að hefjast í byrjun september," segir Karl Þráinsson, forstjóri ÍAV, eftir fyrsta fund með Vegagerðinni í dag um gerð verksamnings vegna Vaðlaheiðarganga. Karl býst við að einhverjar vikur taki að ganga frá samningum, því verksamningurinn er ekki sá eini. Hlutafélagið Vaðlaheiðargöng þarf að gera lánasamning við fjármálaráðuneytið og síðan að semja við Vegagerðina um að halda utan um verkefnið, en hún mun væntanlega koma fram sem verkkaupi gagnvart verktökunum, ÍAV og Marti.

Meintum barnaníðingi gert að yfirgefa réttarsal

Karlmanni, sem er ákærður fyrir að hafa beitt stúlku og dreng kynferðislegt ofbeldi, er gert að yfirgefa réttarsalinn á meðan þau bera vitni. Hæstiréttur Íslands staðfesti úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur.

Náttfari missti afl

Skipverjar á hvalaskoðunarskipinu Náttfara urðu varir við gangtruflanir í skipinu rétt fyrir tvö í dag og ákváðu að drepa á aðalvél skipsins. Aflandsvindur var og engin hætta á ferð og því ákveðið að taka bátinn í tog af öðrum bát félagsins. Til að gæta fyllsta öryggis var Björgunarsveitinni Garðari gert viðvart og fór hún á vettvang á hraðbát.

Nýr biskup tekinn við lyklavöldum

Prestastefnu lauk í dag með athöfn í Dómkirkjunni. Að lokinni guðþjónustu og altarisgöngu afhenti Karl Sigurbjörnsson,fráfarandi biskup Íslands, nývígðum biskupi, Agnesi Sigurðardóttur, lykla embættisins. Agnes biskup mun formlega hefja störf á biskupsstofu á mánudaginn næstkomandi, en hún var vígð í embættið síðastliðinn sunnudag.

"Keep it real" átakið hefst í dag

Átakið gengur út að skora á tímarit að hafa að minnsta kosti eina fegurðarmynd í hverju tölublaði sem ekki eru breyttar með Photoshop.

Lífshættulegt að leyfa börnum að hlaupa meðfram bílum

Það er mjög hættulegt þegar vegfarendur ganga eða hlaupa meðfram ökutækjum sem eru á hreyfingu. Sérstaklega þarf að gæta varúðar þegar börn eiga í hlut. Ökumenn geta hæglega misst sjónar af börnum vegna smæðar þeirra. Þetta kemur fram í varnaðarorðum Rannsóknarnefndar umferðarslysa sem lauk nýverið rannsókn fimm banaslysa í umferðinni sem urðu árið 2011.

Börkur dæmdur í hálfs árs fangelsi

Börkur Birgisson var dæmdur í 6 mánaða fangelsi fyrir brot gegn valdstjórninni þegar hann hrækti á skikkju héraðsdómara og kallaði hana "tussu“. Börkur mætti ekki fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur í morgun að eigin ósk en síðast þegar hann mætti þangað reyndi ungur karlmaður að koma úlpu í hans hendur þvert á vilja lögreglunnar. Sá var handtekinn og verður líklega einnig ákærður fyrir brot gegn valdstjórn.

Odd Nerdrum í tæplega þriggja ára fangelsi

Norski listamaðurinn Odd Nerdrum var í morgun dæmdur í tveggja árs og tíu mánaða fangelsi fyrir skattsvik. Hann mun einnig þurfa að greiða 35 þúsund norskar krónur, eða sem samsvarar um 700 þúsund íslenskum, í sakarkostnað. Nerdrum fékk jafnvirði 275 milljóna íslenskra króna vegna sölu á myndum í New York á árunum 1998-2002. Hann átti að greiða helminginn í skatt en gerði það ekki. Nerdrum hefur alltaf neitað sök, en engu að síður hafa dómar á tveimur dómsstigum fundið hann sekan.

Oddný komin í hóp olíumálaráðherra og olíuforstjóra

Oddný Harðardóttir iðnaðarráðherra er fulltrúi Íslands á ráðherrafundi um olíuleit á Norðurslóðum, sem fram fer í Þrándheimi í Noregi í dag. Olíu- og orkumálaráðherrar ríkja við Norðurskautið eru meðal þátttakenda á fundinum ásamt fulltrúum stærstu olíufyrirtækja heims, eins og ExxonMobil, BP, Statoil, Gazprom, ConocoPhilips og Shell.

Starfsmenn fá frí til að horfa á Ólympíuleikana

Helmingur fyrirtækja í London gefa starfsmönnum sínum leyfi til að vinna heima á meðan á Ólympíuleikunum og valmöguleika að taka sér frí á meðan þeim stendur, samkvæmt nýrri rannsókn.

