Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Lögregla í átökum við mótmælendur Þótt þjóðstjórnin í Grikklandi hafi samþykkt ný niðurskurðaráform er enn eftir að tryggja stuðning þingsins. Fjármálaráðherrann segir að nú sé komið að því að þingið taki ákvörðun um hvort Grikkland verði áfram með evru. 11.2.2012 05:00
Lokaður heimur opnast Rússneskum vísindamönnum hefur tekist að bora leið niður í stórt stöðuvatn sem hefur verið innilokað undir Suðurskautsísnum í milljónir ára. 11.2.2012 04:00
Áhrifamenn 20. aldar endurskapaðir sem hundar Ljósmyndabókin "Canine Chronicles“ er hugmyndarík endursögn á nokkrum af helstu atvikum 20. aldarinnar. Helstu leiðtogar og áhrifamenn eru þar endurskapaðir sem hundar. 10.2.2012 23:45
Nýtt tónlistarmyndband Ok Go vekur athygli Nýtt tónlistarmynd hljómsveitarinnar Ok Go var opinberað á Super Bowl um síðustu helgi. Tónlistarmyndbandið var framleitt af Chevrolet og var hugsað sem auglýsing fyrir nýja línu af smábílum. 10.2.2012 23:00
"Ég er háð því að borða plast" Átján ára stúlka í Bandaríkjunum heldur því fram að hún sé háð því að borða plast. Hún segist hafa étið 60.000 plastvörur á síðustu 11 árum. 10.2.2012 22:30
Skammarlegar sögur notaðar til að kynnast starfsfélögum Á meðan flestir segja brandara til að brjóta ísinn á nýjum vinnustað hafa Japanir þróað afar nýstárlega aðferð til að kynna sig fyrir vinnufélögum - þeir segja sögur af mistökum sínum og smán. 10.2.2012 23:30
Hestarnir ómeiddir Ökumaður jeppa, sem var með hestakerru í eftirdragi, missti stjórn á bíl sínum klukkan rúmlega níu í kvöld í grennd við Grundartanga. Bíllinn valt nokkrar veltur en ökumaðurinn hlaut minniháttar meiðsli og eru hestarnir einnig taldir hafa sloppið ómeiddir. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Borgarnesi var hálka á veginum. Fjarlægja þurfti jeppann með kranabifreið en hann er talinn vera ónýtur, sem og hestakerran. Komið var með aðra hestakerru til að ferja hestana í burtu. 10.2.2012 22:51
Faðir skýtur fartölvu dóttur sinnar eftir Facebook skilaboð Fimmtán ára stúlka í Bandaríkjunum fékk opinbera áminningu frá föður sínum um hversu mikilvægt það er að virða þá sem eru eldri en hún. 10.2.2012 22:15
Hundur beit þáttastjórnanda í beinni útsendingu Þáttastjórnandi í Bandaríkjunum var fluttur á sjúkrahús eftir að 40 kílóa hundur beit hana í andlitið í beinni útsendingu. Myndband af atvikinu hefur vakið gríðarlega athygli. 10.2.2012 22:00
Tólf ára piltur bjargaði heimili ömmu sinnar Með því að biðla til ókunnugra um að gefa pening tókst 12 ára gömlum pilti að koma í veg fyrir að amma hans myndi lenda á götunni. 10.2.2012 21:30
Schwarzenegger og Stallone fóru saman í skurðaðgerð Það er greinilega ekki nóg fyrir að harðhausana að leika í kvikmyndum saman - þeir gangast einnig undir skurðaðgerðir saman. 10.2.2012 21:00
Paul McCartney fær stjörnu í Hollywood Bítillinn Paul McCartney hefur loks fengið stjörnu með nafni sínu á gangstéttina í Hollywood. Tæp 20 ár eru síðan McCartney hlaut tilnefninguna. 10.2.2012 20:30
Von um úrræði Fjöldi heimila með lánsveð hjá ættingjum og vinum, sem hefur fallið á milli skips og bryggju í skuldaúrræðum stjórnvalda, gætu átt von á nýjum úrræðum. Sérstök ráðherranefnd er að útfæra leiðir til að mæta þeim hópi yfirveðsettra heimila sem hefur ekki notið 110 prósenta leiðarinnar. 10.2.2012 20:24
Stjórnmálafræðingur: Fylgi Lilju ekki fast í hendi Stjórnmálafræðingur segir fylgi við flokk Lilju Mósesdóttur í nýrri könnun ekki vera fast í hendi og sögulega hafi nýir flokkar oft fengið mikið fylgi í upphafi. Þá hafi Björt Framtíð ekki aðgreint sig nægilega frá öðrum flokkum og tapar á tengingu við Besta Flokkinn. 10.2.2012 19:19
