Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fólk flutt úr miðborg Bangkok vegna flóðanna Fljóðin í Taílandi hafa nú náð að miðborg Bangkok og byrjað er að flytja fólk frá þeim borgarhluta. Þar með hefur þriðjungur borgarbúa neyðst til þess að flýja heimili sín vegna flóðanna. 7.11.2011 07:47
Aurskriður valda manntjóni í Kólombíu Að minnsta kosti 24 hafa farist og tuga er saknað eftir miklar aurskriður í vesturhluta Kólombíu. 7.11.2011 07:46
Nokkur samdráttur í umferðinni á höfuðborgarsvæðinu Umferð á þremur mælistöðvum Vegagerðarinnar á höfuðborgarsvæðinu dróst saman um rösklega þrjú prósent í síðasta mánuði, sem er heldur minni samdráttur en á hringveginum. 7.11.2011 07:41
Loðnuvertíðin fer óvenjuhægt af stað Loðnuvertíðin fer óvenju hægt af stað, en hún hófst um næstsíðustu mánaðamót. Fyrst voru skipin upptekin við makríl- og síldveiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum. Síðan kom þrálát norðan bræla þannig að skipin gátu ekki veitt, og síðustu daga hafa skipin verið að fá smá slatta norðaustur af Horni, en loðnan hefur verið svo smá að búið er að loka veiðisvæðinu. 7.11.2011 07:25
Fyrrum bankastjóri líklegur sem næsti forsætisráðherra Grikklands George Papandreou forsætisráðherra Grikklands og Antonis Samaras leiðtogi stjórnarandstöðunnar hafa komist að samkomulagi um þjóðstjórn. Jafnframt verður efnt til nýrra kosninga í landinu þann 19. febrúar næstkomandi. 7.11.2011 07:21
Ólögleg lyf flæða yfir Norðurlönd í gegnum netið Ólögleg lyf sem keypt eru á netinu flæða nú yfir Norðurlöndin sem aldrei fyrr. Yfirleitt er um falskar útgáfur af stinningarlyfjum að ræða en sterar eru einnig áberandi. 7.11.2011 07:19
Vilja opinbera rannsókn á tengslum dansks ráðherra við KGB Stjórnarandstaðan á danska þinginu hefur krafist opinberrar rannsóknar á tengslum Ole Sohn viðskiptaráðherra landsins við KGB, fyrrum leyniþjónustu Sovéríkjanna sálugu. 7.11.2011 07:16
Ekki fleiri íþróttahús fyrr en hin fullnýtast Ný íþróttamannvirki með mikla afkastagetu á ekki að byggja á höfuðborgarsvæðinu fyrr en sveitarfélögin á svæðinu hafa komið sér saman um staðsetninguna. Þetta er ein tillagna sameiginlegs starfshóps sveitarfélaganna. 7.11.2011 07:00
Tímamót í aðgangi að rannsóknagögnum Gögn og upplýsingar úr Íslensku kosningarannsókninni, yfirgripsmikilli rannsókn á kosninga- og stjórnmálahegðun Íslendinga allt frá alþingiskosningunum árið 1983, eru nú aðgengilegar á vef Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands (HÍ) www.fel.hi.is. 7.11.2011 06:00
Má ekki hækka stjarnfræðilega „Spurningin er hvar sársaukamörkin liggja,“ segir Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, um tillögu um verulega hækkun gjalds fyrir stakar ferðir í sundlaugar á höfuðborgarsvæðinu. Hugmyndin er að ferðamenn og aðrir sem ekki búa á svæðinu greiði stærri hluta af kostnaði við rekstur sundstaða. 7.11.2011 06:00
