Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Versti bylur í manna minnum skellur á Seattle Íbúar við norðvestanverða Kyrrahafsströnd Bandaríkjanna búa sig nú undir versta byl sem skollið hefur á svæðinu í heila kynslóð. 18.1.2012 07:46
Reykbombu kastað að Hvíta húsinu Reykbombu var kastað yfir girðinguna kringum Hvíta húsið í Washington í gærkvöldi. Þar höfðu rúmlega 1.000 félagar í Occupy hreyfingunni haldið mótmælafund. 18.1.2012 07:43
Samfylkingin í Reykjavík á móti tillögu Bjarna Stjórn Samfylkingarfélagsins í Reykjavík leggst gegn þingsályktunartillögu Bjarna Benediktsssonar þingmanns um að draga ákæru á hendur Geir Haarde til baka. 18.1.2012 07:42
Skattamál Romney í sviðsljósinu Skattamál Mitt Romney hafa verið í sviðsljósinu í prófkjörsbaráttu Repúblikanaflokksins þessa vikuna. 18.1.2012 07:40
Loðnu landað víða Nú er verið að landa loðnu á Þórshöfn, í Neskaupstað og á Seyðisfirði, eftir að loðnuskip komu þangað með farma í nótt. 18.1.2012 07:39
Fyrri ferð Herjólfs fellur niður í dag Vegna storms sem nú gengur yfir suðurströndina mun fyrri ferð Herjólfs í dag falla niður. Athuga á með seinni ferðina (15:30 og 19:15) kl. 13:00. 18.1.2012 07:37
Loftsteinar frá Mars fundust í Marokkó Afar sjaldgæfir loftsteinar, sem koma frá Mars, hafa fundist í Marokkó í Afríku. Um er að ræða nær sjö kíló af loftsteinum en slíkir steinar fundust síðast á jörðinni fyrir um 50 árum síðan eða 1962. 18.1.2012 07:26
Herskipið Absalon verður að sleppa sómölskum sjóræningjum Allar líkur eru á að 25 sjóræningjar sem verið hafa í haldi um borð í danska herskipinu Absalon út af strönd Sómalíu verði settir á land að nýju í Sómalíu og sleppi þar með við refsingu. 18.1.2012 07:23
Fárviðri spáð suðaustur af landinu Fárviðri er spáð suðaustur af landinu, og er veðrið þegar farið að versna. Búist er við að ölduhæð fari upp í allt að fjórtán metra , sem jafngildir fjögurra til fimm hæða fjölbýlishúsi og að vindur verði 35 metrar á sekúndu. 18.1.2012 07:20
Segja vandann við EES skort á lýðræði Norska Evrópunefndin segir EES-samninginn hafa þjónað norskum hagsmunum vel, en gallinn sé sá að Norðmenn taki ekki þátt í ákvörðunum. Utanríkisráðherra Noregs telur EES-samninginn mikilvægari nú fyrir Noreg en árið 1994. 18.1.2012 07:15
Jiabao ánægður með vaxandi tengsl Kína og Íslands Wen Jiabao forsætisráðherra Kína er ánægður með hve tengsl Kína og Íslands hafa vaxið og dafnað á undanförnum árum. 18.1.2012 07:06
Minna hugsað um hagsmuni neytendanna Stjórnsýslufræðingur segir mistök við opinbert eftirlit sýna fram á alvöruleysi í vinnubrögðum og virðingarleysi gagnvart neytendum. 18.1.2012 07:00
Segja Mubarak vera fórnarlamb „Mubarak er hvorki harðstjóri né blóðþyrstur maður,“ sagði Farid el-Deeb, verjandi Hosni Mubarak í réttarhöldum, þar sem ákæruvaldið fer fram á dauðadóm. 18.1.2012 06:30
Stjórnarskránni þarf að breyta Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins segir að nokkur ákvæði nýrrar stjórnarskrár, sem tók gildi í Ungverjalandi um áramótin, standist ekki reglur Evrópusambandsins. 18.1.2012 03:00
Bauð viðskiptavinum munnmök í staðinn fyrir kjúklinganagga Bandarísk kona var handtekinn við McDonalds-stað í Los Angeles á dögunum. Konan, sem er þrjátíu og eins árs, bauð karlkyns viðskiptavinum sem voru staddir í bílalúgunni munnmök í skiptum fyrir kjúklinganagga. Konan hefur nú verið ákærð fyrir athæfið og verður leidd fyrir dómara á næstu dögum þar sem hennar gæti beðið eins árs fangelsis vist og þúsund dollara sekt. 17.1.2012 23:31
Bílstóll bjargaði lífi 10 vikna stúlku Tíu vikna stúlka lifði hræðilegt bílslys af í Kaliforníu. Bílstóll stúlkunnar var staðsettur í aftursæti bílsins og er talið að það hafi bjargað henni. 17.1.2012 23:21
