Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Með marijúana í kvennafangelsinu í Kópavogi Tuttugu og tveggja ára kona var í dag dæmd í átta mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir fíkniefnalagabrot, þjófnað, fjársvik og umferðarlagabrot. Konan á nokkurn afbrotaferil að baki en á meðal þess sem hún var dæmd fyrir var að hafa marijúana í herbergi sínu í kvennafangelsinu í Kópavogi. Þá stal hún einnig ilmvatni úr apóteki, sveik út vörur fyrir rúmlega 120 þúsund krónur hjá N1, í félagi við annan mann, og keyrði bíl undir áhrifum fíkniefna. Konan játaði brot sín í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun en hún var einnig svip ökuréttindum í tvö ár. 14.2.2012 15:49
Telja villandi að fjalla um kynhneigð níðingsins Það er varhugavert að einblína á kynhneigð mannsins sem dæmdur var í síðustu viku fyrir kynferðismök við barn, segir í yfirlýsingu frá Samtökunum ´78. Maðurinn mun hafa greitt barninu, að minnsta kosti einu sinni, fyrir mök. 14.2.2012 15:30
Orkustefna fyrir Ísland lögð fram Oddný G Harðardóttir, iðnaðarráðherra lagði í dag fram á Alþingi skýrslu um heildstæða Orkustefnu fyrir Ísland en í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá því í maí 2009 er kveðið á um að mótuð verði stefna þar um. Í tilkynningu frá iðnaðarráðuneyti segir að orkustefnunni sé ætlað að vera grundvöllur og viðmið ákvarðana er varða orkumál og skulu ákvarðanir stjórnvalda jafnan vera í sem bestu samræmi við stefnuna. 14.2.2012 14:57
Forvirkar rannsóknarheimildir yrðu einskorðaðar við alvarlegustu brotin Persónuvernd telur að gæta þurfi ítrustu varfærni þegar metið verður hvort lögfesta eigi heimildir um forvirkar rannsóknarheimildir. Beiting slíkra heimilda myndi fela í sér viðamikla skerðingu á friðhelgi einkalífsins. Þetta kemur fram í umsögn Persónuverndar til allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis um þingsályktunartillögu um forvirkar rannsóknarheimildir. 14.2.2012 14:55
Tugir athugasemda gerðar við ástand mannréttinda á Íslandi Tugir athugasemda voru gerðar við ástand mannréttindamála á Íslandi í reglubundinni yfirferð Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna en skýrsla þess efnis var birt í gær. "Þótt mörg ríki lykju lofsorði á stöðu mannréttinda og þá ekki síst í jafnréttismálum, lýstu mörg aðildarríki áhyggjum yfir ástandi fangelsismála, vægum dómum og fáum kærum í kynferðisafbrotamálum, kynbundnu launamisrétti, trúfrelsismálum og seinagangi við að staðfesta alþjóðlega mannréttindasáttmála,“ segir í frétt á heimasíðu upplýsingaskrifstofu SÞ. 14.2.2012 14:25
Mikið tjón á Madagascar Hitabeltisstormur gekk yfir eyjuna Madagascar í morgun og náðu vindhviðurnar tæplega tvöhundruð kílómetra hraða þegar verst lét. Veðurfræðingar óttast að tjónið af völdum stormsins gæti verið jafn mikið og árið 1994 þegar 200 manns létust og fjörutíu þúsund misstu heimili sín. Eitt dauðsfall hefur þegar verið staðfest en erfiðlega hefur gengið að ná sambandi við strjábýlli svæði eyjarinnar. 14.2.2012 14:16
Vill láta rassskella Steingrím "Ég held að þingforseti ætti að setja hæstvirtan formann VG á kné sér og rasskella hann,“ sagði Gunnar Bragi Sveinsson, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, á Alþingi í dag. 14.2.2012 14:07