Snúa baki við einkavæðingu Yfir eitt hundrað orkufyrirtæki í Þýskalandi, sem áður höfðu verið einkavædd, hafa verið keypt til baka til hins opinbera. Þá hafa verið stofnuð 44 ný opinber orkufyrirtæki frá árinu 2007, eins og kemur fram í grein á heimasíðu Evrópusamtaka stéttarfélaga á opinberum vinnumarkaði (EPSU). 7.11.2011 04:00
Klónaræktun í Grasagarðinum Grasagarður Reykjavíkur og Erfðanefnd landbúnaðarins hafa gert með sér samning um að Grasagarðurinn varðveiti safn rabarbaraklóna sem lengi hafa verið í ræktun á Íslandi. Með undirritun samningsins er plöntunum tryggður vaxtarstaður til framtíðar, segir í tilkynningu. Erfðanefnd landbúnaðarins leggur áherslu á að leita eftir samstarfi við grasagarða og 7.11.2011 03:15
Loftsteinn rekst næstum á jörðina á þriðjudaginn Stærðarinnar loftsteinn mun hendast milli jarðarinnar og tunglsins á þriðjudaginn kemur. Steinninn er 400 metrar að þvermáli, en svo stór steinn hefur ekki komið jafn nálægt jörðinni í 35 ár. Vísindamenn segjast 100% öruggir um að hann muni ekki skella á jörðinni, en árekstur jarðarinnar og loftsteins af þessari stærð er talinn gerast einu sinni á 100 þúsund ára fresti eða svo. En vísindamenn segja þetta ákveðið tækifæri. Ein kenning gerir ráð fyrir að loftsteinar af þessari tegund hafi borið vatn og lífeindir til jarðarinnar í fyrndinni. Ef vísindamönnum tækist að finna slíkar eindir á þessum steini myndi það styðja þá kenningu. Auk þess er loftsteinn einnig á lista Geimferðastofnunar Bandaríkjanna (NASA) yfir áfangastaði. Hvergi kemur þó fram að NASA ætli að reyna að lenda á steininum. 6.11.2011 21:18
Hreinsi-glaður starfsmaður eyðilagði rándýrt listaverk Listaverk sem metið var á tæpar 130 milljónir króna varð hreingerningargleði starfsmanns listasafns að bráð þegar hann tók málningu fyrir óhreinindi og skrúbbaði hana sómasamlega af verkinu. Verkið var nefnt "Þegar þakið fer að leka" og var eftir samtímalistamanninn Martin Kippenberger. Það var til sýningar á Ostwall safninu í Dortmund. Verkið var einhvers konar gúmmí-trog eða ílát undir viðarvegg. Á trogið höfðu verið málaðar skellur sem áttu að líkjast vatnsblettum. Starfsmaður safnsins rak augun í blettina, hélt þá raunverulegar vatnsskemmdir eða óhreinindi og nuddaði þá af. Nú er að sögn ómögulegt að koma verkinu í fyrra horf eða lagfæra skemmdirnar. 6.11.2011 20:48
Vefsíður hrynja í Ísrael Opinberar vefsíður í Ísrael hrundu í dag. Meðal annars lokaðist síða leyniþjónustunnar Mossad, talsmanns hersins og nokkurra ráðuneyta. Stjórnvöld í Ísrael hafa vísað því á bug að um árás sé að ræða, en margir höfðu spurt sig hvort stuðningsmenn Palestínu ættu sök á hruninu. Stjórnvöld segja að aðeins sé um umfangsmikla tæknilega galla að ræða. Verkalýðsfélög höfðu tilkynnt fyrirhuguð verkföll í landinu. Þau eiga að hefjast á morgun klukkan sex að staðartíma. Verkföllin munu valda því að samgöngur landsins lamast, flugvöllur lokast og fleira. Ekki hefur neitt komið fram um að hrunið á vefsíðunum tengist verkfallinu á nokkurn hátt. 6.11.2011 20:21