Tófa á tölti um Garðabæ í morgun

Ökumaður sem var að aka framhjá golfvelli Oddfellowa í Garðabæ í morgun sá hvar tófa rölti yfir veginn ekki fjarri afleggjaranum inn í Heiðmörk. "Tófan labbaði bara yfir veginn," sagði Úlfar Antonsson líffræðingur en hann var að aka eftir svokölluðum Ofanbyggðavegi á milli golfvallarins og Vífilsstaðavatns um hálfsjöleytið. "Ætli hún hafi ekki verið að koma úr mat í Garðabænum," sagði Úlfar. "Tófurnar eru miklu nær okkur en við höldum. Þær eru alveg ofan í byggðinni." Úlfar segir að tófan hafi ekki virst hrædd. Hann kvaðst hafa verið á Snæfellsnesi fyrir nokkrum dögum og séð þá tófu í Breiðuvík. "Hún hegðaði sér allt öðruvísi og var stressuð. Þessi sem ég sá í morgun var miklu rólegri. Tölti bara í rólegheitum yfir í veginn og hvarf svo inn í kjarrið," sagði Úlfar.

Yfir tíu skip komin á makrílveiðar

Tíu til 15 skip eru nú byrjuð makrílveiðar hér við land og veiðist hann bæði út af Suðausturlandi, Suðurlandi og Vesturlandi.

Þyrla sótti veikan mann á Arnarvatnsheiði

Karlmaður veiktist alvarlega þegar hann var staddur í litlu veiðihúsi á Arnarvatnsheiði í gærkvöldi. Þar sem hann þótti sýna einkenni heilablóðfalls var óskað eftir þyrlu Gæslunnar, sem sótti hann og kom með hann til Reykjavíkur á öðrum tímanum í nótt, þar sem hann var lagður inn á Landsspítalann.

Ógnuðu starfsmanni í ráni í söluturni

Rán var framið í söluturni við Langholtsveg í Reykjavík upp úr klukkan níu í gærkvöldi. Af skeyti frá lögreglu má ráða að fleiri en einn hafi verið þar að verki og hafi þeir ógnað starfsmanni og komist undan með einhverja fjármuni.

Lífshættuleg flog vegna lyfja

Ný samheitalyf við flogaveiki hafa að undanförnu orsakað alvarleg flog hjá sjúklingum. Dæmi eru um að einstaklingar sem hafa verið lausir við flog í mörg ár verði alvarlega veikir eftir að hafa verið teknir af lyfinu Keppra og settir á samheitalyf.

Dómstóll í Köln bannar umskurð drengja

Gyðingar í Þýskalandi eru æfir af reiði eftir að dómstóll í Köln komst að þeirri niðurstöðu að banna bæri umskurð á ungum drengjum. Gyðingatrú krefst þess að drengir séu umskornir.

Nær öllum bjargað er annað skip fórst við Jólaeyju

Búið er að bjarga 123 manns eftir að skipi yfirfullu af hælisleitendum hvolfdi rúmlega 100 mílum norður af Jólaeyju við Ástralíu. Þetta er í annað sinn á tæpri viku að skip með hælisleitendum ferst á þessum slóðum.

Fólk hvatt til að láta mæla sig

Allir sem eru með öndunarfæraeinkenni eins og hósta eða áreynslumæði eru hvattir til að fara í öndunarmælingu vikuna 24. júní til 1. júlí. Alþjóðlegur dagur öndunarmælinga er í dag.

Töluvert tjón í eldsvoða á Selfossi

Töluvert tjón varð á húsnæði og á munum innanstokks, þegar eldur kviknaði í nytjamarkaði Hvítasunnusafnaðarins vi Eyrarveg á Selfossi í gærkvöldi.

Stjórnsýslan verður gerð aðgengilegri

Stýrihópur um rafræna stjórnsýslu og rafrænt lýðræði kom til fyrsta fundar á mánudag en verkefni hópsins er að vinna úr tillögum nefndar um eflingu sveitarstjórnarstigsins varðandi rafræna stjórnsýslu og lýðræði. Hópnum er ætlað að skila áfangaskýrslu til innanríkisráðherra í október.

Lifandi pöddur hjá Yggdrasil

Yggdrasill heildverslun hefur innkallað hýðishrísgrjón og döðlur eftir að aðskotahlutir fundust í vörupakkningum frá fyrirtækinu. Um var að ræða lítil lifandi skordýr.

Vilja veðbanka á kappreiðarnar

"Við erum ekki alveg úrkula vonar um að leyfið fáist endurnýjað, svo menn geti starfrækt veðbanka á kappreiðunum. Það væri gaman ef menn mættu veðja aðeins á þann hest sem þeir telja líklegastan,“ segir Haraldur Þórarinsson, formaður Landssamtaka hestamannafélaga.

Lögreglumaður káfaði á stúlku

Héraðsdómur Norðurlands vestra hefur dæmt fyrrverandi lögregluvarðstjóra í hálfs árs fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn fimmtán ára dóttur vinahjóna sinna. Honum er jafnframt gert að greiða stúlkunni 300 þúsund krónur í miskabætur.