Þorsteinn Guðmundsson leitar að konum Leikarinn góðkunni Þorsteinn Guðmundsson er nú í óða önn að undirbúa kynningarátak Krabbameinsfélagsins, Mottumars. Til stendur að framleiða nýjar auglýsingar þar sem hann verður í hlutverki vinalega mannsins undir teppinu sem hvetur íslenska karlmenn til að læra að þekkja einkenni krabbameins og alla þjóðina til að heita á þá. 14.2.2012 13:10
Tekur ekki ábyrgð á "klaufalegum misskilningi“ Hjálmars Bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Kópavogi segist ekki taka ábyrgð á því sem hann kallar klaufalegan misskilning bæjarfulltrúa Næstbestaflokksins sem leiddi til þess að meirihlutinn riðaði til falls. 14.2.2012 12:35
Kannast ekki við að kennurum hafi verið sagt upp vegna trúarskoðana Formaður Félags grunnskólakennara kannast ekki við að kennurum hafi verið sagt upp störfum vegna trúarskoðana. Menntamálaráðherra telur ekki rétt að takmarka málfrelsi kennara með lagasetningu. 14.2.2012 12:15
Stefna að kosningum um stjórnarskrárfrumvarp í sumar Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis vill að kosið verði um tillögur stjórnlagaráðs samhliða forsetakosningum í sumar. Valgerður Bjarnadóttir, formaður nefndarinnar, lagði tillögu þessa efnis fram á nefndarfundi í morgun og samþykkti meirihluti nefndarinnar það. 14.2.2012 12:14
Býr í flugstöðinni Þýskur karlmaður hefur búið í sænskri flugstöð í tvo mánuði. Hann segist ekki vilja fara aftur heim til Þýskalands en hann hafi engan stað til að búa á í Svíþjóð. 14.2.2012 11:23
Gerir ekki athugasemdir við setu Benedikts í dómnum Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari hefur ekki gert athugasemdir við setu Benedikts Bogasonar í Hæstarétti í máli ákæruvaldsins gegn Baldri Guðlaugssyni fyrrverandi ráðuneytisstjóra. Þetta segir Sigríður í skriflegu svari við fyrirspurn Vísis. Benedikt og Karl Axelsson, verjandi Baldurs, eru vinir og DV greindi frá því um daginn að þeir hefðu sést opinberlega saman eftir að málið gegn Baldri var dómtekið í Hæstarétti. 14.2.2012 11:17
ESB fær upplýsingar um íslenska PIP púða Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur verið gert viðvart um háá lekatíðni falsaðra PIP brjóstafyllinga hér á landi. Í tilkynningu frá velferðarráðuneyti segir að Lyfjastofnun hafi sent upplýsingarnar utan en búið er að ómskoða 105 konur hér á landi með slíkar fyllingar og hefur leki greinst í púðum hjá 71 konu eða um 68% þeirra sem hafa verið skoðaðar. 14.2.2012 10:42
Landsmönnum fjölgaði um 1123 Landsmönnum fjölgaði um 1123, eða um 0,4%, á síðasta ári. Samkvæmt tölum Hagstofunnar voru þeir rétt tæplega 320 þúsund þann 1. janúar síðastliðinn. Konum fjölgaði nokkuð meira en körlum á síðasta ári eða um 0,5% á móti 0,2%. 14.2.2012 09:14
Tæplega 90% Íslendinga ferðast innanlands Tæplega níu af hverjum tíu Íslendingum ferðuðust innanlands í fyrra, sem er svipað og árin á undan. Tæplega tveir þriðju aðspurðra ferðuðust til útlanda á árinu 2011, eða 63,3%, en var 56,3% í sambærilegri könnun fyrir ári síðan. 14.2.2012 08:50
97% studdu Gúrbangúllí Gúrbangúllí Berdímúkhamedov var endurkjörinn með yfirburðum í forsetakosningum sem fram fóru í Túrkmenistan á sunnudag. 14.2.2012 08:30
Ísraelar kenna Írönum um Forsætisráðherra Ísraels sakar írönsk stjórnvöld um að hafa staðið á bak við tvær sprengjuárásir á ísraelskar sendiráðsbifreiðar í gær. Önnur árásin var gerð í Tíblisi, höfuðborg Georgíu, en hin í Nýju-Delhi á Indlandi. 14.2.2012 08:15