Google biðst afsökunar á klúðri Síðasta vika var fremur illa heppnuð hjá tæknirisanum Google. Á miðvikudaginn var birtu þeir ofangreinda tilkynningu á twittersíðu sinni. Ástæðan var póstforritið gmail, sem Google höfðu hannað fyrir stýrikerfi Apple og sent frá sér í vikunni. Og ekki nóg með það, heldur sendi Google einnig frá sér uppfærða útgáfu af Google Reader í vikunni. Því var beinlínis lýst sem "hörmungum". 6.11.2011 18:07
Ekki lagaheimild til að leigja makrílkvóta Bjarni Harðarson upplýsingafulltrúi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins telur grein Magnúsar Orra Schram frá því í gær ómaklega. Í greininni sakar Magnús stjórnvöld um að hafa misst af tekjum upp á 6 milljarða þegar þeir úthlutuðu makrílkvóta án þess að rukka gjald fyrir. "Það er alveg ljóst að ráðherra hefur ekki lagaheimild til að innheimta sérstakt gjald eins og Magnús Orri Schram leggur til," segir Bjarni og bætir við að síðan Íslendingar byrjuðu stórfellda makrílveiði hafi ekki komið fram sérstakar tillögur á Alþingi um að farið væri í slíka gjaldtöku fyrir makríl. Nú sé enda í gangi heildarendurskoðun fiskveiðistjórnunarkerfisins. 6.11.2011 16:58
Barist um rjómakökur og jólaskraut Hringskonur héldu í dag sinn árlega jólabasar en hann er afrakstur ársvinnu félagskvenna og helst fjáröflun Hringsins. Það varð uppi fótur og fit þegar basarinn var opnaður og barist um rjómakökur og jólaskraut. Jólabasar Hringsins er ómissandi þáttur í undirbúningi jólanna en Hringskonur hefja undirbúning í janúar og hittast vikulega allt árið til að föndra, sauma og prjóna. Það voru þó nokkrir búnir að safnast saman fyrir utan salinn á Grand Hótel í dag áður en basarinn opnaði til að vera viss um að næla sér í sína uppáhaldshluti. 6.11.2011 22:30
Risageit IKEA risin Ikea á Íslandi hefur reist rúmlega sex metra háu sænsku jólageitina Jevle en geitin er algengt jólaskraut í Svíðþjóð. Hún er reist á aðaltorgi bæjarins Jevle í upphafi aðventu, ár hvert. Örlög íslensku geitarinnar urðu þau sömu í fyrra og þeirrar sænsku hafa oft orðið í gegnum tíðina, en Brennivargar brenndu hana til grunna. Stjórnendur Ikea á Íslandi segjast hins vegar ekki óttast að það sama gerist í ár. 6.11.2011 22:30
Upprennandi hljóðfærasnillingar fluttu Mahler Ungir og efnilegir hljóðfæraleikarar fengu að láta ljós sitt skína í dag á árlegum tónleikum ungsveitar Sinfóníuhljómsveitarinnar. Ungsveitin er ungliðasveit Sinfóníuhljómsveitarinnar og þurfa unmenni úr tónlistarskólum landsins þurfa að standast prufuspil og æfa síðan í nokkrar vikur fram að tónleikum. Krakkarnir voru að undirbúa sig fyrir tónleikana þegar fréttastofa leit við í dag og 6.11.2011 22:00
Fornar gersemar á heimilum landsins Þjóðminjasafnið bauð í dag almenningi að koma með gamla gripi til greiningar hjá sérfræðingum safnsins. Greiningardagurinn var vel sóttur og komu þar margir góðir gripir í ljós. Til dæmis mátti sjá silfur súpuskeið frá átjánhundruð fjörutiu og fimm, útskorna taflmenn frá nítjándu öld og gamlan stokk sem áður geymdi barnaleikföng. Safnið segir greiningardaga bæði fróðlega fyrir gesti safnsins sem og starfsfólk. Með því gefist tækifæri til að sjá marga og áhugaverða gripi sem leynist á heimilum landsins. 6.11.2011 21:30