Meira en helmingur þjóðarinnar vill kosningar í vor Meirihluti landsmanna vill að þing verði leyst upp og boðað til alþingiskosninga í vor. Þetta kemur fram í nýrri skoðanakönnun Stöðvar tvö og Fréttablaðsins. Um tuttugu prósent þeirra sem styðja ríkisstjórnina vilja kosningar. 10.2.2012 18:42
Myndbandið er ekki gabb - hellti upp á kaffi og tók svo upp "Þetta er alls ekki sviðsett af mér, það er alveg fráleitt. Þetta er ekkert gabb,“ segir Hjörtur E. Kjerúlf, sem tók myndbandið af meintum Lagarfljótsormi á dögunum. Um tvær og hálf milljón notenda á YouTube hefur séð myndbandið. 10.2.2012 17:53
Karl á áttræðisaldri í haldi vegna sprengjumálsins Karlmaður á áttræðisaldri er í haldi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, grunaður um aðild að sprengjumálinu svokallaða, á Hverfisgötu um mánaðarmótin. Maðurinn var handtekinn í dag en lögregla hefur jafnframt lagt hald á ýmsan búnað sem tengist áðurnefndu máli. 10.2.2012 18:20
Á skilorð fyrir kynmök við barn Karlmaður hefur verið dæmdur í tólf mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa tvisvar haft kynmök við fjórtán ára gamlan pilt og greitt piltnum fyrir. Héraðsdómur Vesturlands kvað upp dóminn í gær. Maðurinn játaði brot sín. 10.2.2012 17:17
Einstök ákvæði stjórnarskrár borin undir þjóðaratkvæði Stjórnarliðar vilja að þjóðin verði spurð álits á einstökum álitaefnum um stjórnarskrá í sumar. Ekki lögð fram heildstæð tillaga að stjórnarskrá. Þingnefnd vinni úr niðurstöðum. Sérfræðingar telja málið þurfa meiri tíma. 10.2.2012 17:15
Nýr flokkur aldrei fengið meira en 10% "Þetta er vísbending um mikla óánægju með fjórflokkana,“ segir Ólafur Þ. Harðarson prófessor í stjórnmálafræði og forseti Félagsvísindasviðs Háskóla Íslands um nýja könnun Fréttablaðsins á fylgi flokkanna. Könnunin sýnir að Samstaða, nýr flokkur Lilju Mósesdóttur fær yfir 20% fylgi og fengi og 14 þingmenn kjörna. 10.2.2012 16:59
Ögmundur vill sjá hvað hangir á spýtunni í Nubo málinu Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra segist ekki hafa fylgst með þeim samningaviðræðum sem nú eru í gangi á milli sveitarfélagsins Norðurþings og kínverska auðkýfingsins Huang Nubo. Fréttastofa greindi frá því á dögunum að Norðurþing íhugi að kaupa Grímsstaði á fjöllum með láni frá Nubo og leigja honum hana síðan. 10.2.2012 16:55
Tæplega 70% með leka púða Búið er að ómskoða 105 þeirra kvenna sem fengið hafa PIP-brjóstapúða í gegnum árin. Landlæknir hefur eftir Krabbameinsfélagi Íslands, sem annast ómskoðanirnar, að 71 kona hafi greinst með leka púða. Það þýðir að 68 prósent þeirra sem til Krabbameinsfélagsins hafa leitað hafa reynst vera með leka púða. Alls hafa um 400 konur fengið boð frá Krabbameinsfélaginu um að mæta í ómskoðun en ríkið mun sjá um kostnaðinn við brottnám PIP púðanna. 10.2.2012 15:59
Ókeypis í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn um helgina Vetrarhátíð í Reykjavík er gengin í garð og Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn tekur þátt um helgina. Gestum er boðið í garðinn sér að kostnaðarlausu á milli klukkan tíu og tólf á laugardag og sunnudag. Eftir hádegi gildir hinsvegar gjaldskrá eins og venjulega. Ýmislegt er í boði í garðinum og geta gestir fengið innsýn inn í hvernig dýr sjá umhverfi sitt í myrkri. 10.2.2012 14:56
Ástæða til að stöðva útflutning á munum Ástæða þykir til að stöðva útflutning á nokkrum munum sem P&H Jewellers hafði keypt af Íslendingum. Þetta var niðurstaða safnaráðs sem hittu fulltrúa fyrirtækisins í dag. Safnaráð kom á fundinum með fyrirtækinu í tilefni af auglýsingu í Fréttablaðinu á laugardaginn þar sem fólk var hvatt til að koma með gull og skartgripi til mats og mögulegrar sölu hjá fyrirtækinu. 10.2.2012 13:36