Draugur Díönu prinsessu náðist á myndband Sérfræðingar í hinu dulræna rannsaka nú myndband sem tekið var í kirkju í Glasgow. Á myndbandinu virðist andlit Díönu Prinsessu birtast í glermálverki. 17.1.2012 23:01
Metnaðarfullir leikfangasmiðir hanna risavaxna bílabraut Finnskir bílaáhugamenn hafa líklega hannað hröðustu og stærstu bílabraut veraldar. 17.1.2012 22:44
Stúlka þóttist vera piltur - reyndi að sænga hjá vinkonum sínum Nítján ára gömul stúlka í Bretlandi hefur verið ákærð fyrir að hafa platað vinkonur sínar til að stunda kynlíf með sér. Stúlkan lifði tvöföldu lífi og þóttist vera piltur þegar atvikin áttu sér stað. 17.1.2012 22:18
Jens segist aldrei hafa svikið undan skatti Jens Kjartansson lýtalæknir segir að hann hafi ekki svikið undan skatti og að allar þær konur sem greiddu fyrir sílikonaðgerðir með reiðufé hafi fengið nótu fyrir aðgerðinni. 17.1.2012 22:04
Gekk að eiga látna unnustu sína Tælenskur maður gekk að eiga látna unnustu sína í óhugnanlegri athöfn fyrr í mánuðinum. Hann jarðsetti síðan eiginkonu sína eftir að hjónabandið var innsiglað. 17.1.2012 21:31
Sálir stóðhesta hreinsaðar í eldi - myndir Hin árlega Luminarias hátíð var haldin í spænska smábænum San Bartolome de Pinares í dag. Reiðmenn og bændur hreinsa þá sálir dýra sinna með því sveipa þau þykkum reyk. 17.1.2012 20:52
Umræða um áhrif krabbameins á kynlíf getur bjargað mannslífum Opinská umræða um áhrif krabbameins á kynlíf getur átt þátt í að bjarga mannslífum, segir karlmaður sem sjálfur missti alla löngun og kyngetu eftir að hann greindist með sjúkdóminn þrítugur að aldri. 17.1.2012 21:27
"Ég svara öllum sem eru með númerið mitt" "Ég er mjög rólegur yfir þessu en ég mun vanda til verka ef ég verð í meirihluta,“ segir Ómar Stefánsson, bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins í Kópavogi. 17.1.2012 19:30
Steingrímur: Mistök áttu sér stað í salt-málinu Það er ævintýri líkast að notkun iðnaðarsalts í mætvæli skuli hafa átt sér stað fyrir allra augum í á annan áratug. 17.1.2012 18:57
Meirihlutinn í Kópavogi fallinn - Hjálmar vill ekki Guðrúnu burt "Það var þannig að Hjálmar studdi ekki þessa ákvörðun um brottrekstur Guðrúnar," segir Ármann Kr. Ólafsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn Kópavogs. Haft er eftir Hjálmari á vef Ríkisútvarpsins að samstarfi hans við meirihlutann í bænum sé lokið. Það þýðir að meirihlutinn er fallinn í Kópavogi, en með Hjálmari hafði hann eins manns meirihluta. 17.1.2012 18:32
Anna Marsibil leiðir lista Vöku Anna Marsibil Clausen, bókmenntafræðinemi, leiðir lista Vöku til Stúdentaráðs í ár. Anna Marsibil hefur setið í stjórn Vöku síðastliðið ár og hefur auki ritstýrt helstu helstu útgáfu félagsins. Fyrsta sæti á lista Vöku til Háskólaráðs er María Rut Kristinsdóttir, sálfræðinemi. Hún hefur einnig starfað fyrir félagið síðastliðið ár og er meðal annars fulltrúi stúdenta á Háskólaþingi. 17.1.2012 17:45
Edda hætt við að kæra Hjört Samkomulag hefur tekist milli Hjartar Júlíusar Hjartarsonar og Eddu Sifjar Pálsdóttur. Í samkomulaginu felst að Hjörtur hefur viðurkennt fulla ábyrgð í þessu máli og beðið Eddu Sif fyrirgefningar. Í yfirlýsingu sem lögmenn Hjartar og Eddu sendu sameiginlega á fjölmiðla segir að Hjörtur harmi mjög framkomu sína umrætt kvöld sem hafi með öllu verið óafsakanleg. Edda muni afturkalla kæru sína hjá lögreglu í málinu. Aðilar séu sammála um að tjá sig ekki frekar um málið. 17.1.2012 16:19