Þrjú ár ætluð í þriðja bindið

Bæjarráð Akraness hefur samþykkt samning við Hjálmar Gunnlaug Haraldsson um áframhaldandi ritun Sögu Akraness. Tvö bindi, sem ná út átjándu öld, eru þegar komin út en áætlað er að ritun þriðja bindis fari fram á árunum 2012 til 2014. Einn bæjarfulltrúinn sagði að vegna fjárhagsstöðu Akraneskaupstaðar teldi hann ekki forsvaranlegt að ganga til samninga um ritun þriðja bindis Sögu Akraness. Verkið hefur verið gagnrýnt vegna mikils kostnaðar sem þegar er kominn yfir eitt hundrað milljónir króna. Þá hafa verið skiptar skoðanir meðal gagnrýnenda um vinnubrögð höfundarins.- gar

Húsbíll tókst á loft og endaði í skurði

Hjónin Vilhelm Guðbjartsson og Guðrún Ragnarsdóttir lentu í kröppum dansi á dögunum þegar þau óku milli Hofsóss og Siglufjarðar. Húsbíll þeirra tók á sig vindhviðu og valt að minnsta kosti tvær veltur út af veginum áður en hann staðnæmdist í skurði undir vegbrúninni.

Söngkonur sækja í sixtís-kjólana

Fjöldi litskrúðugra kjóla er nú meðal þess sem hægt er að kaupa á nytjamarkaði Fjölskylduhjálpar Íslands, sem er opinn í höfuðstöðvum samtakanna í Eskihlíð alla virka daga frá tólf til hálffimm.

Breyting á stiga skoðuð nánar

Skipulags- og mannvirkjanefnd Fljótsdalshéraðs hefur frestað afgreiðslu erindis um breytingar á áður samþykktum laxastiga við svokallaðan Steinboga í Jökulsá á Dal. Stiginn á að opna laxfiskum tugkílómetra leið á efri hluta Jöklu. Veiðifélagið vill nú lengja stigann um 20 metra og gera breytingar til að minnka notkun steypu. Skipulags- og mannvirkjanefnd hyggst fá umsagnir frá Umhverfisstofnun, Skipulagsstofnun, Fiskistofu og umhverfis- og héraðsnefnd auk þess að kynna almenningi framkvæmdina áður en breytingarbeiðnin er afgreidd.- gar

Ólafur Ragnar með mest fylgi

Þjóðarpúls Capacent Gallup, sem birtur var í gær, mælir Ólaf Ragnar Grímsson með rétt tæplega 45% fylgi, Þóru Arnórsdóttur með 37%, Ara Trausta Guðmundsson með tæplega 11% fylgi, Herdísi Þorgeirsdóttur með 5,3%, Andreu J. Ólafsdóttur með 1,6% og Hannes Bjarnason með 0,8% fylgi.

Fá bónus fyrir nýja starfsmenn

Starfsmenn einnar deildar hjá norska olíurisanum Statoil fá 20 þúsund norskar krónur, jafngildi rúmlega 400 þúsunda íslenskra króna, í bónus takist þeim að fá verkfræðing eða annan fagmann til starfa hjá fyrirtækinu, að því er segir á fréttavefnum e24.no. Þar kemur fram að Statoil þurfi að ráða 1.500 nýja starfsmenn í ár.

Bæta netsamband á nesinu

Vinna stendur nú yfir á símamastri í Ólafsvík til að bæta 3G samband á Snæfellsnesinu. Verið er að koma nýjum búnaði fyrir í mastrinu og lækka það, úr 40 metrum í 30. Við það mun minna hvína í mastrinu í vindi. Skessuhorn greinir frá þessu.

Sagðist sjálfur hafa stungið sig

Lögregla handtók í gærmorgun þrjá menn vegna hnífsstungu í bakhúsi við Njálsgötu. Maðurinn sem var stunginn var í mjög annarlegu ástandi og fullyrti við lögreglumenn að hann hefði veitt sér áverkann sjálfur.

Lesa sig út úr fangelsunum

Föngum í brasilískum fangelsum mun standa nýstárleg leið til boða til að stytta fangelsisvist sína; að lesa bækur. Hver bók styttir vistina um fjóra daga. Guardian greinir frá þessu.

Íslendingar fylgja ákvörðunum annarra

Lene Espersen fer fyrir Evrópunefnd danska þingsins sem er í heimsókn hér á landi. Hún er bjartsýn á að viðunandi lausnir finnist á landbúnaðar- og sjávarútvegsmálum Íslendinga í aðildarviðræðum við ESB. Hún segir aðild hafa gefið Dönum ótalmörg tækifæri og telur skynsamlegt fyrir Ísland að ganga í ESB til að taka þátt í ákvörðunum. Nú þurfi Ísland að fylgja ákvörðunum annarra ríkja í gegnum EES.

Sjá næstu 50 fréttir