Fréttaskýring: Ármann valdamestur sjálfstæðismanna Á þriðjudaginn 14. febrúar mun Ármann Kr. Ólafsson, oddviti sjálfstæðismanna í Kópavogi, verða formlega bæjarstjóri í sveitarfélaginu, sem er hið næst stærsta á landinu á eftir Reykjavík með 30.779 íbúa samkvæmt tölum Hagstofu Íslands. Ármann verður með þessu valdamesti kjörni fulltrúi Sjálfstæðisflokksins á landsvísu, þegar mið er tekið af fjölda íbúa sveitarfélaga þar sem Sjálfstæðisflokkurinn er við stýrið og þeirri staðreynd að flokkurinn er ekki við stjórnartaumana í landsmálunum. 10.2.2012 13:30
Átta mánaða fangelsi fyrir árás á fyrrverandi sambýliskonu Tuttugu og sex ára gamall karlmaður hefur verið dæmdur í átta mánaða fangelsi fyrir að ráðast á fyrrverandi sambýliskonu sína, taka hana hálstaki, skella henni utan í veggi og hrinda henni í gólfið. Árásin mun hafa átt sér stað á heimili mannsins í miðborg Reykjavíkur í október árið 2010. Maðurinn neitaði sök og sagði að konan hefði komið á heimili sitt og dottið þegar hann var að beina henni út og haldið henni á lofti við það. Dómurinn tók þeim skýringum mannsins ekki trúanlega. Maðurinn hefur tvisvar verið dæmdur fyrir líkamsárásir og var á skilorði þegar hann braut gegn fyrrverandi sambýliskonunni. 10.2.2012 13:20
Milljónir hafa séð Lagarfljótsorminn á YouTube Tvær og hálf milljón notenda YouTube hefur nú séð myndbandið sem Hjörtur Kjerúlf tók við Lagarfljót á dögunum. Ríkisútvarpið sýndi myndskeiðið á dögunum en síðan þá hafa margir af stærstu miðlum heims tekið fréttina upp. 10.2.2012 12:42
Segir aðra kosti hafa verið í stöðunni Fullyrðingar Rannveigar Ásgeirsdóttur, oddvita Lista Kópavogsbúa, um að engin kostur annar hafi verið í stöðunni en að mynda meirihluta með Framsóknarflokknum og Sjálfstæðisflokknum eru út í hött. Þetta fullyrðir Hafsteinn Karlsson, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar, í tilkynningu sem hann sendi fyrir hönd bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar og VG. Hafsteinn segir að Samfylkingin, Vinstri græn og Framsóknarflokkur hafi boðið Lista Kópavogsbúa að minnsta kosti tvívegis í samstarf en Rannveig hafi ekki sýnt því neinn áhuga og neitað að taka þátt í slíkum viðræðum. 10.2.2012 12:16
Ólafur Ragnar með opið hús Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, ætlar að bjóða almenningi að heimsækja Bessastaði milli klukkan fjögur og átta í dag. Gestum býðst að skoða bæði Bessastaðastofu og Bessastaðakirkju. 10.2.2012 11:50
Tjónum á lögreglubílum hefur fækkað umtalsvert Lögreglubílar á Íslandi lentu 80 sinnum í tjóni á síðasta ári. Kostnaður vegna þessa nam 7,3 milljónum króna. Tjónum hefur fækkað mikið síðustu ár en árið 2007 voru þau 140 talsins og 168 árið 2008. Þetta kemur fram í skýrslu sérstaks starfshóps sem ætlað er að hafa eftirlit með öllu því er varðar ökutæki og tækjabúnað lögreglunnar. Í skýrslu hópsins sem nú er komin út segir að það sé mat manna að þessa fækkun tjóna megi meðal annars rekja til þess að akstur lögreglubíla hefur dregist verulega saman og að námskeið í forgangsakstri hafi skilað árangri. Aðhald frá starfshópnum hefur einnig skilað árangri. 10.2.2012 11:33
Hjallastefna til Vestmannaeyja Hjallastefnan er á leið til Vestmannaeyja. Bætist þá ellefti skólinn við þá tíu leikskóla sem þegar eru reknir undir merkjum Hjallastefnunnar víða um land. Þetta var ljóst þegar bæjarráð Vestmannaeyja ákvað að taka tilboði Hjallastefnunnar í rekstur leikskólans Sóla. Tilboðið var það lægsta sem barst í útboði. 10.2.2012 11:00
Lilja hrærð yfir viðbrögðunum Lilja Mósesdóttir, formaður Samstöðu, nýs stjórnmálaafls sem hyggst bjóða fram í þingkosningum að ári, segir niðurstöður í nýrri könnun koma sér og flokksfélögum á óvart. Flokkurinn mældist með 21,3% fylgi í könnun sem Fréttablaðið birtir í dag og var framkvæmd i gær og í fyrradag. Samkvæmt niðurstöðunum fengi flokkurinn fjórtán þingmenn kjörna. 10.2.2012 10:29