Gæsluvarðhald yfir Einari Boom staðfest Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir Einari „Boom“ Marteinssyni, leiðtoga Vítisengla á Íslandi, en hann var síðastliðinn föstudag úrskurðaður í gæsluvarðhald til 19. janúar. Einar Ingi er grunaður um aðild að alvarlegri líkamsrárás á konu þann 22. desember síðastliðinn og aðra líkamsárás sem gerð var stuttu seinna. Fimm sitja nú í gæsluvarðhaldi vegna þessa máls. 17.1.2012 16:10
Húsmóðirin í Breiðagerði: Ég get ekki talað núna Það varð fátt um svör þegar Vísir reyndi að ná tali af Önnu Lilju Valgeirsdóttur, íbúa í Breiðagerði 7, þar sem lögreglan aðstoðaði fulltrúa sýslumanns við að bera fólk út í morgun. "Ég get eiginlega ekki talað núna. Allt í lagi bless," sagði hún í samtali við blaðamenn. 17.1.2012 15:43
Rústaði húsi á Álftanesi - í 18 mánaða fangelsi Björn Bragi Mikkaelsson hefur verið dæmdur í átján mánaða fangelsi fyrir að hafa lagt hús sitt á Álftanesi í rúst, fyrir að hafa ekki staðið skil á skattgreiðslum, fyrir fjársvik og brot gegn bókhaldslögum. Ákæra gegn Birni Braga var í tveimur ákæruliðum og skiptist fyrri ákæruliðurinn í fjóra töluliði. Björn Bragi vakti töluverða athygli þegar hann lagði húsið sitt í rúst fyrir framan sjónvarpsmyndavélar á þjóðhátíðardaginn 17. júní 2009. 17.1.2012 14:47
Skar á átta dekk í afbrýðiskasti Tilkynnt var um tjón á tveimur bílum á höfuðborgarsvæðinu í gær en stungið hafði verið á öll dekk þeirra. Að sögn lögreglu voru báðir bílarnir á sama stæðinu og tilheyrðu þeir að auki sama manninum. 17.1.2012 14:51
Costa Concordia: Fimm lík fundust til viðbótar í dag Björgunaraðgerðir standa enn yfir í skemmtiferðaskipinu Costa Concordia sem strandaði við Ítalíustrendur á föstudaginn var. Fimm lík til viðbótar fundust í dag og er því staðfest að ellefu hafi látist. 24 er þó enn saknað. Farþegar og aðstandendur þeirra sem saknað er hafa þegar hafið undirbúning að málshöfðun gegn skipafélaginu. Skipstjóra Concordia er kennt um hvernig fór en hann er sagður hafa skyndilega breytt um stefnu áður en skipið sigldi á kletta skammt undan ströndinni. 17.1.2012 14:20
Eldur á Nonnabita Eldur kom upp á veitingastaðnum Nonnabita í Bæjarlind í Kópavogi fyrir hádegið. Dælubíll frá slökkviliðinu fór á staðinn og tók skamma stund að slökkva eldinn sem logaði í millivegg á milli salernis og eldhúss staðarins. Að loknu slökkvistarfi var farið í að reykræsta staðinn. Að sögn slökkviliðsins var enginn í hættu. 17.1.2012 14:13
Mörður ósammála Ögmundi Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, segist vera ósammála því að afturkalla ákæruna á hendur Geir Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra. Hann segist vera hissa á því að ráðherra dómsmála vilji stöðva réttarhald í miðjum klíðum. Ögmundur lýsti því í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag að hann hygðist styðja þingsályktunartillögu Bjarna Benediktssonar um að leggja málið gegn Geir Haarde niður. 17.1.2012 12:27
Heimavarnarliðið reyndi að koma í veg fyrir útburð - tveir handteknir Um 20 manna hópur frá Heimavarnarliðinu kom saman í dag í einbýlishúsi að Breiðagerði 7 þar sem til stóð að bera eigandann út. Fólkið kom sér fyrir inni í stofu og neitaði að yfirgefa húsið þegar fulltrúar sýslumanns mættu á svæðið. Lögregla var kölluð til og bar hún fólkið út úr húsinu. Til nokkurra átaka kom og voru tveir handteknir að sögn heimildarmanna fréttastofu. Sama mál komst í hámæli í ágúst síðastliðnum þegar hópur fólks kom eigandanum til hjálpar og varnaði fulltrúum sýslumanns inngöngu í húsið. Þá náðist sátt í málinu og var því frestað. Nú hefur eigandinn hinsvegar endanlega verið borinn út. 17.1.2012 12:24
Konur með PIP-púða bíða enn Konur með PIP-púða geta enn ekki pantað sér tíma í skimun hjá Leitarstöð Krabbameinsfélagsins til að láta athuga hvort púðarnir eru rifnir. Ástæðan er að þær hafa ekki fengið formlegt bréf með gögnum frá lýtalækni sínum og velferðarráðuneytinu. 17.1.2012 12:01