Þjóðin fái að kjósa um stjórnarskrána Formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar vill að drög að nýrri stjórnarskrá verði borin undir þjóðina í sumar. Málið verður að klárast í mars eigi að kjósa samhliða forsetakosningum. Ekki í samræmi við yfirlýsingar varaformanna. 14.2.2012 08:00
Þingið mun fjalla um rammaáætlun Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra sagði að þingheimur muni fá færi til að fjalla um þingsályktunartillögu um rammaáætlun um vernd og nýtingu náttúrusvæða. Málið muni fá þinglega meðferð líkt og önnur. 14.2.2012 08:00
Virkni lyfs kemur í ljós mun fyrr en áður Íslenskur vísindamaður, doktor Kristinn B. Gylfason, er einn þriggja vísindamanna við Konunglega Tækniháskólann í Stokkhólmi, sem hlotið hafa 3,8 milljónir sænskra króna í styrk frá Sænska rannsóknaráðinu, jafngildi um 70 milljóna íslenskra króna, til þess að þróa nýja tækni við lyfjarannsóknir. Með nýju tækninni, svokallaðri míkró- og nanótækni, verður hægt að sjá hvernig hver einstök fruma bregst við lyfjagjöf, að sögn Kristins. 14.2.2012 08:00
Matís þróar vinnslu og veiðar í Tansaníu Starfsmenn Matís aðstoða íbúa við Tanganyika-vatn í Tansaníu við að nýta fiskmeti betur. Verkefnið er svar stofnunarinnar við niðurskurði í fjárveitingum. 14.2.2012 07:30
Hefur aldrei verið ákærður Abu Qatada, rúmlega fimmtugur íslamskur predikari, var í gær látinn laus í Bretlandi eftir áratug í fangelsi. Hann þurfti þó að reiða fram tryggingarfé og þarf að sæta eftirliti, að öllum líkindum með útivistarbanni og ökklabandi til öryggis. 14.2.2012 07:30
Semja um stofnun jarðvangs á Reykjanesi Sveitarfélögin Garður, Grindavíkurbær, Reykjanesbær, Sandgerðisbær og Sveitarfélagið Vogar hafa skrifað undir samkomulag um stofnun jarðvangs á Reykjanesi. 14.2.2012 07:30
Jón Þórarinsson tónskáld látinn Jón Þórarinsson tónskáld er látinn 94 ára að aldri. Hann var fæddur hinn 13. september 1917. 14.2.2012 07:30
Hæðnistónn Össurar dregur dilk á eftir sér Hæðnistónn Össurar Skarphéðinssonar utanríkisráðherra í garð Vigdísar Hauksdóttur þingmanns Framsóknarflokksins á Alþingi í gærdag dró dilk á eftir sér. 14.2.2012 07:28
Flugu með lík Whitney Houston heim til New Jersey Flogið var með kistu með líki söngkonunnar Whitney Houston frá Los Angeles til New Jersey í nótt. 14.2.2012 07:23
Enn hitnar í kolunum í deilunni um Falklandseyjar Enn hitnar í kolunum í endurvakinni deilu Argentínumanna og Breta um Falklandseyjar. Nú hefur verkalýðsfélag flutningsmanna í Argentínu ákveðið að sniðganga öll bresk skip sem koma til hafnar í Argentínu en hafnarverkamenn í landinu tilheyra þessu verkalýðsfélagi. 14.2.2012 07:17
Leiðtogar ESB og Kína funda í Bejing Leiðtogar Evrópusambandsins og Kína funda í Bejing í dag. Skuldakreppan í Evrópu verður aðalumræðuefnið og hvernig Kínverjar geti komið Evrópuríkjum til aðstoðar í þeirri kreppu. 14.2.2012 07:08
Loðnufrysting hafin í Vestmannaeyjum Mjög góð loðnuveiði er nú við Hrollaugseyjar vestan við Höfn í Hornafirði og eru mörg skip að veiðum á litlu svæði alveg upp undir ströndinnni. 14.2.2012 07:04
Danskir karlmenn dauðþreyttir á Valentínusardeginum Danskir karlmenn eru orðnir dauðþreyttir á umstanginu í kringum Valentínusardaginn sem er í dag, 14. febrúar. 14.2.2012 07:01
Grikkir meta tjónið og hefja hreinsun Hátt í hundrað húsa eyðilögðust í óeirðum í Aþenu í fyrrinótt. Fjármálaráðherrar evruríkjanna fagna nýjum niðurskurðaráformum grísku stjórnarinnar, sem fyrir sitt leyti hefur boðað til kosninga í apríl, að fenginni fjárhagsaðstoð. 14.2.2012 07:00