Íslendingur flækist inn í vörumerkjadeilu Apple Tæknirisinn Apple hefur hótað því að fara í mál við barnakaffihús í Þýskalandi þar sem forsvarsmönnum Apple þóttu vörumerkin vera of lík. Kaffihúsaeigandi í Reykjavík segir vörumerkið hins vegar sláandi líkt sínu. Barnakaffihúsið Apfelkind var opnað í Bonn í vor. Eigandinn sótti um einkaleyfi á vörumerkinu og leið ekki nema mánuður þar til Apple lét frá sér heyra. 6.11.2011 21:00
Urðu fyrir þrýstingi stjórnmálamanna Stjórnmálamenn reyndu ítrekað að hafa áhrif á fréttaflutning fréttastofu Stöðvar 2 á fyrstu árum stöðvarinnar. Ráðherrar beittu sér fyrir því að einstakir fréttamenn yrðu reknir fyrir óþægilegan fréttaflutning. Þetta kemur fram í þættinum Ljósvakavíkingar sem sýndur verður í opinni dagskrá strax á eftir fréttum í kvöld. Í þættinum sem gerður er í tilefni af 25 ára afmæli Stöðvar 2 er meðal annars rætt við þá Jón Óttar Ragnarsson og Hans Kristján Árnason stofnefnur Stöðvar 2 um fyrstu ár fréttastofunnar og þann titring sem hún olli sérstaklega á meðal stjórnmálamanna sem margir hverjir vildu hafa áhrif á störf hennar og stefnu. 6.11.2011 20:30
Herjólfur siglir frá Þorlákshöfn á morgun Herjólfur mun sigla til Þorlákshafnar mánudaginn 7. nóv. sökum þess að ölduspá fyrir Landeyjahöfn er óhagstæð. Gert er ráð fyrir því að siglt verði frá Vestmannaeyjum kl 8:00 og 15:30 og frá Þorlákshöfn kl 11:45 og 19:15. Athygli er þó vakin á því að aðstæður geti breyst hratt og við þeim verður brugðist. Verði einhverjar breytingar á áætlun verða þær tilkynntar á morgun. Farþegar eru vinsamlega beðnir að fylgjast með fréttum á herjolfur.is, facebook síðu Herjólfs og síðu 415 í Textavarpi. 6.11.2011 20:09
Krefjast snjóframleiðslu í Bláfjöll Skíðaráð Reykjavíkur hefur skorað á Reykjavíkurborg, ÍTR og þau stjórnvöld önnur sem koma að rekstri skíðasvæða borgarinnar að koma strax upp snjóframleiðslukerfi. Ráðið segir almenning orðið langþreyttan á því að ekki sé búið að koma upp snjóframleiðslukerfum á skíðasvæðum í Bláfjöllum og Skálafelli og bendir á að skíðafólki sé stórlega mismunað í samanburði við aðrar íþróttagreinar þegar kemur að uppbyggingu á íþróttamannvirkjum. 6.11.2011 20:04
Ánægð með þrjátíu ára stjórnmálaferil Ingibjörg Sólrún Gísladóttir segist sátt við þrjátíu ára feril sinn í stjórnmálum þegar hún horfir yfir farinn veg, en á morgun heldur hún utan til New York og þaðan til Kabúl þar sem hún verður yfirmaður jafnréttisstofnunar Sameinuðu þjóðanna í Afganistan. Ingibjörg Sólrún fyrrverandi utanríkisráðherra heldur utan til New York á morgun og mun í næstunni funda með starfsfólki Sameinuðu þjóðanna. Hún mun svo um næstu helgi flytja til Kabúl, þar sem hún verður yfirmaður jafnréttisstofnunar UN Women í Afganistan. 6.11.2011 19:30
Búið að lagfæra fjarskiptakerfið Viðgerð er lokið á bilun sem kom upp í stofnkefi Mílu á norðausturlandi fyrr í dag. Um bilun í örbylgjubúnaði var að ræða. Því er nú fjarskiptasamband komið á á svæðinu, en helst urðu íbúar Kópaskers og Raufarhafnar orðið fyrir barðinu á biluninni. 6.11.2011 19:03