Ólafur Ragnar fundaði með Ban Ki-Moon og bauð honum í heimsókn Forseti Íslands átti í gær fund í Abu Dhabi með framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, Ban Ki-moon, en þeir sækja báðir Heimsþing hreinnar orku sem þar er haldið. "Á fundinum var einkum rætt um aukna nýtingu hreinnar orku til að hamla gegn loftslagsbreytingum. Slíkar aðgerðir eru grundvallarþáttur í stefnumörkun Ban Ki-moon á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Forseti Íslands gerði grein fyrir jarðhitaverkefnum á vegum Íslendinga erlendis, t.d. í Kína, Indlandi, Filippseyjum, Afríku, Suður-Ameríku og Evrópu.“ 17.1.2012 11:20
Flokksfélagar Steingríms segja hann þurfa að íhuga stöðu sína Félagar í VG í Húnaþingi og Skagafirði telja að Steingrímur J. Sigfússon, formaður flokksins, þurfi að íhuga stöðu sína sem formaður flokksins alvarlega í ljósi atburða undanfarinna vikna. Á fundi félaganna sem haldinn var í gær segir að stefna og athafnir flokksforystunnar séu að hrekja í burtu stóran hluta þeirra er kusu flokkinn í síðustu alþingiskosningum. Húnaþing og Skagafjörður eru í kjördæmi Jóns Bjarnasonar, en eins og kunnugt er lét hann af embætti sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra á ríkisráðsfundi á gamlársdag. 17.1.2012 11:15
Bæjarráðið fundar um uppsögn Boðað hefur verið til aukafundar í bæjarráði í Kópavogi í dag klukkan fimm. Fundurinn er haldinn að beiðni sjálfstæðismanna, sem eru í minnihluta bæjarstjórnar. 17.1.2012 10:53
Svíar slegnir óhug Svíar eru slegnir óhug eftir að sænsk, 38 ára gömul kona og átta mánaða gömul dóttir hennar, fundust látnar í íbúð í bænum Arboga í Svíþjóð í gær. Sænska lögreglan rannsakar málið sem morðmál, en sænskir fjölmiðlar hafa ekkert fengið staðfest um hvernig þeim gæti hafa verið ráðinn bani. Samkvæmt sænska Dagbladet var fannst konan í stofu íbúðarinnar og dóttirin í svefnherberginu. Konan mun hafa verið með áverka á hálsinum og það eru helst þessir áverkar sem fá lögregluna til að gruna að andlát mæðgnanna hafi borið að með saknæmum hætti. Konan hafði búið við heimilisofbeldi og árið 2010 hafði þáverandi unnusti hennar verið dæmdur fyrir ofbeldi gegn henni og að hafa hótað henni lífláti. 17.1.2012 10:14
VG í Reykjavík skorar á þingmenn að vera samkvæmir sjálfum sér Stjórn Vinstihreyfingarinnar - græns framboðs í Reykjavík hvetur þingmenn flokksins að vera samkvæmir sjálfum sér og greiða atkvæði gegn þingsályktunartillögu Sjálfstæðisflokksins þess efnis að máli Geirs H. Haarde verði vísað frá landsdómi. Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, lýsti því yfir í grein í dag að hann ætli sér að greiða atkvæði með tillögunni. 17.1.2012 10:07
Fréttaskýring: Fjalla þarf um fjármálaáfall í þjóðaröryggisstefnu Vinna við mótun fyrstu þjóðaröryggisstefnu sem unnin hefur verið hér á landi er nú hálfnuð miðað við skipunartíma þingmannanefndar. Sérfræðingar segja að í stefnunni verði að fjalla um fjölbreyttar ógnir. 17.1.2012 10:00
Sautján tilkynnt um ofbeldi innan kaþólsku kirkjunnar Sautján manns hafa gefið sig fram undir nafni til rannsóknarnefndar kaþólsku kirkjunnar vegna meints ofbeldis sem átti sér þar stað fyrir nokkrum áratugum. Enginn kennari eða aðstandandi gefið sig fram. 17.1.2012 09:45
Þjófurinn þjakaður af samviskubiti Norskur síbrotamaður á þrítugsaldri skilaði að eigin frumkvæði innpökkuðum jólagjöfum sem hann stal úr bíl í Herøy í Noregi skömmu fyrir jól. Íslendingur búsettur í Herøy átti bílinn og var að vonum glaður að endurheimta gjafirnar, en þær ætlaði hann að senda til barna á Íslandi. 17.1.2012 09:30