Furða sig á vægum barnavændisdómi Lögfræðingur Barnaverndarstofu segir tólf mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm manns sem keypti vændi af fjórtán ára dreng vekja furðu. Mikið tillit er tekið til aðstæðna mannsins sem missti vinnuna og hefur leitað sér hjálpar. 14.2.2012 07:00
Dæla koltvísýringi ofan í jörðina Niðurdæling á koltvísýringi við Hellisheiðarvirkjun hófst í lok janúar. Hugmyndin er að þessi gróðurhúsalofttegund bindist basalti í hraunlögum neðanjarðar og varðveitist sem steintegund um alla framtíð. 14.2.2012 07:00
Santorum á fljúgandi siglingu í prófkjörsslagnum Rick Santorum er á fljúgandi siglingu í prófkjörsslag Repúblikanaflokksins um hver verði forsetaefni flokksins í kosningunum í haust. 14.2.2012 06:57
Steingrímur hóflega bjartsýnn á árangur í makrílviðræðum Steingrímur J. Sigfússon sjávarútvegsráðherra segist í viðtali við netsíðuna Fish-Update, vera hóflega bjartsýnn á viðunandi árangur af fundi strandríkja um makríl, sem hefst í Reykjavík í dag. 14.2.2012 06:48
Skyndibílar verða jafnvel komnir á göturnar í haust Bílaleigur, olíufélög og bílaumboð funduðu með fyrirtækjum sem hafa áhuga á að kaupa þjónustu skyndibíla. Aðstandendur verkefnisins segja viðbrögðin hafa verið jákvæð og bílaleigur segja verkefnið spennandi. 14.2.2012 06:30
Glæpir framdir gegn mannkyni Navi Pillay, mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna, segir að Sýrlandsstjórn virðist notfæra sér óeiningu í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna til þess að herða aðgerðir sínar gegn mótmælendum um allan helming. 14.2.2012 06:30
Spurt um málfrelsi kennara Sigmundur Ernir Rúnarsson, þingmaður Samfylkingarinnar, spurði Katrínu Jakobsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra, hvort setja ætti málfrelsi kennara skorður. Tilefni væri til að staldra við þegar grunnskólakennarar töluðu með þeim hætti að gæti verið særandi fyrir nemendur. 14.2.2012 06:30
Talinn ógna hagsmunum almennings Héraðsdómur Suðurnesja framlengdi á föstudag gæsluvarðhald yfir rúmlega tvítugum manni sem talinn er hafa veitt öðrum manni alvarlega áverka með hnífi í Kópavogi aðfaranótt 3. febrúar. 14.2.2012 06:30
Skínandi stígur sviptur leiðtoga Artemio, leiðtogi hryðjuverkasamtakanna Skínandi stígur, var handtekinn um helgina og fluttur strax á sjúkrahús vegna sára sem hann hlaut þegar til átaka kom við handtökuna. 14.2.2012 05:30
Bar upp bónorð á verðlaunapallinum Ólympíumeistari í sundi bað unnustu sinnar eftir að hann hafði tekið við gullpeningi á sundmóti í Missouri í Bandaríkjunum. 13.2.2012 23:35
Tvíburabræður sýna alheiminn í öllu sínu veldi Gagnvirkt kort sem tveir 14 ára tvíburabræður hafa sett saman hefur vakið mikla athygli á internetinu. Kortið sýnir alheiminn í öllu sínu veldi, frá hinu minnsta til þess stærsta. 13.2.2012 23:10
Hefðbundnar ástarjátningar heilla enn Þó svo að konur og karlar hafi tekið stafrænni tækni með opnum örmum þá eru rómantíkin enn hefðbundin. 13.2.2012 22:15
Bjargaði lífi 17 ára dóttur sinnar Sigurbjörg Jóhanna Gísladóttir var aðeins 17 ára þegar hún fékk hjartastopp á heimili sínu fyrir rúmu ári, en þökk sé réttum viðbrögðum föður hennar, Gísla Arnar Gíslasonar, hélt hún lífi. Í Íslandi í dag í kvöld var talað við feðginin og sögðu þau frá því hvernig röð tilviljana varð til þess að Sigurbjörg er á lífi í dag. Einnig var átakanleg upptaka af því þegar móðir Sigurbjargar hringdi í Neyðarlínuna spiluð. 13.2.2012 21:30