Stjórnvöld í Aserbaídsjan gagnrýnd fyrir einræði Mannréttindasamtökin Amnesty International segja andrúmsloft ótta og sjálfsritskoðunar ríkja í Aserbaídsjan. Mótmælahreyfing á síðasta ári var barin niður harðri hendi. Samkynhneigðum er hótað lífláti. 10.2.2012 10:15
Barnaheill fá styrk til uppbyggingarstarfs í Norður-Úganda Barnaheill - Save the Children á Íslandi hafa fengið 3,3 milljóna króna styrk frá utanríkisráðuneytinu fyrir menntunar- og uppbyggingastarf sitt í Pader- og Agogo-héruðum í Norður-Úganda. Í tilkynningu frá samtökunum segir að styrkurinn verði nýttur til að bæta næringu þeirra barna sem sækja skóla samtakanna á þessu svæði. 10.2.2012 10:07
Trésmiður fær ekki bætur eftir vinnuslys Pólskur trésmiður sem krafðist tæplega 35 milljóna króna bóta frá Sjóvá - Almennum eftir vinnuslys sem hann varð fyrir í starfi hjá Ístaki á ekki rétt á bótunum. Þetta er niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur sem kvað upp dóm sinn í morgun. Maðurinn varð óvinnufær í tvö ár og hlaut 25% varanlega örorku eftir að hann féll úr stiga við vinnu sína árið 2008. 10.2.2012 09:59
Skatturinn skoðar fjármál Jens Einn lýtalæknir er nú formlega til rannsóknar hjá skattrannsóknarstjóra ríkisins. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er hér um að ræða Jens Kjartansson. 10.2.2012 09:30
Tónlistarsmekkur ráði ekki úrvalinu í ÁTVR Formaður efnahags- og skattanefndar segir ÁTVR seilast langt eftir rökum fyrir því að banna rauðvín merkt Motörhead og hvetur til hófs. Löggjöf um vöruval hafi ekki haft þennan tilgang. Talsmaður ÁTVR stingur upp á breyttu verklagi. 10.2.2012 09:30
Öflugar sprengingar í næststærstu borg Sýrlands Öflugar sprengingar skóku borgina Aleppo í Sýrlandi í morgun. Ríkissjónvarpið segir að um tvær sprengingar hafi verið að ræða en borgarbúar telja þær hafi verið þrjár talsins. 10.2.2012 09:12
Bíða vitna að utan í máli Egils Lögregla stefnir að því að ljúka í næstu viku rannsókn tveggja nauðgunarmála gegn skemmtikraftinum Agli Einarssyni, að sögn Björgvins Björgvinssonar aðstoðaryfirlögregluþjóns. 10.2.2012 09:00
Fangelsisstjóri kærir stuld á lyftingatólum Geirmundur Vilhjálmsson, sem vikið var úr starfi fangelsisstjóra á Kvíabryggju og ákærður fyrir auðgunarbrot í starfi, hefur kært Pál Winkel fangelsismálastjóra fyrir þjófnað á lyftingatólum sem Geirmundur kveðst hafa átt á Kvíabryggju. 10.2.2012 08:30
Norðlendingar álasa Jóhönnu "Ekki er hægt að una slíkum samskiptum á milli stjórnsýslustiga og ámælisvert að æðstu ráðmenn landsins skuli koma þannig fram við heilu landshlutana,“ segir byggðaráð Skagafjarðar sem kveður stjórn Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra hafa undanfarna mánuði árangurslaust reynt að ná fundi með Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra. 10.2.2012 07:45
Skortur á sólarljósi eykur hættuna á heilablóðfalli Ný bandarísk rannsókn sýnir að samband er á milli skorts á sólarljósi og hættunnar á því að fá heilablóðfall. 10.2.2012 07:30
Nýtt framboð Lilju Mósesdóttur með ríflega fimmtungs fylgi Kjósendur virðast bíða eftir nýjum framboðum samkvæmt niðurstöðu skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Ný framboð mælast með nærri þriðjung atkvæða. Hátt hlutfall tekur ekki afstöðu til flokka. 10.2.2012 07:30
Kveikt í póstkössum í Kópavogi Kveikt var í póstkössum í anddyri fjölbýlishúss við Vallakór í Kópavogi í gærkvöldi. 10.2.2012 07:27
Fundu hugsanlega elsta listaverk heimsins Hellateikning sem hugsanlega er elsta listaverk heimsins fannst nýlega í þekktum dropasteinshellum á Spáni. 10.2.2012 07:26