Skuggaleg aukning á sölu lyfja Sala á tauga og geðlyfjum hefur þrefaldast á síðustu tveimur áratugum en heimilislæknir óttast að það sé of auðvelt að endurnýja lyfseðla. Svefnlyfin nái aldrei að hreinsast alveg úr líkamanum daginn eftir og valdi oft truflaðri hugsun sem geti reynst hættulegt. Íslendingar nota tæplega helmingi meira af tauga og geðlyfjum en Svíar samkvæmt nýlegri skýrslu velferðarráðuneytisins. Þá eru þessi lyf meira en fjórðungur af lyfjakostnaði hér á landi og hefur sala á þeim þrefaldast á síðustu tveimur áratugum þar með talið sala á svefnlyfjum. 6.11.2011 18:48
Alma ekki með stýrisblað Kafarar frá Fáskrúðsfirði athuguðu flutningaskipið Ölmu í dag og í ljós kom að stýrisblað skipsins vantar með öllu. Það hefur að öllum líkindum dottið af þegar skipið var að sigla burt frá Hornafjarðarhöfn í fyrri nótt. Garðar Jóhannsson, framkvæmdastjóri Nesskipa, sem er umboðsaðili Ölmu hér á landi, segir það ráðist eftir helgi hvert framhaldið verður. 6.11.2011 18:30
Hálkublettir víða á fjallvegum Spáð er éljum á fjallvegum suðvestan- og vestanlands í kvöld og nótt, en slydduéljum á láglendi. Undir morgun er hætt við ísingu á vegum, einkum á Suðurlandsundirlendinu, höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum. En einnig í Borgarfirði, Dölum, við Breiðafjörð og á sunnanverðum Vestfjörðum. Hálkublettir eru víða á fjallvegum. Krapasnjór er á Möðrudalsöræfum á Austurlandi. 6.11.2011 18:19
Stærsti jarðskjálfti í sögu Oklahoma Stærsti jarðskjálfti í sögu Oklahoma skók ríkið í gær. Jarðskjálftinn var 5,6 á richter og varð í um 70 km fjarlægð frá Oklahoma borg. Tilkynnt hefur verið um nokkuð eignartjón, en ekkert mannfall varð svo vitað sé. Þó voru nokkrir sendir á sjúkrahús með minniháttar áverka. Skjálftinn er sá öflugasti í sögu ríkisins Oklahoma, samkvæmt frétt The Daily mail. Hann varð síðastliðna nótt og varði í rúmar 30 sekúndur. „Þetta var temmilega góður hnykkur. Við erum ekki vön þessu. Við erum bara vön því að fjúka upp í stormi," sagði JL Gilbert, sem býr aðeins fáeinum kílómetrum frá upptökum skjálftans. 6.11.2011 17:26
Gámur fauk út á haf - myndband Gámur fauk á haf út í óveðrinu á Stöðvarfirði í morgun. Um er að ræða 40 feta frystigám. Björgvin Valur Guðmundsson, íbúi á Stöðvarfirði náði atvikinu á myndband. Myndbandið má nálgast á þessari síðu: http://vimeo.com/31675022 Gámurinn fýkur eftir rúma eina mínútu og tíu sekúndur af myndbandinu. 6.11.2011 16:26
Ánægja með fundaferð Hönnu Birnu Hanna Birna Kristjánsdóttir átti fund með flokksmönnum sínum á Ísafirði í gær. Fundurinn er upphaf fundaferðar þar sem Hanna Birna ætlar sér að ferðast um landið og ræða um framboð sitt til formanns Sjálfstæðisflokksins við flokksmenn sína. Halldór Halldórsson, fyrrverandi bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar skipulagði fundinn. Hann sagði fólk almennt mjög ánægt með fundinn. "Það sem stóð helst uppúr hjá fólki eftir fundinn var hversu vel Hanna Birna var inni í málum," sagði Halldór og bætti við að fólk teldið það mikinn styrk fyrir flokkinn að fá að velja milli tveggja glæsilegra formannsefna. Halldór er sjálfur stuðningsmaður Hönnu Birnu. 6.11.2011 16:14
Siglt verður frá Landeyjahöfn Herjólfur siglir þriðju og síðustu ferð dagsins til Landeyjahafnar. Ákveðið hefur verið að sigla þriðju og síðustu ferð Herjólfs frá Eyjum kl 15:30 til Landeyjahafnar. Áætluð brottför frá Landeyjahöfn er kl. 19:00 í kvöld. 6.11.2011 15:36
TF-LÍF sækir slasaðan sjómann Þyrla Landhelgisgæslunnar TF-LÍF er nú á leið að sækja slasaðan skipverja út í skip sem statt er vestan við Vestmannaeyjar. Gæslunni barst aðstoðarbeiðni frá flutningaskipinu Brúarfossi laust eftir klukkan tvö í dag. Þyrlan sem var á leið til Reykjavíkur eftir að hafa tekið þátt í björgunaraðgerðum á flutningaskipinu Ölmu í gær, gerði lykkju á leið sína og mun nú sækja manninn og flytja hann til Reykjavíkur. Reiknað er með að hún komi um fjögur leytið til borgarinnar. 6.11.2011 15:33
150 látnir í Nígeríu - fleiri árásum lofað 150 manns hið minnsta létu lífið í sprengjuárásum í Nígeríu í gær samkvæmt heimildum Sky fréttastofunnar. Róttækir múslimar, sem ganga undir nafninu Boko Haram, hafa gengist við ábyrgð á verkunum. Talsmaður Rauða Krossins sagðist í dag búast við því að enn fleiri hefðu látist en nú er talið. 6.11.2011 14:22
Truflanir á fjarskiptasambandi á Norð-Austurlandi Bilun kom upp á stofnkerfi Mílu á Norð-Austurlandi. Undirbúningur að viðgerð er hafinn. Ekki er enn vitað nákvæmlega í hverju bilunin felst, en bilanagreining stendur yfir. Bilunin mun bitna á fjarskiptasambandi á svæðinu, jafnt farsímum sem heimasímum, enda selur Míla þjónustu sína til fyrirtækja eins og Vodafone og Símans, sem selja svo þjónustuna áfram. 6.11.2011 13:57
Hlýnun jarðar hamlar framförum Sameinuðu þjóðirnar hafa sent frá sér hina árlegu þróunarskýrslu, sem að venju er mikill fróðleiksbrunnur um ástand og lífskjör í löndum heims. Umhverfismál eru meginviðfangsefni skýrslunnar í ár. Guðsteinn Bjarnason kynnti sér innihald hennar. Undanfarin tuttugu ár hefur þróunarskýrslan skapað umræður og haft margvísleg áhrif víða um heim," segir Khalid Malik, sviðsstjóri þróunarskýrslusviðs Sameinuðu þjóðanna. Undanfarin tuttugu ár hefur þróunarskýrslan skapað umræður og haft margvísleg áhrif víða um heim," segir Khalid Malik, sviðsstjóri þróunarskýrslusviðs Sameinuðu þjóðanna.Hann segir útgangspunkt skýrslugerðarinnar frá upphafi hafa verið þann, að hin raunverulega auðlegð þjóðanna sé fólkið í hverju landi fyrir sig. Þjóðarframleiðsla eða þjóðartekjur séu ekki besti mælikvarðinn á lífskjör fólks, heldur hafa þættir á borð við menntun og heilsufar verið teknir inn í myndina. 6.11.2011 13:37
Hetjudáðir drýgðar við björgunarstörf Justine Greening, samgöngumálaráðherra Bretlands, segir slökkviliðið og lögregluna í Somerset-sýslu hafa drýgt hetjudáð í gær þegar eldar voru slökktir og fólki bjargað úr brennandi bílflökum eftir að þrjátíu og fjórir bílar lentu saman í árekstri. Sjö eru látnir og fimmtíu og einn var færður til aðhlynningar á sjúkrahúsi. Lögreglan hefur nú staðfest að ólíklegt sé að tala látinna kunni að hækka en búið að er fjarlægja flest bílflökin af veginum. M5 hraðbrautin verður hins vegar ekki opnuð fyrir umferð í dag. Ráðherrann segir að nú verði að grípa til aðgerða til að minnka líkurnar á svona slys verði aftur. 6.11.2011 13:30
Leita að rödd Benedikts Gröndal Bókaútgáfan Crymogea leitar nú að karlmanni sem gæti túlkað rödd Benedikts Gröndal. Sá sem fyrir valinu verður mun lesa lýsingar Benedikts á íslenskum fuglum. Hugmyndin er sú að upptökurnar verði notaðar sem viðbót sem fylgi með stafrænni útgáfu af einu helsta verki hans, Íslenskum fuglum. Þá verður hún einnig notuð í auglýsingar. 6.11.2011 13:26
Tryggvi Þór spyr hver tilgangurinn sé með framboði Hönnu Birnu Tryggvi Þór Herbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi, spyr hver tilgangurinn sé með framboði Hönnu Birnu Kristjánsdóttur í embætti formanns Sjálfstæðisflokksins og segir að sagan sýnir að hún geti ekki náð betri árangri í kosningum en sitjandi formaður. 6.11.2011 13:13
Vignir fljótastur íslenskra "járnkarla“ Tólf Íslendingar luku í gær heilum Járnkarli eða Ironman í Florida í Bandaríkjunum. Ekki tókst að slá Íslandsmet en gríðarleg íslensk stemmning myndaðist við endamarkið. Vignir Þór Sverrisson var fyrstur Íslendinganna í mark á 9 klst og 37 mín eftir að hafa lokið 3,8 kílómetra sjósundi, 180 kílómetrum á hjóli og heilu maraþoni eða 42,2 kílómetrum hlaupandi. 6.11.2011 12:59
Jólabasar á Grand Hótel Hinn árlegi jólabasar Hringsins verður haldinn á Grand Hóteli í dag. Jólabasarinn er afrakstur ársvinnu félagskvenna en Hringskonur hefja ávallt undirbúning í janúar og hittast svo vikulega allt árið til að föndra, sauma og prjóna. Allur ágóði rennur til góðra málefna Hringsins. Basarinn hefst klukkan 13 en þar verða til sölu hannyrðir, jólaskraut, jólakort og kökur að hætti Hringskvenna. 6.11.2011 12:52
Deilurnar um Þorláksbúð að leysast Kirkjuráð hefur ákveðið að gera engar athugasemdir við endurbyggingu fornaldarkirkjunnar Þorláksbúðar í Skálholti en staðsetning kirkjunnar hefur verið gagnrýnd. Biskup sat hjá við afgreiðslu málsins. Málið hefur átt sér langan aðdraganda en síðasta sumar var ráðist í framkvæmdir við að endurhlaða Þorláksbúð kennda við Þorlák biskup helga. Það er Þorláksbúðarfélagið undir forystu Árna Johnsen sem stendur fyrir framkvæmdunum og var það mikið hugðarefni séra Sigurðar heitins Sigurðarsonar fyrrum vígslubiskups í Skálholti. Í sumar kom hins vegar fram gagnrýni á framkvæmdina til dæmis hvað varðar staðsetningu hússins, það er nálægð við Skálholtskirkju en reisa á Þorláksbúð uppvið útvegg kirkjunnar. 6.11.2011 12:42
Herjólfur frá Landeyjahöfn Herjólfur sigldi til Landeyjahafnar í morgun og mun sigla frá Landeyjahöfn kl. 12:00 Nú hefur verið ákv. að sigla aðra ferð til Landeyjahafnar kl. 13:00 frá Eyjum og 14:00 frá Landeyjahöfn. Vegna ölduspár og dýpt í höfninni á háfjöru er óvíst um hvort þriðja og síðasta ferð dagsins verði til Landeyjahafnar. 6.11.2011 12:21